Morgunblaðið - 18.10.1990, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 1990
Tillaga Gísla Braga Hjartarsonar bæjarfulltrúa:
Akureyrarbær taki frumkvæði
1 viðræðum þéttbýlisstaða um
flutning opinberrar þjónustu
GÍSLI Bragi Hjartarson bæjarfulltrúi Alþýðuflokks lagði fram til-
lögu á fundi bæjarstjórnar Akureyrar í fyrradag þess efnis að skip-
uð verði vinnunefnd allra stærstu kaupstaða í hverjum landshluta
utan Reykjavíkursvæðisins sem hafi það hlutverk að móta heildar-
stefnu um flutning opinberra stofnana út á land. Þá myndi og verða
lögð á það áhersla að nýjar ríkisstofnanir sem komið yrði á fót yrðu
staðsettar utan höfuðborgarsvæðisins. Tillögunni var vísað til um-
fjöllunar í bæjarráði.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Kirnan ístað KEA
Kirnan, ný verslun í Innbænum var opnuð nýlega en verslunina tók
Jón Víkingsson á leigu af Kaupfélagi Eyfirðinga. Jón rekur verslunina
ásamt eiginkonu sinni Bryndísi Jóhannesdóttur. Síðasta verk Jón áður
en hann opnaði verslun sína var að taka niður KEA-merki af húsinu,
en þar hefur merkið verið til fjölda ára. Jón sagði að samkeppni væri
orðin mjög mikil í matvöruverslunum og á einu til tveimur árum hefðu
margar nýjar verslanir opnað. „En ég er samt bjartsýnn, við ætlum
að vera með fjölbreytt kjötborð og þar eru ýmsar nýjungar á döfinni,"
sagði Jón, en hvað rekur hann til að taka við rekstri verslunar sem
KEA hefur gefist upp á að reka? „Mig langaði til að spreyta mig á
þessu, ég held að það sé draumur allra að vera sjálfs síns herra. Nú,
ég hef líka unnið mikið við afgreiðslustörf og hef gaman af þeim, þar
er mikilvægt að vera lipur og láta viðskiptavini sína finna að maður
hafi áhuga á að afgreiða þá. Það ætlum við að hafa að leiðarljósi,"
sagði Jón kaupmaður í Kirnunni.
Ekki þörf á byggingu
nýrrar vöruhafnar
- segir Gísli Bragi Hjartarson bæjarfulltrúi
GÍSLI Bragi Hjartarson bæjarfulltrúi Alþýðuflokks gagnrýndi fjög-
urra ára hafnaráætlun, sem samþykkt var af bæjarstjórn Akureyrar
á fundi í fyrradag. Gísli Bragi fór fram á að gerð yrði könnun á
nýtingu þeirra liafna sem fyrir eru áður en lagt yrði út í stórar
framkvæmdir við nýja vöruhöfn.
„Ég tel að nú sé lag, allir stjóm-
málamenn tala um mikilvægi þess
að taka upp markvissa byggða-
stefnu, en fram að þessu hefur
landsbyggðin ekki orðið vör við
þessa stefnu. Það hlýtur hins vegar
að koma að því að eitthvað verði
gert þegar þrengt er að landsbyggð-
inni eins og nú,“ sagði Gísli Bragi.
I greinargerð með tillögunni seg-
ir að störfum á vegum ríkisins sé
undantekningarlaust komið fyrir á
Reykjavíkursvæðinu sé þess nokkur
kostur. Þessi regla sé til komin
vegna þess að vantað hafi heildar-
stefnu varðandi dreifingu starfa á
vegum ríkisins og að samstaða
landsbyggðarmanna um annað fyr-
irkomulag hafi brostið. Þingmenn
landsbyggðarinnar hafí oftast stutt
staðsetningu opinberra starfa í
Reykjavík og ávallt talið að fyrir
utan heimabyggð sé Reykjavík
hentugasti kosturinn.
„Þannig hafa skammsýni og
þröngir staðbundnir hagsmunir leitt
til þess að ríkisvaldið hefurýtt óeðli-
lega mikið undir vaxandi byggð á
Reykjavíkursvæðinu. Það er ekkert
sem bendir til þess að á þessari
þróun verði breyting á næstu árum
nema reynd verði ný ráð. Fyrir
landsbyggðina er þetta alvarleg
þróun sem verður að breyta, því
ljóst er að atvinnutækifæri lands-
manna næstu ár verða að stærstum
hluta í opinberum störfum og störf-
um sem tengjast opinberri þjón-
ustu,“ segir í greinargerð með til-
lögu Gísla Braga.
Þá segir einnig að vandséð sé
að samstaða um að efla opinbera
starfsemi út um land aukist, nema
fulltrúar fólksins á landsbyggðinni
komi sér saman um heildarstefnu
varðandi dreifingu opinberra starfa
og eðlilega verkaskiptingu byggð:
arlaganna í opinberri þjónustu. í
tillögunni er gert ráð fyrir að Akur-
eyrarbær taki frumkvæði í viðræð-
um við fulltrúa stærstu þéttbýlis-
staða í hveijum landsfjórðungi um
að ná samkomulagi um áherslur
varðandi dreifíngu opinberra starfa.
„Mér sýnist allt benda til þess
að landsbyggðin leiki í vöm á næstu
misserum, en ég tel að það sé mikil-
vægt að við getum komið okkur
saman í þessu máli. Ef við gerum
það, þá hefur landsbyggðin meiri-
hluta á Alþingi og því geta þing-
menn landsbyggðarinnar ekki kom-
ist hjá því að taka afstöðu varðandi
þennan málaflokk,“ sagði Gísli
Bragi.
Tillögu hans var vísað til bæjar-
ráðs og verður væntanlega tekin
þar fyrir á fundi í dag, fimmtudag
og síðan til umræðu á næsta fundi
bæjarstjórnar.
Súkkulaðiverk-
smiðjan Linda:
Bærinn
leggur fram
fjórar millj.
kr. í hlutafé
BÆJARRÁÐ hefur samþykkt að
taka þátt í hlutafjáraukningu í
Súkkulaðiverksmiðjunni Lindu
hf. og hefur ráðið ákveðið að
leggja fram fjórar milljónir
króna í fyrirtækið. Unnið hefur
verið að endurskipulagningu fyr-
irtækisins um skeið og er þess
vænst að henni verði lokið innan
nokkurra vikna.
Atvinnumálanefnd samþykkti á
fundi sínum fyrir skömmu að taka
þátt í hlutafjáraukningu Lindu með
fjögurra milljóna króna framlagi,
gegn þeim skilyrðum að önnur
hlutaíjáraukning en bæjarins nái
að minnsta kosti 16 milljónum
króna. Á fundi bæjarráðs var
ákvörðun atvinnumálanefndar sam-
þykkt, en bæjarráði þótti nauðsyn-
legt að heildarhlutafjáraukning í
fyrirtækinu nemi 30 milljónum
króna svo gera megi fjárhagsstöð-
una viðunandi.
Sigurður Arnórsson fram-
kvæmdastjóri Lindu sagði að fyrir
lægi heimild stjórnar um 30 milljóna
króna hlutafjáraukningu og reikn-
aði hann með að sú upphæð myndi
nást. Hann sagði að unnið hefði
verið að endurskipulagningu fyrir-
tækisins um nokkurt skeið og yrði
henni væntanlega lokið á næstu
vikum.
Mmningarat-
höfn um Val
Amþórsson
Minningarathöfn verður
haldin um Val Arnþórsson,
bankastjóra Landsbanka Is-
lands og fyrrverandi kaupfé-
lagssljóra KEA, á Akureyri
í dag.
Athöfnin verður í Akureyrar-
kirkju og hefst klukkan 13.30.
Séra Birgir Snæbjörnsson ann-
ast athöfnina. Útför Vals verð-
ur frá Dómkirkjunni í
Reykjavík á morgun, föstudag,
klukkan 13.30.
Á fjögurra ára framkvæmda-
áætlun sem bæjarstjóm samþykkti
í fyrradag er gert ráð fyrir að á
næsta og þar næsta ári verði varið
rúmum 50 milljónum króna til
framkvæmda við vöruhöfn. Gísli
Bragi sagði engin rök mæla með
því að farið yrði út í þessar fram-
kvæmdir nú og fór hann fram á
að gerð yrði úttekt á nýtingu þeirra
BÆJARSTJÓRN hefur sam-
þykkt að festa ekki kaup á hús-
inu Bjarmastíg 5, en til greina
kom að nýta húsið undir sambýli
fyrir aldraða. Bærinn hefur þeg-
ar keypt stórt einbýlishús við
Bakkahlíð fyrir slíka starfsemi,
en hún hefst um næstu áramót.
Lánsheimild er fyrir kaupum á
tveimur húsum á þessu ári, en
rétt þótti að fá reynslu á starf-
semina áður en ráðist yrði í kaup
tveggja húsa.
Sigurður J. Sigurðsson formaður
bæjarráðs sagði að skynsamlegt
hefði þótt að fá reynslu á rekstur
sambýlis fyrir aldraða í Bakkahlíð
áður en ráðist yrði í kaup hússins
hafnarmannvirkja sem fyrir eru.
„Ég tel að hafnirnar séu vannýttar
nú og fátt sem bendir til þess að
leggja þurfi út í þessar framkvæmd-
ir. Mér finnst skynsamlegra að nýta
þetta fé sem áætlað er í vöruhöfn-
ina fremur til flýta fyrir fram-
kvæmdum við nýtt skipulag á
Torfunefssvæðinu,“ sagði Gísli
Bragi.
við Bjarmastíg fyrir samskonar
rekstur. Akureyrarbær hafði láns-
loforð vegna kaupa á tveimur hús-
um, annað hefur þegar verið keypt
og starfsemi hefst þar í janúarbyij-
un. Bæjarráð mælti ekki með að
húsið við Bjarmastíg yrði keypt nú,
en lánsloforðið verður nýtt til kaupa
á almennri kaupleiguíbúð.
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir, Fram-
sóknarflokki, taldi rétt að kaupa
húsið, þó svo að starfsemi hæfist
þar ekki fyrr en kominn væri
reynsla á resktur sambýlisins í
Bakkahlíð. Húsið hentaði einkar
vel, það væri stórt og staðsetning
þess rétt ofan miðbæjarins. einnig
heppileg.
Akureyrarbær
Fðstrur - Fðstrur
Nú er gullið tækifæri að breyta til og reyna eitthvað
nýtt. Staða hverfisfóstru á Akureyri í Glerárhverfi er
laus til umsóknar. Staðan er 100% og starfið mjög
fjölbreytt.
Hverfisfóstra sér um dagvistir, leikvelli og dagmæður
í sínu hverfi. Viðkomandi þarf að geta starfað sjálf-
stætt, verða skipulagður og hafa áhuga á því að vinna
með fólki.
Starfið veitist frá 1. des. nk. Ailar nánari upplýsingar
um starfið veitir dagvistarfulltrúi, alla virka daga frá
kl. 10-12, í síma 96-24600. Skriflegar umsóknir skulu
berast dagvistarfulltrúa fyrir 20. okt. 1990, á þar til
gerðum eyðublöðum, sem fást hjá starfsmannastjóra
og dagvistarfulltrúa.
Dagvistarfulltrúi.
Sveitavinna
Starfskraftur, karl eða kona, óskast í sveit frá
10. des. nk. og til vors, eða ca 7 mánuði.
Bústærð um 400 ærgildi. Þarf að geta hirt
sauðfé og kýr og mjólkað, helst vanur búvél-
um. Aldur 18-60 ár.
Umsóknir, er tilgreini aldur, menntun og fyrri
störf, ásamt launahugmynd, sendist til Ingi-
bjargar Bjarnadóttur, Gnúpufelli, 601 Akur-
eyri, fyrir 25. okt.
Fyrirspurnum ekki svarað í síma.
Bæjarstjórn Akureyrar:
Bjarmastígur ekki und-
ir sambýli fyrir aldraða