Morgunblaðið - 27.10.1990, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 27.10.1990, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1990 KNATTSPYRNA / FRAKKLAND Amór bíður eftir „grænu ljósi“ frá Anderiecht - verður í byrjunarliði Bordeaux í kvöld, ef skeyti frá Anderlecht um stað- festingu á félagaskiptum verður komin í tæka tíð „ARNÓR verður í byrjunarlið- inu gegn Nancy ef staðfesting- arskeyti frá Anderlecht um að hann sé laus allra mála hjá belgíska félaginu berst ítæka tíð,“ sagði Gérard Gili, þjáifari Bordeaux í samtali við Morgun- blaðið í gær. Arnór æfði með Bordeaux í gærmorgun. Æfingin var létt, upphitun og síðan var spilað á tvö mörk. Síðan tók Gili fjóra leikmenn á séræfingu á eftir Frá og var Arnór einn Bernharði þeirra. Hann lét Ar- nór og franska landshðsmanmnn, Deschamps, leika saman gegn tveimur varnarmönnum. Gili sagði að Arnór ætti að leika í fremstu víglínu gegn Nancy, ekki á miðjunni. „Ég ætla að reyna hann frammi til að byrja með og ef það gengur ekki upp færi ég hann á miðjuna." Talið er líklegt að Arnór verði frammi með Ferreri eða Hol- lendingnum Wim Kieft. Sá síðar- nefndi á reyndar við meiðsli að stríða og ekki víst að hann geti leik- ið í kvöld. Leikmenn Bordeaux héldu í gær- kvöldi í kastala, sem félagið á 25 km utan við borgina. Það er venja að leikmenn kómi saman í kastalan- um kvöldið fyrir heimaleiki liðsins. Þar sem tveir og tveir leikmenn eru saman í herbergi. í morgun átti að vera létt upphitunaræfing, síðan matur og töfluæfing áður en haldið yrði í rútu á Park Lescure-leikvang- inn í Bordeaux, sem tekur 50 þús- und áhorfendur. Leikurinn hefst kl. 19.30 að íslenskum tíma. Arnór var kynntur rækilega í bæjarblöðunum í gær og greinilegt að áhugi borgarbúa á knattspyrnu- liði sínu er gífurlegur. Leigubflstjóri sem ég hitti var mjög áhugasamur um þennan nýja leikmann frá ís- landi. Hann vissi allt um Amór jafn- vel hvað hann væri hár og þungur. Nokkur hundruð áhorfendur mættu á æfinguna hjá Bordeaux í gær- morgun og voru aðallega að koma til að sjá „Glókollinn" frá íslandi. HANDKNATTLEIKUR Alfreð inni í myndinni Alfreð Gislason, sem leikur með Bidasoa á Spáni, er inní landsliðs- myndinni hjá Þorbergi Aðalsteinssyni, landsliðsþjálfara. Alfreð hafði áður lýst því yfir að hann ætlaði að taka sór frí frá landsiiðinu. Þorbergur sagðist hafa haft samband við Alfreð og væri hann mjög jákvæður á að koma inn í landsliðið aftur á næsta ári. Kristján Ara- son, sem hefur verið meiddur í öxl, mun leika með íslenska landsliðinu gegn Svíum hér heima milli jóla og nýárs og eins koma þeir Geir Sveinsson, Héðinn Gilsson og Julíus Jónasson. Arnór Guðjohnsen verður væntanlega í byijunarliði Bordeaux í kvöld gegn Nancy í frönsku 1. deildinni. Á myndinni er Amór ásamt Patrick Vervoort í leik með Anderlecht, en þeir félagar leika nú báðir með Bordeaux. íp/émR FOLK ■ HLYNUR Stefámsson var kjör- inn besti leikmaður ÍBV í lokahófi knattspyrnuráðs ÍBV sl. laugardag. Hlynur fékk einnig viðurkenningu fyrir að vera markahæsti leikmaður liðsins. Huginn Helgason var út- nefndur efnilegasti leikmaður 2. flokks ÍBV og Sigurður Ingason var valinn besti leikmaður 2. flokks. ■ IAN Ross hefur verið endurráð- in þjálfari KR í knattspyrnunni fyr- ir næsta keppnistímabil. Tékkinn Ivan Sochor, sem var markmanns- þjálfari og með 2. flokk félagsins í sumar, verður aðstoðarmaður Ross. ■ PETUR Guðmundsson, kúlu- varpari, náði góðum árangri á kast- móti Ármanns á fimmtudagskvöld. Hann varpaði kúlunni 20,77 m og jafnaði besta árangur sinn. ■ GRINDVÍKINGAR hafa ráðið til sín bandaríska leikmanninn, Dan Krebbs, til að leika með félaginu í úrvalsdeildinni í vetur. Áður höfðu þeir látið tvo leikmenn fara þar sem þeir voru ekki nægilega góðir. Krebbs hefur leikið í Ástralíu síðustu árin. Hann kemur væntan- elga til landsins í dag og leikur á morgun með UMFG gegn UMFN. ■ RÚNAR Guðmundsson hefur verið ráðinn knattspyrnuþjálfari Bolvíkinga, sem ætla sér að senda lið í 4. deild næsta sumar. Rúnar er fyrrum leikmaður og þjálfari IBÍ. ■ FRÖNSKU meistararnir frá Marseille töpuðu fyrri leik sínum í Evrópukeppni meistaraliða gegn pólska liðinu Poznan, 3:2, í Póll- andi á fimmtudagskvöld. Jean Tig- ana kom Marseille yfir í upphafi leiks, en Lukasik jafnaði um miðjan fyrri hálfleik. Pachelski og Jazkowiak bættu öðru og þriðja markinu við fyrir Poznan áður en Waddle minnkaði muninn fyrir Marseille. ■ PELE hefur ekki verið hrifinn af þeirri hugmynd u að stækka knattspyrnumörkin til að gera knattspyrnuna skemmtilegri. „Það yrði glæpur gegn knattspyrnunni að stækka mörkin. Þessi hugmynd hlýtur að koma frá aulum sem geta ekki skorað mörk,“ sagði Pele í samtali við France Football. ÚRSLIT HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ Körfuknattleikur ÍS - KR 47:34 íþróttahúsi Kennarháskólans, 1. deild kvenna í körfuknattleik, fimmtudaginn 25. okt. 1990. Stig ÍS: Hafdís Helgadóttir 15, Vanda Sig- urgeirsdóttir 12, Vígdís Þórisdóttir 9, Kol- brún Leifsson 6, Elínborg Guðnadóttir 2, Kristín Sigurðardóttir 2. Stig KR: Anna Gunnarsdóttir 13, Helga Ámadóttir 12, Kolbrún ívarsdóttir 4, Jónína Kristinsdóttir 2, Mana Guðmundsdóttir 2, Hrund Lárusdóttir 1. m IS byijaði leikinn vel, en misti 10 stiga forskot niður í eitt stig, en náði sér síðan á strik undir lokin. Hafdís Helgadóttir átti mjög góðan ■^■■■■1 leik og Vígdís Þórís- Vanda dóttir barðist vel. Sigurgeirsdóttir KR-stúIkurnar áttu skrifar ágætan leik, spiluðu góða vörn og eru greinilega á uppleið. Haukar - UMFG 72:20 íþróttahúsið Strandgötu, íslandsmótið í körfuknattleik - 1. deild kvenna, fimmtu- daginn 25. okt. 1990. Stig Hauka: Svanhildur Guðlaugsdóttir .18, Hafdís Hafberg 10, Anna Guðmundsdóttir 10, Eva Havlik 6, Hanna Kjartansdóttir 6, Dóra Garðarsdóttir 6, Sigrún Skarphéðins- dóttir 6, Guðbjörg Norðfjörð .4, Herdís Gunnarsdóttir 4, Elín Hreinsdóttir 2. Stig UMFG: Kristjana 7, Sirrý 4, Guðrún Sif 4, Kristbjörg 2, Anna S. 2 og Anna Dís 1. Haukar áttu allan leikinn eins og tölumar gefa til kynna. Svan- hildur Guðlaugsdóttir stóð sig mjög vel, en hún var að byija aftur eftir fímm ára hlé. Grindavík hefur misst marga leikmenn og er með ungt og efnilegt lið sem þarf meiri reynslu. Þorbergur hefur valid 19 leikmenn til æfinga Landsliðið kemursaman um helgina. Næsta verkefni eru þrír leikir gegn Tékkum í lok nóvember ÞORBERGUR Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari í handknatt- leik, hefur valið 19 leikmenn, sambland úr A-landsliðinu og U-21 ársliðinu, til æfinga um helgina. Upphaflega átti að vera landsleikur við Hollend- inga um þessa helgi, en þeir sáu sér ekki fært að koma hing- að og því ákveðið að hafa landsliðsæfingar. orbergur sagði að þetta væri blandaður hópur og uppistaðan strákar sem kæmu til með að vera burðarásarnir í HM ’95 liði íslands og A-Iandsliðsmenn. Næsta verk-, efni íslenska landsliðsins eru þrír leikir gegn Tékkum 23. - 25. nóv- ember. Síðan koma Svíar og leika hér milli jóla og nýárs. Eftirtaldir leikmenn skipa æf- ingahóp Þorbergs: Markverðir: Guðmundur Hrafn- kelsson og Bergsveinn Bergsveins- son, FH, Hrafn Margeirsson, Víkingi og Axel Stefánsson, KA. Hornamenn: Jakob Sigurðsson, Val og Konráð Olavson, KR í vinstra horni. Bjarki Sigurðsson, Björgvin Rúnarsson, Víkingi og Valdimar Grímsson, Val, í því hægra. Línumenn: Birgir Sigurðsson, Víkingi og Finnur Jóhannesson, Val. Vinstrihandar skyttur: Magnús Sigurðsson, Stjörnunni og Stefán Kristjánsson, FH. HægTÍhandar skyttur: Sigurður Bjarnason, Stjörnunni og Einar Sig- urðsson, Selfossi. Leikstjórnendur: Guðjón Árnason, FH, Gunnar Andrésson, Fram, Pat- rekur Jóhannsson, Stjörnunni og Jón Kristjánsson, Val. Þorbergur Aðalsteinsson, Iandsliðsþjálfari.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.