Morgunblaðið - 27.10.1990, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 27.10.1990, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1990 39 Birna í dag er jarðsettur við hlið konu sinnar í Isafjarðarkirkjugarði Jón Egilsson vélstjóri. Hann lést á sjúkradeild Hrafnistu síðastliðinn föstudag, farinn að heilsu og kröft- um, en hélt sínu andlega til hinsta dags. Jón Egilsson fæddist á Skarði á Snæíjallaströnd 1. ágúst 1913, sonur hjónanna Guðrúnar Þórðar- dóttur og Egils Jónssonar, sem þar bjuggu, og var hann þeirra fyrsta bam. Jón sleit sínum barnsskóm hjá foreldrum á Skarði en fluttist með þeim 8 ára gamall að næsta bæ, Hlíðarhúsum, þar átti hann heima til 1932, að fjölskyldan flutt- ist að Ytrihúsum í Arnardal við Skutulsfjörð. Á þeim tíma sem Jón var að alast upp á Snæfjallaströnd, var lífsbaráttan hörð fyrir efnalaus- an heimilisföður með ört stækkandi fjölskyldu, og urðu því börnin snemma að taka þátt i að afla lífsbjargar fyrir heimilið. Jón byij- aði því mjög ungur að stunda sjóinn með föður sínum og við það hertist snemma hugur og hönd, við róður og önnur störf á sjónum á meðan ekki voru komnar vélar til þess að létta störfin. Það má því segja að Jón hafi stundað sjóinn frá æsku til efri ára. Sjómennskan varð hans ævistarf. Eftir að fjölskyldan fluttist að Arnardal fór Jón að stunda sjóinn frá ísafirði, tók fljótlega vélstjóra- próf og var alla tíð síðan vélstjóri á djúpbátnum Fagranesi, en þar stafaði hann þar til hann hætti sjó- mennsku. Árið 1949 keypti hann vélbátinn Ver með vini sínum Berg- manni Þórðarsyni og áttu þeir hann í mörg ár og var Bergmann alltaf með hann ýmist á rækju eða öðrum veiðum eftir atvikum. Árin sem Jón var á djúpbátnum, eignaðist hann velvildarmenn djúp- *eZ'^r lasölUi ' Aef?c nni avík Ingvar Helgason hf. Sævarhöfði 2, Sími 67 40 00 <<< Jón Egilsson vél- sijóri - Minning Fæddur 1. ágúst 1913 Dáinn 19. október 1990 í dag, 27. otktóber, verður til moldar borinn á Isafirði kær tengdafaðir minn Jón Egilsson. Hann lést á Hrafnistu í Reykjavík þann 19. október sl. Ekki ætla ég að rekja ættir Jóns heldur reyna að koma fram innilegu þakklæti fyrir allt sem hann var mér og mínum. Jón var einstakur maður og ég held að á engan sé hallað þó ég segi hann mesta ljúfmenni sem ég hef kynnst. Aldrei var neitt of gott okkur til handa, en einskis krafist á móti. Heimsóknir vestur á ísafjörð eru ógleymanlegar því Jón naut sín best þegar hann gat glatt aðra og látið öllum líða vel. Einnig koma upp í huga mér sumarfríin sem hann fór með okkur hjónum og að ekki sé nú minnst á allar beija- og veiðiferðimar. Jón var kvæntur Guðjónu Kat- arínusdóttur én hún lést 1973. Þeirra börn eru Hulda, Egill og Jón Ásgeir, öll gift og búsett hér syðra, barnabömin em 10 og barnabörnin 13. Lengst af var Jón sjómaður og rak eigin útgerð í allmörg ár ásamt vini sínum Bergmanni Þormóðs- syni. Síðari ár starfaði Jón sem vélgæslumaður hjá Orkubúi Vest- ijarða. Eftir lát konu sinnar bjó Jón einn fyrir vestan en fluttist suður 1986 og dvaldi á Hrafnistu í Reykjavík síðustu 4 árin þar sem hann undi hag sínum vel og var þakklátur fyrir þá umhyggju og hjúkmn sem hann naut þar. Það lýsir Jóni mjög vel að fram á það síðasta bað hann um að minna sig á afmælisdaga tveggja lang- afatelpna, því afmælum litlu barn- anna vildi hann síst gleyma. Þegar ég kveð tengdaföður minn hinstu kveðju, ber ég honum hjart- ans þakklæti frá börnunum mínum og fjölskyldum þeirra og nota ég þá sömu orð og hann gerði ávallt þegar hann kvaddi. Guð geymi hann. manna, þeir áttu sannarlega hauk í horni þar sem Jón var, því hans aðal var hjálpsemi, góðvild og greiðasemi við alla, og hann lagði sig fram um að leysa vandræði hvers manns, sem til hans leitaði. Hann var mjög góður starfskraftur, laginn, gætinn og traustur og því eftirsóttur til starfa, hvort sem var á sjó eða landi. Síðustu starfsárin vann hann hjá Orkubúi Vestfjarða, fyrst við gæslu stöðvarinnar í Engidal og síðan á skrifstofu Orku- búsins á ísafirði. Þegar hann treysti sér ekki lengur til starfa fluttist hann til Reykjavíkur og fékk inni á Hrafnistu, þar sem hann dvaldi til dauðadags. í Arnardal kynntist Jón konu sinni Guðjónu Katarínusdóttur í Fremri-húsum og fljótlega settu þau saman heimili á ísafirði, fyrstu árin í leiguhúsnæði, en síðan í eigin íbúð í verkamannabústað að Guð- rúnargötu 6. Jón og Guðjóna eign- uðust þijú börn, elst þeirra er Hulda Sigrún, gift Garðari Hinrikssyni úrsmið og eiga þau íjögur börn, Egill Kristinn, bifreiðastjóri, kvænt- ‘ ur Birnu Friðriksdóttur, þau eiga þijú börn, og Jón Ásgeir, starfs- maður Stálfélagsins, kvæntur Jónínu Kristjánsdóttur og eiga þau þijú börn. Börn Jóns eru búsett í Reykjavík og Garðabæ. Þó lífshlaup Jóns hafi verið rakið hér í stórum dráttum, er ekki úr vegi að líta aðeins á manninn og elsta bróðurinn Jón Egilsson. Þegar ég var sjö ára gamall fór ég að heiman og til nágranna og kunningja foreldra minna, en það réðst þá jafnframt þannig að Jón bróðir minn réðst þangað vetrar- maður um sama leyti. Sem að líkum lætur eru það erfið spor fyrir sjö ára snáða að yfirgefa foreldra og æskuheimili og fara á ókunnan stað, en nærvera stóra bróður hjálp- aði mér, á meðan ég var að aðlag- ast þessum nýju aðstæðum og upp frá því var hann mér sérstaklega kær, og að hann væri sá aðili, sem ég gæti alltaf leitað ásjár hjá ef eitthvað bæri útaf. Jón var alvörugefinn maður í raun en var alltaf kátur og gaman- samur í góðra vina hópi, sagði skemmtilega frá og hafði glöggt auga fyrir því spaugilega, sem allt- af er að gerast í daglega lífinu. Hann átti fáa, en góða og trygga vini og samferðamennirnir voru honum mjög vinsamlegir hvar sem hann fór. Þannig hefur þessi bróðir minn komið mér fyrir sjónir, ég á honum margt að þakka í gegnum tíðina, ég veit að það verður bjart yfir komu hans til nýrra heimkynna. Eg bið svo börnum hans, afkom- endum og aðstandendum- allrar blessunar. Bjarni Egilsson SYNUM NISSAN PRIMERA UM HELGINA Berðu hann saman við það besta. Ný vél! Ný og drífandi 16 ventla vél með beinni innspýtingu, sérhönnuð fyrir Primera og fáanleg í 3 stærðarflokkum. 4 laga lakkáferð. IH'H.áSTI-'IU. ytra bvriii Grunnlag K.KI’) Miðlag Aðallag | Glæra ísafiröi: Hjá Flugfélaginu Emir á ísafjarðarflugvelli. Sauöárkróki: Á Bifreiðaverkstæðinu Áki. Akureyri: Á Bifreiðaverkstæði Sigurðar Valdimarssonar, Óseyri 5 A. Reyðarfirði: Á Lykli h.f., Búðareyri 25. Keflavík: Hjá B. G. Bílasölunni í Grófinni 8. FjöUiða Jjöðrun Ný tegund fjöðrunar með einstaka eiginleika — var upphaflega hönnuð fyrir 300 ZX sportbílinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.