Morgunblaðið - 20.09.1990, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 20.09.1990, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1990 KNATTSPYRNA Guðni ekki með í Tékkóslóvakíu? Það er óvíst hvort Guðni Bergsson, miðvörðurinn sterki hjá Tottenham, geti leikið með íslenska landsliðinu gegn Tékkum í Evrópukeppni landsliða í Kosice í næstu viku. Guðni hefur unnið sér fast sæti í hinu starka liði Tottenham, sem hefur byrjað vel í ensku 1. deildarkeppninni. Tottenham á að leika í deildarbik- arkeppninni sama dag og lands- leikurinn fer fram í Tékkósló- vakíu. Þar sem hart er barist um sæti hjáTottenham tæki Guðni áhættu ef hann léki í Tékkóslóvakíu, en hann er örugglega ekki búinn að gleyma því að hann missti sæti sitt sl. keppnistímabil þegar hann fór til að Ieika með íslenska lands- liðinu. Margir leikmenn sem eru fyrir utan Tottenham-liðið óska þess eflaust að Guðni fari til Kosice, til að þeir fái tækifæri til að spreyta sig. Það eru leikmenn eins og Terry Fenwick, fyrrum landsliðsmiðvörður Englands, Mitchell Thomas, sem Guðni setti út úr liðinu og enski 21 árs lands- liðsmaðurinn Brian Statham. Danir til Islands Danska landsliðið í knattspyrnu kemur tii íslands næsta sumar og leika vináttulandsleik gegn íslendingum á Laugardalsvellinum í byijum september, Það hefur lengi verið draumur íslenskra knatt- spyrnuunnenda að fá að sjá danska liðið leika í Reykjavík. Danir komu síðast hingað fyrir 12 árum - þá gerðu íslendingar og Danir jafn- tefli, 0:0, á Laugardalsvellinum. Tyrkir koma einnig hingað til lands næsta sumar og leika vináttu- landsleik á Laugardalsvellinum í júlí. Þá má geta þess að íslenska landsliðinu hefur verið boðið til að koma til Kýpur í febrúar til að leika þar. fl! URSUT Helstu úrslitin í Evrópukeppninni í gær- kvöldi: Evrópukeppni meistaraliða Lilleström (Nor.)—FC Briigge (Belg.).1:1 Rauða Stjarn. (Júg.)—Grasshopper (Sviss)l:l Óðinsvé (Dan.)—Real Madríd (Spáni)...1:4 (Per Pederson - Aldarna, Sanchez, Villro- t ya, Maqveda.) Nicosia (Kýp.)—B Miinchen (V-Þýsk.) 2:3 (Sinica Gogic, Koulis Panlziaras - Stefan Reuter, Alan Mclnally, Thomas Strunz.) Marseille (Frakkl.)—Tirana (Albaníu).5:1 (ean-Pierre Papin 45., 69., 75, Eric Cantona 72., Philippe Vercruysse 90. — Tahiri 89. Napólí (Italíu)—Ujpest Dozsa (Ungv.) 3:0 Marco Baroni 35., Diego Maradona 44., 76. KA—CSKA Sredetz (Búlgaríu).........1:0 (Hafsteinn Jakobsson 12.) Valletta (Möltu)—Rangers (Skptl.)....0:4 (Ally McCoist 16., Mark Hateley 57., Maurice Johnston 75., 79.) Evrópukeppni bikarhafa: *Trabzonspor (Tyrkl.)—Barcelona (Spáni) 1:0 Sliven (Búlg.)—Juventus (Ítalíu)..0:2 (Salvatore Schillaci, Roberto Baggio.) Sparta Prag — Spartak Moskvu.......0:2 Lilleström (Nor.)—Club Briigge (Belg.) ...1:1 Porto (Portúgal)—Portadown (N-írl.)..5:0 Malmö (Sví.)—Besiktas Istanb. (Tyrkl.) ..3:2 Palloseura (Finnl.)—Dyn. Kiev (Sovét.) ...2:2 Famagusta (Kýpur)—Aberdeen (Skotl.)..0:2 Fram—Djurgarden (Sví.).............3:0 (Jón Erling Ragnarsson 56., 58., Pétur Amþórsson 85.) Zaglebie Lubin (Póll.)—Bologna (Ítalíu) ..0:0 Man. United (Engl.)—Munkas (Ungv.) ...2:0 UEFA-keppnin: Timisoara (Rúm.)—Atl. Madrid (Spáni) ..2:0 Torp. Moskva —GAIS Gautab. (Sví.)..4:1 Leverkusen (V-Þýsk.)—Twente (Holl.)....l:0 Bröndby (Dan.)—Frankfurt (V-Þýsk.).5:0 MTK Búdapest (Ungv.)—Luzern (Sviss)..l:l Dnepr (Sovét.)—Hearts (Skotl.)....1:1 'Leverkuseji (V-Þýsk.)—Twente (Hol I.).... 1:0 Atalanta (Ital.)—Din. Zagreb (Júgósl.) ...0:0 Salonika (Grikkl.)—Valencia (Spáni).0:0 Vejle (Dan.)—Admira Wacker (Austur.)..0:l Norrköping (Sví.)—Köln (V-Þýsk.)0:0 Aston Villa (Engl.)—Banik Ostr. (Tékk.) 3:1 (David Platt 31., Derek Mountfield 58., Ian Olney 79. — Radomek Chylek 30. Wrexham (Wales)—Lyngby (Dan.)........0:0 Glentoran (N-írl.)—Steaua Búk.(Rúm.)...l:l Róma (ftallu)—Benfica (Port.)......1:0 (Andrea Camevale.) Stjömu- leikur í Keflavík Keflvíkingar hafa fengið góðan liðsstyrk þegar þeir mæta Víði í Garði í „Stjörnuleik Víkur- frétta" í Keflavík í kvöld kl. 18. Með þeim leika fyrrum leikmenn Keflavíkurliðsins Ragnar Mar- geirsson, Gunnar Oddsson, Sigurð- ur Björgvinsson og Olafur Gott- skálksson, sem ieika með KR og Kjartan Einarsson, sem leikur með KA. Bjarni Sigurðsson, landsliðs- markvörður úr Val getur ekki leik- ið með vegna meiðsla. Þeir leikmenn sem skora mark í leiknum fá kr. 3.500 fyrir mark- ið frá íslandsbanka og Sparisjóðn- um í Keflavík. Eftir leikinn verður vítaspymukeppni og fá leikmenn sem skora kr. 1000 fyrir markið, en markverðir liðanna fá kr. 1000 fyrir vítaspymu sem þeir veija. faóm FOLX ■ ÁSGEIR Elíasson, þjálfari Fram ér ákaflega hjátrúarfullur. Undanfarin ár hefur hann verið með veiðihúfu á öllum leikjum liðs- ins og það kom því mjög á óvart í gær er hann birtist með nýja húfu. „Þetta er „alþjóðlega“ húfan. Það hefur ekki gengið nógu vel með hina í Evrópukeppninni," sagði Asgeir. ■ FRAMARAR skiptu um sokka í hálfleik venga kuldans. Völlurinn var blautur og hitastigið rétt yfir frostmarki. ■ PÉTUR Ormslev, fyrirliði Fram, jafnaði leikjafjölda Marteins Geirssonar í gærkvöldi. Hann lék þá með meistaraflokki Fram í 319. sinn. ■ JÓN Erling Ragnarsson fór út af meiddur á ökkla á 70. mínútu. Hann sagði eftir leikinn að þetta væri aðeins tognun og að hann yrði örugglega með í síðari 'leiknum í Stokkhólmi eftir hálfan mánuð. Morgunblaðið/Rúnar Þór KA sigraði CSKA frá Búlgaríu með einu marki gegn engu í fyrsta Evrópuleik liðsins sem fram fór á Akureyrarvelli í gærkvöldi. Hafsteinn Jakobsson, sem skoraði mark KA, og Haildór Kristinsson sækja hér að marki Búlgara. Glæsileg byrjun KA í Evrópukeppninni: „Þelta var frábært!“ - sagði Ormarr Örlygsson, varnarmaðurinn sterki hjá KA-liðinu, sem varð íyrst íslenskra félagsliða til að vinna fyrsta Evrópuleik sinn „ÉG á aðeins til eitt orð yfir þennan leik - frábært! Það var stórkostlegt að vinna í fyrsta Evrópuleiknum hérá Akur- eyri,“ sagði Ormarr Öriygsson, varnarmaður KA-liðsins, sem sýndi stórgóða knattspyrnu þegar það lagði meistaraiið CSKA Sofía að velli, 1:0, í Evr- ópukeppni meistaraliða. „Bar- átta okkar var ótrúlega góð. Við gáfum Búlgurunum aldrei frið. Það eins sem skyggði á sigurinn var að við náðum ekki að nýta færin okkur. Eitt er víst að við munum halda upptekn- um hætti í seinni leiknum f Sofíu,“ sagði Ormarr. Leikmenn KA byijuðu leikinn af miklum krafti og eftir aðeins KA-CSKASofía 1:0 Akureyrarvöllur. Evrópukeppni meist- araliða, miðvikud. 19. september 1990. Mark KA: Hafsteinn Jakobsson (16.). Gult spjald: Dimitar Mladenov. Dómari: Kurt Sörensen, Danmörku. Línuverðir: Ami Hansen og Lars Gemer, Danmörku. Áhorfendur: Um 800. KA: Haukur Bragason, Hafsteinn Jak- obsson, Gauti Laxdal, Halldór Hall- dórsson, Halldór Kristinsson, Heimir Guðjónsson, Bjami Jónsson (Árni Her- mannsson 67.), Jón Grétar Jónsson, Kjartan Einarsson (Þórður Guðjónsson 73.), Steingrímur Birgisson, Ormarr Örlygsson. CSKA Sofía: Apostolov, Dimitrov, Ivanov, Mladenov, Bachev (Demitrov 57.), Yanchev, Vitano, Georeiv, Bak- alov, Donev, Marashliev. þijár mín. nötraði þversláin á marki Rúmenana. Jón Grétar Jónsson send knöttinn þang- Anton að af tíu metra færi, Benjamínsson eftir fyrirgjöf Orm- skrifar arrs. Það var svo á 16. mín. sem knött- urinn hafnaði í netinu hjá Rúmen- unum. Ormarr vann knöttinn upp í horni eftir sendingu frá Heimi Guðjónssyni, sendi fyrir markið þar sem Hafsteinn Jakobsson var á rétt- um stað við nærstöngina og hamr- aði knöttinn í netið. KA-menn og áhorfendur fögnuðu geysilega og KA-vélin fór í gang. Kjartan Einarsson átti síðan gott skot rétt framhjá marki og síðan varði Apostoiov, markvörður CSKA, meistaralega skot frá Kjart- ani. Búlgararnir fengu ekkert marktækifæri í fyrri hálfleik, enda fengu þeir engan frið. KA-menn sýndu stórkostlegan leik. Miðvallarspilið var mjög líflegt, þar sem leikmenn héldu knettinum vel og byggðu upp sóknir. Þeir voru ákveðnari og fljótari í öllum aðgerð- um og grimmir í sókn. Búlgarar byijuðu seinni hálfleik- inn betur en náðu ekki að bijóta sterka vörn KA á bak aftur og fyr- ir aftan vörnina var Haukur Braga- son öruggur. Fyrsta færi Búlgara kom á 63. mín., er Yanchev skaut á þverslá og síðan fengu þeir tvö ágæt færi sem þeir nýttu ekki. KA átti stórsókn á 73. mín., en á ótrúlagan hátt vildi knötturinn ekki í netið. Árni Hermannsson átti skot á stöng og síðan var skotum frá Jóni Grétari Jónssyni og Orm- arri Örlygssyni bjargað naumlega. Þetta var síðasta stórsóknin í leikn- um. KA-menn fögnuðu sætum sigri í fyrsta Evrópuleik sínum. Ekkert íslenskt félagslið hefur byijað Evr- ópukeppni með sigurleik. , Allt KA-liðið lék mjög vel. Hauk- ur Bragason var vel á verði fyrir aftan örugga vörn. Ormarr Örlygs- son átti frábæra sóknarspretti upp kantinn. Miðjuleikmenn voru -vak- andi og vann Hafsteinn Jakobsson flest skallaeinvígi. Jón Grétar og Kjartan gerðu mikinn usla í vörn CSKA og voru stórhættulegir. „Strákarnir stóðu sig frábærlega“ sagði Guðjón Þórðarson, þjálfari KA „Þetta var frábær sigur liðs- heildarinnar. Strákarnir stóðu sig frábærlega og uppskáru eftir því,“ sagði Guðjón Þórðar- son, þjálfari KA, sem var í sjö- unda himni eftir sigurinn yfir CSKASofía. ÆT Eg er mjög ánægður með strák- ana. Þeir sýndu nú loksins hvað í þeim býr, en þeir hafa ekki náð sér á strik í sumar. Það eina sem ég er svekktur með - er að við náðum ekki að nýta nema eitt af sex góðum marktækifærum sem við fengum. Það verður erfitt að leika gegn Búlgurunum í Sofíu. Leikmenn CSKA eru fljótir og leiknir, en von- andi tekst okkur eins vel upp með svæðisvörnina í Sofíu og hér á Akureyri," sagði Guðjón. Asparovh Nicodinov, þjálfari CSKA Sofía, hrósaði KA-mönnum og sagði að þeir hefðu leikið mjög vel. „Eg er aftur á móti óhress með mína menn. Þeir náðu aldrei að sýna eðlilega getu, en vonandi ná þeir sér á strik í Sofíu. Þar á reynsla okkur í Evrópukeppninni eftir að vega þungt. Við ætlum okkur að leggja KA þar,“ sagði Nicodiniov, sem sagði að leikmenn sínir myndu ekki vanméta ieikmenn KA. „Þeir léku vel gegn okkur og gátu skorað fleiri mörk. Allar aðstæður hér voru til fyrirmyndar."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.