Morgunblaðið - 18.10.1990, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 18.10.1990, Blaðsíða 15
Guðrún Þórðardóttir „En á meðan ekkert er gert, krossa íbúarnir við götuna fingur og biðja þess í hljóði að ekkert hendi börnin þeirra.“ augaleið að umferðarþunginn er mikill við þessa litlu götu. Þess má geta að í næsta nágrenni við Hjalla- sel er m.a. barnaheimili, skóli, íþróttahús og dvalarheimili aldr- aðra. Hjallaselið þyrfti síður en svo að vera tengibraut, því aðrar leiðir er auðvelt að benda á sem bæði eru Einar Örn Einarsson og trúnaðarstörf, margvísleg áhugamál, hefur Þuríður heilbrigða yfirsýn. Hún hefur áræði og þor að takast á við hlutina. Talar mál sem allir skilja. Síðast en ekki síst vil ég nefna menningarmálin sem hafa hingað til átt alla sína mál- svara vinstra megin. Er ekki kom- inn tími til að hægri menn tefli fram persónu með þekkingu og heilbrigð- ar skoðanir á menningu. Veljum Þuríði stað í 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykja- vík. Þuríði á þing. Höfundur er söngvari og organisti. fataskápar f úrvali rj Smiöjuvegl 2. Kópavogi, s: 44444 Jj MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 1990 15 greiðfærari og breiðari og þar sem íbúðarhús standa ekki of nálægt. Undanfarin ár hafa íbúar við Hjalla- sel farið fram á úrbætur gegn þeirri hættu sem steðjar að börnum þeirra og nágranna. I því sambandi hefur verið haft samband við borg- aryfírvöld og m.a. haldnir nokkrir fundir. Vissulega hefur ástandið skánað frá því sem var, því umferð- aröldur hafa verið settar og stein- ker til að minnka umferðarhraðann. Steinkerin eru reyndar farin að týna tölunni, þau hafa hreinleg verið ekin niður. íbúarnir við Hjallasel eru að vonum vonsviknir yfir skiln- ingsleysi borgaryfirvalda, að hafa ekki gert úrbætur sem koma að gagni, til að mynda með því að loka götunni í annan endann og finna nýja leið fyrir strætisvagninn sem brunar fram og til baka oft á dag, eða gera götuna að einstefnuakst- ursgötu. En á meðan ekkert er gert, krossa íbúarnir við götuna fmgur og biðja þess í hljóði að ekk- ert hendi börnin þeirra. Það er of seint að gera úrbætur þegar skað- inn er skeður, og sorglegt ef alvar- legt slys þarf að verða til þess að borgaryfirvöld geri .eitthvað í mál- um sem þessum. Hér hefur aðeins verið minnst á eitt dæmi af mörgum hliðstæðum sem fínna má í skipulagningu gatn- akerfísins í Reykjavík - og reyndar víða um land. Það er von mín að þetta litla greinarkom verði aðeins upphaf þess að aðrir foreldrar láti til sín heyra um þessr mál, þannig að yfírvöld vakni af löngum þyrni- rósarsvefni og framkvæmi það sem þeim ber siðferðileg og lagaleg skylda til - að reyna að koma í veg fyrir hryllileg umferðarslys. Höfundur er móðir 9 ára dóttur og þátttakandi í áhugahóp uni bætta umferðarmenningu. Skattaframtöl fyrir einstaklinga Farið er yfir helstu atriði skattalaganna sem varða skattamál, útreikning á tekju- og eignaskatti, rétt til endurgreiðslna, svo sem vaxta- og bamabóta. Gerð eru raunhæf skattaframtöl og kennt er að fylla út allar skýrslur sem einstaklingum er gert að skila með framtali. Námskeiðið er 16 kkt. Innritun stendur yfir. ^ Tölvuskóli Reykjavíkur m Borfiartúni 28, S:687590 1 ..anasDanKi íslc J íslands Banki aHra landsmanna FLUGLEIDIR # ALMENNAR samvinnubanki ISLANDS ■: . Eru enn til leifar af heppni? Íslensk-ameríska félagið heldur upp á 50 ára afmæli félagsins með þvíað efna til spurnlngaleiks á meðal allra nemenda í 5. til 10. bekk grunnskóla í samvinnu viö Landsbanka Islands, Samvinnubankann, Flugleiðir og Sjóvá-Almennar. I boði eru verðlaun sem eiga engan sinn líka: þrlggja daga ferð tll höfuðborgar Bandaríkjanna, Washington, og vinningshafinn fær að bjóða með sér öllum nemendum f sínum bekk. Þátttökublöð í Leifsleiknum liggja frammi í öllum útibúum Landsbanka íslands og Samvinnubankans. Skilafrestur er til 20. október. Úrslit verða tilkynnt í fjölmiðlum fyrir miðjan nóvember. Einstakt landkönnunartæklfæri fyrir nemendur i 5. til 10. bekk grunnskóla.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.