Morgunblaðið - 27.10.1990, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.10.1990, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B/LESBOK STOFNAÐ 1913 244. tbl. 78. árg. LAUGARDAGUR 27. OKTOBER 1990 Prentsmiðja Morgunblaðsins Gorbatsjov rýmkar fyrir fjárfestingnm: Utlendingar mega eiga fyrirtækin Moskvu. Reuter. MÍKHAÍL Gorbatsjov leiðtogi sovéska kommúnistaflokksins beitti tilskipanavaldi sínu í gær er hann tilkynnti að útlendingum væri heimilt að stofna og reka fyrirtæki að öllu leyti í þeirra eigu í Sovétríkjunum og flytja gróðann af þeim úr landi. Með þessari ákvörðun er Gorb- atsjov sagður vilja flýta fyrir og stuðla að auknum fjárfestingum útlendinga í Sovétríkjunum. Aður urðu erlend fyrirtæki að stofna samstarfsfyrirtæki með sovéskum vildu þau stofna til fjárfestinga í Sovétríkjunum. Jafnframt heimilaði forsetinn að útlend fyrirtæki gætu gert lóð- arleigusamninga til langframa en mættu ekki kaupa land undir Pakistan: Niðurstaða kosninganna óhagganleg Karachi. Reuter. ALÞJÓÐLEGIR eftirlits- menn, sem fylgdust með þingkosningunum í Pakistan á miðvikudag, sögðu í gær að úrslit kosninganna stæðu óhögguð. Eftirlitsmennirnir sögðust hafa orðið varir við smávægileg misferli en þau hefðu engan veginn verið í þeim mæli sem Benazir Bhutto fyrrverandi for- sætisráðherra hefur haldið fram. „Sendinefndin hefur ekki enn séð neitt sem styður ásak- anir um að kosningaúrslitum hafi verið verulega hagrætt," sagði formaður sendinefndar- innar, Vahit Halefoglu, fyrrver- andi forsætisráðherra Tyrk- lands. starfsemi sína. Einnig tilkynnti Gorbatsjov um lækkun gengis rúblunnar frá 1. nóvember og munu þá fást 1,8 rúblur fyrir hvern dollar en sam- kvæmt hinni opinberu gengis- skráningu sem verið hefur í gildi fengust aðeins 0,56 rúblur fyrir hvem dollar. Mun hin nýja gengis- skráning aðeins gilda í viðskiptum því áfram verður sérstakt ferða- mannagengi við lýði. Verða Sovét- menn sem hyggjast ferðast þannig að borga 5,60 rúblur fyrir hvern dollar. Á hinum svarta gengis- markaði fást hins vegar um 20 rúblur fyrir dollar. Með þessari gengisbreytingu áætla sérfræðingar Moskvustjórn- arinnar að 90% sovéskra útflutn- ingsfyrirtækja muni skila hagnaði. Reuter Míkhaíl Gorbatsjov leiðtogi sovéska kommúnistaflokksins með Juan Carlos Spánarkonungi í Madríd. Gorbatsjov kom í opinbera heimsókn til Spánar í gær og við það tækifæri hvatti hann vestræn ríki til þess að styðja Sovétmenn í því að koma á markaðsbúskap hjá sér. Franska sjónvarpsstöðin La Cinq: Saddam lætur í ljós vilja til að ræða stöðu Kúvæts París. Reuter. SADDAM Hussein íraksforseti hefur sent Francois Mitterrand Frakklandsforseta bréf þar sem hann segist reiðubúinn að ræða stöðu Kúvæts, að sögn frönsku sjónvarpsstöðvarinnar La Cinq. Franskir embættismenn hafa ekki staðfest þessa frétt. Að sögn breska dagblaðsins Financial Times hafa Irakar nær lokið við gerð múrs þvert yfir Kúvæt. Frétt Financial Times þykir renna stoðum undir fréttir frá Sov- étríkjunum um að Saddam sé reiðu- búinn að láta suðurhluta Kúvæts af hendi. Blaðið sagði einnig að sprengiefni hefði verið komið fyrir við þriðjung olíulinda í Kúvæt til að veijast hugsanlegri árás. La Cinq sagði að Saddam hefði í bréfi sínu látið þá ósk í ljós að Mitterrand og Míkhaíl Gorbatsjov forseti Sovétríkjanna ræddu Kúv- Sænska stjórnin lýsir áhuga á að sótt verði um aðild að EB Stokkhólmi. Reuter. MINNIHLUTASTJÓRN sænska jafnaðarmannaflokksins lýsti því yfir í gær að hún hefði áhuga á að Svíar gerðust aðilar að Evrópu- bandalaginu (EB), að því er fram kom á blaðamannafundi Allans Larssons fjármálaráðherra þar sem kynntar voru aðhaldsaðgerðir stjórnarinnar í efnahagsmálum. Þær fela í sér 3,5% niðurskurð ríkisútgjalda eða sem nemur 15 milljörðuni sænskra króna, jafnvirði 147 milljarða ÍSK. „Ríkisstjórnin mun berjast fyrir því að þingið taki ákvörðun sem feli i sér skýrar og afdráttarlausar en áður það takmark Svía að gerast aðilar að EB,“ sagði Larsson á fund- inum. Af hálfu stjórnar Ingvars Carlsson forsætisráðherra hefur ekki áður verið kveðið jafn sterkt að orði um hugsanlega aðild Svia að bandalaginu. Háttsettir menn í höfuðstöðvum EB sögðust allt eins eiga von á því að Svíar sendu inn umsókn um aðild að EB fyrir næsta vor. Carlsson sagði að efnahagsráð- stafanir stjórnarinnar myndu koma við flesta landsmenn. Tilkynnt var að opinberum starfsmönnum yrði fækkað um 10% á næstu þremur árum en við það sparast milljarður króna, 9,8 milljarðar ÍSK, á ári. Með iækkun sjúkratrygginga munu spar- ast sex milljarðar, 59 milljarðar ISK, og þriggja milljarða sparnaði hyggst stjórnin ná með niðurskurði útgjalda til samgöngu-, iðnaðar-, landbúnað- ar- og menntamála. Einnig verða útgjöld til varnarmála lækkuð um Allan Larsson milljarð. Skattar á atvinnuhúsnæði verða hækkaðir um eitt prósent en það mun auka tekjur ríkisins um milljarð sænskra króna. Ákvað stjórnin jafnframt að lækka skólaskyldualdur niður í 6 ára aldur en með því móti minnkar þörf- in fyrir dagheimili og leikskóla. Verðbólga er nú 11,5% í Svíþjóð en spáð er aðeins 1,1% hagvaxtar- aukningu og vaxandi halla á ríkis- sjóði. Carlsson sagðist í gær reiðubúinn að semja um stjórnarskrárbreyting- ar ef það mætti verða til þess að auðvelda baráttuna gegn efnahags- vandanum. Meðal þess væru breyt- ingar á kjörtíma stjórnarinnar, kjör- gengi smáflokka og að kosningar til bæjar- og sveitarstjórna færu fram samtímis þingkosningum. ætmálið á fundi sínum í París á sunnudag og mánudag. Ennfremur á Saddam að hafa sagt að afstaða Frakka til málsins væri jákvæðari en Bandaríkjamanna. Hann á að hafa minnst á Palestínumenn og nauðsyn þess að vandamál þeirra yrðu leyst í tengslum við Kúvæt- málið. -Laurent Fabius, fyrrverandi forsætisráðherra Frakklands, spáir því að næsti leikur Saddams verði að bjóða Palestínumönnum að setj- ast að í Kúvæt. Slíkt myndi ijúfa alþjóðlega samstöðu gegn írökum og knýja araba til að fylkja sér að baki Saddam. Olía snarhækkaði í verði á mörk- uðum í Evrópu í gær vegna aukins stríðsótta. Fatið af olíu seldist á 35,5 dali í gær í London og hafði þá hækkað um sex dali síðan á miðvikudag. Stríðsóttinn á fjármálamörkuð- um er meðal annars rakinn til þeirr- ar yfirlýsingar Dicks Cheneys, varnarmálaráðherra Banda- ríkjanna, að til greina komi að 100.000 bandarískir hermenn verði sendir til Saudi-Arabíu til viðbótar við þá 250.000 sem þar eru. Reynd- ar sagði embættismaður í banda- ríska varnarmálaráðuneytinu að hefði Cheney verið spurður hvort hugsanlega yrðu sendir 200.000 hermenn í viðbót þá hefði hann einnig svarað því játandi því í sjálfu sér væru lítil takmörk fyrir því hversu marga hermenn Bandaríkin væru reiðubúin að senda á vett- vang.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.