Morgunblaðið - 27.10.1990, Page 48
48
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1990
„Fyrrt' etg&nct) i/ar 7. ,7o aS hae^. "
Ást er...
... að geyma allt á
myndbandi.
TM Reg. U.S. Pat Off.—all rights resorved
© 1990 Los Angeles Ttmes Syndicate
Með
morgunkaffínu
Þetta er nýja tískan komin
beina leið frá París.
HÖGNI HREKKVISI
ÉR.T/\E> LEliCA ÞÉR?"
EKKI ElUGÖMGLrí"
Opið bréf til yfírmanna
póst- og símamála
Til Velvakanda.
Astæða þess að ég rita þetta
bréf eru síendurteknar og tilefnis-
lausar lokanir notendasíma hér á
sunnanverðu Snæfellsnesi, en það
svæði heyrir undir símstöðina í
Borgarnesi.
A baksíðu símareikinga mun vera
klausa þar sem athygli símanotenda
er vakin á því að búast megi við
lokun síma á fyrsta virkum degi
eftir eindaga sem er 10. dagur út-
gáfumánaðar.
I flestum tilfellum mun það vera
siðaðra manna háttur að beita ekki
hliðstæðum reglum við það sem hér
er greint frá, nema að full vissa sé
fengin fyrir því að þolendum þeirra
hafi veist ráðrúm til þess að inna
greiðslur af hendi.
I því tilfelli sem varð þess vald-
andi að ég rita þessar línur var því
þannig háttað að gíróseðill síma-
reiknings barst mér með pósti 8.
október síðastliðinn. Föstudaginn
12. október féll ferð í bankastofnun
í Ólafsvík og þar er reikningurinn
greiddur fyrir hádegi. Þannig hefir
greiðsla hlotið að berast inn á reikn-
ing símstöðvarinnar í Borgarnesi
þann sama dag. Þrátt fyrir þetta
Til Velvakanda.
Vegna fréttar, sem kom í Morg-
unblaðinu 24. október 1990, vil ég
benda á eftirtalin atriði:
1. Telur dómprófastur öruggt að
allir þeir, sem þátt tóku í kosningu
til sóknarnafndar Seltjarnarnes-
kirkju 22. október hafi verið full-
gildir kjósendur? Ég get fullyrt að
utansóknarfólki var boðinn atkvæð-
aseðill. Allt tal um annað fær ekki
staðist.
2. Dómprófastur mátti vita að
þessi fundur var haldinn við þær
aðstæður, að brýn nauðsyn var til
þess að allt færi löglega fram. Og
skiptir þá engu máli hve mörgum
fundum prófastur hefur stjórnað.
3. Ég taldi ekki ástæðu til að
bera fram mótmæli, fyrr en mér
varð ljóst hvernig að málum var
staðið. Kosningin var þannig-fram-
kvæmd, að skjalataska prófasts var
er símanúmeri mínu lokað um há-
degi mánudaginn 15. október. Ég
vil taka fram að fleiri hliðstæð til-
felli áttu sér stað hér um slóðir á
þessum tíma, því að fjöldi símnot-
enda hér á svæðinu varð fyrir því
að símun þeirra var lokað á þessum
tíma.
Það er staðreynd að gíróseðlar
eru ekki sendir út af pósthúsinu
fyrr en fyrstu daga greiðslumáðar.
Það þýðir, svo sem dæmið hér að
framan sannar, að reikningar ber-
ast ekki í hendur gjaldenda fyrr en
vika eða meira er liðin af þeim
fresti sem veittur er. Þá eiga gjald-
endur eftir að komast í banka eða
pósthús til þess að inna af hendi
greiðsluna. Það er til fullmikils
mælst að ætlast til þess að símnot-
endur takist á hendur tuga kíló-
metra ferðalag eða 100 km leið, sem
er vegalengdin í Borgames í mínu
tilfelli, til þess eins að greiða síma-
reikning sinn.
Það er því augljóst að þessar
reglur um greiðslur og eindaga eru
algjörlega óhæfar til þess að eftir
þeim sé- farið úti í dreifbýlinu, þó
að þær geti ef til vill talist nothæf-
ara á þéttbýlisstöðum. Svo virðist
notuð fyrir kjörkassa. Var hún send
út á meðal fundarmanna og sá ég
ekki betur en að í töskunni væru
pappírar óviðkomandi kosningunni.
Þegar ég mótmælti var kosningu
ekki lokið, ekki höfðu komið fram
áreiðanlegar tölur um fjölda fundar-
manna né samanburður á ógildum
atkvæðum né auðum þegar ég gekk
af fundi.
4. Ég vil láta prófast vita að
messutími var ekki orsök þess að
sóknarnefnd sagði af sér, þótt alltaf
hafi verið látið í það skína. Fyrrver-
andi sóknarnefnd átti ekki annarra
kosta völ, vegna ómaklegra ásak-
ana en að segja af sér, þar nefni
ég engin nöfn en þeir taka það til
sin, sem eiga.
5. Kjörorð mitt er og verður:
„Gjör rétt, þol eigi órétt.“
Karl Þórðarson
sem Póst- og símamálastofnunin
geti í skjóli einokunaraðstöðu sinnar
boðið notendum þessarar þjónustu
upp á hvað sem er. Ut yfir tekur
þó þegar undirsátar þessarar stofn-
unar eru svo skilningsvana á að-
stöðu viðskiptavina sinna að þeir
beita þessum fáránlegu reglum án
minnstu blygðunar.
Öllum ætti að vera ljóst hve mik-
ið öryggi það er að hafa gott og
ótruflað símasamband á hverju
heimili, ekki síst í hinum dreifðu
byggðum, ef eitthvað ber útaf og
slys eða óhöpp henda, og ætti að
vera óþarft að rökstyðja það nánar.
Þeir sem gera sér leik að því að
ijúfa þetta öryggi taka á sig mikla
ábyrgð. Gera verður þá kröfu að
komið verði í veg fyrir slík skemmd-
arverk.
Ef bornar eru saman innheimtu-
aðferðir Pósts og síma og til dæm-
is Rafmagnsveitu ríkisins er um
reginmun að ræða. Hjá rafmagn-
sveitunum heyrir það til algjörra
undantekninga hér um slóðir ef
grípa verður til lokunar og eru
varla dæmi um það. Þó er þar um
mun hærri upphæðir að ræða, og
því í flestum tilfellum meiri erfið-
leika að standa skil á greiðslum.
Þar eru vextir reiknaðir á gjöldin
ef greiðsla dregst fram yfir tilskil-
inn gjalddaga og verður það að telj-
ast_ eðlilegt.
Ég er ekki með þessum skrifum
mínum að mæla því bót að óhófleg-
ur dráttur verði á greiðslum fyrir
símaþjónustu, heldur aðeins að fólki
verði gefið ráðrúm til þess að
greiða þessi gjöld með eðlilegum
hætti.
Ég skora hér með á yfirvöld sím-
amála að taka þessi mál til end-
urskoðunar og breyta reglum um
innheimtu í það horf sem viðunandi
getur talist.
Þráinn Bjarnason,
Hlíðarholti.
Ólögmæt kosning
Víkverji skrifar
Asíðustu árum hefur starfsemi
Ríkisútvarpsins aukist gífur-
lega mikið úti á landi. Núna er t.d.
rekin öflug deild útvarpsins á Akur-
eyri og útvarpað þaðan sérstakri
dagskrá. Svo er einnig gert á Aust-
urlandi þó að í minna mæli sé.
Starfsemi landshlutaútvarps beinist
eðlilega fyrst og fremst að sérs-
takri dagskrá sem útvarpað er fyr-
ir landshlutann. Þetta finnst Vík-
verja hins vegar hafa orðið til þess
að fréttir og umfjöllun um málefni,
t.d. í Eyjafirði, ná ekki eyrum fólks
í öðrum landshlutum. Éyrir daga
landshlutaútvarpsins var efni af
þessum slóðum mjög áberandi í
dagskrá útvarpsins. Vfkveiji er
meðal þeirra fjölmörgu Reykvík-
inga sem ólust upp úti á landi en
fluttu til Reykjavíkur vegna atvinnu
sinnar eða menntunar. Mér finnst
ósköp notalegt að heyra umfjöllun
um staðbundin málefni líðandi
stundar, þó svo þau þyki ekki ýkja
merkilegar fréttir á landsmæli-
kvarðann fræga. Ég veit að svo er
farið með fleiri landsbyggðarmenn
í Reykjavík. Því sakna ég þess út-
varpsefnis sem eingöngu er sent
út á rásir landshlutaútvarps. Hug-
myndin um sérstakt landshluta-
útvarp er sótt til Norðurlanda, þar
sem talsvert löng hefð er komin á
slíkt fyrirkomulag. Hins vegar
finnst mér sem ráðamenn Ríkisút-
varpsins hafi gleymt því að munur-
inn á íbúafjölda íslands og hinna
Norðurlandanna er óskaplega mik-
ill og aðstæður gjörólíkar. Innflutn-
ingur landshlutaútvarps eykur bilið
milli landsbyggðar og höfuðborgar
sem var þó nógu gleitt fyrir.
XXX
Utgáfa fréttablaða vítt og breitt
um landið hefur stóraukist á
síðustu árum. Varla er nokkur stað-
ur svo smár að ekki sé gefið út blað
í einhverri mynd. Stundum er
reyndar varla um annað að ræða
en fábrotið auglýsingablað, en oft
leynast innan um vönduð blöð sem
flytja lesendum sínum fréttir og
skoðanir innansveitarmanna. Vík-
veiji sér regiulega sum þessara
blaða. Lestur þeirra bætir honum
upp skortinn á útvarpsefni utan af
landi. Á flestum þessara blaða er
aðeins um að ræða einn starfs-
mann, sem sinnir öllu því sem gera
þarf. Hann ritstýrir, skrifar fréttirn-
ar, svarar lesendabréfunum, vinnur
stundum sjálfur þá prentsmíð sem
þarf, sendist og dreifír jafnvel blað-
inu. Hann safnar auglýsingum,
teiknar þær, skrifar reikninga og
færir bókhaldið. Athafnir slíkra
manna hljóta að- stýrast af öðru en
hagnaðarvon, þar þarf neista af
hugsjón og eldmóð. Þau iands-
byggðarblöð sem lifa og eru ein-
hvers virði eru þau sem eru óháð
stórnmálaflokkum. Flokksblöðin
deyja einfaldiega vegna þess að það
vill enginn borga áskrift þeirra.
Víkverja finnst meira um vert að
þessi litlu og veikburða landsbyggð-
arblöð fái að dafna og eflast, frem-
ur en að ríkið sé að dæla milljónum
í flokksblöð í Ijörbrotum. Víkveiji
minnist þess að fyrir skömmu komu
saman nokkrir ritstjórar lands-
byggðarblaða og óskuðu eftir því
að ríkið styddi við bakið á litlu blöð-
unum með því að auglýsa þar. Það
þykir mér vera hógvær ósk og þess
verð að vera uppfyllt. Auglýsinga-
peningana mætti gjarnan taka af
þeim styrkjum sein stjórnmála-
mennirnir veita til eigin málgagna.