Morgunblaðið - 18.10.1990, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 18.10.1990, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 1990 23 Ríkisútvarpið og Steinar hf.: Geisladiskar með Eggerti Stef- ánssyni og Guðmundi Jónssyni Morgunblaðið/Árni Sæberg Ríkisútvarpið og Steinar hf. gefa í næsta mánuði út fjóra geisla- diska með söng Guðmundar Jónssonar. Talið frá vinstri: Þorsteinn Hannesson, Steinar Berg ísleifsson, Jónatan Garðarsson, Guðmundur Jónsson, Trausti Jónsson og Markús Örn Antonsson. RIKISÚTVARPIÐ og Steinar hf. gefa út geisladisk með úr- vali af söng Eggerts Stefánsson- ar í tilefni af því að 100 ár verða liðin frá fæðingu hans 1. desem- ber næstkomandi en Eggert var einn af frumherjum íslenskrar söngmenntar. Þá verða gefnir út í næsta mánuði fjórir geisla- diskar með söng Guðmundar Jónssonar og er það stærsta útgáfa í sögu íslenskrar hljóm- plötuútgáfu, segir í frétt frá RÚV. Eggert Stefánsson var stórbrot- inn persónuleiki og mikill lista- maður en hann gekk sínar eigin götur og var þvi umdeildur, segir í frétt RÚV. Á geisladiskunum með söng Guðmundar Jónssonar er um 84 atriði að ræða, allt frá áður óút- gefnu lagi eftir Jón Þórarinsson, sem er 34 sekúndna langt, til at- riða úr óperum, sem eru 15-20 UNDANFARIÐ hefur verið mik- ið um innbrot í bíla í Reykjavík, og að sögn lögreglunnar virðast þjófarnir einna helst sækjast eft- ir radarvörum. I mörgum tilfell- um eru unnar miklar skemmdir á bílunum auk þess sem stolið er úr þeim, en ekki er óalgengt að þjófarnir bijóti rúður til að komast inn i bílana. Snittvél stolið úr nýbyggingu UM síðustu helgi var stolið nýrri snittvél úr nýbyggingu við Lækj- arhjalla í Kópavogi, en verðmæti vélarinnar er um 300 þúsund krónur. Snittvélin, sem er rauð og grá að lit, vegur um 100 kg, og eru þeir sem kynnu að hafa orðið varir við hana beðnir að tilkynna það til Rannsóknarlögreglu ríkisins. mínútna löng. Elsta upptakan er frá árinu 1945 en sú nýjasta er Nýlega var brotist inn í tvo bíla við bílaverkstæði í Skeifunni og stolið úr þeim talstöðvum og út- varpstækjum, auk þess sem íjórum dekkjum var stolið úr öðrum þeirra. Einnig var brotist inn í tvo bíla við Starhaga og brotnar rúður í þeim báðum, en úr þeim var stolið radar- vörum. Þá var stolið segulbands- tæki úr bíl við Bústaðaveg, og við Vörðuskóla var brotin rúða í bíl og veski stolið úr honum. frá tónleikum, sem Guðmundur hélt í íslensku óperunni 10. maí síðastliðinn en þann dag varð hann sjötugur. Af þessum 84 atriðum hafa 60 ekki komið út áður á hljómplötu, meðal annars atriði úr Rigoletto, fyrstu óperunni, sem flutt var hér á landi en upptakan er frá árinu 1951. Á geisladiskunum er einnig að finna atriði úr Þrymskviðu Jóns Ásgeirssonar, sem var fyrsta íslenska heilkvöldsóperan. Þá má nefna Silkitrommu Atla Heimis 'Sveinssonar frá árinu 1982. Guð- mundur söng þar aðalhlutverkið en það var síðasta hlutverk hans í óperu. Skrifstofa stuðningsmanna ÓLAFS ÍSLEIFSSONAR er á Bergstaðastrœti 86, símar 20994 og 13260. Opið frá hádegi alla daga. Allirvelkomnir. Ólafí öruggtsæti, 7. sætið Mikið um innbrot í bíla SPRENGIDAGAR LAUGAVEGI 33 Við bjóðum viðskiptavinum okkar nú að nýta sér hina stórkostlegu sprengidaga, sem verða í versl- un okkar á Laugavegi 33 og standa yfir í 2 daga mánaðarlega: 19. og 20. október 23. og 24. nóvember Við bjóðum upp á stórkostlegt úrval af hljómplöt- um, kassettum og geisladiskum. Misstu ekki af þessu einstæða tækifæri og nældu þér í uppáhaldstónlistina þína á sprenghlægilegu S»K»hF>A»N ATH. LAUGAVEGI 33, SÍMI 600933 AUK/SiA k9d2i-4S8 KÁTAMASKÍNAN/SEK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.