Morgunblaðið - 27.10.1990, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1990
23
.. Morgunblaðið/Emilía
Anna Líndal og Björg Orvar sýna verk sín í Nýlistasafninu 27. október til 11. nóvember næstkomandi.
Nýlistasafnið:
Anna Líndal og Björg Örvar sýna
Raðtónleikar tónlistar-
skólans í Hafnarfiði
NÆSTKOMANDI sunudag kl.
15.30 verða tónleikar í Hafnar-
borg á vegum Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar og Hafnarborg-
ar.
Fram koma Oliver Kentish selló-
leikari og David Knowles píanóleik-
ari. A efnisskránni verða verk eftir
S. Rachmaninoff, E. Elgar, C. De-
bussy, E. Grieg, R. Schumann og
Arna Thorsteinsson o.fl.
Oliver Kentish fæddist árið 1954
í London. Árið 1977 var Oliver ráð-
inn sellóleikari við Sinfóníuhljóm-
sveit íslands. Hann var kennari á
Akureyri í átta ár. Oliver var einn
af stofnendum kammersveitar Ak-
ureyrar og er nú kennari við Tón-
listarskóla Hafnarfjarðar og í
Keflavík.
David Knowles fæddur árið 1958
á Bath á Englandi. David kom til
Íslands árið 1982 og kenndi þá við
Tónlistarskólann á Egilsstöðum.
Oliver Kentish sellóleikari og
David Knowles píanóleikari.
Hann er nú kennari í Reykjavík og
Garðabæ og hefur komið fram sem
undirleikari með fjölda einsöngvara
og einleikara.
Menntamálaráðuneytið:
Ráðstefna um lestrarörð-
ugleíka í nútímasamfélagí
SAMRÁÐSNEFND menntamálaráðuneytisins vegna Árs læsis 1990
og Landssamtök foreldra barna með leserfiðleika gangast fyrir ráð-
stefnu um lestrarerfiðleika í nútímasamfélagi í Borgartúni 6 í dag
milli klukkan 10.00 og lO.OO.Ráðstefnan er öllum opin.
ANNA Líndal og Björg Örvar
sýna verk sín í Nýlistasafninu 27.
október til 11. nóvember næst-
komandi. Anna sýnir offset-Iitó-
grafíur og rýmisverk unnin úr
jarðefnum í gryfjunni í Nýlista-
safninu en Björg sýnir málverk
unnin í olíu í efri sölum safnsins,
sem er opið alla daga kl. 14-18.
Anna Líndal stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskóla íslands
árin 1981-1986 og framhaldsnám
í Slade School of Fine Art í London
1987-1990. Sýningin í Nýlistasafn-
inu er fyrsta einkasýning Önnu en
hún hefur tekið þátt í fjölda sam-
sýninga, bæði hér og erlendis.
Björg Örvar nam við Myndlista-
og handíðaskóla íslands 1975-1983
og við listadeild Kaliforníuháskóla
í Davis 1981-1983. Þetta er sjöunda
einkasýning hennar og sú fimmta
hér á landi en auk þess hefur hún
tekið þátt í samsýningum hér heima
og erlendis undanfarin ár.
Bókasafn Kópavogs:
Halldór Jóns-
sonsýnir
í BÓKASAFNI Kópavogs stendur
nú yfir sýning Halldórs Jónssonar
á olíumálverkum, vatnslitamynd-
um, ljósmyndum, skúlptúrum o.fl.
samtals 21 verk.
Halldór Jónsson er fæddur á
Svanshóli 14. júlí 1913 en ólst upp
í Asparvík. Hann hefur fengist við
myndlist frá þrítugsaldri og sótti
m.a. námskeið í Myndlistarskóianum.
Myndirnar á sýningunni eru frá
ýmsum tímum, sú elsta frá 1940 og
sú nýjasta frá 1989.
Sýningin er opin á sama tíma og
bókasafnið mánudaga til föstudaga
kl. 10.00-21.00 og laugardaga kl.
11.00-14.00. Hún verður til 15. nóv-
ember. %
Ráðstefnan verður sett klukkan
10.00 en að því loknu flytur Erna
Árnadóttir ávarp frá framkvæmda-
nefnd Árs læsis. Þá flytur Þóra
Kristinsdóttir fyririestur um lestur
og lestrarörðugleika, Jónas Hall-
dórsson fjallar um rannsóknir á
heilastarfsemi og lestrarörðugleik-
um, Guðrún Birgisdóttir talar um
samfélagsþróun og læsi og Selma
Dóra Þorsteinsdóttir flytur fyrir-
lestur sem hún nefnir Hlutverk leik-
skólans í undirbúningi lestrar-
kennslu.
Klukkan 13.00 talar Páll Á. Jóns-
son um foreldra og börn með lestra-
rörðugleika, Sigurður Haukur Guð-
jónsson segir frá reynslu sinni af
lestrarnámi, Sylvía Guðmundsdóttir
fjallar um námsgögn og kennslu-
tæki og fulltrúar frá Kennarahá-
skóla Islands tala um menntun
kennara.
Eftir kaffíhlé, klukkan 14.45,
fjallar samstarfshópur grunnskóla-
kennara og kennsluráðgjafa um
skipulag lestrarkennslu í grunn-
skólum. Þar á eftir segir Helga Sig-
uijónsdóttir frá úrræðum vegna
lestrarörðugleika í framhaldsskól-
um en á eftir henni fjallar Guðrún
Halldórsdóttir um fullorðinsfræðslu
og lestrarörðugleika. Ráðstefnunni
verður slitið klukkan 16.00.
Námsgagnastofnun og Félag
íslenskra bókaútgefenda verða með
sýningu á ýmsum námsgögnum til
iestrarkennslu á meðan á ráðstefn-
unni stendur.
Eitt atriða úr leikritinu 19. júní.
Akranes:
Skagaleikflokkurínn
frumsýnir „19. júní“
SKAGALEIKFLOKKURINN á Akranesi frumsýnir „19. júní“ eftir
Kristínu og Iðunni Steinsdætur í dag kl. 20.30 í Bíóhöllinni á Akranesi.
Aðaihlutverkið er í höndum Hall-
beru Jóhannsdóttur en í öðrum hlut-
verkum eru: Sveinn Kristinsson,
Dröfn Einarsdóttir, Valgerður
Kristjánsdóttir, Guðleifur Einars-
son, Erla Ösp Lárusdóttir, Lilja Ing-
ólfsdóttir, Júlíus Þórarinsson, Gréta
Snæfells og Gyða Bentsdóttir. Tón-
list er eftir Jóhann Morávek. Leik-
stjóri er Oktavía Stefánsdóttir en
hún sá einnig um sviðsmynd og
búninga. Lýsing er í höndum Hlyns
Eggertssonar.
Næstu sýningar verða mánudag-
inn 29. okt. kl. 20.30, þriðjudaginn
30. okt. kl. 20.30 og miðvikudaginn
31. okt. kl. 20.30.
Þetta verkefni sem er 27. verk-
efni Skagaleikflokksins var valið
meðal annars í tilefni M-hátíðar á
Vesturlandi þar sem annar höfund-
urinn, Kristin, býr á Akranesi.
Æfingar hafa staðið yfir í 7 vikur.
Formaður Skagaleikflokksins er
Svala Bragadóttir.
Lögfræðiskrifstofa
Þórólfur Kristján Beck, hrl. Bolholti 4,105 Reykjavík
Friðjón ðrn Friðjónssnn, hdl. Símar 68 00 68 ng 68 00 67
Tnmas Heiðar, löglr.
Auglýsing um
breytf heimilisfang
Lögfræðiskrifstofa Þórólfs Kristjáns Beck, hrl., Frið-
jóns Arnar Friðjónssonar, hdl. og Tómasar H. Heið-
ar, lögfr., hefur flutt starfsemi sína í ný húsakynni frá
og með 29.10.1990 í
Bolholt 4, 4. hæð, 105 Reykjavík.
Símanúmer skrifstofunnar verða óbreytt 68 00 68 og
68 00 67.
Það
vantar
unga
menn á
þing!
HREINAR LINUR.
Hreinn Loftsson hefur um
langt skeið starfað innun
SjálfstaAisflokksins og verið
öflugur malsvari þeirra hug-
mynda, sem sameina sjálf-
stæðismenn, og þannig aflað
sér virðingar andstæðinga
jafnt sem skoðanasystkina.
Ilreinn Loftsson er einn
helstu forystumanna ungra
sjálfstæðismanna. Ilann á að
baki stjórnarsetu í SUS, var
utn skeið ritstjóri Stefnis og
var frambjóðandi ungs sjálf-
stæðisfólks til miðstjórnar
flokksins, en í Jtví kjöri varð
hann næsthæstur að
atkvæðum.
Yeitum forystumanni ungra sjálfstæðis-
manna brautargengi í prófkjörinu;
Hreinn Loftsson var
aðstoðarniaður Matthíasar
Á. Máthiesen í viðskipta-
ráðuneytinu, utanríkisráðu-
neytinu og samgönguráðu-
neytinu. Hann hefur látið
utanríkismál til sín taka og
hefur verið formaður Utan-
ríkismálanefndar flokksins
frá 1987.
Kjósum HREIN LOFTSSON í
6.-8. sætið!
Skrifstofa stuðningsmanna Hreins Loftssonar er að Laugavegi 47, IV. haið. Skrifstofan er opin
frá 17.00 til 21.00 í dag og meban kjörfundur stendur yfir, á fóstudag og laugardag.
Símar eru: 29397, 29392, 27943, 27936 og 27933.