Morgunblaðið - 27.10.1990, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 27.10.1990, Blaðsíða 49
MORGUNBLÁÐÍÐ LmIgáRDÁGUR 27. OÍÍTÓBER 1990 49 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS tíUUUUSmkJUBUUk Styðjum Kolbrúnu Jónsdóttur Ég þakka hjartanlega ykkur, sem senduð mér kveðjur, heillaóskir, blóm og aðrar góðar gjaf- ir, eða glödduð mig á annan hátt á afmœlis- daginn 19. október. Ykkar einlœgur Benjamín H. J. Eiríksson. Til Velvakanda. Þar sem nú er komið að prófkjör- um og öllu því er þeim fylgir vil ég nú biðja fólk að hugsa sig vel um og reyna að koma að duglegu fólki sem virkilega hefur áhuga á að gera eitthvað til að létta byrðar okkar í daglegu lífi og gera stjórn- málin að því sem þau ættu að vera. Að það sé ekki verið að reyna að koma að fólki sem gerir ekkert gagn þegar að er komið - fer aðal- lega í þetta til að koma sjálfu sér áfram. Við Hafnfirðingar eigum því láni að fagna að eiga unga, góða og framúrskarandi duglega konu sem nú þegar hefur látið að sér kveða í heimi stjómmálanna með góðum árangri. Og hver sem fylgst hefur • • Okumenn: Forðist allan óþarfa hávaða, þar sem hestamenn eru á ferð. Akið aldrei svo nærri hesti að hætta sé á að hann fælist, og láti ekki að stjórn knapans. Þessir hringdu . . Jakki Bleikur ullaijakki með drapp- litu fóðri, nr. 52, var tekinn í Duushúsi föstudaginn 19. októ- ber. Vinsamlegast hringið í síma 51673. Barnakerra Barnakerra kom í leitirnar fyrir skömmu. Upplýsingar í síma 73177. Hálsmen Halsmen með íslandslögun fannst við Neshaga fyrir viku. Upplýsingar í síma 620026. Læða Þrílit læða; brún, svört og gul, fannst við Ármúla fyrir nokkur. Vinsamlegast hafði samband við Kattavinafélagið. Jakki Leðurjakki var tekin í misgrip- um í Duushúsi sl. föstudagskvöld. Vinsamlegast hringið í síma 84984, Berglind. Ekki starfssvið Iögreglu P.G. hringdi: „Nú berast fréttir af að lögregl- an keppist við að klippa númer af bifreiðum vegna þess að eig- endur hafa ekki sinnt um að færa þá til skoðunar. Þetta er mikið verk og ég tel að þetta sé í raun ekki starfssvið lögreglu. Liggur ekki beint við að hafa hærri sekt- ir við svona brotum eða afgreiða þetta í gegn um tryggingarnar, að menn sem ekki sinna því að láta skoða bíla sína þyftu að borga hærri tryggingar. Lögregl- an ætti alla vega ekki að standa í þessum númeraklippingum held- ur vinna að fyrirbyggjandi slysa- vörnum. Það mætti t.d. bjóða númeraklippingarnar út og láta syndaselina borga kostnaðinn sem af þessu hlýst." með henni veit að hún er svo sann- arlega góður fulltrúi síns flokks, og mun gefa sig alla í að vinna að heill okkar allra ef við bara gefum henni tækifæri. Hafnfirðingar, ger- um góðan fiokk betri, komum Kol- brúnu Jónsdóttur í öruggt sæti. Við megum ekki við því að sleppa henni fyrst hún býður sig fram. Hún mun öruglega verða okkur sá fulltrúi sem við getum verið hreyk- in af. Sjálfstæðisflokkur, til ham- ingju með Kolbrúnu. Þóra Stefánsdóttir --------------- Páfagauk- ur í óskilum Til Velvakanda. Lítill páfagaukur fannst sl. sunnudag í Vesturbergi. Eigandi vinsamlegast hringi í síma 74268 eftir kl. 17. Að sjálfsögðu SYKURLAUST SfMI: 91-24000

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.