Morgunblaðið - 27.10.1990, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 27.10.1990, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1990 - segir Sveinn Sveinbjörnsson leið- angursstjóri á Árna Friðrikssyni „Aðal-loðnuveiðistofninn er að öllum líkindum djúpt norðaustur af landinu, eins og hann hefur langlíklegast verið á sama tíma í fyrra og við höldum næst á þær slóðir," segir Sveinn Sveinbjörnsson leiðangursstjóri á rannsóknaskipinu Arna Friðrikssyni, sem nú er í loðnuleiðangri. Ami Friðriksson fann loðnu í kantinum 60 sjómílur austur af Langanesi aðfaranótt fimmtudags en hún er nyög blönd- uð, að sögn Sveins Sveinbjömssonar. „Þegar loðnan gengur um þetta svæði er hún 60-80 sjómílur frá Langanesinu og langlíklegast er að þetta sé loðna, sem skipin voru í aðeins vestar og norðar en misstu frá sér,“ segir Sveinn Sveinbjörns- son. „Ef allt er með felldu er þessi loðna einungis örlítið brot af veiði- stofninum, því hún er svo mikið blönduð smáloðnu, sem hrygnir ekki núna. Við vonum því að aðal- veiðistofninn sé djúpt norðaustur af landinu og munum leita þar næst,“ segir Sveinn. Hann segir að Árni Friðriksson hafi fundið aðal-loðnugönguna á síðustu vertíð út af miðjum Aust- fjörðum ,viku af janúar. „Okkur datt ekki í hug að leita að loðnu á þessum óvenjulegu slóðum djúpt norðaustur af landinu, því við sáum þessar geysilegu breytingar á göngu loðnunnar í fyrsta skipti í fyrra,“ segir Sveinn Sveinbjörns- son. Loðnuskipin fengu þokkaleg köst á fímmtudagskvöld og veiðamar gengu sæmilega aðfaranótt föstu- dags. Þá voru á miðunum Börkur NK, Víkingur AK, Súlan EA, Hilm- ir SU, Björg Jónsdóttir ÞH, Öm Reykjavík: Piltur féll milli svala ÁTJÁN ára gamall piltur féll fram af svölum á þriðju hæð íbúðablokkar í Árbænum á föstu- dagskvöld. Pilturinn hafði hallað sér fram af svölunum til að kasta upp en féll niður á næstu svalir fyrir neð- an. Farið var með piltinn á slysa- deild en erfítt var að gera sér grein fyrir hversu mikið slasaður hann var, þar sem hann var vel við skál. KE, Þórður Jónasson EA, Háberg GK, Þórshamar GK, Hólmaborg SU og Guðrún Þorkelsdóttir SU. Á föstudag fór Þórshamar GK með afla til Þórshafnar og Háberg GK til Grindavíkur en það er í fyrsta skipti, sem loðnu er landað þar á þessari vertíð. Morgunblaðið/KGA Próflgöri sjálfstæðismanna í Reylgavík um skipan framboðslista flokksins fyrir næstu alþingiskosning*- ar lýkur klukkan 22 í kvöld. Myndin var tekin í Valhöll í gær. Sjálfstæðismenn í Reykjavík: Tæplega 1.800 hafaþegar greitt atkvæði í prófkjörinu ÞEGAR kjörfundi lauk í gær að loknum fyrri próflyörsdegi hafði 1.771 greitt atkvæði í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Eru þá utankjörstaðaatkvæði meðtalin. Alls hafa um 11.500 flokks- menn kosningarétt í prófkjörinu, auk þess sem þeir stuðnings- menn flokksins geta greitt atkvæði, sem undirritað hafa inntöku- beiðni í sjálfstæðisfélag í Reykjavík fyrir lok kjörfundar klukkan 22 í kvöld. í dag eru einnig prófkjör hjá sjálfstæðismönnum á Suðurlandi, Vestfjörðum og á Austurlandi. 21, kjörstaðir á Vestfjörðum eru yfírleitt opnir milli klukkan 10 og 20 og á Austurlandi frá klukkan 10 til 20. í þessum þremur kjör- dæmum verður ekki talið fyrr á sunnudag. í gær fór kosning í prófkjöri sjálf- stæðismanna í Reykjavík fram í Valhöll milli klukkan 13 og 22. í . dag er hins vegar kosið á 5 kjörstöð- um. Þeir eru: Hótel Saga (vestur- hluti borgarinnar, vestan Snorra- brautar og vestan Rauðarárstígs að Miklubraut), Valhöll (öll önnur byggð austur að Elliðaám), Hraun- bær 102B (Árbær, Selás ogÁrtúns- holt), Gerðuberg (Breiðholt) og verslunarmiðstöðin að Hveráfold 1-3 (Grafarvogur). Kjörstaðir í dag verða opnir frá klukkan 9 til 22. Atkvæðisrétt í prófkjörinu hafa allir félagsbundnir sjálfstæðismenn í Reykjavík, sem þar eru búsettir og hafa náð 16 ára aldri í dag. Auk þess er prófkjörið opið þeim stuðn- ingsmönnum Sjálfstæðisflokksins, sem eiga munu kosningarétt í Reykjavík þann 25. apríl 1991 og hafa undirritað inntökubeiðni í sjálfstæðisfélag í Reykjavík fyrir lok kjörfundar. Að sögn Kjartans Gunnarssonár, framkvæmdastjóra Sjálfstæðis- flokksins, hefst úndirbúningur taln- ingar klukkan 16 í dag og má vænta fyrstu talna nokkru eftir að kjör- stöðum verður lokað klukkan 22. Búist er við að endanleg úrslit liggi ekki fyrir fyrr en aðfaranótt sunnu- dags. I dag fara einnig fram prófkjör um skipan framboðslista Sjálfstæð- isflokksins í Suðurlandskjördæmi, á Vestfjörðum og á Austurlandi. Kjörstaðir á Suðurlandi opna ýmist klukkan 10 eða 14 og loka klukkan Miðslj órnarfundur Alþýðubandalagsins: Kröfur um að deilum forustumanna linni ÞESS var krafist af forystumönnum Alþýðubandalagsins, við upphaf miðstjórnarfundar flokksins sem hófst á Akureyri í gær, að þeir hætti „nú þegar innanflokksdeilum sem eru að gera flokkinn óstarfhæfan". Það var Heimir Pálsson sem las upp samþykkt aðalfundar Alþýðu- bandalagsins í Kópavogi frá því á mánudag, þar sem kröfu þessa var m.a. að fínna. Heimir var þungorður í garð forustumanna flokksins „Við krefjumst þess að þeir hætti að reyna að upphefja sjálfa sig á kostriað félaga sinna og nánustu samstarfsmanna hvenær sem þeir komast í sviðsljós. Hætti að láta persónulega hefnigimi flæða yfir ai- þjóð úr ljósvaka- og prentmiðlum. Hætti að stimpla hver annan leynt og ljóst svikara og illræðismenn hve- nær sem færi gefst á. Við krefjumst þess þar með að ágreiningur sé jafn- aður í samræðum og með samráði og menn hætti að hrekja sjálfa sig út í horn með óhugsuðum bráðræðis- yfirlýsingum. Og við krefjumst þessa, vegna þess að við horfum fram á það að ekki verði aðeins einstakir ábyrgðarmenn flokksins búnir að rýja sjálfa sigtrausti kjósenda heldur allan flokkinn. Og fari svo verður eftirleikurinn ekkert gamanmál," sagði Heimir Pálsson. Áöal-loðnuveiðistofn- inn líklegaát djúpt norðaustur af landinu Könnun á vinnuafisþörf: ~ Atvinnurekendur vilja fjölga starfsfólki um 300 Eftirspumin mest í fiskiðnaði á landsbyggðinni Atvinnurekendur á landinu öllu vildu fjölga starfsmönnum um 300 í september, samkvæmt könnun Þjóðhagsstofnunar og félagsmála- ráðuneytis á atvinnuástandi og atvinnuhorfum. Þetta er tvöfalt meiri eftirspurn en kom fram í síðustu könnun, sem gerð var í apríl, og samkvæmt könnun í september í fyrra vildu atvinnurekend- ur þá fækka um 360 störf. Mest eftirspum er eftir vinnuafli í fiskiðn- aði og á sjúkrahúsum en minnst í verslun og veitingarekstri. Kannanir þessar eru tvisvar á ári, vor og haust, og ná til fyrir- tækja í öllum atvinnugreinum nema landbúnaði, fiskveiðum og opinberri þjónustu. Í september sl. varð niður- staðan sú að á landsbyggðinni töldu atvinnuveitendur æskilegt að fjölga störfum um 360, en fyrir ári ríkti jafnvægi á vinnumarkaði þar. Á höfuðborgarsvæðinu vildu atvinnu- rekendur hins vegar fækka um 60 störf en á sama tíma í fyrra vildu þeir fækka um 280 störf. Af einstökum greinum var eftir- spum eftir vinnuafli nú mest í fisk- iðnaði, en þar vom 365 laus störf, öll á landsbyggðinni. Þetta er meiri eftirspurn en mælst hefur frá sept- ember 1988. í frétt frá Þjóðhags- stofnun segir að þetta veki athygli í Ijósi þess, að á síðustu miskerum hafí atvinnuleysi verið að aukast á landsbyggðinni og heldur meðal kvenna en karla. Mesta fækkun var í verslun og veitingastarfsemi, en þar vildu at- vinnurekendur fækka um 200 störf, þar af um 170 á höfuðborgarsvæð- inu. í apríl vildu atvinnurekendur hins vegar fjölga um 40 störf. Þjóð- hagsstofnun telur að þessar niður- stöður bendi til þess að enn sé ríkjandi verulegur samdráttur í greininni, og að umsvifm séu veru- lega sveiflukennd. Jafnvægi ríkir í eftirspum eftir vinnuafli í almennum iðnaði. At- vinnurekendur vildu þar fjölga um 23 störf, eingöngu á höfuðborgar- svæðinu. í byggingarstarfsemi vildu atvinnurekendur fjölga um 80 störf í september, sem er jafnmikið og í apríl sl. en mun minna en í september á síðasta ári. Þá var jafn- vægi í samgöngum, atvinnurekend- ur vildu hvorki fækka né fjölga starfsfólki. í sjúkrahúsarekstri er talin þörf á að fjölga um 150 störf, sem er tvöföldun frá apríl. Eftirspumin er tvöfalt, meiri á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni, eða um 100 störf. í öðrum þjónustugreinum er hins vegar talin þörf fyrir að fækka um 130 störf, sem er jafn mikil fækkun og fyrir ári. Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Vegfarendur virða fyrir sér fley piltanna á einni bryggjunni í Keflavík í gær - lengra má sjá Hegra KE 107 sem bjargaði piltunum. Björgiín úr sjávarháska í Njarðvík: Rak út á sjó í fiskikeri Keflavik. TVEIR ungir menn, 20 og 22 ára, voru hætt komnir í Njarðvík rétt fyrir hádegi í gær þegar 600 lítra fiskikar sem þeir voru að leika sér í við fiskvinnslu Brynjólfs í Innri-Njarðvík rak skyndilega frá landi og stefndi út Stakksfjörð. Jóhann Pétursson hafnsögumaður fór á báti sínum Hegra KE ásamt 3 lögreglumönnum og bjargaði piltun- um. Fley þeirra félaga var þá komið á móts við sjóvarnargarðinn í Ytri- Njarðvík og stefndi út á Flóa fram njá Keflavík. „Ég er hræddur um að það hefði getað fari illa ef þeir hefðu verið komnir mikið lengra, þetta var orðin spurning um mínútur," sagði Jóhann. Sterkt útfall var og karið rak hratt, en Jóhann sagði að það hefði þó verið nokkuð stöðugt þar sem pilt- arnir hefðu legið á botninum. „En það hefði áreiðanlega ekki verið langt í að karið hefði fyllt eða því hvolft ef það hefði rekið mikið lengra frá landi,“ sagði Jóhann Pétursson hafn- sögumaður. BB

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.