Morgunblaðið - 27.10.1990, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1990
VEÐURHORFUR I DAG, 27. OKTOBER
YFIRLIT { GÆR: Um 300 km vestur af Reykjanesi er 978 mb tægð
sem þokast vestur en skammt vestur af Skotlandi er 985 mb lægð
á hægri hreyfingu norður og síðar norðvestur.
SPÁ: Suðaustan- og austanátt, víöa stinningskaldi og rígning norð-
antands og austan en hægari norðvestan- eða breytileg átt og
skúrir suðvestanlands. Hlýtt verður áfram.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG: Fremur hæg austlæg átt á landinu, þoku-
súld við austurströndina og á annesjum norðanlands og skúrfr
sunnanlands en þurrt að mestu í öðrum iandshlutum. Hiti 3 tif 8 stig.
HORFUR Á MÁNUDAG: Nokkuð stíf norðaustanátt og kólnandi
veður. Él norðanlands en léttskýjað um landið sunnanvert.
TÁKN:
Heiðskírt
<jk Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrimar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* # * * Snjókoma
10 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
y Skúrir
*
V E1
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—(- Skafrenningur
|~<^ Þrumuveður
*• m rtr
▼ VEÐUR Vl m 4. UM HEIM
kl. 12:00 i. gær hlti að M tíma veóur
Akureyri 8 skýjað
Reykjavik 9 sútd
Bergen 11 léttskýjaö
Helsinki 10 léttskýjaö
Kaupmánnahöfn 11 þokumóöa
Narsserssuaq *4 skýjaö
Nuuk sí;*4í: alskýjaö
Ósló 3 iéttakýjað
Stokkhölmur é skýjað
Þórshöfn 10 rigning
Algarve 19 rigning
Amsterdam 13 skýjað
fiarcelona 21 skýjað
Berlin 10 háifskýjað
Chlcago i:s# léttskýjað
FeneyjBr vantar
Frankfurt 12 mistur
Qlasgow 13 skýjað
Hamborg 9 mlstur
LaaPalmas 26 léttskýjað
London 11 rlgnlng
Los Angetes 1ÉÉ þoka
Lúxemborg 10 rignmg
Madrid 14 súis
Malaga 21 skýjað
Mallorca 20 skýjað
Montreal 3 skýjað
NewYork S aiskýjað
Orlando 0 heiðskírt
Paris 12 skýjað
Róm 20 léttskýjað
Vín 9 alskýjað
Washington 9 skýjað
Winnipeg is 3: léttskýjað
Bylgjan boðar verk-
fall 20. nóvember
SKIPSTJÓRA- og stýrimannafélagið Bylgjan á Vestfjörðum hefur
boðað verkfall frá hádegi 20. nóvember næstkomandi, að sögn Reyn-
is Traustasonar formanns ByJgjunnar. „Við erum ekld í neinum skæru-
hernaði en úrslit í atkvæðagreiðslu um kjarasamning félaga okkar í
Farmannasambandinu hljóta að hafa áhrif á okkar vígstöðu og við
inunum fara nyög vandlega yfir okkar stöðu þegar úrslitin liggja
fyrir,“ segir Reynir.
Farmanna- og fiskimannasam-
band íslands og Landssamband
íslenskra útvegsmanna gerðu nýlega
samning um kjör yfirmanna á fiski-
skipum. Úrslit í atkvæðagreiðslu um
samninginn eiga að liggja fyrir 3.
nóvember næstkomandi en FFSÍ
hafði boðað verkfall yfirmanna á
fiskiskipum frá 20. nóvember. „Við
höfum ekki treyst okkur til að fylgja
þessum kjarasamningi eftir úti í fé-
lögunum, nema þá með þeim afleið-
ingum að hann yrði felldur og þá
stæðum við í þeim sporum að þurfa
jafnvel að beijast einir í vonlausu
máli,“ segir Reynir Traustason.
Kjarasamningur Bylgjunnar við
Útvegsmannafélag Vestfjarða hefur
verið laus frá áramótum. „Við höfum
alltaf samið sér og ég held að við
kotnum til með að gera það á næstu
árum að minnsta kosti. Okkar samn-
ingur er betri en samningur Far-
mannasambandsins. Við erum til
dæmis með hærri skiptaprósentu og
hærri kauptryggingu. Við beygjum
okkur undir þjóðarsáttina og olíu-
verðstengingin er í raun og veru
eini ásteytingarsteinninn en hann
er stór,“ segir Reynir. Bylgjan vill
að henni verði breytt um að um að
minnsta kosti 12-15 dollara.
Helstu ákvæði samnings FFSI og
LÍÚ um kjör yfirmanna á fiskiskip-
um eru þau að kauptrygging og
aðrir kaupliðir hækka í samræmi við
þjóðarsáttarsamningana frá febrúar
síðastliðnum og skiptahlutur byijar
ekki að skerðast vegna olíuverðs
fyrr en það er orðið 165 dollarar í
stað 157 nú.
SJÖUNDA þing Náttúruverndarráðs íslands er haidið nú um
helgina að Hótel Loftleiðum. Megináherslan er lögð á ferðamál
og umhverfisvernd. Um 150 fulltrúar silja þingið að þessu sinni,
en það er haldið þriðja hvert ár. Þinginu lýkur á sunnudag.
í ávarpi við upphaf þingsins þessu sinni.
síðdegis í gær tilkynnti Júlíus
Sólnes, umhverfismálaráðherra,
að Arnþór Garðarsson prófessor
og Birna G. Bjarnfreðsdóttir for-
maður Leiðsögumannafélags ís-
lands hefðu verið valin formaður
og varaformaður ráðsins til næstu
þriggja ára, í stað þeirra Eyþórs
Einarssonar og Elínar Pálmadótt-
ur.áem ekki gáfu kost á sér aftur
í embættin.
Ferðamál og umhverfisvernd
eru aðalumræðuefni þingsins að
í fjölriti sem Náttúruvemdar-
ráð gaf út í tilefni þingsins, kem-
ur fram að gífurleg aukning hafi
á síðasta áratug orðið á fjölda
þeirra sem ferðast um ísland og
nú hafi milli 200-300 þúsund
manns viðkomu á Gullfoss, Geysi
og Þingvöllum á hveiju ári.
Ráðið telur á hinn bóginn að
ekki hafi verið hugað sem skyldi
að þeim skaðvænlegu áhrifum
sem aukið álag á landið geti haft
á náttúru þess.
morgunuiauiu//vrni oæucis
Júlíus Sólnes ávarpar Náttúrurverndarþing.
Engum upplýsingum um húsnæðis-
kerfið haldið leyndum fyrir Alþingi
- segir Þorsteinn Pálsson
ÞORSTEINN Pálsson alþingismaður segir að Jóhanna Sigurðardótt-
ir félagsmálaráðherra hafi farið með rakalaus ósannindi í þingræðu
á fimmtudag. Þar sagði Jóhanna að árið 1986 hefði verið unnið
minnisblað fyrir þáverandi fjármálaráðherra, sem var Þorsteinn
Pálsson, og þar halí komið fram skuggalegar tölur um fyrirsjáan-
lega þróun húsnæðiskerfisins sem var verið að selja á laggirnar.
Jóhanna sagði að þessar tölur hefðu sér vitanlega ekki komið til
umfjöllunar á þingi, og það væri alvarlegt mál ef þessum upplýsing-
um hefði verið haldið leyndum fyrir Alþingi.
„Það er einhver alvarlegasta
ásökun á mann, sem hefur gegnt
ráðherrastarfí, að hann hafi annað-
hvort sagt Alþingi ósatt eða haldið
mikilvægum upplýsingum leynd-
um,“ sagði Þorsteinn Pálsson við
Morgunblaðið. „Staðreyndimar í
þessu máli eru þær að þetta minnis-
blað fékk ég sent frá Fjárlaga og
hagsýslustofnun og þáverandi hag-
sýslustjóri hefur staðfest við mig í
dag, að ég fór ekki með þetta minn-
isblað sem meira leyniplagg en svo,
að það gekk til aðila vinnumarkað-
arins sem voru að semja um þetta
húsnæðiskerfi á sínum tíma.
VEÐUR
í annan stað hafði Steingrímur
Hermannsson þáverandi forsætis-
ráðherra forustu um samninga við
aðila vinnumarkaðar um þetta nýja
húsnæðislánakerfí og hann skipaði
sérstaka nefnd til að semja ný lög.
Formaður þessarar nefndar hefur
staðfest við mig, að allar upplýsing-
ar af því tagi, sem eru í minnisbláð-
inu, hafi verið til meðferðar og
umfjöllunar hjá nefndinni og hún
hafí meðal annars kynnt störf sín
fyrir félagsmálanefndum Alþingis,
þar sem Jóhanna Sigurðardóttir
átti sæti.“
Þorsteinn sagði að Alexander
Stefánsson þáverandi félagsmála-
ráðherra og Steingrímur Her-
mannsson hefðu borið ábyrgð á því
að Alþingi fengi réttar upplýsingar,
og hann hefði nú fengið það stað-
fest að þeir hefðu engu leynt í því
efni.
„Það er því alveg fráleitt af Jó-
hönnu Sigurðardóttur að ætla að
fara að koma höggi á þá gegnum
mig með einhvers konar Albaníuað-
ferð. Og þegar flett er upp í þingt-
íðindum frá þessum tíma kemur
fram, að í umræðum um málið spyr
hún sérstaklega út í það hvort
greiðslur ríkissjóðs gætu numið 5,6
milljörðum á næstu 10 árum miðað
við 6% ávöxtun á því fé sem bygg-
ingarsjóðimir þyrftu að taka að
láni. Eg svara því í þessari um-
ræðu, að auðvitað sé hægt að reikna
sig fram til stærðar af því tagi og
í störfum nefndarinnar, sem vann
að málinu, hafi margs konar út-
reikningar farið fram. Með öðrum
orðum kom því fram í umræðunum,
að Jóhanna hafði undir höndum
upplýsingar um mismunandi niður-
stöður eftir því hvaða forsendur
voru gefnar,“ sagði Þorsteinn.
Hann sagði að lokum, að þegar
frumvarp nefndarinnar um hús-
næðiskerfið var lagt fyrir ríkis-
stjórnina, hefði hann neitað að sam-
þykkja tillögu um að vextir yrðu
lögbundir 3,5% þar sem hann hefði
ekki getað tekið þá áhættu fyrir
hönd ríkissjóðs.
„Þess vegna var gerð samþykkt
um breytilega vexti að minni kröfu,
en ákveðið að hafa þá 3,5% fyrstu
sex mánuðina til loka kjörtímabils-
ins. Þegar ný ríkisstjórn var mynd-
uð 1987 var það eitt af okkar fyrstu
verkum að knýja á við félagsmála-
ráðherra, sem þá var orðinn Jó-
hanna Sigurðardóttir, að hækka
vextina svo vaxtamismunurinn yrði
Þorsteinn Pálsson
ekki óhæfilegur í kerfinu og það
riðaði til falls af þeim sökum. .Hún
hefur neitað því til þessa dags. Það
er þessi neitun hennar á að takast
á við þetta verkefni, sem hefur fyrst
og fremst leitt til þess að sjóðimir
em gjaldþrota í dag,“ sagði Þor-
steinn Pálsson.
Þing Náttúruverndarráðs haldið um helgina:
Umhverfisvernd og
ferðamál til umræðu
i
i
i
i€
í
I
i
I
c
m
i
i