Morgunblaðið - 27.10.1990, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 27.10.1990, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1990 Morgunblaðið/Rúnar Þór Sovéskir listamenn skemmta Akureyringum Súmbar-þjóðlaga- og dansflokkurinn frá Kara-Kalinsk-héraði í sovétlýðveldinu Túrkmenistan kom fram í Sjallanum í fyrrakvöld, og voru myndirnar teknar þar. Flokkurinn er hér á landi vegna sovéskra daga MÍR. Á efnisskrá hópsins eru bestu verk túrkmenskra tónskálda og tónskálda frá öðrum sovéskum lýðveldum, svo og þjóðdansar frá Túrkmenistan og öðrum sovétiýðveldum. Tillögu til þingsályktunar dreift á Alþingi: Yegalagning og jarðganga- gerð milli Olafsfjarðar og Siglufjarðar verði könnuð TILLÖGU til þingsályktunar um könnun á gerð jarðganga og vegar- lagningu milli Ólafsfjarðar og Siglufjarðar í framhaldi af opnun jarðganga um Ólafsfjarðarmúla hefur verið dreift á Alþingi. Tillagan er svohljóðandi: „Al- þingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta Vegagerð ríkisins kanna í samráði við sérfróða aðila lagningu vegar og gerð jarðganga milli Öl- afsfjarðar og Siglufjarðar um Héð- insfjörð. Við könnun þessa skal m.a. hafa í huga hagkvæmni jarðgangagerð- ar borið saman við aðra valkosti og hafa'sérstaklega hliðsjón af stofnkostnaði, notagildi, viðhalds- kostnaði, byggðaþróun, félagsleg- um sjónarmiðum, samtengingu þéttbýlisstaða og styttingu vega.“ Flutningsmenn eru Sverrir Sveins- son, Haildór Blöndal, Jón Sæ- mundur Siguijónsson, Jóhannes Geir Sjgurgeirsson, Ragnar Arn- alds, Árni Gunnarsson og Pálmi Jónsson. í greinargerð með tillögunni segir að hún hafí verið flutt á síðasta þingi en ekki hlotið fullnað- arafgreiðslu. í greinargerðinni er vitnað i lauslegt mat sem Haukur Tómasson, forstjóri vatnsorku- deildar Orkustofnunar, og Birgir Jónsson, formaður Jarðgangafé- lags íslands, gerðu, en þar segir: „Líta má á að Múlagöngin séu fyrsti hluti þessarar tengingar [þ.e. tengingar byggða við utanverðan Eyjafjörð] sem síðan heldur áfram inn fyrir Ólafsfjörð og upp í Árd- al, inn af Kleifum, upp í 280 m hæð yfir sjó. Þarna þarf að leggja nýjan veg um 3 km að lengd og sennilega styrkja veginn að Kleif- um. Úr Árdalnum koma 1,6 km löng göng yfir í Víkurdal með munna þeim megin í um 200 m hæð yfir sjó. Leggja þyrfti veg niður Víkurdal og inn með Héðins- fjarðarvatni að vestan eða austan, eftir því hvorum megin er meiri snjóflóðahætta, alls um 7 km. Þá kæmu göng til Skútudals, 2,6 km að lengd. Þessi göng mundu byija í um 100 m hæð í Héðinsfírði en munni í Skútudal yrði í um 200 m hæð yfír sjó. Þaðan lægi svo 2-3 km langur vegur niður á flugvall- arveg í Siglufirði. Heildarlengd þessarar leiðar úr miðbæ Ólafsfjarðar í miðbæ á Siglufirði yrði um 21 km og kostn- aður nálægt 1.200 millj. kr. á verð- lagi haustið 1989.“ Tillagan gerir ráð fyrir því að Vegagerðinni verði falið að athuga þessa leið og bera hana saman við uppbyggingu vegar um Lágheiði eða jarðgöng úr Fljótum til ðlafs- fjarðar. „Það er ljóst að eftir að jarðgöngin um Ölafsfjárðarmúla opnast til umferðar í haust munu íbúar á þessu svæði óska eftir úr- bótum í samgöngum milli þessara einangruðu byggða.“ Ennfremur segir að jarðganga- gerð sé langtímaverkefni. „Því þarf að ætla þeim langan rann- sóknar- og undirbúningstíma. Fram undan eru næstu verkefni ákveðin. Engu að síður er þessi þingsályktunartillaga flutt í trausti þess að þetta brýna verkefni í sam- göngumálum komist á dagskrá." Sýningar- hefjast aftur á Húsavík Húsavík. LEIKFÉLAG Húsavíkur mun aftur hefja sýningar á sjónleiknum Land míns föður eftir Kjartan Ragnars- son, en á síðastliðnu vori hafði félagið 25 sýningar á þessum sjón- Ieik við mjög góða aðsókn og und- irtektir, en þá varð að hætta sýn- ingum vegna brottflutnings nokk- urra leikara. Töluverðar breytingar eru eðlilega orðnar á þeim stóra hóp leikara sem að þessari sýningu standa, en vel hefur tekist að fylla í skörðin. Nú í haustblíðunni sem verið hefur undanfarna viku, og þar sem vegir allir eru sem að sumarlagi, má búast Morgunblaðið/Silli Myndin sýnir samkomuhús Húsvíkinga þar sem leiksýningar eru haldnar. við góðri aðsókn nærsveitarmanna og Akureyringa sem oft hafa sýnt leiksýningum á Húsavík áhuga. - - Fréttaritari. Borðtennis- mót á Grenivík Borðtennismót, svokallað Pepsímót, verður haldið á Grenivík um helgina. Keppend- ur eru 78. Mótið átti upphaflega að halda að Hrafnagili en var fært til Grenivíkur, vegna lítillar þátttöku, en síðan fjölgaði þátttakendum reyndar mjög mikið. Aldurs- flokkamót verður í dag en punkta- mót á morgun. Keppt verður á sex borðum. Keppendur verða 23 frá Dalvík, 9 frá Húsavík, 10 frá Akureyri, 4 úr Stjörnunni í Garðabæ, 6 frá UMSB og 26 frá Grenivík. Mót fyrir ungt fólk í Munaðarnesi: Hópvínna um umhverfismál Umhverfismót fyrir ungt fólk ; haldið dagana 9.-11. nóvember í nefndar Norræna félagsins. Mótið umhverfisár sem nú stendur yfir, Dagskrá mótsins verður fjöl- breytt. Fyrirlesarar verða meðal annarra Bjöm Guðbrandur Jónsson, verkefnisstjóri norræna umhverfis- ársins á íslandi, og Sigurbjörg Sæmundsdóttir, hagverkfræðingur í umhverfismálaráðuneytinu, sem fjallar um hlutverk og gildi pappírs og plasts í sorpi landsmanna. Einn- ig taka mótsgestir þátt í hópvinnu. Hóparnir sem myndaðir verða eru leiklistarhópur, vísnahópur, málara- hópur, tónlistarhópur, myndbanda- hópur og almennur hópur. Ýmsir i aldrinum 15 til 20 ára verður Munaðarnesi á vegum æskulýðs- er haldið í tengslum við norrænt listamenn og fagmenn á öðrum sviðum hafa verið fengnir til að stjórna hópvinnunni. Einnig verður haldin kvöldvaka þar sem sýndur verður afrakstur hópvinnunnar. Umhverfísmótið í Munaðarnesi er opið’öllu ungu fólki á aldrinum 15-20 ára. Einnig hefur bréf verið sent til allra sveitarfélaga á landinu og þeim boðið að senda tvo fulltrúa á mótið. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Norræna félags- ins. Búðardalur: Hjarðarholtskirkja færð í upprunalegt horf Búðardal. NÚ STANDA yfir gagngerðar viðgerðir og breytingar á kirkj- unni í Hjarðarholti í Dölum. Ákveðið hefur verið í samráði við húsfriðunarnefnd að færa hana að mestu í upprunalegt horf. Kirkjan er byggð árið 1904 og heyrir því sjálfkrafa undir húsfrið- unarnefnd. Kirkjan hefur tekið ýmsum breytingum í gegnum árin, m.a. klæðning að innan, bekkja- skipan, inngangur, gluggar o. fl. Nú er það ljóst að kirkjan hefur mikið byggingarsögulegt gildi en hún er teiknuð af Rögnvaldi Ólafs- syni, fyrsta íslenska arkitektinum og var prófverkefni hans. Eftirlit og umsjón á vegum húsfriðunar- nefndar hefur Leifur Blumenstein, byggingarfræðingur, annast. Hann hefur verið sóknarnefnd mjög innan handar í allri ákvarðanatöku. Lögð hefur verið mikil vinna í að koma kirkjunni í sína uppruna- legu mynd en teikningar hafa ekki fundist og myndir teknar inni í kirkjunni eru tæpast til frá fyrstu árum hennar. Nú þegar hefur gólf- ið verið endurnýjað og einangrað, undirstöður bættar og klæðning að innan rifin burt. Nú er unnið við að einangra kirkjuna og setja aftur upp togbönd sem tekin voru burtu 4- Hjarðarholtskirkja í Dölum. þegar kirkjan var klædd að innan árið 1958. Því næst verður hún strigaiögð að innan, máluð og bekk- ir settir niður eins og upphaflega var. Ekki er ljóst hvenær þessum inn- anhússviðgerðum lýkur en reynt verður að hraða þeim eins og kost- ur er svo hægt verði að taka kirkj- una í notkun sem fyrst. Síðan er áætlað að ráðast í utanhússviðgerð- ir eftir því sem fjármagn leyfir. — Kristjana Stafholtstungur: Hitaveita lögð á 16 bæi Stafholti. UNDANFARNAR vikur hafa staðið yfir hitaveituframkvæmdir í Staf- holtstungum í Borgarfirði. Áætlað er að leiða vatn í 16 bæi auk nokk- urra sumarbústaða og er gert ráð fyrir að lögnin verði u.þ.b. 30 km löng. Vatnið er leitt frá Laugalandi, en samið var við Laugaland hf. um kaup á 6 sekúndulítrum af 80-85 gráðu heitu vatni. Vatnið er tekið úr tveim borholum þar sem það er um 90 gráðu heitt, en er kælt áður en því er hleypt á aðveituæð. Reynt er að fara í vegkanta þar sem það er hægt, en annars er lögn- in sett í jarðvegsgarð og er íagnar- stæðið nokkuð erfitt með köfium. Notuð eru plaströr af mismunandi víddum, en þau eru framleidd í Hulu hf. á Flúðum og einangrun er frá Hjúpi hf. á sama stað. Kostnaður á bæ er áætlaður 1.300-1.400 þús. kr. þar af er efnis- kostnaður um 900 þús. Lán frá Stofnlánadeild er 600 þús. kr. á bæ. Vinna við lögn veitunnar er að mestu leyti unnin af heimamönnum og dregst vinnuframlag hvers og eins frá heildarverði. Verkfræðilega umsjón með verk- inu hefur Fjarhitun hf. í Reykjavík. - Br.G. Morgunblaðið/Brynjólfur Gíslason Myndin sýnir vinnu við hitalögn í Stafholtstungum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.