Morgunblaðið - 20.09.1990, Page 39

Morgunblaðið - 20.09.1990, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1990 39 hægt væri að bjóða henni til skilnað- arhófs. Okkur er á þessari stundu efst í huga þakklæti til Önnu. Hún var búin að starfa við Laugarnes- skóla síðastliðin 19 ár, fyrst við bað- vörslu þar sem strax kom fram traust fas hennar og hlýi andi sem ávallt var í kringum hana. Árið 1976 var stofnað svokallað athvarf við Laugarnesskóla þar sem Anna kom til starfa sem uppeldisfull- trúi. Sannarlega veitti hún þeim börnum sem þar fengu að vera at- hvarf og hlýju. Hún sá um að börnin þar fengju mat og drykk en hún var þeim líka sem besta amma, skiln- ingsrík og gaf sér tíma til að hlusta á þau og gefa þeim holl ráð. Sum börnin héldu áfram að leita ráðgjafar og umhyggju hennar þótt þau væru ekki lengur í athvarfínu. Þau fundu hjá henni traust, vinsemd og skilning sem stundum er af skornum skammti í annríki fullorðna fólksins. Anna virtist alltaf vera í jafn- vægi, traust og ljúf þótt fjörkálfarn- ir í kringum hana hefðu ólíkar óskir og þarfir. Hún var afar samviskusöm og sótti vinnu af mikilli stundvísi og ósérhlífni. I endurminningunni bregður fyrir myndum af Önnu þar sem hún situr með einhvern af skjól- stæðingum sínum í fanginu eða þar sem hún stendur úti á skólavelli og heldur í höndina á einhveijum sem er orðinn langeygður að bíða eftir að vera sóttur. Anna lét sér aldrei liggja svo mikið á að hún sæi ekki örugglega á eftir barninu sínu í hend- ur þeirra sem áttu að sækja það. Stundum fékk eitt og eitt bam sam- fylgd hennar á heimleið. Umfram allt skyldu bömin ekki vera skilin eftir í óvissu, velferð þeirra sat alltaf í fyrirrúmi. Með Önnu er genginn mikill per- sónuleiki. Hún var víðlesin kona og notalegt var að setjast yfir kaffibolla með henni og ræða um fjölmörg mál sem hún var vel heima í. Heimilið hennar bar einnig vott um myndar- skap og smekkvísi og oft minntist hún á bamabörnin sín sem voru henni svo kær. Við vottum bömum hennar og tengdabörnum, bama- börnum og öðrum aðstandendum okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minning hennar. Matthildur og Jón Freyr Á kveðjustund reikar hugurinn aftur til liðinna samvemstunda og minningamar renna gegnum hug- ann. Það eru nú meira en 30 ár síðan leiðir okkar Önnu lágu saman, en þá fluttu ijölskyldur okkar í nýbyggt hús við Nóatún hér í borg. Fljótlega tókust góð kynni milli okkar, eins og oft verður þegar fólk vinnur sam- an að sameiginlegum verkefnum. Anna var af lífi og sál áhugasöm um að standsetja og fegra umhverfi okkar og áttum við margar ánægju- stundirnar í garðinum, við blómaum- hirðu, slátt o.þ.h. Þá var það ekki ósjaldan að Anna bauð uppá kaffi og nýbakaðar kleinur, með þeim bestu sem nokkur getur hugsað sér, enda var gestrisni hennar rómuð alla tíð. Þá eru það einnig börnin sem tengja fólk saman, en dætur okkar urðu fljótt góðar vinkonur og eru enn í dag. Mér verður hugsað til fatnað- arins, en á þessum ámm er það oft viðkvæmnismái hjá börnum að fá þá flík sem er í hávegum höfð þá stund- ina og helst þurfti að kaupa hana tilbúna út úr búð. En við Anna höfð- um meiri áhuga á að sauma sjálfar, svo að samvinna varð oft á milli okkar að gera dætrum okkar til hæfis með heimasaumuðu fötin og ég held að það hafi tekist nokkurn- veginn. Tíminn leið og leiðir skildu þegar við fluttum í annað hverfi, þó ekki að öðru leyti en því að við bjuggum ekki lengur í sama húsi. Við hitt- umst oft og ævinlega þegar daga- munur var hjá fjölskyldunum, og þannig kynntumst við tengdabörnum hennar og öðrum afkomendum jafn- óðum og þeir bættust í hópinn. Allt hafa þetta verið góð og ánægjuleg kynni. Anna var alla tíð heilsuhraust og framúrskarandi dugleg. Komið var að síðasta vinnudeginum og aðeins eftir að kveðja vinnufélagana. En skjótt skipast veður í lofti, allt í einu var fótunum kippt undan henni, hún ökklabrotnaði á leið í hárgreiðsluna fyrir kveðjukaffíð og leiðin lá í stað- inn á sjúkrahús þar sem hún eyddi mestöllu sumrinu. Hún sá fram á betri daga og hlakkaði til þess að njóta þeirra. Hún hafði ekki dvalið nema nokkra daga heima hjá sér þegar kallið kom, en hér sannaðist einu sinni enn að „enginn veit sína ævina fyrr en öll er“. Það er ekki nema rúmt ár síðan Anna missti mann sinn, Einar Sigur- jón Magnússon, svo að systkinin frá Nóatúni 32 sjá nú á bak foreldra sinna með svo stuttu millibili. Ég og fjölskylda mín þökkum liðn- ar samverustundir og ílytjum öllum aðstandendum ihnilegar samúðar- kveðjur. Þóra Þorleifsdóttir Félag skólastjóra og yfírkennara: Áliti umboðsmanns Alþingis fagnað Morgunblaðinu hefur borist eftir- farandi samþykkt til birtingar: „Stjórn félags skólastjóra og yfir- kennara fagna fram komnu áliti Umboðsmanns Alþingis um náms- bóka- og efnisgjald og fleira. Þar er löngu tímabært að taka til gaum- gæfilegrar umfjöliunar hvernig ríki og sveitarfélög standa að rekstri grunnskólanna í landinu í ljósi breyttra kennsluhátta og er sú at- hugun enn brýnni í kjölfar nýrra laga um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Það er skoðun stjómar FSY að ríkinu beri að veita Námsgagna- stofnun það fé sem nægir til að útvega allt það námsefni sem grunnskólar þurfa, til að halda uppi starfsemi í samræmi við aðalnám- skrá grunnskóla. Því miður hefur skort verulega á að sú hafi verið raunin undanfarin ár. Þá fagnar stjórn FSY því hve mörg sveitarfélög í landinu hafa um lengri eða skemmri tíma séð sóma sinn í því að standa undir myndarlegum rekstri grunnskóla og gert með öllu útlæg þessi gjöld í sínum skólum. Jafnframt harmar stjórn FSY að enn skuli vera til sveitarfélög sem svelta skóla sína svo að þeir neyðist til að leita á náðir foreldra. Stjórn FSY telur eðlilegt að eftir sem áður geti foreldrar og kennarar tekið höndum saman um að útvega skólunum ýmis þau gögn er koma nemendum til góða í skólastarfinu. Vert er að benda á og þakka fjöl- mörg grettistök sem foreldra- og kennarafélög um allt land hafa lyft á undanförnum árum. Stjórn FSY leggur þunga áherslu á mikilvægi sjálfstæðis skóla. Það er í fullu samræmi við aðalnámskrá grunnskóia að kennarar og skóla- stjórar hvers skóla velji þau náms- gögn er þeir telja henta best sínun nemendum. Það er hins vegar með öllu ótækt að fjárlög skuli ekki gera Námsgagnastofnun kleift að hafa á boðstólum það úrval af námsefni sem til þarf bæði fram- leitt af stofnuninni sem og af öðrum forlögum. Þó undarlegt megi virð- ast hafa önnur forlög en Náms- gagnastofnun sjaldan boðið upp á námsgögn á viðráðanlegu verði jafn vel þótt þeim hafi verið dreift í flest alla skóla landsins með milligöngu Námsgagnstofnunar. Gæði náms- gagna fara hins vegar ekki fyrst og fremst eftir verði heldur fag- legri uppbyggingu og framsetningu á umræddum gögnum. Stjórn FSY treystir Námsgagnastofnun fylli- lega til að standa vörð um að náms- gögn samræmist faglegum kröfum og séu í samræmi við grunnskólalög og aðalnámskrá grunnskóla.“ Þakstál með stfl Ptannja ÚÖ þakstál Aðrir helstu sölu- og þjónustuaðilar: Blikksmiðjan Funi sf, Kópavogi, sími 78733. Blikkrás hf, Akureyri, sími 96-26524. Vélaveikstæði Bjöms og Kristjáns, Reyðarfirði, sími 97-41271. Vélaverkstæðið Þór, Vestmannaeyjum, sími 98-12111 Hjáokkurfæröuallar nýjustu gerðir hins vinsæla og vandaða þakstáls frá Plannja. Urval lita og mynstra, m.a Plannja fiakstál með mattri litaáferð, svartri eða tígulrauðri. ISX/Of t HR Dalvegur 20 Kópavogur Pósthólf 435 • 202 Kópavogur Slmi 91-670455 • Fax 670467 r msmpnrt jr Blomberg ©© ©©©© Eldavélar. 4 gerðir - 5 litir. tiGott verð - greiðslukjör Elnar Farestveit&Co.hf BORGARTÚNI28, SÍMI622901. Ulð 4 atoppar vlð dymar nnnnnnnt t Hjartans þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, UNU M. HELGADÓTTUR frá Steinum í Vestmannaeyjum. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sjúkrahúss Vestmannaeyja og Hraunbúða fyrir góða umönnun. Þórunn S. Ólafsdóttir, Þorsteinn B. Sigurðsson, Ingunn Sigurðardóttir, Unnur K. Þórarinsdóttir, Konráð Einarsson, Ólafur Þórarinsson, Kristín Jónsdóttir, Torfhildur Þórarinsdóttir, Sigrún Þorsteinsdóttir, Kristján Gestsson, Jón Ólafur Þorsteinsson og barnabarnabörn. Lokað Vegna jarðarfarar verður skrifstofa Fasteigna- mats ríkisins í Reykjavík lokuð í dag eftir kl. 14.00. Fasteignamat ríkisins. FÆRIBANDA- MÓTORAR = HÉÐINN = VÉLAVERSLUN SÍMI 624260 SÉRFRÆÐIPJÓNUSTA - LAGER mii a mmi „Eftir heils árs notkun get ég borið SELFA bátum hið besta vitni. Enda keypti ég mér annan.“ Svavar Ingibersson, m/b Sóley KE-15 m/b Hafdís KE-150 Ykkur er boöið umborð í bátinn á íslensku sjávarútvegssýningunni. REKI HF Fiskislóð 90, 101 Reykjavík, sími 622950.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.