Morgunblaðið - 27.10.1990, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1990
9
Skrifstofa stuðningsmanna
ÓLAFS ÍSLEIFSSONAR
Bergstaðastrœti 86,
er opin á meðan á kosningu
stendur. Kaffiveitingar. Akstur á
kjörstað, símar 13260 og 20994.
Allir velkomnir.
Ólafí öruggt sæti, 7. sætið
Skrifstofa stuðningsmanna
Geirs H. Haarde
er að Túngötu 6.
Símar:24527 og 24597
Tryggjum honum sœti ífremstu röð.
Stuðningsmenn
i Ölveri getur þú, með aöstoö Karaoke söngkerfisins, sungið viö upp-
runalegan undirleik fjölmargra þekktra laga meö textann
ð skjá fyrir framan þig. Ólagvisst fólk hljómar sem
næturgalar meö hátækni Karaoke-kerfisins. Komdu í
Ölver, Glæsibæ, í kvöld og vertu stjarna kvöldsins.
Fjórir efstu á Reykjanesi.
Listaröðun og loðin lög
Uppákoman í prófkjörsmálum Alþýðuflokksins í Reykjaneskjör-
dæmi hefur að vonum vakið mikla athygli. Það er fáheyrt, ef
ekki einsdæmi, að stjórnmálaflokkur tilkynni opið prófkjör en
söðli skyndilega um þegar framþjóðendur eru allir komnir fram
í dagsljósið. Hætt er við prófkjörið, en uppstillingarnefnd falið
að ákveða efstu sæti listans.
Fólkið velur
Un nokkurra ára skeið
hefur Alþýðuflokkurinn
auglýst sig með miklu
brambolti sem lýðræðis-
legasta stjómmálaflokk-
inn - flokkinn þar sem
fólkið velur frambjóð-
endur. Það var ekki einu
sinni fullnægjandi fyrir
Alþýðuflokkinn að efna
til prófkjörs innan sirnia
raða. Ekkert dugði
minna en opin prófkjör.
Eina undantekningin var
sú, að viðkomandi mátti
ekki vera á lista annars
stjórnmálaílokks eða
yfirlýstur sem flokks-
bundinn.
Leiðtogar Alþýðu-
flokksins, jafnt sem
minni spámenn hans,
hafa blásið sig út af lýð-
ræðisást og hneykslan í
hvert sinn sem aðrir
flokkar hafa efnt til próf-
kjöra meðal flokksbund-
inna eða þá að kjördæm-
isráð hafa ákveðið skipan
á framboðslista.
Að viðhöfðu
profkjon
Enda hafa kratamir
getað bent á eftirfarandi
ákvæði í lögum Alþýðu-
flokksins máli sínu til
stuðnings:
„Kjördæmisráð ákveð-
ur framboðslista Alþýðu-
flokksins við kosningar
til Alþingis og fulltrúa-
ráð eða flokksfélög til
sveitarstjóraa, að við-
höfðu prófkjöri um val
frambjóðenda í efstu sæti
listans."
Þetta ákvæði er birt
hér orðrétt og það fer
ekkert á milli mála að
efstu sæti lista skal skipa
„að viðhöfðu prófkjöri
um val frambjóðenda".
En mikið vatn hefur
mnnið til sjávar í Alþýðu-
flokknum frá þvi ákvæð-
ið um skilyrðislaust próf-
kjör var samþykkt á
sínum tíma.
Forustan ugg-
andi
Nú er svo komið eftir
setu Alþýðuflokksins í
samsteypustjóm Stein-
gríms Hermannssonar,
með Framsóknarflokki,
Alþýðubandalagi, Borg-
araflokki og Stefáni Val-
geirssyni, að flokksfor-
ustan er orðin uggandi
um stöðu sína. Ráðherr-
amir, sem skipa þijú
efstu sæti listans í
Reykjavík, em búnir að
afskrifa þriðja sæti hans.
Enginn þeirra vill skipa
það í kosningunum í vor.
I allt sumar hefur því
verið leitað leiða til að
koma iðnaðarráðherran-
um, sem skipar X. sætið,
í framboð i öðm kjör-
dæmi og losa það fyrir
sjálfan flokksformann-
inn. En mörg Jjón vom á
veginum og beðið var
eftir ákvörðun Atlantal
um staðsetningu nýs ál-
vers. Þegar Keilisnes
varð fyrir valinu renndi
flokksfomstan augunum
til Reykjaneskjördæmis.
En þá kom babb í bát-
inn. Kjördæmisráðið á
Reylganesi hafði ákveðið
á fundi sínum 29. septem-
ber að boða til opins próf-
kjörs í samræmi við
flokkslögin. Núverandi
þingmenn stefndu að
endurltjöri og bæjar-
sljórinn í Hafnarfirði
lýsti því yfir, að hann
stefndi í í. sætið. Áður
hefur liann sagt að gott
mannval sé þjá krötum í
Reykjanesi og þeir þurfi
ekki á utanaðkomandi
mönnum að halda.
Snör handtök
Eftir að bæjarstjórinn
tilkynnti um framboð sitt
tóku hlutimir að gerast
hratt. Hafin var undir-
skriftasöfnun í kjördæm-
inu til að skora á iðnaðar-
ráðherrann að gefa kost
á sér í 1. sætið og að-
standendur söfnunarinn-
ar kváðu bæjarstjórann
sóma sér vel í 4. sætinu.
Kjördæmisráðið var boð-
að til fundar í Keflavík
sl. miðvikudagskvöld til
að ræða framboðsmálin.
Tilgangur fundarins var
sá einn, að afboða opið
próflgör og láta uppstill-
ingamefnd um að raða á
listann. Það varð ofan á.
Uppstillingamefnd tók
þegar til starfa og raðaði
í fjögur efstu sætin. Þar
skipar iðnaðarráðherr-
ann fyrsta sætið, núver-
andi þingmenn annað og
þriðja, en bæjarstjórinn
það fjórða. Snör handtök
það. Jafnframt var
ákveðið að önnur sæti á
listanum yrðu ákveðin af
uppstillingaraefnd í sam-
ráði við fjóra efstu.
Sjónarspilið
f kjölfarið á Igördæm-
isráðsfundinuin hófst
sjónarspilið. Á blaða-
mannafundi með for-
manni kjördæmisráðs og
fjórum efstu gaf formað-
urinn skýringu á þvi,
hvers vegna opið próf-
lgör var afturkallað.
Orðalag um prófkjör í
lögum flokksins er loðið,
sagði hann, og í raun al-
farið í höndum kjördæm-
isráðanna, hvernig raðað
er á framboðslista.
Iðnaðarráðherrann
sagði, að tilgangur laga
Alþýðuflokksins um
prófkjör væri að tryggja
endumýjun og opna um-
fjöllun um röðun á lista
flokksins. „Það er end-
umýjun á honum á þeim
sætum, sem em líklegust
þingsæti, það er opin
uinfjöllun um hann eins
og þessi blaðamanna-
fundur sýnir,“ sagði
hann.
Skrýtin latína
Það er skrýtin latína,
að það teljist tryggja end-
umýjun að falla frá opnu
próflgöri og blaða-
mannafundur eftir lista-
röðun tryggi opna um-
fjöllun.
Bæjarstjórinn í fjórða
sætinu sagði að „ ... það
væri meira virði að slilla
upp öflugn og samhentu
liði frekar en eyða mán-
uðum í tilgangshtla bar-
áttu manna i miUum, þar
sem einasta spumingin
væri sú, hvemig við röð-
umst innbyrðis."
Formaður kjördæmis-
ráðsins sagði aðspurður
um afskipti formannsms
og varaformannsins af
málinu, „að sér væri
kunnugt um að þau
fylgdust með þessum
hlutum".
Þá má bæta því við,
að fv. borgarfulltrúi Al-
þýðubandalagsins í
Reylgavik og ritstjóri
Þjóðviljans, Óssur Skarp-
héðinsson, skýrði frá því
í Morgunblaðinu í gær,
að þess hefði verið farið
á leit við sig að skipa 3.
sæti lista Alþýðuflokks-
ins i Reylg'avík.
Er hringnum þá ekki
lokað?
FATASKÁPAR
SÉRTILBOÐSVERÐ
Henta t.d.
í Forstofur
Barnaherbergi
Gestaherbergi
og víðar.
Stærð. Breidd 100cm,
Hæð210cm
VERÐ 19.900 stgr.
býður einhver betur ?
H-GÆÐI
Suðurlandsbraut16
108 Reykjavík
Sími: 67 87 87
Jöi þú skalt bara fara í karatetíma
því Dikk er farinn til Amsterdam
að hitta Madam Englatopp.
Hann flaug þangað
fyrir aðeins kr. 25.900.
FLUGLEIÐIR
Fljótari en byssukúla