Morgunblaðið - 05.12.1990, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 05.12.1990, Qupperneq 1
56 SIÐUR B 277. tbl. 78. árg. MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1990 Prentsmiðja Morgunblaðsins Dökkt útlit í við- ræðum um GATT Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. EFTIR tveggja daga árangurslausa fundi voru fulltrúar á ráðherra- fundi aðildarríkja GATT-viðræðnanna sendir heim á hótel sín í Bruss- el til að íhuga í einrúmi hvert framhald viðræðnanna á að vera. A fundi samningamannanna í gærkvöldi var samþykktur sólarhrings- frestur til að ná árangri í deilunum um landbúnað sem hafa spillt viðræðunum til þessa. Ráðherrar Evrópubandalagsins (EB) héldu ár- angurslausan fund í Brussel seinnihluta dags i gær en tregðu þeirra til að koma til móts við tillögur um að draga úr niðurgreiðslum og styrkjum í landbúnaði er kennt um að viðræðurnar virðast vera að fara út um þúfur. í fréttatilkynningu sem birt var í Brussel í gærkvöldi sagði að enginn árangur hefði náðst til þessa í helstu ágreiningsefnum fundarins. Fulltrú- ar þróunarríkjanna saka vestrænar þjóðir um að tefja framgang mála sem samkomulag er um og draga þannig úr líkunum á samkomulagi á fundinum í Brussel. Bandaríkjamenn hafa sagt að viðunandi niðurskurður innan EB á niðurgreiðslum og út- flutningsbótum í landbúnaði sé skil- yrði fyrir því að viðræðunum verði lokið. Fulltrúar smærri ríkjanna á fundinum þ. á m. fulltrúar Norður- landanna, hafa gagnrýnt viðskiptar- Kasparovvann eftir 102 leiki Lyon. Reuter. GARRÍJ Kasparov heimsmeistari í skák sigraði Anatolíj Karpov i 16. skák einvígis þeirra um heims- meistaratitilinn í Frakklandi í gær. Viðureignin stóð í samtals 12 klukkustundir á þremur dög- um og er það lengsta innbyrðis viðureign skákameistaranna, sem teflt hafa 136 einvígisskákir sín á milli um dagana. Kasparov knúði fram sigur í 16. skákinni í 102. leik og hefur þar með hlotið 8,5 vinninga gegn 7,5 vinningum Karpovs. Þarf áskorand- inn að vinna a.m.k. tvær af skákun- um átta sem eftir eru til þess að vinna einvígið. Bar skákfræðingum saman um það í gær að mögujeikar Karpovs á því væru nú hverfandi. Hefur heimsmeistarinn unnið tvær skákir í einvíginu, áskorandinn eina en 13 hefur lokið með jafntefli. Sjá „Kasparov vann biðskák- ina!“ á bls. 25. isana, Bandaríkin og EB, fyrir að standa í vegi fyrir að árangur náist í þeim þáttum viðræðnanna sem grundvöllur er fyrir samkomulagi um. Hætt sé við að ef viðræðurnar fara ekki út um þúfur verði mjög takmarkaður tími til að fjalla um þau efni, þar sem allt snúist um deilur EB við Bandaríkin um landbúnað. Allt bendir til þess að þessi lota GATT-viðræðnanna fari út um þúfur ef EB leggur ekki fram viðunandi tilboð að mati Bandaríkjanna og helstu útflutningsríkja landbúnaðar- vara fyrir lok fundarins í dag. Ljóst þykir að engum verði til framdráttar að viðræðurnar, sem staðið_ hafa í fjögur ár, fari út um þúfur. í Bruss- el gætir þess vegna hóflegrar bjart- sýni á árangur, þrátt fyrir svart útlit. Sovétríkin: Afsögn Ershads fagnað i Dakka Reuter Stjórnarandstæðingar í Bangladesh fagna á götum Dakka, höfuðborgar landsins, eftir að Hossain Mo- hammad Ershad forseti hafði tilkynnt afsögn sína í gær. Þing landsins hefur verið kallað saman á sunnu- dag til þess að velja bráðabirgðastjórn er mun sitja fram yfir nýjar þingkosningar. Sjá „Ershad segir af sér forsetaembætti í Bangladesh" á bls. 22. Gorbatsjov hyggst auka hlutverk hers og lögreglu Moskvu. Reuter. MÍKHAÍL Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, sagði í gær á sov- éska þinginu, Æðsta ráðinu, að hann væri að undirbúa aðgerðir sem miðuðu að því að auka hlut- verk hers og lögreglu í landinu. Ennfremur var greint frá því að Gorbatsjov hygðist ekki leggja niður embætti forsætisráðherra þótt gert væri ráð fyrir því að sovéska stjórnin heyrði beint und- ir forsetann samkvæmt tillögum Gorbatsjovs um breytingar á stjórnkerfi Sovétríkjanna. Gorbatsjov flutti stutta ræðu á þinginu til að hvetja það til að styðja tillögurnar, en þeim er ætlað að auka mjög völd forsetans. „Við erum að undirbúa aðgerðir til að bæta ástandið í hernum og lögreglunni, auka hlutverk og ábyrgð þeirra,“ sagði forsetinn. Hann boðaði breyt- ingar á yfirstjórn hers og lögreglu, sem róttækir umbótasinnar óttast að auki um of völd hersins og komm- únistaflokksins. Samkvæmt tillögum Gorbatsjovs fær forsetinn vald til að skipa og reka ráðherra að eigin vild. Emb- ætti forsætisráðherra verður ekki lagt niður og ýmislegt bendir til þess að Níkolaj Ryzhkov, núverandi forsætisráðherra, haldi því þrátt fyr- Gísli Sigurðsson í Bagdad 1 samtali við Morgunblaðið: Daglega var komið með hel- særða menn á sjúkrahúsið Bagdad. Frú Jóhönnu Kristjónsdóttur, blaðamanni Morgunblaðsins. GÍSLI Sigurðsson læknir, sem varð innlyksa í Kúvæt er Irakar réðust inn í Iandið í byrjun ágúst- mánaðar, sagði í saintpli við Morgunblaðið í gær að hann hefði, samvisku sinnar vegna, ekki getað yfirgefið sjúkrahúsið sem hann starfaði á I Kú- væt-borg fyrr en tryggt hefði verið að læknisþjón- ustu yrði haldið þar uppi. Gísli sem dvelst nú í bústað sendiherra Svíþjóðar í Bagdad, höfuðborg íraks, sagði að á degi hverjum hefði verið komið með helsærða menn á sjúkrahúsið þar sem hann starfaði og hefðu margir þeirra verið skotnir vegna gruns um að þeir hefðu hjálpað Vestur- Gísli Sigurðs- landabúum í landinu. son læknir „Það var daglega komið með helsærða menn sem höfðu verið skotnir í bijóstholið því írösku her- mennirnir skutu til að drepa og fæstum var hægt að bjarga," sagði Gísli Sigurðsson er hann var spurð- ur um ástandið í Kúvæt eftir innr- ás íraka. Hann sagði að aðrir hefðu verið skotnir í hnakkann og hefðu þeir verið taldir til njósnara eða undirróðursmanna. Kvaðst Gísli ekki hafa getað hugsað sér að yfir- gefa sjúkrahúsið fyrr en tryggt væri að einhveijir kæmu tii að ■ taka þar við. Læknir yfirgæfi ekki sjúklinga sína. Gísli kvað sænska sendiherrann fara á degi hverjum í íraska ut- anríkisráðuneytið til að tala máli hans. Hefði sendiherrann reynt að ná tali af forseta íraska þingsins, sem er mjög valdamikill, en án árangurs. Hann sagðist skömmu eftir komuna til Bagdad hafa gert sér ljóst að hann fengi ekki leyfi til að fara úr landi. Það hefðu engu að síður verið mikil vonbrigði að fá ekki fararleyfi um leið og sænsku gíslarnir, sem sleppt var á föstudag. Hann kvaðst bjartsýnni nú en oft áður um að hann fengi leyfí til að fara frá írak. „Ég hef nú ástæðu til að ætla að það verði ekki langt þar til mér verður leyft að fara,“ sagði Gfsli Sigurðsson. Sjá „Ég er ekki hetja, ég er læknir" á bls. 2^1-25. ir stjórnleysið sem ríkt hefur í efna- hagsmálum landsins. Svo virðist sem hann hafi leitað eftir stuðningi harðlínumanna í kommúnistaflokkn- um og herforingja, sem hafa lagt hart að Gorbatsjov að hægja á um- bótum. Vikurit Sovétstjórnarinnar, Pravítelstvenníj Vestník skýrði frá því í gær að Ryzhkov hefði flutt mikla lofræðu um hergagnaiðnaðinn í landinu er hann heimsótti nokkrar vopnaverksmiðjur landsins. „Það er öll alþýðan sem hefur með elju sinni og hæfni skapað hergagnaiðnaðinn og fært til þess fórnir í áratugi. Þar eru bestu verkamennirnir og verk- fræðingarnir, þar er þróaðasta tæknin," sagði Ryzhkov í ræðu sinni. „Ég heyri kröfur um að iðnaðurinn verði lagður niður en ég er algjör- lega mótfallinn slíku og svo lengi sem ég lifi og held starfi mínu leyfi ég það ekki,“ bætti hann við. í tillögum Gorbatsjovs, sem hann kynnti fyrst á sovéska þinginu 17. nóvember, er gert ráð fyrir því að stjórn Sovétríkjanna heyri beint und- ir forsetann og talið var í fyrstu að í þeim fælist að Ryzhkov færi sjálf- krafa frá. Gorbatsjov sætir æ harðari gagn- rýni róttækra umbótasinna, sem segja hann hafa snúist á sveif með afturhaldsöflunum vegna mikils þrýstings frá harðlínumönnum og herforingjum. Forsetinn vék á sunnudag Vadím Bakatín úr emb- ætti innanríkisráðherra en hann hafði dregið mjög úr áhrifum komm- únistaflokksins innan lögreglunnar. Stjórnmálaskýrendur telja þetta ■mikilvægan sigur fyrir harðlínu- menn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.