Morgunblaðið - 20.09.1990, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 20.09.1990, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1990 FULLOROIKSFRjEDSLAN Uppl. s. 71155 alla daga kl. 9-9 Með lögnm skal land byggja - eða hvað? HOPNAMSKEIÐIN „Byrjun frá byrjun" og „Áfram“ að hefjast! EINSTAKLINGAR - PÖR - FORELDRAR STARFSFÉLAGAR - FÉLÖG - FYRIRTÆKI Biðjið um kennslu og nám- skeið eftir eigin höfði! Verð eftir fjölda/ hóflegt verð. Kennsla á dag- og kvöldtímum alla daga fyrir einstaklinga, pör og smá- hópa. Helstu efni grunn- og framhalds- skóla o.fl. T.d. íslenska, réttritun, málfræði, stærðfræði grunnskóla, verslunarenska, símaenska, verslunarreikningur, verslunarbréf. RÍÓ TRÍÓ skemmtirföstudags- og laugardagskvöld kl. 23.00. KASKÓ ásamt söngkonunni Þurý Báru. Snyrtilegur klæðnaður. Miðaverð kr. 750,- Matargestir á Mongolia Barbecue fá frítt inn á dansleikinn. / október: Ingimar Eydal, Sveitin milli sanda, Mannakorn. GRENSÁSVEGI 7 - SÍMI 33311 eftir Svanhildi Kaaber Afstaða okkar íslendinga til þess hvernig menntakerfi við viljum byggja upp í landi okkar birtist í lögum og reglugerðum um skóla- starf. I markmiðsgreinum grunn- skólalaganna, sem sett voru 1974, er höfuðáhersla lögð á jafnrétti allra nemenda til náms og þroska. Þar er staðfest að íslenskur grunnskóli á að vera fyrir öll börn og að þau eigi að geta stundað grunnskóla- nám sér og foreldrum sínum að kostnaðarlausu. Full samstaða hef- ur verið um það viðhorf sem þarna kemur fram. Þó undanfarin ár hafi fjölmörg frumvörp verið flutt á Al- þingi um breytingar á grunnskóla- lögum hefur aldrei verið hróflað við þeirri jafnréttishugsjón sem í lögun- um birtist. Engin breyting þar á kemur heldur fram í því frumvarpi til grunnskólalaga sem væntanlega verður lagt fram á fyrstu starfsdög- um Alþingis nú í haust. Jafnrétti til náms Til að fullnægja því jafnrétti sem grunnskólalögin gera ráð fyrir er mikilvægt að allir nemendur, hvar sem þeir búa á landinu og hvernig sem efnahag foreldra þeirra er hátt- að eigi jafnan aðgang að góðum náms- og kennslugögnum og öðru þvíefni sem notað er í skólastarfi. í kjölfar þeirrar niðurstöðu sem umboðsmaður Alþingis hefur kom- ist að um námsbókakaup nemenda í grunnskólum og efnisgjöld sem innheimt eru í mörgum skólum hafa margir velt því fyrir sér hvort jafnréttishugsjón grunnskólalaga sé aðeins til í orði - ekki á borði. í rauninni er hér um tvö mál að ræða, þó vissulega séu þau greinar á sama meiði. Hvorki ríkið - né mörg sveitarféiaganna hafa staðið við skyldur sínar við skólana í landinu. Námsgagnastofnun Við Islendingar erum svo láns- amir að hér er það lagaskylda Námsgagnastofnunar að „sjá grunnskólum fyrir sem bestum og fullkomnustum náms- og kennslu- gögnum sem eru í samræmi við uppeldis- og kennslufræðileg mark- mið laga um grunnskóla og aðal- námskrár" eins og segir í lögum um stofnunina. í þessu efni stönd- um við feti framar en nágranna- þjóðir okkar sem við berum okkur gjarnan saman við, enda víðast hvar annars staðar hafður sá háttur á að námsbækur eru gefnar út af einkaforlögum. Lög um Náms- gagnastofnun hafa nýlega verið endurskoðuð og ný lög um hana samþykkt á síðasta ári. Engin breyting var gerð á þessu megin- markmiði stofnunarinnar við þá endurskoðun. Námsgagnastofnun fær fjár- magn til starfa sinna á ijárlögum ríkisins. Stofnuninni hefur ævinlega verið of þröngur stakkur skorinn til þess að hún geti sinnt til fulln- ustu lögbundnu hlutverki sínu. Þrátt fyrir það hefur hinna kennslu- fræðilegu sjónarmiða alltaf verið gætt og einnig fyllstu hagkvæmni í rekstri. Fjölmargir kennarar og aðrir sérfræðingar um skólastarf, s.s. starfsmenn Kennaraháskólans og menntamálaráðuneytisins tengj- ast starfí stofnunarinnar. Náms- gagnastofnun hefur tekist ótrúlega vel að halda kostnaði við útgáfu í skefjum, og má til dæmis nefna að nú í ár afgreiðir stofnunin u.þ.b. HÓGVÆRÐ ________Myndlist____________ Eiríkur Þorláksson Það er oft sem fjöldi listaverka, fjölmiðlakynningar og aðsókn virð- ist aðalatriði listsýninga hér í borg. Þetta er auðvitað vel þekkt fyrir- brigði annars staðar í listheiminum, og er stundum haft á orði að mesta hættan sem steðji að myndlistinni víða á Vesturlöndum sé að hún eigi eftir að drukkna í eigin umbúðum. Því er alltaf nokkur tilbreyting í að hitta á andstæðu þessa; lítt áber- andi sýningar, þar sem örfá verk eru sett upp í litlu rými og skoðand- inn getur verið aleinn með sjálfum sér og listaverkunum. Tvær hógværar sýningar af þessu tagi eru nú á boðstólum í Reykjavík; annars vegar ^sýning ungrar listakonu, Huldu H. Ágústs- dóttur, í Gallerí einn einn á Skóla- vörðustíg 4 a, og hins vegar sýning Kees Visser handan götunnar í Gallerí Sævars Karls í Bankastræti 9. Kees Visser er fæddur í Hol- landi, en hefur verið virkur í íslensku listalífí um langt skeið og búið hér um árabil; hann hefur haidið tólf einkasýningar hér á landi og tekið þátt í fjölda samsýninga innanlands og utan. í galleríinu við Bankastræti hefur listamaðurinn komið fyrir þremur listaverkum, einu (úr stáli) á gólfi og hinum (úr tré) á veggjum andspænis hvort öðru. Öll eru verkin án titils, og fjalla i öllum sínum einfaldleik um rýmishugtakið. Tréverkin á veggj- unum afmarka sitt eigið rými og eru öll innan þess; rétthymdar grindur, sem með nákvæmri og vélrænni smíði víkja burt öllum möguleika á frjálslegri túlkun. Stálnálin á gólfinu er hins vegar óskum eftir fleiri söluaöilum. K.E.W HOBBY Þessar litlu en kraftmiklu háþrýstidælur fást nú hjá söluaðilum okkar um land allt á ótrúlega hagstæöu verði. Þekking - Úrval - Þjónusta REKSTRARVÖRUR Réttarhálsi2 - 110R.vik - Símar31956-685554 Reykjavfk: RV-Markaður Réttarhálsi 2, sími: 685554. Gripiö og Greitt Skútuvogi 4. Feröamarkaöurinn Skeifunni 8. Bæjarnesti vAfesturlandsveg. Kópavogur: BYKÓ Breiddinni Akranes: Trésmiðjan Akur sími: 12666. Borgarnes: B.T.B. SÍmi: 71000. ísafjöröur: Hafsteínn Vilhjálmsson sími: 3207. Sauöárkrókur: Röst sími: 36700. Akureyri: Þ. Björgúlfsson hf. Hafnarstræti 19 sími: 25411. Húsavfk: Á. G. Guömundsson sf. sími: 41580. Egilsstaöfr: M. Snædal sími: 11415. Neskaupstaöur: Varahlutaverslunin Vík sími: 71776. Höfn: Tindur Dalbraut 6 sími: 81517. Hella Hjólbarðaverkstæöi Björns Jóhannssonar sími: 75960. Selfoss: Vörubásinn Gagnheiöi 31 sími: 22590. Vestmannaeyjar: Skipaafgreiösla Vestmannaeyja sími: 12004. 600.000 eintök til skólanna, en það er nálægt 14 eintökum að meðal- tali fyrir hvern nemanda. Hagkvæmur rekstur og faglegt eftirlit Ef miðað er við þá heildarupphæð sem stofnuninni er ætlað á fjárlög- um þessa árs svarar það til rúmlega 4.500 króna fyrir hvern nemanda í skyldunámi. Rétt er að minna á að frá og með þessu hausti eru 6 ára nemendur skólaskyldir og því taldir með grunnskólanemendum í landinu. Námsgagnastofnun fékk hins vegar enga viðbótarfjárhæð vegna aukins nemendafjölda við lengingu skólaskyldu. Þegar þessar tölur eru bornar saman við almennt verð á bókum er augljóst hversu miklu hagkvæmari útgáfa náms- bóka er á vegum Námsgagnastofn- unar en á almennum markaði, ekki síst fyrir foreldra. Þá má ekki gleymast að námsbókaútgáfa á al- mennum markaði hefur til þessa ekki verið undir formlegu eftirliti hvað varðar kennslufræði og sam- ræmi við aðalnámskrá grunnskóla eða námskrár einstakra kennslu- greina, en hvort tveggja setur skólastarfi grunnskólanna heildar- ramma. Skýrsla um stöðu Náms- gagnastofnunar Á síðasta ári stóð menntamála- ráðuneytið fyrir því að gerð varð nákvæm skýrsla um stöðu Náms- gagnastofnunar og framtíðarþróun. Þar kemur fram að ætla þarf stofn- uninni sem nemur að raungildi 50% hækkun á fjárlögum á næstu 5 árum. Það væri sannarlega óskandi að sú umræða sem nú hefur orðið um námsbókakaup grunnskólanem- sett saman úr bogadregnum línum, sem eðli sínu samkvæmt vísa út fyrir eigið rými; staðsetningin á gólfinu frekar en stalli gerir einnig að verkum, að áhorfandanum getur fundist verkið frekar svífandi en á fastri undirstöðu. Hulda H. Ágústsdóttir útskrifað- ist frá Myndlista- og handíðaskól- anum á síðasta vori, og heldur nú sína fyrstu einkasýningu í Gallerí einn einn. Ekki er hægt að segja að hún hefji sinn sýningarferil með neinu brambolti; hér hengir hún upp fjögur knöpp verk, sem umbúða- laust fjalla um hið endalausa við- fangsefni myndlistarinnar, tog- streitu innra rýmis og yfirborðsins sjálfs. Þannig samanstanda verkin „Tréverk" (nr. 1) og „Stórt tréverk“ (nr. 4) af eikarbútum, sem ákveðn- ar línur hafa verið greiptar í; þarna er því skapað formfast rými, sem æðar viðarins hafa hins vegar að engu í því mynstri, sem veðurfar og árstíðir langs gi-óanda hafa skapað þeim og yfirborðið mótast af. Þessar sýningar báðar minna á þá hógværð efnis og forms, sem nauðsynlegt er að benda á annað slagið í myndlistinni. Kees Visser fjallar um grunnhugtök rýmisins, og hvernig listamenn geta nýtt sér það, opið eða lokað. Hann dregur síðan viðhorf sín til rýmisins saman í lítilli en smekklegri sýningarskrá, sem liggur frammi. - Með sinni sýningu hefur Hulda H. Ágústsdótt- ir valið að minna á annað viðfangs- efni listarinnar, samspil yfirborðs og innra rýmis, og sýnir hversu takmarkað maðurinn getur um- breytt efnivið sínum í raun, þrátt fyrir góðan vilja. Sýningarnar á Skólavörðustíg 4a og í Bankastræti 9 láta lítið yfír sér, eins og grunnatriði gera alltaf. En ef menn hefðu ekki grundvöllinn í lagi, er hætt við að það sem á eftir kæmi yrði eitthvað ankanna- legt. Engar umbúðir myndlistarinn- ar gætu falið slíkt. - Sýningu Huldu lýkur 20. september, en sýning Kees Visser stendur til 5. október.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.