Morgunblaðið - 27.10.1990, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 27.10.1990, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1990 Eiga sjómenn að sitja hjá afskiptir? eftir Ragnar G.D. Hermannsson Hver skyldi vera orsök þess að sjómenn eiga ekki sérlega fulltrúa á Alþingi? Þegar fyrsta stéttarfélag lands- manna, Skipstjóra- og stýrimanna- félagið Aldan, var stofnað 7. okt. 1893, gerðu stofnendur þess, sem voru sjómenn, sér fulla grein fyrir því að til að fá einhveiju breytt í þjóðfélaginu, þurfti að fá félags- menn og þá sem fyrir þá störfuðu á æðri stöðum, eins og í borgar- stjórn, sveitarstjórnum og á Al- þingi, til samstarfs. Til að gæta hagsmuna alþýðunn- ar og sjómanna á fyrri tímum unnu forvígismenn Öldunnar skipulega að því að koma málefnum á þing og fyrir borgarstjórn. Dæmi eru um ýmis málefni sem þeir höfðu áhrif á. í fyrstu átti t.d. Reykjavíkurhöfn að vera töluvert minni á skipulags- uppdrætti en síðar varð. Sjómenn áttu þá fulltrúa í borgarstjórn sem vann að því að fá höfnina stækkaða. Mörgum öðrum málum var þokað til betri vegar á þessum árum og kom berlega í ljós að það að koma mönnum í áhrifastöður, var rétt stefna. Síðan þá, hafa sjómenn ekki átt marga málsmetandi sjómenn í borgarstjóm eða á Alþingi, þó má ekki gleyma ýmsum góðum mönn- um sem lagt hafa dygga hönd á plóginn. Að öðrum ólöstuðum, vil ég nefna sérstaklega Pétur Sigurðs- son sem sjómenn nýttu sér allt of lítið til að vinna fyrir sig en þeir veittu honum heldur ekki að mínu mati nægan stuðning. Pétur vann mjög vel að ýmsum velferðarmálum fyrir sjómenn. Má þar nefna upp- byggingu á vegum DAS. Eru sjó- menn honum mjög þakklátir fyrir hans störf á þeim vettvangi og eins á öðrum sviðum þjóðlífsins. Sumir líta á framboð til Alþingis sem framapot þeirra manna sem bjóða sig fram en gleyma þá gjam- an áhrifastöðu alþingismanna og hve miklu þeir geta komið til leið- ar. Stjórnmálamenn og sveitar- stjómarmenn eru þannig leiðandi afl til að vinna vel að málefnum stærri þjóðfélagshópa. Sjómenn ættu -að hugleiða vel, hve bændastéttin hefur átt marga fulltrúa á Alþingi og hvemig þeir hafa unnið að sínum málum ásamt því að eiga oft ráðherra í ríkisstjórn- um. Sjómenn ættu að líta betur yfir staðreyndir í lífeyrismálum, sérstaklega sjómannskonunnar sem oft á erfitt með að vinna utan heim- ilis vegna barnauppeldis. Sjómannskonan tekur ekki ein- göngu þátt í uppeldi bama sinna, heldur sér hún um allt heimilishald sem eiginmaður annars tæki meiri þátt í ef hann starfaði í landi. Starf sjómanna leiðir af sér að sjómanns- konan er oft ekki í aðstöðu til að fara út á vinnumarkaðinn, fyrr en börnin eru orðin stálpuð eða upp- komin. Hún á þá mikið verk fyrir höndum að aðlagast vinnumarkað- inum. Hún hefur þá ekki haft tæki- færi til að ávinna sér stig í lífeyris- sjóði, á meðan hún er bara húsmóð- ir. Þar af leiðir að lífeyrisgreiðslur til hennar era ekki miklar að lokn- um starfsdegi. Fróðlegt væri fyrir sjómenn að kynna sér betur hvernig þessu er fyrir komið hjá eiginkonum bænda og hve þ'ær era miklu lengra komn- ar í þessum málum. Að engu leyti má skilja orð mín á þann veg að þetta séu ekki sjálfsögð mannrétt- indi þeim til handa. En ef við berum saman þessar tvær stéttir kvenna blasir eftirfarandi við: Á fjárlögum hvers árs eru jafnan greiddar nokkrar fjárhæðir til líf- eyrissjóðs bænda og af þeim upp- hæðum fá eiginkonur bænda nokk- urn hluta til að ávínna sér lífeyris- réttindi. Á þennan máta vinnur bóndakon- an sér inn lífeyrisréttindi, á meðan eiginkonur sjómanna fá engin sam- bærileg. Hér er því að nökkru um mismunun að ræða. En hvers á sjó- mannskonan að gjalda, að eiga ekki jafnan rétt á lífeyrissjóðsréttindum, þótt hún sé heimavinnandi? Eru störf hennar svo frábrugðin störfum landbúnaðarkonunnar sem oftast er sjálfstæður atvinnurekandi? Getur það verið að þar muni mestu að sjómenn eiga of sjaldan og oft alls engan fulltrúa á Al- þingi? En bændastéttin hefur oft átt marga þingmenn og ráðherra, sama á við um lögfræðinga og aðra háskólaborgara. Ekki er ólíklegt að skýringin liggi einmitt þar. En getur verið að það halli á sjó- menn í fleiri málum? Hvernig breyt- um við þessu ástandi? Eg fullyrði að með því að styðja þá fyrrverandi sjómenn sem gefa nú kost á sér til prófkjörs og þing- starfa, eftir næstu alþingiskosning- ar, munum við ná betur fram ýms- um framfaramálefnum sjómanna. Höfundur er formaður Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Öldunnar. Sólveig Pétursdóttir er traustsins verð eftir Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson Það skiptir máli hveijir veljast til setu á Alþingi. Sólveig Péturs- dóttir hefur sýnt það og sannað með störfum sínum sem varaþing- maður þetta kjörtímabil, að hún er þess trausts verð að gegna þing- mennsku. Hún hefur verið ötull baráttu- maður margra góðra mála, lagt áherslu á vandaðan málatilbúnað og sýnt það með störfum sínum að hún er verðugur fulltrúi sjálfstæðis- manna á Alþingi. Ég hvet þátttakendur í prófkjöri sjálfstæðismanna nú um helgina til að kjósa Sólveigu Pétursdóttur í sæti ofarlega á framboðslistanum. Höfundur er borgarfulltrúi sjálfstæðismanna í Reykjavík. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Kjósum Guðmund H. Garðarsson eftirJón Gunnar Hannesson Síðastliðið vor lá fyrir Alþingi frumvarp heilbrigðisráðherra um breytingu á lögum um heilbrigðis- þjónustu. Gert var ráð fyrir algjörri ríkiseinokun á allri heilbrigðisþjón- ustu í landinu. Sá ásetningur heilbrigðisráð- herra að svipta heilbrigðisstéttir athafnafrelsi sínu hefði á skömmum tíma leitt til ófremdarástands og stórum lakari heilbrigðisþjónustu en fyrr. Hér var svo sannarlega veist að bæði veitendum og þiggj- endum heilbrigðisþjónustunnar. Guðmundur H. Garðarsson sat í heilbrigðisnefnd efri deildar Alþing- is þar sem hann kynnti sér málin vel. Með dugnaði og harðfylgi fékk Guðmundur breytt nokkrum megin- atriðum lagafrumvarps ráðherra þannig að enn er gert ráð fyrir frelsi fólks til að velja sér heilbrigð- isþjónustu utan sjúkrahúsa. Hér er um grundvallarmannrétt- indi að ræða og kemur ekki á óvart að Guðmundur ber skynbragð á það. Guðmundur H. Garðarsson mun hér eftir sem hingað til standa vörð um frelsi og einstaklingsframtak. Hann hefur sýnt með baráttu sinni fyrir réttindum launafólks og lífeyrisþega að hann er verðugur fulltrúi sjálfstæðisstefnunnar á Al- þingi. Tryggjum Guðmundi öruggt sæti í prófkjörinu nú um helgina. Höfundur er iæknir. Jón Gunnar Hannesson Um Vífílsfell liggja spor frá land- námi til nútíma eftirHöskuld Jónsson Á sunnudaginn 28. október er gönguferð á Vífilsfell. Vífilsfell er fjallið sem rís hæst fyrir norðan Bláfjöll og því ásjóna þess kunn flestum þeim sem fara austur fyr- ir fjall eða í skíðalöndin í Bláfjöll- um. Vífilsfell er 655 m á hæð en ganga á hæsta tind þess er mun skemmri og auðveld þar sem gangan hefst í rúmlega 200 m hæð og leiðin upp er greið við allar venjulegar aðstæður. Það er ærin ástæða fyrir íbúa í landnámi Ingólfs Amarsonar að líta til þessa fjalls. Sagnir herma að nafn sitt fái ijallið frá Vífli þeim, er ásamt Karla fann önd- vegissúlurnar í Reykjavík. Vífill reisti bú á Vífilsstöðum -en réri jafnframt til fískjar þegar gaf. Hann rölti dag hvern upp á fellið til að gá til veðurs og Iét veðurút- lit ráða sjóferðum sínum. Vífill hefur verið harla léttur i spori enda vafalaust í góðri þjálf- un. Hann hafði gengið vestur alla suðurströndina austan úr Álfta- firði til Reykjavíkur og sumt af leiðinni tvisvar. Utiveran þá hefur verið jafn bætandi og nú. í Land- námabók er þess sérstaklega get- ið að Vífíll hafí búið lengi á Vífíls- stöðum og verið skilríkur maður. Það er fleira en veðrið sem í má ráða. af tindi Vífilsfells. Þar blasir við norðurströnd Reykja- A slóðum Ferðafélags íslands ____________________________/ nesskagans og byggðir á Innesj- um. Þaðan sér til Akrafjallsins, Skarðsheiðarinnar, Esju og Botnssúlna. í fjarska má greina Langjökul, Heklu, Eyjaíjallajökul og Vestmannaeyjar. Kennileitin era miklu fleiri en hér má upp telja. Á Vífílsfelli var hringsjásem Ferðafélag íslands kom þar fyrir í lok október 1940. Geymdi hún ömefni og var öllum auðvelt að átta sig á hvar fjöll þau mátti sjá, sem nefnd vora. Hálf öld er liðin frá því hring- sjá var sett á Vífílsfell. Jón Víðis, landmælingamaður, teiknaði sjána og gaf Ferðafélaginu teikn- inguna. I ofviðri fyrir tveimur árum fauk skífan af stöplinum og fannst hún skömmu síðar í hlíðum fellsins. Það ótrúlega gerðist, að Horft til Vífilsfells frá Sandfelli. skífan skemmdist ekki utan að rispast smávegis. Nú hefur sjáin verið hreinsuð og fægð og verður að nýju tekin í notkun á sunnu- daginn. Ferðafélag íslands hefur sett upp 9 hringsjár víða um land. Elsta hringsjáin er á Valhúsahæð á Seltjarnamesi, reist 1938. Ég fluttist til Reykjavíkur 1945, ný- orðinn 8 ára. Það vill svo til að skömmu seinna fór ég í fyrstu alvöru gönguferð mína um land- nám Ingólfs. Gekk ég þá með fóstra mínum frá Grettisgötunni út á Valhúsahæð og heim aftur. Fóstri minn átti sjónauka í þrem- ur þrepum sem draga mátti út og bregða fyrir annað augað. Þessi kíkir var lagður á hringsjána og fjallahringurinn síðan skoðað- ur í nærmynd. Þá fannst mér Keilir tignastur fjalla. Vorið eftir fór ég í fýrstu ferð mína með Ferðafélagi íslands og gekk þá á Vífilsfell. Þegar ég sá hringsjána þar, þóttist ég vita allt um not slíkrar skífu. En hvernig svo sem sú þekking kann að hafa verið, þá hafa þessi kynni mín af hring- sjám leitt til þess, að ég nem gjarnan staðar þar sem hringsjár eru, virði sjóndeildarhringinn fyrir mér og reyni að festa mér í minni svip og heiti þess er ég lít. Ferðin nk. sunnudag héfst við Umferðarmiðstöðina austanverða kl. 13. Takið með ykkur nesti, góða skó og skjólgóð föt. Ljósm./Ferðafélag íslands Mynd af hinni hálfrar aldar gömlu útsýnisskífu af Vífilsfell- inu, en hún verður sett á sinn stað að nýju fyrir sunnudaginn 28. október.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.