Morgunblaðið - 27.10.1990, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1990
Með kveðju
eftir Valþór
Hlöðversson
Ókrýndur konungur lyfjavið-
skipta á íslandi, Werner Rasmusson
apótekari, kveður sér hljóðs hér í
blaðinu sl. þriðjudag — og er mikið
niðri fyrir. Astæðan er úttekt undir-
ritaðs á nýjasta tölublaði Fijálsrar
verslunar, þar sem fram koma at-
hyglisverðar upplýsingar um ótrú-
lega dýrt dreifikerfi lyfa á íslandi,
forréttindi í smásölu lyfja og ægi-
vald fámenns hóps apótekara yfir
stórum hluta innflutnings og fram-
leiðslu lyija í landinu. Einnig er
athyglinni beint að yfirstjórn lyfja-
mála, ljósi varpað á þær hugmynd-
ir sem uppi eru í stjómkerfinu um
gjörbreytingu þess kerfís sem ríkir
í lyfjasölunni og m.a. birt viðtöl við
ráðherra heilbrigðismála og fjár-
mála af því tilefni.
Það er augljóst við lestur greinar
apótekarans að hann hefur haft
reiðina að ráðgjafa sínum er hann
settist við skrifpúltið. Hann freistar
þess að koma því inn hjá lesendum
að Fijáls verslun gangi erinda ein-
hverra afla, sem vilja koma höggi
á núverandi dreifingarkerfi lyfja hér
á landi.
Hér er auðvitað um hreina fjar-
stæðu að ræða. Tímaritið reynir
einungis að varpa ljósi á þetta fyrir-
komulag með aðferðum nútíma
blaðamennsku, en niðurstaðan er
lyfsalanum greinilega ekki að skapi.
Enda var umfjöllun okkar ekki
skrifuð í þeim tilgangi að þóknast
einum eða neinum, hvorki Werner
Rasmusson né óskilgreindum kerf-
iskörlum, svo dæmi séu nefnd.
Blaðið er einungis að gegna
skyldum sínum sem málefnalegt og
óháð tímarit, hið eina sinnar teg-
undar hér á landi sem fjallar um
viðskipti og efnahagsmál.
Það skal tekið fram að við látum
okkur að sjálfsögðu í léttu rúmi
liggja þótt Werner Rasmusson falli
í þá grylju í bræði sinni, að þreifa
fyrir sér með kaldastríðsáróður og
ákalli áróðursmeistarann Jósef
Göbbels eins og raun var á í út-
varpsþætti um málið fyrir skömmu.
Sú samlíking er verst fyrir hann
sjálfan.
Sovéskir dagar MÍR 1990:
SÚMBHR - þlóðlasa- og ðaasllokkariaa
frá Sovétlýðveldinu Túrkmenistan
Sýning í Háskólabíói (sal 2) mánudagskvöldið
29. október kl. 20.30. Missið ekki af þessari
sérstæðu sýningu. Miðasala í Háskólabíói.
MÍR
í Karíbahaf
Lénskerfi 18. aldar
Þeir sem á annað borð lesa grein-
ina um Lyijahringinn í síðasta tölu-
blaði Fijálsrar verslunar, gera sér
grein fyrir því að þar er ekki í gangi
krossferð gegn einum né neinum,
heldur aðeins verið að varpa ljósi á
þann hátt sem viðhafður er varð-
andi innflutning, sölu og yfirstjórn
lyfjamála í landinu. Vitanlega gat
aldrei svo farið að Werner Rasmus-
son og þeir sem sinna lyfjasölu,
yrðu blaðinu sammála. Þeir menn
eru einfaldlega að vernda sinn eigin
hag og hanga á sérréttindum sínum
eins og hundar á roði. Vitanlega
getur apótekarinn haft skoðanir á
Fijálsri verslun, rétt eins og aðrir
geta haft misjafnar skoðanir á Ing-
ólfsapóteki, Delta, Pharmaco, Med-
is, Kemikalíu, Ýli, Reykvískri end-
urtryggingu eða hvað þau nú heita,
öll fyrirtækin sem Rasmusson á eða
á aðild að. Þannig er lýðræðið og
skoðanafrelsið.
Efnisatriði greinar apótekarans
eru því miður rýr. Er það miður,
því vissulega hefði verið tilefni til
skoðanaskipta um lyíjasölu sem
kostar skattborgarana milljarða
króna á hveiju ári. Þó skal orði
vikið að fáeinum atriðum.
Lyfsalinn neitar að trúa súluriti
í Fijálsri verslun þar sem skýrt er
frá samsetningu lyfjaverðs í 16
Evrópulöndum og segir að íslenska
súlan hljóti að vera skakkt lituð!
Betur ef satt væri. í myndritinu
kemur fram að hlutur íslenskra
apótekara er hærri en í nokkru landi
Evrópubandalagsins. Þær upplýs-
ingar byggja á staðreyndum og við
skulum nefna dæmi. Lyf heitir
Aureomycin. Túpan af því kostar
út úr íslensku apóteki 254,81 kr.
Hlutur framleiðandans af því verði
er 36,53%, heildsalinn fær 10,60%
og apótekarinn 52,87%. Virðisauka-
skattur er ekki meðtalinn.
í þessum hlut apótekarans er
sérstakt afhendingargjald sem er
ákveðin krónutala á hveija einustu
pakkningu sem rétt er yfir borðið.
Vitanlega vegur það hlutfallslega
þungt í ódýru lyfi. En þá skulum
við h'ta á dýrt lyf, krabbameinslyfið
Introna og rifja upp verðið á því
hér heima og í sænsku apóteki, en
þær tölur eru úr íslenskum og
sænskum lyijaverðskrám er voru í
Valþór Hlöðversson
„Efnisatriði greinar
apótekarans eru því
miður rýr. Er það mið-
ur, því vissulega hefði
verið tilefni til skoðana-
* skipta um lyfjasölu sem
kostar skattborgarana
milljarða króna á
hverju ári.“
gildi þegar greinin var skrifuð.
Hvernig stendur á því að ákveðin
pakkning af því kostaði tæplega
70.000 krónur út úr sænsku apó-
teki en 118.000 krónur hér á landi?
í hveiju er 48.000 króna munur
fólginn? Er spurt um það að ófyrir-
synju?
Einnig má spyija: Hvernig má
það vera að við athugun á verði
22ja algengra lyfja úr sænsku og
íslensku apóteki, kemur í ljós að
verðið hér á landi er að meðaltali
70% hærra?
Samanburður okkar byggist á
staðfestum tölum frá sama tíma og
stenst því fullkomlega. Dylgjur lyf-
salans um rangan samanburð falla
því um sjálfar sig. Eftir stendur að
útgjöld vegna iyfja eru íslendingum
ótrúlega þungbær, samanborið við
þetta nágrannaland okkar.
íslenski lyfjahringnrinn
Stjórnarformaður framleiðslufyr-
irtækisins Delta hf. og lyfjaheildsöl-
unnar Pharmaco hf. nefnir upplýs-
ingar Fijálsrar verslunar um mark-
aðshlutdeild þeirra „hálfsannleika“.
Hins vegar er ekki gerð tilraun til
að hrekja upplýsingar blaðsins,
enda veit apótekarinn og stjórnar-
formaðurinn að þær eru úr traust-
um heimildum, sem því miður fá
ekki að koma fyrir almenningssjón-
ir. Sú leynd er auðvitað umhugsun-
arefni út af fyrir sig. Fyrirtækin tvö
eru undir stjórn lyfsala. Þau eru í
eigu núverandi lyfsala, fyrrverandi
lyfsala eða ættingja lyfsala sem
ekki eru lengur á meðal vor. Um
það þarf ekki’ að deila.
I greininni í Fijálsri verslun kem-
ur fram að eitt fyrirtæki lyfsalanna
framleiðir 80% þeirra lyija sem
framleidd eru innanlands og annað
flytur inn 44% innfluttra lylja til
landsins. Þá hafa lyfsalar sem
kúnnugt er einkarétt á allri lyfja-
sölu innanlands. Þetta er íslenski
lyijahringurinn — með Werner
Rasmusson í broddi fylkingar.
Er þetta fijáls verslun? Varla
verður því haldið fram með rökum.
Staðreynd málsins er sú að einka-
réttur apótekaranna er bundinn í
úrelt lög og á hefðum sem sköpuð-
ust ræplega 100 árum áður en
verslun í' landinu var almennt gefin
frjáls . I skjóli þeirrar sérstöðu hef-
ur lyfsölum í tekjumestu apótekun-
um í þéttbýlinu tekist að koma ár
sinni býsna vel fyrir borð. Þetta
vita apótekarar og þetta veit þjóðin.
Þetta fyrirkomulag er Werner Ras-
musson að veija í Morgunblaðs-
grein sinni. Það þarf auðvitað ekki
að koma á óvart.
Kerfið er hrunið
í lokaorðum greinar undirritaðs
í Fijáls verslun er lýst þeirri skoðun
að núverandi kerfi lyfjainnflutnings
og dreifingar í landinu fái ekki leng-
ur staðist. Er þar m.a. vitnað til
ályktana Stéttarfélags lyfjafræð-
inga, en þeir hafa oft ályktað gegn
núverandi kerfi.
Það gleðilega við grein apótekar-
ans og stjórnarformannsins, er sú
staðhæfíng í lok hennar að „apótek-
arar séu alls ekki andvígir endur-
skoðun á núverandi fyrirkomulagi
lyfsölu“. Þá er að vona að Werner
og félagar séu tilbúnir að taka
höndum saman við þá sem líta á
það sem kjarna þessa máls að lækka
ER1. NÓVEMBER
Óh HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
LJ SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 696900
Nœsti gjalddagi húsnœðislóna er 1. nóvember.
Gerðu róð fyrir honum í tœka tíð.
16. nóvember leggjast dróttarvextir dlón með lónskjaravísitölu.
1. desember leggjast dróltarvextir ó lón með byggingarvísitölu.
Gjalddagar húsnœðislóna eru:
1. febrúar- 1. maí - 1. ógúst- 1. nóvember.
Sum lón hafa fjóra gjalddaga ó óri, önnur aðeins einn.
SPARAÐU ÞÉR ÓÞARFA ÚTGJÖLD AF DRÁTTARVÖXTUM
OG VANSKILAKOSTNAÐI SÍÐAR.
HAFÐU ALLTAF NÆSTU GJALDDAGA INNI í MYNDINNI.
INNI í MYNDINNI
HJÁ ÞÉR?