Morgunblaðið - 27.10.1990, Síða 40
oeei H3HÖT/IO .TS SHJOAQHAOUAJ OTKTAIHVIUOHOlí
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTOBER 1990
ÍL
40
t
Faðir okkar,
KJARTAN S. BJARNASON
fv. lögregluvarðstjóri,
Bústaðavegi 85,
lést þann 26. október sl. á elliheimilinu Grund.
Kjartan Kjartansson,
Hrafnkell Kjartansson,
Ingvi Kjartansson,
Emilfa Júlía Kjartansdóttir,
Bjarni Kjartansson,
Birgir Kjartansson.
t
Hjartkær eiginmaður minn, sonur okkar, bróðir og mágur,
DAVÍÐ ÖRN GESTSSON,
Ystaseli 3,
Reykjavík,
andaðist þriðjudaginn 23. október.
Sirjun Yuangthong,
Una Traustadóttir,
Gestur Guðjónsson,
systkini og mágar.
t
Elskuleg móðir okkar, stjúpmóðir og
tengdamóðir,
LILJA SIGFÚSDÓTTIR
frá Kirkjubæ, Vestmannaeyjum,
Eyjaholti 6, Garði,
sem lést 15. október, verður jarðsungin
frá Útskálakirkju laugardaginn 27. októ-
ber kl. 13.30.
Guðrún Rannveig Pétursdóttir,
Brynja Pétursdóttir,
Árni Pétursson,
Herbjört Pétursdóttir,
Ósk Pétursdóttir,
Guðlaug Pétursdóttir,
Magnús Pétursson,
Jóna Pétursdóttir,
Lára Guðmundsdóttir,
Guðni Þór Ólafsson,
Björn Hólmsteinsson,
Jóhann Jónasson,
Þórdfs Guðmundsdóttir,
Sigurgeir Björgvinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
litla sonar okkar og bróður,
AÐALGEIRS VALGEIRSSONAR.
Valgeir Guðmundsson, Aðalbjörg Einarsdóttir,
Einar Valgeirsson, Guðmundur Valgeirsson,
Bergþóra Valgeirsdóttir, Valgerður Valgeirsdóttir.
t
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eigin-
manns míns, föður okkar og afa,
JOHN HARMON GRANT,
Faxabraut 2a,
Keflavík.
Ingibjörg Benediktsdóttir Grant,
John H. Grant,
Benedikt Grant,
Janet E. Grant
og barnabarn.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim,
sem sýndu okkur samúð ög hlýhug við
andlát og útför sonar okkar, bróður,
mágs og barnabarns,
ÁRNA RAGNARS LÚÐVÍKSSONAR,
Melbraut 17,
Garði.
Sérstakar þakkir sendum við séra Ólafi
Oddi Jónssyni, Bent Pedersen og Lionsklúbbnum Garði, starfs-
fólki Flugleiða og starfsfólki á Garðvangi fyrir ómetanlega aðstoð
og stuðning.
Guð blessi ykkur öll.
Þórdís Garðarsdóttir,
Elínborg Halldóra Lúðvíksdóttir,
Björn Rúnar Lúðvíksson,
Kristfn Guðmundsdóttir,
Guðmundur Magnússon,
Lúðvík Guðberg Björnsson,
Rósa Karlsdóttir,
Guðrún Einarsdóttir,
Björn Magnússon.
Minning:
Snjófríður Jóns-
dóttir, VíkíMýrdal
Fædd 18. ágúst 1892
Dáin 15. október 1990
Okkur langar í stuttu máli að
minnast ömmu okkar, Snjófríðar
Jónsdóttur, sem andaðist 15. nóv-
ember sl.
Mikil er sú breyting heima í
Sandprýði, þar sem amma var ætíð
miðpunkturinn í heimilislífmu.
Öll áttum við ómældar ánægju-
stundir með ömmu þar sem hún sat
inni í litlustofu og pijónaði og sagði
okkur sögur, einsog t.d. söguna um
hestinn Sleipni.
Ekki voru jólin byrjuð hjá okkur
heimiliskrökkunum fyrr en amma
sat uppábúin og hlustaði á jólamess-
una.
Amma hafði sérlega gott minni,
og minnti okkur jafnvel á það sem
við höfðum gleymt. Þrátt fyrir
slæma sjón og heyrn fylgdist hún
ótrúlega vel með öllum hlutum, og
vissi oft meira um hvert og eitt
okkar, en við vissum hvort um ann-
að.
Amma átti marga góða vini sem
heimsóttu hana reglulega, og vand-
fundin er sú manngæska og kær-
leikur er frá henni kom.
Með þakklátum huga kveðjum
við góða ömmu sem var okkur svo
kær.
Barnabörn og barnabarnabörn
Snjófríður Jónsdóttir, fædd í
Kerlingadal 18. ágúst 1892, lést á
Borgarspítalanum 15. október eftir
rúmlega mánaðarlegu þar. Snjófríð-
ur giftist Birni Björnssyni 1917 en
hann lést 96 ára gamall 14. maí
1984. Þau Björn og Snjófríður hófu
fyrst búskap að Svartanúpi í Skaft-
ártungu en þau urðu fljótt að
bregða búi vegna Kötlugoss 1918.
Þá fluttust þau til Víkur í Mýrdal
og bjuggu þar alla sína búskapartíð
í Sandprýði, sem nú ber heitið
Kirkjuvegur 4.
Björn og Snjófríður eignuðust
tvær dætur, Sigurbjörgu sem vann
við verslunarstörf í Vík og Jónu sem
hefur lengst af búið í Reykjavík,
gift Ólafi Jónssyni frá Skála en
hann lést á sl. ári.
Þau Snjófríður og Björn voru
ætíð samhent og hamingjusöm og
sköpuðu notalegt heimili þar sem
öllum þótti gott að koma. Það er
orðið fátítt að fleiri kynslóðir búi á
sama heimili eins og oft gerðist hér
áður fýrr en um langan tíma eða í
tuttugu ár hafa fjórar kynslóðir
búið samtímis á Kirkjuvegi 4. Dótt-
ir Sigurbjargar, Helga E. Her-
mannsdóttir, og maður hennar, Sig-
urður Ævar Harðarson smiður,
ásamt börnum þeirra þremur, Birni,
Jóni og Ragnheiði, hafa búið mynd-
arlega og góðu heimili. Við Birna
erum þeim þakklát hve vel þau öll
hafa hugsað um gömlu hjónin og
nú síðustu árin um Snjófríði.
Ég hef þekkt Snjófríði og Björn
allt frá 1959 og minnist ég með
þakklæti hve móttökur allar voru
góðar, hressilegt viðmót og ætíð
rætt um hvem og einn með já-
kvæðu hugarfari. Það er hveijum
manni mikið lán að kynnast góðu
fólki og eiga það sem vini og kunn-
ingja.
Snjófríður var gestrisin húsmóð-
ir, hafði gaman af mannlegum sam-
skiptum og hafði ótrúlega gott
minni. Allt fram á síðasta ár fylgd-
ist hún með fréttum og gat sagt
gestkomandi ljóslega frá atburðum
líðandi stundar.
Ég er Snjófríði ætíð þakklát fýr-
ir góð kynni og öll notalegheitin sem
hún sýndi okkur. Blessuð sé minn-
ing hennar. Fjölskyldunni á Kirkju-
vegi 4 sendum við samúðarkveðjur.
Guðmundur Þorsteinsson
í dag kveð ég langömmu mína
Snjófríði Jónsdóttur. Eg hef átt því
láni að fagna að eiga langafa og
langömmu, langafa, Bjöm Bjöms-
t
Hjartans þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur hlýhug
og samúð við andlát og jarðarför
KRISTINS GUÐJÓNSSONAR,
Víðimel 55.
Sigurveig Eiríksdóttir,
Rannveig Hrönn Kristinsdóttir,
Guðrún Drffa Kristinsdóttir,
Kristín Mjöll Kristinsdóttir
og fjölskyldur.
t
Innilegar þakkir til ykkar allra fyrir auð-
sýnda samúð og hlýhug við fráfall og
útför elskulegs sonar okkar, unnusta,
bróður, mágs og tengdasonar,
KARLS JAKOBS HINRIKSSONAR,
Mararbraut 21,
Húsavík,
sem lést af slysförum 13. október sl.
Guð blessi ykkur.
Svava Karlsdóttir, Hinrik Þórarinsson,
Elín Karítas Bjarnadóttir,
Pálína Hinriksdóttir, Svavar Ásmundsson,
Þórunn H. Sigurðardóttir, Bjarni Bogason.
ERFISDRYKKJUR
Tökum að okkur að sjá um erfisdrykkjur, stórar og
smáar, í glænýjum og notalegum sal, Ásbyrgi.
Upplýsingar í síma 91 -687111.
hÖTF.l íj'LAND
son, til ársins 1986, og langömmu
þar til 15. nóv. sl.
Það er ekki hægt að eiga eitt-
hvað dýrmætt öðmvísi en að missir-
inn sé mikill, og þannig líður mér
þrátt fyrir að þau dóu bæði södd
lífdaga. En ég má vera þakklát
fyrir að hafa fengið að hafa þau
svo lengi. Þau fengu að búa í sínu
húsi hjá sínu fólki sem hugsaði svo
vel um þau af heilum hug, að ekki
er hægt að hugsa sér það betra.
Það var örugglega ekki síst vegna
þess að þau voru svo andlega hress
og með á nótunum. Og alltaf var
ég velkomin að heimsækja þau og
vera eins og ég vildi.
Þau tengdu okkar kynslóð við
gamla tímann þegar ekki vom öll
þessi lífsþægindi sem tíðkast í dag,
svo ég kann betur að meta það sem
ég hef.
Það eru dýrmætar endurminn-
ingar sem ég á um langafa og
langömmu og margt sem kemur
upp í hugann. T.d. þegar við krakk-
arnir vorum lítil kríli að horfa á
langafa smíða skeifur í smiðjunni
sinni og manni fannst að hann lang-
afi gæti sko allt. Langafi var alveg
hissa á allri þessari skólagöngu og
sagði stundum að við hlytum að
vera búin að lesa allar bækurnar.
Langamma sagði mér stundum
frá því þegar hún fór á hestbak og
einu sinni sagði hún að ef hún ætti
kost á að velja hvað hún hefði vilj-
að verða, þá hefði hún viljað temja
hesta.
Langamma kunni á harmonikku
Valur:
Minningar-
skjöldur Ólafs
Sigurðssonar
FULLTRÚARÁD Knattspyrnu-
félagsins Vals hefur ákveðið að
heiðra minningu Olafs Sigurðs-
sonar með því að afhjúpaður
verður minningarskjöldur sem
festur verður á gamla félags-
heimilið á Hlíðarenda.
Athöfn þessi fer fram á Hlíðar-
enda laugardaginn 27. október nk.
kl. 16.00. Að lokinni stuttri athöfn
utanhúss verða kaffiveitingar í nýja
íþróttahúsinu.
A síðasta ári voru liðin 50 ár frá
því að Knattspyrnufélagið Valur
keypti jörðina Hlíðarenda v/Laufás-
veg en aðalhvatamaður að þeim
kaupum var Ólafur Sigurðsson sem
þá var formaður félagsins. í ár eru
þijátíu ár liðin frá andláti hans.