Morgunblaðið - 15.06.1990, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ iÞRornfí FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 1990
47
KNATTSPYRNA / HEIMSMEISTARAKEPPNIN A ITALIU
I RUDI Völler á markið, sem
hann réttilega gerði fyrir Vestur-
Þýskaland gegn Júgóslavíu, en
Andreas Brehme stóð fastur á því
að hann hefði skor-
að. Deilan leystist í
gær er þýska knatt-
spyrnusambandið
sendi FIFA skeyti
og staðfesti að Völler hefði skorað.
Orðrómur er um að áður hafi verið
fundað með leikmönnunum til að
komast að niðurstöðu, en málið er
úr sögunni.
■ HOLLENDINGAR tóku jafn-
teflinu gegn Egyptum illa. í Haar-
lem í Hollandi var sprengja
sprengd fyrir utan egypskan veit-
ingastað, en til allra lukku slasaðist
enginn.
1 EIGINKONUR tveggja
belgískra leikmanna, Preud’hom-
mes og De Wolfs, voru hætt komn-
ar fyrir leik Belga og Suður-
Kóreu, er rúta ók á bíl þeirra.
Bíllinn eyðilagðist, en konumar
voru heppnar að sleppa lifandi. Þær
gerðu betur, hoppuðu upp í næstu
lest og komust á völlinn í tíma,
ómeiddar.
M ÞRÁTT fyrir sigur Brasilíu
gegn Svíþjóð er brasilíski snilling-
urinn Pele ekki ánægður með sína
menn. „Svona varnarleikur hentar
ekki þjóð okkar," sagði Pele. „Ég
er ekki sammála því að það sé betra
að leika illa og vinna en leika vel
og tapa.“
■ ÞRÁTT fyrir þessa gagnrýni
er þjálfari Brasilíu, Sebastiao Laz-
aroni, ákveðinn í að halda sama
leikskipulagi gegn Kosta Ríka á
morgun og leggja góða áherslu á
varnarleikinn, minnugur hins
óvænta sigurs Kosta Ríka á Skot-
landi.
■ BORA Milutinovic, þjálfari
Kosta Ríka, er hvergi banginn fyr-
ir viðureignina við Brasiliumenn.
„Þetta verður erfiðara heldur en
leikurinn gegn Skotlandi, en Bras-
iliumenn hafa aðeins níu sterka
leikmenn á vellinum og það ætlum
við að nýta okkur," sagði Milut-
inovic án þess að vilja nefna þá tvo
sem hann taldi veiku hlekkina.
■ MARADONA viðurkennir að
dómarinn í leik Argentínu og Sov-
étmanna gert mistök í því að dæma
ekki vítaspyrnu á hann fyrir að
handleika boltann í vítateig. „Þetta
voru ósjálfráð viðbrögð hjá mér.
Hins vegar gera dómarar mistök
eins og aðrir og við hefðum líka
átt að fá víti þegar Caniggia fékk
olboga framan í sig í vítateig Sovét-
manna,“ segir Maradona. „Við
sigruðum verðskuldað og stálum
ekki neinu.“
ÚRSUT
FráJóni
Halldórí
Garðarssyni
ÍV-Þýskalandi
Knattspyrna
4. deild
A-riðill:
Snæfell—Reynir....................2:1
Rafn Rafnsson 2 — Gunnar Guðjónsson
Njarðvík—Emir.....................4:0
Halldór Ólafsson 2, Páll Þorsteinsson, Ing-
var Georgsson
B-riðill:
VíkingurÓ.—UMFA...................0:2
Hilmar Hákonarson, Viktor Viktorsson
Augnablik—Víkveiji............frestað
Hafnir-TBR........................4:0
Guðmundur F. Jónasson 2, Hallgrímur Sig-
urðsson, Þórir Einarsson
C-riðiIl:
Stokkseyri—Leiknir R..............1:7
Kjartan Bjömsson — Ragnar Baldursson
3, Jóhann Viðarsson 2, Heiðar Ómarsson 2
Arvakur—Hveragerði................2:1
Sæbjörn Guðmundsson, Örn Clausen —
Sævar Birgisson
F-riðill:
Sindri—Valur Rf...............frestað
Neisti D.—Hðttur..................0:5
— Haraldur Clausen 2, Haraldur Haralds-
son, Jóhann Sigurðsson, sjálfsmark
Austri E.-Huginn....... .........0:0
ítalir fóru sér að.
engu óðslega
Bandaríkjamenn ánægðir með 1:0 tap
Reuter
UM 70.000 áhorfendur á
Ólympíuleikvanginum í Róm
voru ekki ánægðir með frammi-
stöðu ítala gegn Bandaríkja-
mönnum ígærkvöldi. Heima-
menn voru í fyrsta gír allan
tímann, sköpuðu sér samt
nokkur marktækifæri, en unnu
aðeins 1:0. Sigur er sigur og
liðið er komið í 16 liða úrslit,
en Bandaríkjamenn, sem halda
næstu keppni, geta farið að
pakka saman og búa sig til
heimferðar.
jr
Ítalir léku með hangandi haus;
mark Giuseppe Giannini á 11.
mínútu nægði þeim, en áhorfendur
vildu fleiri mörk. Þeir sættu sig
ekki við það sem boðið var upp á
og létu sérstaklega í sér heyra þeg-
ar boltinn var sendur aftur á Zenga
markvörð eftir tilgangslaust spil.
Bandaríkjamenn voru ánægðir.
„Þetta var stórt skref fram á við,“
sagði Bob Gansler, þjálfari. „Þessi
leikur á eftir að kenna okkur
margt,“ bætti Meola, markvörður,
við.
Donadoni var eini leikmaður ít-
ala sem lék af eðlilegri getu, en
hann fór illa að ráði sínu eins og
aðrir í upplögðu færi. Ginaluca
Vialli fékk besta tækifærið, en
skaut í stöng úr vítaspyrnu. Azeglio
Vicini, þjálfari, var samt ánægður.
„Að mínu mati lékum við vel. Við
Fj. leikja U J T Mörk Stig
ÍTALÍA 2 2 0 0 2: 0
TÉKKÓSL. 1 1 0 0 5: 1 J
AUSTURRÍKI 1 0 0 1 0: 1
BANDARÍKIN 2 0 0 2 1:6
Giuseppa Giannini skorar fyrir Ítalíu gegn Bandaríkjunum efti rhælsend-
ingu frá Giuseppe Bergomi, fyrirliða. Michael Windischmann kemur engum
vörnum við.
„Vorum ekki tilbúnir
að fara strax heim“
- sagði Ivica Osim, þiálfari Júgóslavíu eftir 1:0 sigur gegn Kólumbíu
fengum tvö stig og það var tak-
markið." Fyrir leikinn minnti hann
á að „auðveidir" mótheijar væru
oft erfiðastir. „Þeir léku vel — það
var allt annað að sjá til þeirra nú
en gegn Tékkum.“
Ítalía og Bandaríkin hafa einu
sinni áður mæst í HM — á sanff*
velli í Róm 1934. Þá unnu heima-
menn 7:1 og stóðu uppi sem heims-
meistarar í lokin. Búist var við
ámóta yfirburðum að þessu sinni,
en reyndin varð önnur. „Þeir lokuðu
fyrir okkur á miðjunni, sem gerði
iað að verkum að við áttum í erfið-
leikum með að byggja upp spil og
skapa opin svæði," sagði Bergomi,
fyrirliði.
A-RIÐILL
ÍTALÍA- BANDARÍKIN......1:0
Ítalía—Bandarikin................1:0
Giuseppe Giannini (11.).
Áhorfendur: 73.423.
Kamerún—Rúmenía..................2:1
Roger Milla (76., 86.) - Gavril Balint (88.).
Áhorfendun 38.687.
Júgóslavía—Kólumbía............ 1:0
Davor Joic (73.).
Áhorfendur: 32.257.
DAVOR Jozic var hetja Júgó-
slavíu í gær, gerði eina markið
í leiknum gegn Kólumbíu og
Júgóslavar tóku gleði sína á ný.
Þeir urðu að sigra Kólumbíu til
að eiga raunhæfa möguleika á
sæti í 16 liða úrslitunum. „Við
vorum ekki tilbúnir að fara
strax heim,“ sagði Ivica Osim,
þjálfari, sigri hrósandi, eftir
leikinn.
Júgóslavar voru niðurlútir eftir
4:1 tapið gegn Vestur-Þjóðveij-
um og ljóst var að breytinga var
þörf. Osim varð að þétta vörnina
og laga sóknina. Hann gerði þijár
breytingar; Stanojkovic, Brnovic og
Sabanadzovic komu inn í staðinn
'fyrir Vulic, Baljic og framheijann
Savicevic.
Sænska liðið:
Brolin og
Ingesson
eflirsóttir
Sænsku landsliðstáningarnir Tom-
as Brolin (20 ára) og Klas Inges-
son (21 árs) eru umsetnir piltar.
Samkvæmt sænskum fjölmiðlum
eru flest stórlið í
Evrópu á höttunum
eftir undirskrift
þeirra félaga. Sérs-
taklega er skógar-
höggsmaðurinn Ingesson eftirsótt-
ur. Liverppool, QPR, Bayern Le-
verkusen og Mechelen vilja fá hann
til sín, en sjálfur segist hann spennt-
astur fyrir Englandi. Brolin er ekki
síður vinsæll, en Benfica, AC Milan
og Bayern Uerdingen vilja fá kap-
pann.
Þorsteinn
Gunnarsson
skrifar
frá Svíþjóö
„Það var allt annað að sjá til liðs-
ins,“ sagði þjálfarinn. „Þetta er lið,
sem spilar eins og það á að gera.
Gegn Þjóðverjum vorum við með
menn, sem eru ekki tilbúnir í svona
harðan slag.“
Júgóslavar áttu þó lengi á bratt-
ann að sækja, en markið var glæsi-
legt og þeir fengu gullið tækifæri
til að auka muninn undir lokin.
Sænska landsliðið:
Mats Magnusson
ekki meira með?
Sænski landsliðsframheijinn Mats Magnusson, sem leikur með
Benfica í Portúgal, hefur líklega spilað sinn fyrsta og síðasta leik
á HM. Hann fór meiddur af velli í hálfleik gegn Brasilíu, þegar göm-
ul meiðsl í nára tóku sig upp, og Nordin Jandsliðsþjálfari gagnrýndi
mjög frammistöðu leikmannsins, eða „hvítu rottunnar“ eins og Magnus-
son er kallaður í Portúgal. Hinn annare siðprúði Nordin sagði við
sænska Qölmiðla að Magnusson hefði ekki gert neitt af viti gegn
Brasilíu.
Talið er að Stefan Petereson frá Ajax taki stöðu Magnusson á
morgun gegn Skotum. Þá hefur þjóðarhetjan Johnny Ekström, sem
skaut Sviþjóð 'ii ítaliu með ævintýralegu marki gegn Póllandi, látið í
ljós vonbrigði i sænskum fjölmiðlum með að hafa ekki einu sinni feng-
ið að sitja á békknuiu gegn Brasiiíu. Hins vegar bendir allt til þess
að hann taki sæti sitt á bekknum á morgun, þar sem Magnusson er
úr Ieik í bili.
Markvörðurinn snjalli, Rene Higu-
ita, varði þá vítaspymu og þar við
sat.
„Stórttap
„Þetta var stórt tap,“ sagði Fran-
dsco Maturana, þjálfari Kólumbíu.
„í knattspyrnu er þér refsað fyrir
mistök — við sofnuðum á verðinum
og það kostaði okkur mark.“
B-RIÐILL
ARGENTÍNA - KAMERLIN..........0: 1
SOVETRiKIN RÚMENÍA............0:2
ARGENTINA SOVÉTRÍKIN..........2:0
KAMERÚN - RUMENÍA.............2:1
Fj.leikja U J T Mörk Stig
KAMERÚN 2 2 0 0 3: 1 4
RÚMENÍA 2 1 0 1 3:2 2
ARGENTiNA 2 1 0 1 2: 1 2
SOVÉTRÍKIN 2 0 0 2 0:4 0
D-RIÐILL
V-ÞÝSKALAND- JÚGÓSLAVÍA.......4:1
KOLOMBÍA - SAM’ARAB...........2:0
JÚGÓSLAVÍA- KOLOMBÍA..........1:0
Fj.leikja u J T Mörk Stig
V-ÞÝSKALAND1 1 0 0 4: 1 2
KOLOMBÍA 2 1 0 1 2:1 2
JÚGÓSLAVÍA 2 1 0 1 2:4 2
SAM’ARAB. 1 0 0 1 0: 2 0
■ DON Howe, fyrrum aðstoðar-
maður Robsons, Iandsliðsþjálfara
Englands, sendi félaga sínum tón-
inn eftir jafnteflið gegn írum. Hann
sagði að leikaðferð Englendinga
væri úrelt; varnarmennimir léku
aðeins í vörn og tækju ekki þátt L
sókninni. „Menn sáu að svona lagao' ‘
gekk ekki upp í Evrópukeppninni
og því síður þýðir að bjóða upp á
svona lagað í Heimsmeistara-
keppninni tveimur árum síðar.“
■ CLAUDIA Caniggia, sóknar-
maðurinn eldsnöggi í liði Arg-
entínumanna hefur verið iðinn við
að fækka í liðum andstæðinganna.
Caniggia hefur ekki enn skorað
fyrir Argentínumenn í keppninni,
en hins vegar hafa tveir Kamerún-
menn og einn Sovétmaður fengið
rauða spjaldið fyrir brot á Caniggia.
■ RUBEN Sosa, sá er misnotaði
vítaspyrnu fyrir Uruguay í marka-
lausu jafntefli gegn Spánveijum,
tekur því með jafnaðargeði: „Allii^
geta misnotað vítaspymu, þetta er
ekki heimsendir. Við skulum segja
að ég skori tvö mörk gegn Belgum
til þess að bæta fyrir þessi mistök,
ókay?!“
MJOHN Barnes, enski landsliðs-
maðurinn snjalli segir að Englend-
ingar eigi onn möguleika á að kom-
ast í úrsliialeikinn þrátt fyrir að
hafa valdið vonbrigðum með
frammistöðu sinni gegn írlandi.
„Af hveiju ekki,“ segir Barnes.
„Við höfum séð öll bestu liðin leika
og mörg þeirra hafa tapað eða alla
vega leikið hreinlega illa.“ *.
MSKOSKI þjálfarinn hrósaði sérs-
taklega hinum unga sóknarmanni
Tomas Brolin: „Það er eitthvað
yndislega sakleysislegt við hann.
Hvernig hann stóð að markinu gegn
Brasilíumönnum undiretrikar það
enn frekar. Margir reyndari leik-
menn hefðu frekar gefið boltamxár
þessari stöðu, en Brolin sneri varn-
armennina-afsérá frébæran hétt.“