Morgunblaðið - 05.12.1990, Síða 3
[SLENSKA AUGLÝSINGASTOFAN HF.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1990
3
ÍÐUNN
GARÐAR SVERRISSON
Mynd af einum mesta listamanni sem íslenska
þjóðin hefur eignast; jámsmiðnum frá Akureyri sem
fómar öllu fyrir óvissa framtíð í hörðum heimi
óperunnar þar sem honum tekst með fágætum
viljastyrk að komast í fremstu röð í heiminum.
Maðurinn, listamaðurinn og eldhuginn er
viðfangsefni þessarar tæpitungulausu frásagnar.
Kristján rekur hér af einstakri hreinskilni og
hispursleysi æsku sína og uppvöxt, segir frá
vonbrigðum sínum og glæstum sigrum á sviði og
utan, frá ástríðu og sorgum, ljóma sviðsljósanna og
skugga öfundar og umtals.
Garðar Sverrisson vakti mikla athygli fyrir
metsölubókina „Býr Islendingur hér“ en saga hans .
um Kristján Jóhannsson er grípandi og
feikilega vel skrifuð.
VANDAÐAR BÆKUR
♦ í 45 ÁR ♦
Ævi og örlög
Einars Benediktssonar
Einar Benediktsson er einn merkilegasti og
stórbrotnasti maður sem fæðst hefur á þessu landi.
Fáir Islendingar hafa barist af meiri eldmóði fyrir
hugsjónum sínum en Einar Benediktsson. Ljóð hans
lifa með þjóðinni, djúpvitur sannleikur, áköf
barátta, snilld sem á fáa sína líka. Athöfn fylgdi
orði, og lífshlaup hans var ferð um breiðgötur
heimsins.
Gils Guðmundsson rekur hér ævintýralegan æviferil
skáldsins og veitir innsýn í verk hans og óvenjulega
athafnasemi. Hafsjór fróðleiks, frásagna af hinum
mikla væringja íslensku þjóðarinnar.
♦ VANDAÐAR BÆKUR í 45 ÁR ♦