Morgunblaðið - 18.10.1990, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 1990
nm íiucuifi
Verð sem vekja
athygli!
Lambakjöt á tilboðsverði:
Hryggur 498. "j*.
Grillleggir 468 ,pr,kg. Kótilettur 595 . P*-kg-
Lambakjöt af nýslátruðu
ATH. Síðustu dagar
Læri 598. SU.
I STARMYRI2
Nýtt © slátur
5saman 2.595“
Allt tíl sláturgerðar
Kjúklingar
439.00 pr.kg.
Lifur Hjörtu Nýru Mör Nálar Vambir Þindar Hálsæðar Sláturgarn Nýsviðin svið Rúgmjöl Heilhveiti Haframjöl Rúsínur Frysti- og kælipokar
Ljómasmjörlíki 98.“,*.
Coka cola 2 ltr. 139"
Sprite 2 ltr. 139”
SunC djús 1 ltr. 98.”
USARúsínur 425 g. 79”
Strásykur 1 kg. 69.”
00
00
Libbys tómatssósa 98.”
640 g
Cheerios 425 g 189.'
Whiskas hundamatur
Vi dós 79.”
00
Frón mjólkurkex 126“p,pk'
Frón matarkex 126“prpl
Hversdagsís 1 ltr. 199.'
Hversdagsís 2 ltr. 327J
4 rúllur WC pappír 147.'
2 eldhúsrúilur 89.”
Prik þvottaduft 70 dl. 3892
C11 þvottaduft 3 % 3992
Pampers bleiur 1.198“pk
Pedigree kattamatur
Vi dós 79.”
00
00
MA TVÖRUVERSLUNIN
Verið vandlát - það erum við!
OPIÐ Á HÁALEITISBRAUT 68
OPIÐ I STARMYRI 2
VIRKA DAGA KL. 13-18.30 FÖSTUD. KL. 13-19 VIRKA DAGA KL. 9-18.30 FÖSTUDAGA KL. 9-19
LAUGARDAGA FRÁ KL. 10-16 LAUGARDAGA FRÁ KL. 10 -16
\mm uuíuuf
Rauðir tónleikar Sinfómuhljómsveitarínnar:
Nýtt íslenskt tón-
verk eftir Þorkel
Sigurbj örnsson
eftir Rafn Jónsson
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar
íslands skiptast í fjórar tónleikar-
aðir í vetur og hefur hver röð sinn
lit. Á tónleikum hljómsveitarinnar
fimmtudaginn 18. október í Há-
skólabíói verða fyrstu tónleikamir
í rauðri tónleikaröð og hefjast þeir
klukkan 20.00. Einleikarar setja
svip sinn á þessa röð og verður
Erling Blöndal Bengtsson, selló-
leikari, sá sem ríður á vaðið í Selló-
konsert Saint-Saens. Tónleikarnir
.hefjast hins vegar með nýju verki
eftir Þorkel Sigurbjömsson, sem
hann nefnir Trífóníu. Lokaverkið
verður Sinfónía nr. 2 eftir Rak-
hmanínov. Hljómsveitarstjóri verð-
ur Petri Sakari, aðalhljómsveitar-
stjóri.
Þorkell lauk við samningu
Trífóníu í sumar, en verkið hefur
verið í smíðum meira og minna í
5-6 ár. Það tekur um 20 mínútur
í flutningi í einum þætti. Hann
sagði í stuttu spjalli að tónverkið
byggðist á þrennum, væri þijár
raddir, þrísöngur eins og nafnið
bendir til. í hljómsveitinni væru
að jafnaði þrjú hljóðfæri af hverri
gerð fyrir utan strengi vitaskuld.
Það er auðvelt að fylgjast með
þessu verki, sagði Þorkell. Það er
blátt áfram og ekki flókin tónlist
að mínu viti og byggir mikið.á
endurtekningum. Það sker sig
é.t.v. ekki mikið úr öðrum tónverk-
um mínum, enda margt líkt með
skyldum. Þó má segja, sagði Þor-
keli, að í þetta sinn liggur ekki
einhver sérstök saga á bak við til-
urð verksins. Þetta er hljómsveitar-
verk, sem gerir álíka miklar kröfur
til allra hljóðfæranna, án þess að
um einleik nokkurs þeirra sé að
ræða.
Petri Sakari hljómsveitarstjóri
segir að verkið sé erfitt í flutningi
fyrir hljómsveitina og fyrir hana
sé þetta verk, sem sýni vel hvers
hún er megnug í flutningi verka
sem geri miklar kröfur til hljóð-
færaleikara, sérstaklega í takt-
skiptingum. í fyrra frumflutti Sin-
fóníuhljómsveitin flautukonsertinn
Tilbrigði um silfur eftir Þorkel.
Þorkell Sigurbjörnsson er fædd-
ur 1938. Hann lærði á fíðlu, píanó
og orgel í Tónlistarskólanum í
Reykjavík og stundaði nám í
tónsmíðum í Hamline-háskólanum
í Minnesota í Bandaríkjunum og
rafeindatónlist í háskólanum í 111-
inois. Hann var einn stofnenda
Musica Nova í Reykjavík. Auk
þess að vera eitt afkastamesta tón-
skáld okkar í dag, kennir hann við
Tónlistarskólann í Reykjavík.
Hann var um tíma formaður Tón-
skáldafélags íslands og Bandalags
íslenskra listamanna og er nú for-
maður Tónverkamiðstöðvarinnar.
Sellókonsert franska tónskálds-
ins Camille Saint-Saéns nr. 1 í
a-moll er næstum 120 ára gömul
tónsmíð, en alltaf jafnvinsæl.
Saint-Saéns var eitt af undraböm-
um tónlistarinnar; 5 ára lék hann
opinbérlega á píanó og 6 ára var
hann byijaður að skrifa tónverk.
Aðeins 11 ára kom hann fram sem
fullgildur píanisti. Saint-Saéns
starfaði lengi sem organisti og
átti ríkan þátt í þróun tónlistarlífs
í Frakklandi. Samt naut tónlist
hans framan af meiri hylli í Þýska-
landi en í Frakklandi. En hann
hlaut samt margháttaða viður-
kenningu fyrir störf sín að tónlist
í heimalandi sínu.
Píanósnillingurinn Sergei Rakh-
manínov samdi sinfóníu nr. 2 í
Dresden í Þýskalandi 1908 þar sem
hann bjó um skeið, eftir að hafa
horfíð frá störfum sem hljómsveit-
arstjóri Keisaralega stórleikhúss-
Þegar vorið var ungl
Ljóðabók eftir
Önriu S. Snorra-
dóttur komin út
Út er komin ljóðabók eftir Önnu
S. Snorradóttur og nefnist Þegar
vorið var ungt. Bókin skiptist í
þijá kafla og heitir sá fysti Gimbur-
skeljar, og er þar ort um bernsku
höfundar á Flateyri í Önundarfírði.
Annar kafli nefnist Staðir, og í
honum eru ljóð frá ýmsum stöðum,
bæði hér á landi og á fjarlægum
slóðum. Þriðji og síðasti kafli bók-
arinnar ber sama nafn og bókin
Þegar vorið er ungt og hefír að
geyma ýmis ljóð. Alls eru í bókinni
46 Ijóð ort á árunum 1984-1990.
Bókin er prentuð hjá Prentsmiðj-
unni Eddu hf., en kápan hjá Korp-
us í Reykjavík. Bókaútgáfan Fjörð-
ur gefur bókina út en Sólarfilm
annast dreifíngu hennar.
Anna hefír skrifað í blöð og
tímarit frá því að hún var ung.
Hún hefir samið margs konar efni
og flutt í útvarp allar götur frá
upphafi sjöunda áratugarins og
Anna S. Snorradóttir
fengist við ljóðagerð um alllangt
skeið en ekki gefíð neitt út fyrr
en nú.
(Fréttatilkynning)
Word-PerSect 5.0
Innritun stendur yfir.
Bq Tölvuskóli Reykfavikur
ilBorgartúnl 28, S.687590