Morgunblaðið - 20.06.1990, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 20.06.1990, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 1990 9 Macintosh námskeiö Word ritvinnsiunámskeiö hefst 25. júní Öflugt og skemmtilegt ritvinnsluforrit Tölvu- og verkfrœöiþjónustan - Grensásvegi 16 - 68 80 90 Láttu reglulegan sparnað verða að veruleika og pantaðu áskriít að i spariskírteinum ríkissjóðs Áskriftar- og þjónustusímar: 91-62 60 40 og 91-69 96 00 ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ RÍKISVERÐBRÉFA Þjónustumiðstöð ríkisvcrðbréfa, Hverflsgötu 6, 2. hæð. Sími 91-62 60 40 pforjpml>M>ll> Metsölublað á hverjum degi! Verðkerfi í sjávarútvegi Staksteinar gefa lesendum sínum í dag kost á því að kynnast sjónarmiðum Ás- geirs Jakobssonar um meint verðkerfi í sjávarútvegi og áhrif þeirra, en sjónarmið sín setur Ásgeir fram í forystugrein nýs Sjómannadagsþlaðs. Guðjón A. Kristjáns- son fjallar einnig um „deilurnar um fis- kverð“ í þessu sama blaði. Viðhorf hans verða tíunduð hér í þessum dálkum fljót- lega. Fullvinnsla eða bein- hreinsun Ásgeir Jakobsson seg- ir m.a. í forystugrein í nýju Sjómannadagsblaði sem hefur yfirskriftina „Lífenauðsyn - ekkert minna“: „Fiskveiðiþjóð þarf fiskvinnslu í landi sínu, og hana öfluga. Það er lífehagsmunamál fyrir þjóðina að fiskvinnslan í landinu verði arðbær. En það kemst ekki lag á okkar frystivinnslu nema að sjómenn setji hnefann i borðið og heimti íslenzka fiskvinnslu, sem geti greitt markaðsverð fyrir fisk og gott kaup í vinnslunni. Nú eru allar aðstæður hagstæðar breytingum til fullvinnslu fisks á neyt- endaborð, en á því vinnslustigi fæst ágóðinn, en aldrei á gamla beina- hreinsunarstiginu. Ef sjómenn þrýsta ekki á vinnslukerfið með kröf- ur sínar um markaðsverð á fiski, helzt sleifarlagið. Það er ekki fjandskap- ur við fiskvinnslufólk að krefjast arðbærari vinnslu. Þvert á móti, þess heldur geta fyrir- tækin greitt hærra kaup, en það hefur verið eins um það og fiskverðið að fiskvinnslufólk er á lág- rnarkskaupi. Það á ekki að vernda fiskvinnsluna til að þjakka í gömlu fari með lág laun og lágt fisk- verð.“ Kreppan og höftin Síðan segir Ásgeir Jakobsson i Sjómanna- dagsblaðinu: „Sjómannastétt sú, sem alin var upp i krepp- unni, og lifað hafði undir þeim viðjum og höftum, sem menn töldu sér trú rnn að nauðsynleg væru, og mundu fiskvinnsluna sem bjargvætt á hallær- istima og þorskastríðum, tóku ekki í mál að hrófla við kerfinu. Svo varð fisk- vinnslan dragbítur á fisk- veiðamar. Þegar Guðmundur Jörundsson flutti 1960 erindi, þar sem hann benti á þá staðreynd að markaðsverð í Englandi væri kr. 7.- að meðaltali á þeim fisktegundum, sem við veiddum mest af, en kr. 2,32 hér heima, þá hrukku sárafair við. Þegar ég fór að kyiuia mér þessi mál tiu árum síðar, var ástandið hið sama, verðlagsráð skaff- aði fiskvinnslunni fiskinn á þriðjungi eða þegar bezt lét helmingi mark- aðsverðs. Það var að beija höfð- inu við steininn að halda því fi-am að frystivinnsla okkar væri óhagkvæm, og sú verðmætaaukning, sem menn héldu vera, byggðist á því að kaupa fiskinn á hálfvirði eða minna. Þannig „tvöfald- aðist“ verðmætið í vinnsl- unni ár eftir ár var flutt með andakt í útvarpi og feitletrað í blöðum: Frystiiðnaðurinn hefur aukið útflutningsverð- mæti fisks um 100% (stundum 120%).“ Hoppað í haft- inu Ásgeir Jakobsson lýk- ur hugleiðingum sinum um verðlagskerfi stjórn- valda í sjávarútvegi með þessum orðum: „Meðan almenningur trúði þessu og reyndar sjómannastéttin þýddi ekkert nöldur úr einum og einum manni. Það þurfti nýja kyn- slóð sjómanna til að sjá í gegnum blekkingarvef- inn og ijúfa kerfið. En Adam var ekki lengi í Paradís. Það tók stjórnvöld ekki nema tvö ár eða svo að finna ráð til að koma á nýjum viðj- um. Og það var, að í stað verðákvörðunar stjóm- valda, skyldu meim sekt- aðir með aflaskerðingu fyrir að selja fisk á beztu markaðina. Það er allt útlit fyrir að sú sjó- mannastétt, sem sprengdi verðlagskerfi stjómvalda, ætli að sætta sig við þetta nýja kerfi, og þá verður gangurinn sá, eins og undir öllum kerfiun, að kerfið verður sifellt flóknara, og viðj- araar þrauthugsaðar og barátta manna tekur að beinast að því að komast fram hjá kerfinu, en ekki að losa sig við það. Menn vepjast nefnilega viðjum, og fara að hoppa i haft- inu, í stað þess að slíta það. Menn hafa sætt sig við aflakvóta Hafrannsóknar og útdeilingarkvóta LIU og sjávarútvegsráð- herra, og menn sætta sig við hömlur á útflutningi fisks. Og allt verður þetta langlíft, það verður ekki fyrr en með nýrri kyn- slóð að ráðist verði gegn þessum kerfum. Sú kyn- slóð sem kom þeim á, rýfur þau ekki, heldur festst í kerfinu. Það er mirni spádóm- ur.“ ALMENNUR LÍFEYRISSJÓÐUR VÍB Þitt framlag Þín eign Hjá Almennum lífeyrissjóði VIB eru iðgjöld hvers sjóðsfélaga færð á sérreikning hans. Inneignin erfist og ársfjórðungslega eru send yfirlit um stöðu. Hver sem er getur gerst félagi í Almennum lífeyrissjóði VIB. Þeir sem ekki eru skyldugir til að greiða í annan lífeyrissjóð geta greitt öll sín iðgjöld í ALVÍB, aðrir geta greitt viðbótariðgjöld. Sá sem greiðir 15.000 krónur á mánuði í 20 ár inn á sérreikning sinn getur haft 67.500 krónur á mánuði í lífeyri í 15 ár, ef vextir eru 7% og gengið er jafnt og þétt á höfuðstól. Verið velkomin í VÍB. VlB VERÐBRÉFAMARKAÐURÍSLANDSBANKA HF Ármúla 13a, 108 Reykjavik. Sími 68 15 30. Póstfax 68 15 26

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.