Morgunblaðið - 02.09.1990, Side 11

Morgunblaðið - 02.09.1990, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. SEPTEMBER 1990 C 11 Trúarvakning: Marx víkur fyrir Múhameð. Óleyfilegu blaði dreift: öflugar neð- anjarðarhreyfíngar. Ólgan breiðist út: Tadsjíki og hermenn í Dúsjanbe. Ogly: ný valdastétt. heldur leiðir. Eins konar samvinna hafi tekizt við Asjarum sjálfshjálp. Reynt hefur verið að leysa tungn- máladeilur með lögum um að þjóð- tungurnar séu jafnréttháar rúss- nesku, en umburðarlyndi yfírvalda virðist takmarkað. í Úzbekistan hafa útifundir verið bannaðir og stuðningsmönnum Bírlík hefur verið refsað, m.a. með brottrekstri nem- enda. I Kirgizíu var fyrrum leiðtogi Asjar sakaður um fjárdrátt og rann- sókn hafin í máli hans, en dómur ekki kveðinn upp. Einkafyrirtæki hafa verið neydd til að hætta rekstri. Bírlík hefur klofnað og stofnaður hefur verið nýr flokkur, Erk (Frelsi), undir forystu annars skálds, Erkíns Vladíkhovs. Síðan hefur annar flokkur bætzt við, Islamski flokkur- inn, sem hvetur til stofnunar sjálf- stæðs ríkjasambands islamskra Mið-Asíulýðvelda. Fylgi hans eykst og fullyrt er að afghönsku skæru- liðaleiðtogarnir Gulbaddin Hek- matyar og Ahmed Shah Masud reyni að ná tangarhaldi á honum. „Ef til vill tekst okkur að þrauka og stofna stjómmálasamtök, ef við komumst hjá árekstrum við yfir- völdin og flokkinn," segir Kodjobaev Adílbek Karaevitsj, núverandi leið- togi Asjar. Nokkur helztu baráttu- mál samtakanna nú eru efling kirgízkrar menningar, takmarkanir á innflutningi fólks, efnahagsleg sjálfstjórn og fyllri vitneskja um kúgun Rússa. Beinn þrýstingur frá þjóðernis- sinnum virðist hafa dvínað, en til- slakanir kommúnistaflokka Mið- Asíu kunna að bera vott um veik- leika. Víst er að Rússar eru ugg- andi um sinn hag og óttast að þjóð- ernisólgan geti leitt til uppreisna gegn aðkomufólki. Rússar hræddir í desember 1986 brutust út óeirð- ir í Alma Ata, þegar Rússi var skip- aður flokksleiðtogi í Kazakstan. Síðan hefur verið veitzt að innflytj- endum frá Kákasus, aðallega tyrkn- esku fólki frá Mesket-héraði í Ge- orgíu, sem Stalín flæmdi þaðan. Uppþot gegn Tyrkjum blossuðu upp í Tasjkent í janúar 1988, í Fergana- dal um sama leyti og í fyrrasumar og í Talgar í Kazakstan í febrúar. Alvarlegustu óeirðirnar urðu í Tadsjíkistan í febrúar. Orsökin var orðrómur um að Armenar á flótta frá Azerbajdzhan eftir óeirðirnar þar væru komnir til Dúsjanbe. Þijátíu féllu og sögusagnir mögnuðu tortryggni á báða bóga. Fullyrt var að Armenar yrðu látnir ganga fyrir með húsnæði, þótt margir Tadsjíkar svæfu í tjöldum eftir jarðskjálfta. Rússum var sagt að morð á heiðingj- um væru yfirvofandi. Búrí Karímov, yfirmaður efna- hagsmála, reyndi að nota ókyrrðina til að ná völdunum af Kakhar Makh- amov aðalritara, en var borinn ofur- liði á miðstjórnarfundi. Nokkur þús- und hermenn urðu um kyrrt í Dúsj- anbe og vestrænum ferðamönnum var bannað að fara til Tadsjíkistans. Yfirvöldin reyndu að snúa vörn í sókn. í Dúsjanbe voru skipulagðir vopnaðir varðflokkar „sjálfboða- liða“. Æskulýðshreyfingin Koms- omol kom til liðs við tilraun fyrrver- andi hermanna í samtökunum Rod- ina (Föðurland) til að efla „alþjóð- legt gildismat“ ungs fólks með hern- aðarþjálfun og útilífi. Sumir Rússar búsettir í Mið-Asíu reyna að koma til móts við heima- menn, m.a. með því að læra tungu- mál þeirra, en þeir eru yfirleitt hræddir. Flestir þeirra mundu fara heim til Rússlands, ef þeir fengju atvinnu og húsnæði. Gyðingar hafa streymt frá Bokhara til Israels og Volgu-Þjóðveijar frá Alma Ata til Vestur-Þýzkalands. Moskur spretta upp Rússar óttast ekki síður hina miklu islömsku trúarvakningu, sem fylgir þjóðarvakningunni. Mikil um- skipti hafa orðið á högum múham- eðstrúarmanna á nokkrum mánuð- um. Unnið er að því að endurreisa margar moskur og fjöldi nýrra er í smíðum. Trúarathafnir fara fram fyrir opnum tjöldum og aðsókn að trúarlegum menntastofnunum hefur aukizt. Nú stunda 125 stúdentar nám við 500 ára gamlan klerkaskóla í Bokhara, andlegri höfuðborg Mið- Asíu. Fleiri trúarbragðaskólar verða opnaðir. Eitt sinn voru 113 slíkir skólar og 360 moskur í Bokhara, en síðan 1917 hafa aðeins þijár moskur fengið að starfa þar. Fyrri hluta þessa árs voru 14 nýjar mosk- ur opnaðar og trúaðir flykkjast að gröfum helgra manna. Nokkur hundruð pílagrímar frá Mið-Asíu fara til Mekka í ár, fleiri en nokkru sinni síðan 1917. Eftir- spurn eftir Kóraninum hefur aukizt, en skortur er á honum. Saudi-Arab- ar munu hafa sent eina milljón ein- taka til Tasjkent, en þeim hefur ekki verið dreift. Almenningur vill lesa þýðingar á Kóraninum og unn- ið er að því að þýða hann. Staða múhameðstrúarmanna í Mið-Asíu styrktist þegar illa þokk- aður mufti þeirra í Tasjkent var settur af eftir friðsamleg mótmæli í febiúar 1989. Eftirmaður hans, Múhammeð Sadeq Mamajúsupov, vinnur að eflingu trúarbragðastofn- ana og hefur fengið veraldleg yfir völd til að láta af hendi helga staði og minjar. „Á hveijum degi rís ný moska og þær eru orðnar 30 í Tasjk- ent einni,“ segir Sadeq, sem hefur átt sex fundi með Gorbatsjov á einu ári. Um síðustu áramót lét af störfum hlýðið trúarráð í Tasjkent, sem hafði farið með yfirstjórn islamskra tiú- mála í Sovétríkjunum. Um leið lét metnaðargjarn trúarleiðtogi (qasí) í Alma Ata, Radbek Nísanbaj, kjósa sig „stór-múfta“ Kazakstans og setti á fót sjálfstætt trúarráð. Hann hefur treyst völd sín með stuðningi við hreyfingar kjarnorkuandstæð- inga og umhverfisverndarsinna í Kazakstan. Hörð samkeppni ríkir milli hans og Sadeqs, ekki sízt í neðanjarðarhreyfingum múhameðs- trúarmanna. Ótti við bókstafstrú Tiúarleg leiðsögn múhameðstrú- armanna er í höndum klerka eins og Khezret Khuly Khan Ogly, im- ams í Asjkhabad, sem stundaði byggingarvinnu og stjórnaði leyni- legum bænasamkomum þar til í fyrra. Hann og aðrir trúarleiðtogar miðla málum í deilum andstæðra hópa múhameðstrúarmanna og hann gætir þess að eiga vinsamlegt samband við túrkmenska flokkinn. Yfirmenn trúmála eru ekki lengur flokksþrælar og nýta sér nýfengin, pólitísk áhrif. Hingað til hafa þeir ekki ógnað flokknum, heldur hjálpað Gorbatsjov með því að halda bók- stafstrú í skefjum. Þeir eru óðum að verða ný, pólitísk valdastétt. Eftir óeirðirnar í Bakú í janúar varaði Gorbatsjov við „islamskri bókstafstrú". Rússar óttast að hún breiðist út um alla Mið-Asíu og að bein, pólitísk afskipti múhameðstrú- armanna hafi í för með sér heilagt stríð, jihad. Aukin sjálfstjórn í stjórnmálum og menningarmálum hefur virzt eina ráðið til að koma í veg fyrir að islömsk trúaivakning leiði til þess að öflug stjórnmála- hreyfing myndist. Talið hefur verið að ef pólitískir og trúarlegir straumar sameinist muni það fyrst gerast í Fergana- dal, þar sem fólki af ýmsu þjóðerni ægir saman. Hundrað féllu þar í óeirðum í júní. Islamski flokkurinn virðist standa vel að vígi í dalnum, en hann er óskrifað blað. Slíkur samruni kynni líka að falla í góðan jarðveg hjá Tadsjíkum, sem eru skyldir fólki í Norður-Afghanist- an. KGB segir að afghanskir skæru- liðar, vestrænar leyniþjónustur og sú pakistanska hafí reynt að æsa til tiúarlegra uppreisna í Tadsjíkist- an. Samtyrkneska hugsjónin Bókstafstrú virtist ekki hafa mik- il áhrif í Sovétríkjunum á valdaárum Khomeinis í íran. Fyrr í ár opnuðu Azerar landamærin til að komast í samband við íranska trúbræður. Þeir virðast þó einkum sækjast eftir stuðningi frá Tyrklandi. Smygluð vopn frá íran hafa verið seld á svörtum markaði í bænum Merv, en aðallega eiturlyfjasölum. Ólögleg skotvopn eru algeng í Mið- Asíu, en í eigu glæpamanna, sem þjóna víðtæku „neðanjarðar-hag- kerfi“. Um 20 „mafíúr" munu starfa í Tasjkent einni. Árið 1921 skírskotaði Lenín til sameiningarhyggju þjóða, sem tala mál af tyrkneska málaflokknum. Það ár komst hann að samkomulagi við Enver pasja, sem hafði verið leiðtogi Tyrkjaveldis í fyrri heims- styijöldinni. Enver hét því að hjálpa Lenín að efna til uppreisnar í Sinki- ang í Kína og breiða hana út til Indlands, sem Bretar réðu. Rússar lofuðu að hjálpa Enver að ná aftur völdunum í Istanbul. Lenín sveik Enver og gekk til samvinnu við þáverandi leiðtoga Tyrkja, Kemal Átatúrk. Þá reyndi Enver að æsa tyrknesku þjóðirnar í Mið-Asíu til uppreisnar gegn sovézkum yfirráðum, en hann féll fyrir Rauða hernum í júlí 1922. Síðan hafa Rússar deilt og drottnað í Mið-Asíu. Tyrkir beindu sjónum sínum að Evrópu og samtyrkneska hugsjónin hefur ekki átt upp á pallborðið hjá þeim. Flokkur baráttumanna hug- sjónarinnar, Konukman-flokkurinn, stóð að ríkisstjórn 1975-1978, en hlaut aldrei meira en 5% fylgi. Flokkurinn var bannaður þegar einn stuðningsmanna hans, Mehmet Ali Agca, reyndi að myrða Jóhannes Pál páfa II í maí 1981. Margir Tyrkir kunna þó að gæla við þennan draum vegna þeirrar óvissu, sem ríkir. Eftir óeirðirnar í Baku var efnt tii mótmælaaðgerða í Tyrklandi og ráðherra ræddi möguleika á því að tyrkneskumæl- andi fólk í Sovétríkjunum og Kína stofnaði sérstök ríki. í apríl gerðu múhameðstrúarmenn í Sinkiang uppreisn og Kínveijar skelltu skuld- inni á eriqdreka útlagastjórnar „Austur-Túrkestans“, sem réð Sink- iang með stuðningi Rússa frá því um 1930 til 1949. „Auðvitað höfum við samúð með tyrkneskum þjóðum Sovétríkjanna," sagði tyrkneskur embættismaður nýlega, „en við stillum okkar um að hvetja til aðskilnaðar og stuðla að upplausn Sovétrikjanna".

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.