Morgunblaðið - 27.10.1990, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 27.10.1990, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1990 Aldarafmæli: Rebekka Þiðriks- dóttir frá Rauðsgili Löngum í æsku ég undi við angandi hvamminn og gilsins nið, ómur af fossum og flugastraum fléttaðist síðan í hvem minn draum. Hundrað ár verða í dag (27. okt.) frá því móðir mín — Rebekka Þiðriks- dóttir — frá Rauðsgili — var borin í þennan heim. Teljum við systkinin að hún verðskuldi að hennar sé að nokkru minnst. Hjá okkar fámennu þjóð telst til nokkurra tíðinda þegar einhver nær svo háum aldri — tekst að ijúfa hundrað ára múrinn, svo tekið sé til orðalags þotualdar. Gerist nú aldamótakynslóðin margfræga harla fáliðuð. Nútíðarmönnum er til vorkunnar þótt þeim reynist örðugt að gera sér fyllilega ljóst hvernig hér var umhorfs þótt til skemmri tíma sé litið. Oft er á orði haft — og með sanni — að meiri umskipti hafi orðið á síðustu 100 árum en aldirnar 10 þar á undan. Allt er nú nýtt nema landið, þjóðin og tungan. Þær sem fæddust í lok aldarinnar tóku ekki við auðugu búi. Auk örbirgðarinnar hafði harðæri mikið kreppt að þjóð- inni undanfarinn áratug og flótti brostinn á til Vesturheims þar sem útlagarnir leituðu nýrrar lífsbjargar og nýrra vona. Móðir mín hóf ekki ævigöngu sína með álitlegt veganesti. Hún var getin utan hjónabands og þeir meinbugir á að hún var skilin frá móður sinni þegar í frumbernsku. Slíkt þótti ekki horfa til mikils frama á þeirri tíð — svo ekki sé fastar að orði kveðið. Rebekka Þiðriksdóttir fæddist að Hurðarbaki í Hálsasveit 27. október 1890. Foreldrar hennar voru þau Þið- rik Þorsteinsson á Háafelli og vinnu- konan Guðrún Sigurðardóttir lengst til heimilis að Gilsbakka í Hvítársíðu. Við systkinin vissum lítt til þessarar ömmu okkar, en mig rekur minni til að Pálí sveitungi hennar Bergþórs- son, núverandi Veðurstofustjóri, minnist hennar hlýlega einhvers stað- ar; meðal annars fyrir kærkomna íleppa sem hún mun hafa pijónað honum. Það varð móður minni til mestrar gæfu að hún vistaðist hjá góðu fólki. Bróðir Guðrúnar, Helgi bóndi Sigurðsson á Rauðsgili, og kona hans, Pálína Pálsdóttir, tóku að sér hvítvoðunginn og gengu Bekku litlu í foreldra stað. Þótt móðir mín væri jafnan fáorð um eigin hag og sögu, fór ekki dult hvern hug hún bar til fósturforeldra sinna, og tvö eigin barna lét hún síðar bera þeirra nöfn. En skjött bregður sól sumri og skugga drégur upp á bernskuhimin tökubarns, því móðir mín var aðeins ríflega sjö ára þegar fósturmóðir hennar andaðist. Tregi kveðinn að ungu blómstri. En maður jœmur í manns stað. Valgerður Jonsdóttir ræðst sem ráðskona að búinu. Og tveim árum síðar fæðist þeim Helga sonur og móður minni kær bróðir — v sá var Jon Helgason, síðar prófessor og höfundur kvæðis þess sem ég vitn- aði til í upphafi máls og flestir munu við kannast Seinna fæddist þeim dóttir. Þau Jon voru jafnan náin sem systkini væru úr blóðsifjum. Þá átti móðir mín alsystur tvær. Ekki nutu þær þó samvistar í bernsku. Æviferill þeirra táknrænn fyrir kjör íslenzkrar þjóðar sinnar tíð- ar. Önnur, sú elzta — Benónýja — berst í bökkum á örreytiskotum Borg- arfjarðarhéraðs, stundum í hús- mennsku, við mikla örbirgð og barna- nauð. Hin, miðsystirin — Bóthildur — hleypti heimdraganum og freistaði gæfunnar í öðru landi — Noregi — þar sem ættbogi vænlegur er frá henni kominn. Átthagamir voru móður minni svo kærir að stappaði nær þráhyggju. Eiríksjökull var fegurstur fjalla á jarðríki. Hvammurinn, sem Jon nefn- ir í kvæði sínu, þar sem hvönnin teyg- ist á háum legg fram yfir gljúfravegg var nánast heilög jörð. Á síðari árum þegar móðir mín átti þess fyrst kost að heimsækja Rauðsgilið sitt iðulega og sporin lágu uppí Hvamminn, var jafnan aðgætt að gengið væri þar um svo hvergi sæi lýti á. Fellaflóinn var smalaland móður minnar. Enn ég um Fellaflóann geng, finn eins og titring í gömlum streng, hugann grunar við grassins rót, gamalt spor eftir lítinn fót. Gat hún tekið sér þau orð í munn ekki síður en höfundur þeirra. Til gamans gat hún þess að sín spor væru þar ólíkt fléiri ef grannt væri skoðað. Hinn verðandi prófessor mun lítt hafa verið um kýrrassa gefið, en strokið kettinum því oftar. En Bekka sem jafnan var svo nefnd snúningalipur og fóthvöt með afbrigðum. Þegar verðandi skáld fann ekki búsmalann, var heimasæt- an send á vettvang. Langt var að bíða þeirrar tíðar er jafnræði varð með piltum og stúlkum. Ekki þótti við hæfi að kvenfólk væri sent í haustleitir. Lagðprútt sauðfé streymdi af heiðum haust hvert sem glitrandi mjólkurár. Sá var draumur móður minnar er heitast brann að mega slást í-för gangnamanna og smala Arnarvatnsheiði. Ekki lá fyrir henni að sá draumur rættist. En þótt löng sé orðin bið eru ekki enn öll sund lokuð. Kannski á hún eftir að líta hin fyrirheitnu heiðalönd öðrum augum en þeim jarðnesku. Bernskudagar líða og unga stúlkan horfír frammá veg í þéttbyggðri. sveit. Um aldamót fór andi nýrra hugsjóna sem geisli um byggð ból snauðrar þjóðar. Ungmennafélags- hreyfingin hvatti æskulýð til dáða — sér í lagi um ræktun lands og tungu. Móðir mín gerðist einn stofnanda ungmennafélags í sinni byggð. Hér var “hleypt af stokkum félagsmála- skóla sinnar tíðar. Heimóttaskapur sveitamennskunnar vék fyrir djarf- legri umgengni æskulýðs og tungu- takinu var gefin ómæld umhyggja. Tvítug brýzt móðir mín til mennta. Mér er spurn hversu mörg dæmi þess hafa fundizt á þeirri tíð að sveitastúlka og tökubarn í ofanálag klifí þann þrítugan hamarinn að afla sér skólamenntunar af eigin ramm- leik og aflafé. Hún sótti nám sitt í Flensborg í Hafnarfirði, þar sem fóstra hennar Valgerður ásamt syn- inum Jóni hafði nú fest búsetu sína. Janus Jónsson, áður prófastur að Holti í Önundarfirði, hafði gerzt þar einn kennaranna. Kenndi sögu og íslenzka tungu. Þess er meðal annars getið í riti um Flensborgarskólann hvílíkur afburða kennari hann þótti í sínum fögum. Vitnaði móir mín oft- sinnis til þess sem hann hafði til málanna að leggja. Var séra Janus einskonar páfi og úrskurðarvald í málfarsefnum á æskuheimili mínu. Ég veit að þarna var m.a. lesin Egils- saga, sem nú er ekki borið við að kenna fyrr en í menntaskólum. Ekki þótti nægilegt að læra lexíurnar (til prófs). Nemendur höfðu málfundafé- lag, sem ekki er í frásögur færandi nema fyrir þá sök að auk þess að ræða landsins gagn og nauðsynjar sem lög gera ráð fyrir, þótti nemend- um þeirrar tíðar sér skylt að leiðrétta hvem annan, ef einhveijum varð eitt- hvað það að orði sem betur mátti fara. Sé litið til nútímans, er þá ekki Snorrabúð orðin stekkur í þessu til- liti? Svo dæmi sé tekið — meira tii skemmtunar — nefndust rúmlök rekkjuvoðir á mínu bernskuheimili, ekki mátti strauja þvott heldur var lín strokið, og handklæði nefndust þurrkur — þótt síðar fyndust að vísu dæmi þess að „dönskusletta" þessi stæði á bókum fornum og þarmeð sloppin úr „skammarkróknum“. — Ju, að vísu — víst mun nú eitthvað af þessum fróðleik þykja orka tví- mælis eða dæmast smekksatriði — þó hygg ég fúrðu fátt. En hvað er það í gjörðum manna sem ekki er svo farið? En það varðar harla litlu. Hitt skiptir öllu máli að viðleitnin þoki góðu máli áleiðis og stefnan sé rétt. Enn freistast ég til að vitna til ljóða Jóns Helgasonar. Mér finnst nú hann furðu oft mæla fyrir munn móður minnar. Hann segir: Svo talaði vitið. En hjarta mitt hitnaði og brann. Á herðum mínum ég dýrmætan þunga fann. Ég átti mér, þrátt fyrir allt, mína purpurakápu. í salarkynnum þessum var engin sái nema ein sem agaði mál sitt við stuðlanna þrískiptu grein né efldist að bragstyrk við orðkynngi heiðinnar drápu. Eftir fyrra námsár móður minnar syrti í álinn. Námsefnin uppurin. En Prófkjör sj álfstæðismanna í Reykjavík DAGANA 26. OG 27. OKTOBER 1990 Síbari dagur prófkjörsins er í dag, laugardag. Kosið er á 5 kjörstöðum í 6 kjördeildum. Kjörstaðir loka kl. 22:00. Kjósið í því hverfi sem þér hafið búsetu í Ef þér hafið ílutt til Reykjavíkur eftir 1. desember 1989 og ætlið aö gerast flokksbundin, þurfið þér að framvísa vottorði frá Hagstofunni sem staðfestingu á lögheimili í Reykjavík. Kjörstaðir verða opnir sem hér segir: Föstudaginn 26. október frá kl. 13:00 -22:00 í Valhöll, Háaleitisbraut 1 - öll kjörhverfin saman. Laugardaginn 27. október frá kl. 09:00 - 22:00 á 5 kjörstöðum í 6 kjörhverfum. Atkvæðisrétt eiga: Allir félagsbundnir sjálfstæðismenn í Reykjavík, sem þar eru búsettir og náð hafa 16 ára aldri prófkjörsdagana. Þeir stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins sem eiga munu kosningarétt í Reykjavík þann 25. apríl 1991 og undirritað hafá inntökubeiðni í sjálfstæðisfélag í Reykjavík fyrir lok kjörfundar. Hvernig á að kjósa ? Kjósa skal fæst 8 frambjóðendur og flest 12. Skal það gert með því að sfctja tölustaf fýrir framan nöfn frambjóðenda í þeirri röð sem óskaö er að þeir skipi endanlegan framboðs- Iista. Þannig skal talan 1 sett fyrir framan nafn þess frambjóðanda sem óskað er að skipi fyrsta sæti fraboðslístans, talan 2 fyrir framan nafn þess frambjóðanda sem óskað er að skipi annað sæti framboðslistans o.s.frv. 1. Kjörhverfi Nes- og Melahverfi, Vestur- og Miðbæjarhverfi og Austurbæjar- og Norðurmýrarhverfi. Öll byggð vestán Snorrabrautar og einnig byggð vestan Rauðarárstígs að Miklubraut. Kjörstaður: Hótel Saga (Nýja álman) 2. hæð, C-salur - Gengið inn um austurdyr. 2. Kjörhverfi Hlíða- og Holtahverfi, Laugarneshverfi og Langholtshverfi, öll byggð vestan Kringlumýrarbrautar og norðán Suðurlandsbrautar. Kjörstaður: Valhöll, Háaleitisbraut 1. (Vestursalur 1. hæð). 3. Kjörhverfi Háaleitis- og Smáíbúða-, Bústaða- og Fossvogshverfi. Hverfið afmarkast af Kringlumýrarbraut í vestur og Suðurlandsbraut í norður. Kjörstaður: Valhöll, Háaleitisbraut 1. (Austursalur 1. hæð). 4. Kjörhverfi Árbæjar-og Seláshverfi og Ártúnsholt. Kjörstaður: Hraunbær 102B (Suðurhlið). 5. Kjörhverfi Breiðholtshverfin - öll byggð í Breiðholti. Kjörstaður: Menningarmiðstöðin við Gerðuberg. 6. Kjörhverfi Graíárvogur - öll byggð í Grafárvogi. Kjörstaður: Verslunarmiðstöðin að Hverafold 1 - 3. hún hafði árið áður ráðist sem kaupa- kona hjá Bjarna bónda á Skáney. Nú sýndi sá góði maður af sér það drengskaparbragð að hann reiddi af höndum tveggja sumra kaup gegn því að móðir mín réðist enn til hans að ári liðnu. Barg hann svo skóla- göngunni. Var móðir mín langminn- ug þessa vinargreiða og afar hlýtt til þess Skáneyjar-fólks alla jafnan síðar. 1913 brottskráðist Rebekka með gagnfræðapróf frá Flensborg með afburðaeinkunn — þriðja efst af 24. Jón fóstbróðir var efstur þótt lang- yngstur væri allra nemenda. Hún vann eitthvað við fískbreiðslu á reit- unum í Hafnarfírði á námsárum sín- um. Ég minnist þess að hún hafði á orði hversu sárfætt hún hafi verið á grýttum fiskreitnum með íslenzka skó á fótum, eftir vetrargöngu á „dönskum" skóm á mýkri fjölum Flensborgarskólans. Hartnær þremur áratugum eftir að skólagöngu móður minnar lauk, þegar ég 'sjálfur byijaði að stauta ensku, er mér nú undrunarefni hversu enskukunnátta hennar stóð enn traustum fótum eftir svo langt hlé. Skjótt skal farið yfir langa sögu. Hun ræðst í vist í Reykjavík. Leggst fársjúk með taugagigt. Hafði síðar að orði hversu þungt sér hefði þá fundist reipin hvíla á grönnum herð- um eftir heyskapinn forðum tíð. En hún eykur við menntun sína og situr kennaranámskeið í höfuðborginni. í framhaldi af því ræðst hún sem far- kennari árið 1918 í fjarlæga byggð — í Ketiidali vestur. Lítt kann ég að greina frá kennarastörfum hennar þar, en sumir nemenda hennar frá þeim árum urðu síðar tryggir vinir. En kennarastarf var henni ætíð eink- ar hugleikið — og nánast hugsjón. Jón Helgason segir að hún hafi kennt sér að lesa, en ekki mun mikið hafa þurft að hafa fyrir þeirri kennslu. En seinna miklu á sjötta og sjöunda áratugnum, þegar hún var orðin búsett á Bíldudal, var mjög til hennar leitað að segja börnum til í lestri, hveijum sú íþrótt var misvel lagin einsog gerist og gengur. En börnum þessum kom hún öllum vel að sér og þeim vel til á rekspöí. Þau hafa síðar — einsog aðrir samferða- menn um ævidagana — sýnt ræktar- semi í hennar garð. Allmikil munu umskiptin hafa orð- ið að flytjast vestur. Ólíkt borgfirsku víðerni gnæfa fjöll þar sem hamra- veggir yfir höfðum manna og bústað- irnir klúka við salta ströndina. Lét hún síðar svo um mælt að sér hefði þótt sem fjöllin ætluðu að byrgja sig inni. Þó fór svo að hún staðfestist vestra. Hún gekk að eiga föður minn Magnús G. Magnússon ættaðan frá Ströndum norður árið 1919. Síðan tekur við hið hefðbundna hlutskipti sveitakonunnar: barneignir og bú- skaparbasl. Ingibjörg fæddist 1920, Páll árið eftir, Helgi 1923, Magnús Reynir 1927, Svanlaug 1930 og und- irritaður örverpið 1934. Búið var ásamt tengdaforeldrum í Feitsdal (sem flestir kalla Feigsdal) í Bakkad- al og skamman tíma á litlu koti hinu- megin ár — Granda að nafni. Feitsdalur mun ekki hafa verið óálitleg jörð á fyrri tíðar mælikvarða. Sýslumannssetur fyrir margt löngu — svo ólíklega sem það hljómar lengst á öðrum enda umdæmisins. Dönskum manni var eitt sinn veitt Barðastrandarsýsla. Það varð honum fyrst fyrir þegar hann sté á land á Fróni að spyijast fyrir hvenær næsta járnbrautarlest ætti áætlun til Feits-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.