Morgunblaðið - 27.10.1990, Blaðsíða 51
HNEFALEIKAR
★ NÝTT:
★ Speglar
★ ettii máli
★ í rósóttani
★ trérönrmum
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 1990
■Aðalfundur fijálsíþróttadeildar
Ármanns verður haldinn í Ár-
mannsheimilinu við Sigtún föstu-
dag, 2. nóvember klukkan 20.30.
Nýr heimsmeistari var krýndur:
Douglasfékk
1,344 millj. kr.
fyrir að standa
upprétturí
sjö mínútur
Holyfield rotaði Douglas fljótlega í þriðju
lotu í keppni þeirra í Las Vegas. Hann
er þriðji heimsmeistarinn á árinu .
EVANDER Holyfield, 28 ára
hnefaleikakappi frá Atlanta í
Georgíu, tryggði sér heims-
meistaratitilinn í þungavikt í
hnefaleikum - þegar hann rot-
aði James „Buster“ Douglas í
byrjun þriðju lotu í Las Vegas
ífyrri nótt. Douglasfékk 1,344
millj. fsl. kr. fyrir að standa í
hringnum í 7,08 mín., en Holyfi-
eld fékk heldur minna fyrir sinn
snúð, eða 448 milljónir. Aldrei
áður hafa svo mikllar peninga-
upphæðir fallið íhlut hnefa-
leikakappa. Holyfield er þriðji
heimsmeistarinn á þessu ári í
þungavigt.
Kappleikur Holyfield og Douglas
var merkilegur fyrir þær sakir
að Don King, kunnur framkvæmda-
stjóri margra frægra kappa, eins
og t.d. Mike Tysons,
fyrrum heimsmeist-
ara, var ekki með
puttana í einvíginu.
King er sagður hafa
eyðilagt þungavigtarkeppnina und-
anfarin ár með því að spilla um-
hverfinu með peningum og mútum
og og ákveða úrslit fyrirfram. Þeg-
ar Douglas sló Tyson niður í febrú-
ar sl. missti King völdin.
King gaf Holyfíeld aldrei tæki-
færi á að keppa við Tyson, en Ho-
lyfíeld, sem hefur aldrei tapað í
Frá
Gunnari
Valgeirssyni
i Bandaríkjunum
Evander Holyfield og James „Buster" Douglas.
Reuter
rtcuici
Holyfleld leggur vinstri hönd á höfuð Douglas - gerir allt klárt fyrir hægri
handar rothögg. Eftir það sá Douglas stjörnur og stóð ekki upp fyrr en eftir
fjórar mínútur.
þeim tuttugu og fimm kappleikjum
sem hann hefur tekið þátt í, hefur
verið skráður næst besti hnefalei-
kakappinn undanfarin tvö ár. Hann
hefur unnið tuttugu og einn leik
með því að rota andstæðing sinn.
Fyrir einvígið í Las Vegas var
um það rætt að heimsmeistaratitil-
inn hafi stigið Douglas til höfuðs,
en hann er nú sjö og hálfu kg
þyngri en þegar hann keppti við
Tyson.
Veðbankar veðjuðu 8-5 á Holyfí-
eld fyrir leikinn gegn Douglas, en
Douglas var 17 kg þyngri en Holyfí-
eld og var greinilegt að hann ætl-
aði sér að vinna á þeim mun -
þreyta andstæðinginn í tólf lotur.
Hann beið eftir Holyfield í tveimur
fyrstu lotunum, en síðan urðu hon-
um á mistök í byijun þeirrar þriðju.
Ein mistök hjá þyngavigtarkappa
þýðir aðeins eitt: Rothögg. Douglas
reyndi að slá undir höku Holyfíelds,
en mistókst og vió það opnaðist
leið að kjamma hans og Holyfíeid
var ekki lengi að þakka fyrir sig;
rétti Douglas hægri hnefann og
heimsmeistarinn rotaðist sam-
stundis. Hann reis ekki upp aftur
fyrr en eftir ijórar mínútur. Dou-
glas hampaði því heimsmeistaratitl-
inum í aðeins átta mánuði, eða frá
því hann sigraði Tyson í febrúar.
Mikill fögnuður braust út á
Milrage-hótelinu í Las Vegas eftir
sigur Holyfíelds, en þar fór keppnin
fram.
Strax eftir keppnina var tilkynnt
að Evander Holyfíeíd myndi veija
heimsmeistaratitilinn með því að
keppa við George Foreman, fyrrum
heimsmeistara, í Las vegas í mars
1991. Tyson verður því enn að bíða,
en það er þó talið nokkuð víst að
Holyfield keppi við hann í lok næsta
árs, þ.e.a.s. ef hann vinnur Fore-
man, en það er talið nokkuð öruggt.
Körfubolti
Úrvalsdeild:
Sunnudagur:
Akureyri: Þór - KR...................kl. 20
Grindavík: UMFG - UMFN...............kl. 20
Hafnarf.: Haukar - Valur.............kl. 14
Keflavík: ÍBK - Snæfell..............kl. 16
Sauðárk.: UMFT-ÍR..................kl.20
1. deild karla:
Laugardagur:
Borgarnes: Skallagr. - Reynir......kl. 14
Sunnnudagur:
Kópavogur: UBK - Víkverji............kl. 20
Veggtennis
A-mót í Squashi fer fram i Veggsporti á laug-
ardag og sunnudag og hefst kl. 13.00 báða
dagana. Þetta er fyrsta mót vetrarins í vegg-
tennis.
Badminton
Haustmót TBR fer fram í TBR-húsinu við
Gnoðarvog um helgina.
Uppskeruhátíð
Uppskeruhátíð knattspyrnudeildar Víkings
verður í Réttarholtsskólanum kl. 14 í dag.
Af mælishóf Stjörnunnar
Stjaman verður með afmælishóf og sýningu
á morgun, sunnudag. Dagskrá dagsins hefst
með guðsþjónustu i Garðaknkju kl. 13 ogsíöan
verður afmælissýning i Ásgarði kl. 14.30.
íþróttafólk úr öllum deildum Stjörnunnar sýna.
Afmælishóf verður í Garðalundi kl. 16, en því
lýkur með flugeldasýningu. -
RAMMA op» tii
MIÐSTOÐIN
SIGTÚN110 « SÍML25054
KL. 14 A LAUGARDOGUM
SÉRVERSLUN MEÐ INNRÖMMUNARVÖRUR
• Álramroar
• Smellurammar
• Mæg bílastæðl
PLAKATA-
SÝNING
laugardao írá kl. 10-17
og sunnudag
frá kl. 13-17
AÐALFUNDIR
I
■Aðalfundur knattspyrnudeildar
Breiðabliks fer fram að Auðbrekku
I 25 í Kópavogi laugardaginn 3. nóv-
ember kl. 14.
íþróttir helgarinnar