Morgunblaðið - 27.10.1990, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 27.10.1990, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDÁGUR 27. OKTOBER 1990 Trausta sljórnarhætti í stað glundroða eftirGeirH. Haarde Málflutningur ráðhorra og þing- manna stjórnarliðsins í umræðum um svokallaða stefnuræðu for- sætisráðherra á Alþingi opinberaði á ný ágreininginn milli stjórnar- flokkanna og ekki síður innan þeirra. Varaþingmaður Borgaraflokks- ins talaði gegn álveri skömmu eft- ir að formaður flokksins lýsti ein- dregnum stuðningi fiokksins við byggingu þess. Sama gerði. þing- maður Alþýðubandalagsins eftir að formaður þess flokks lauk máli sínu. ForsætisráðheiTann lýsti áhuga sínum á því að hverfa frá fiskveiðistef nu sj ávarútvegsráð- herra síns, en taldi að það yrði því miður ekki unnt alveg strax! Stefán Valgeirsson, guðfaðir ríkisstjórn- arinnar, hafði að venju allt á horn- um sér. Þannig mætti lengi telja. Þráhyggja formanns Alþýðuflokksins En e.t.v. var athyglisverðast hvernig formaður Alþýðuflokksins, sem lýsir sjálfum sér sem „ástríðu- pólitíkus", notaði tækifærið i fjar- vera varaformanns síns til að hefna ófaranna á flokksþingi Alþýðu- flokksins. Þar bar varaformaðurinn saman kosningaloforð flokksins og vanefndirnar og sýndi þjóðinni þar með fram á hve lítið hefur reynst að marka kosningafagurgala Al- þýðuflokksins. Meginhluti ræðu formannsins í sjónvarpsumræðun- um byggðist á sams konar saman- burðarfræði og var bersýnilega ætlað að hrekja málflutning vara- formannsins. Af máli formanns Alþýðuflokks- ins mátti ráða að hann er ekki aðeins „ástríðupólitíkus“ heldur er hann einnig haldinn þráhyggju. Hann heldur því enn blákalt fram að staðgreiðslukerfi skatta sé nú staðreynd vegna þess að Alþýðu- flokkurinn hafi lofað því fyrir síð- ustu kosningar! Þessu hefur mað- urinn þrástagast á undanfarin ár þótt allir viti að þetta er ijarstæða og margoft hafi verið bent á að staðgreiðslukerfið var lögfest í mars 1987 á meðan Alþýðu- flokkurinn var í stjórnarandstöðu. Ég verð að viðurkenna að ég skil ekki hvað þessi síendurteknu ósannindi eiga að þýða. Félagsmálaráðherra andvígur fjárlagafrumvarpi í núverandi stjórnarsamstarfi sem að standa fimm vinstri flokkar og flokksbrot er hver höndin uppi á móti annarri í hinum stærstu málum. Félagsmálaráðherra lýsti því yfir á Alþingi í fyrradag að hún stæði ekki að íjárlagafrumvarpinu. í nágrannalöndunum hefði slík af- staða víðast hvar orðið til þess að annaðhvort þessi ráðherra eða ijár- málaráðherra hefðu sagt af sér ef ekki stjórnin öll. Hér er engu slíku til að dreifa og eflaust verður að lokum barið saman eitthvert málamyndasam- komulag um ágreiningsmálin. Þannig hefur það allan tímann verið á kærleiksheimili núverandi ríkisstjórnar og það er vegna þess að þar er mönnum meira umhugað um að hanga á völdunum en halda sig við einhverja grundvallar- 10 GÓÐ RÖK ^ DRAUMAELDHÚSIÐ WTT Draumaeldhúsið þitt á auðvitað að vera fallegt, aðgengilegt og hannað á réttan hátt. Starfsmenn Innréttingahússins vita hvað þarf til þess að draumurinn rœtist. FYRIR ÞV AÐ FÁ SÉR HTH ELDHÚSINNRÉTTINGU 2 FYRIRTAKS ÞJÓNUSTA Við leggjum okkur fram um að veita bestu þjónustu, sem völ er á, frá þeirri stundu að eldhúsið þitt kemst á teikni- borðið hjá okkur, til þess dags að upp- setningu er lokið. £ GÓD OG ÖRUGG AFGREIÐSLA Við afhendum þér nýja eldhúsið 6-8 vikum eftir að pöntun er gerð og afhend- um við húsdyrnar þínar ef þú býrð á Stór-Reykjavíkursvœðinu. 4ÁRÉTTU VERÐI Á hverju ári eru framleiddar fleiri en milljón HTH-skáþaeiningar og með hagkvœmri fjöldaframleiðslu er verðinu haldið niðri. Þessum sparnaði er komið til viðskiptavina til að tryggja að þeir fái góða vöru á réttu verði. 5 SKYNSAMLEG FJÁRFESTING HTH-innrétting eykur verðgildi íbúðarinnar og er því kjörin fjárfesting fyrir framtíðina. 6 GÆÐASTIMPILL Allar HTH-eldhúsinnréttingar hafa hlotið hinn þekkta gœðastimpil „Dansk Vare- fakta". Það þýðir að þœr hafa staðist prófanir til að ganga úr skugga um gœði, endingu og handbragð. Prófanirn- ar framkvœmir sjálfstœð dönsk rann- sóknastofnun. ? ÓKEYPIS RÁÐGJÖF Við mœlum fyrir og aðstoðum við val á HTH-innréttingum þér að kostnaðarlausu og án skuldþindinga. 8 FAGMANNLEG UPPSETNING Aðeins sérþjálfaðir fagmenn annast uppsetningu HTH-innréttinga. 9 FUÓTLEGT OG FYRIRHAFNARLAUST HTH-einingarnar eru afhentar sérpakkað- ar með hurðum, ásamt teikningum til að tryggja fljótlega og fyrirhafnarlausa uppsetningu. 10 HEILDARLAUSN Innréttingahúsið hefur ávallt kappkostað að finna bestu heildarlausnina fyrir viðskiptavini sína. Þannig má fá Blomberg heimilistœki og vaska með eldhúsinnrétt- ingunum, einnig fataskápa og baðinn- réttingar. Allt þetta tryggir þér sem bestan heildarsvip. innréttingahúsiö Háteigsvegi 3, Reykjavík. Sími 91-627474. Fax 91-627737. Geir H. Haarde „Félagsmálaráðherra lýsti því yfir á Alþingi í fyrradag að hún stæði ekki að fjárlagafrum- varpinu.“ stefnu. Við slíkar aðstæður semja menn bara um eitthvað sín í milli, þeim er alveg sama um hvað. Breytt stjórnarfar Það er hlutverk Sjálfstæðis- flokksins að berjast gegn stjórnar- fari af þessu tagi. Festa mun ekki komast á stjórn landsins fyrr en hann fær á ný lykilhlutverk í stjórnmálunum. Þess vegna þarf að efla Sjálfstæðisflokkinn og gera hann færari um að taka til hendi á vettvangi landsmála. Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík um helgina er tæki þeirra til að stilla upp sem sterk- ustum lista frambjóðenda. Ég skora á sjálfstæðismenn að taka þátt í prófkjörinu og leggja þar með sitt af mörkum til að styrkja flokkinn gegn þeim glundroðaöfl- um sem nú fara með völd. Höfundur er alþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík. -------------- M-hátíð á Akranesi M-HÁTÍÐ á Vesturlandi lýkur á Akranesi um helgina. í Vinaminni lýkur á laugardaginn myndlistarsýningu þar sem tíu myndlistarmenn hafa sýnt verk sl. viku. I Bíóhöllinni á laugardagskvöldið frumsýnir Skagaleikflokkurinn leikritið 19. júní eftir Kristínu og Iðunni Steinsdætur í leikstjórn Oktavíu Stefánsdóttur. Sunnudaginn 28. október kl. 15.00 verður M-hátíð á Vesturlandi formlega slitið í íþróttahúsinu á Akranesi. Þá leikur Skólahljómsveit Akraness, flutt verður brot úr nýju leikriti eftir Steinunni Jóhannes- dóttur, píanóleikur, Ijóðadagskrá og samsöngur nokkurra kóra af Vest- urlandi. Menntamálaráðherra mun svo slíta M-hátíð á Vesturlandi. -----*-»-4---- Heimastjórn- arsamtökin MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi fréttatilkynning frá framkvæmdastjórn Borgara- flokksins. „Að gefnu tilefni vill formaður Borgaraflokksins og framkvæmda- stjórn taka fram að svokölluð Herm- astjórnarsamtök eru með öllu óvið- komandi Borgaraflokknum og fé- lagssamtökum hans og hefur flokk- urinn ekki haft nein afskipti af stofnun þeirra.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.