Morgunblaðið - 05.12.1990, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 05.12.1990, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1990 15 Bók um forsetana FORSETAR íslenska lýðveldis- ins eftir Bjarna Guðmarsson og Hrafn Jökulsson er ný bók frá bókaútgáfunni Skjaldborg, sem geymir æviþætti forsetanna fjögurra. Greint er frá ætt þeirra og uppvexti, starfsferli, kosningabaráttu og helstu stikl- um á embættisferlinum. í kynningu útgefanda segir m.a.: „Þegar fyrsti forseti lýðveld- isins, Sveinn Björnsson ríkisstjóri, tók við embætti var ekki að neinum fyrirmyndum að ganga og það kom í hans hlut að móta embættið á fyrstu árum íslenska lýðveldisins. Við hlið sér hafði hann frú Ge- orgíu Björnsson, sem kenndi íslenskum diplómötum að sofa lítið en hlusta vel, og vinna þjóð sinni á nóttu og degi. Sveinn var harður húsbóndi og stjórnmálaleiðtogar áttu oft ekki sjö daga sæla í emb- ættistíð hans. Við fráfall Sveins Björnssonar árið 1952, var Ásgeir Ásgeirsson kjörinn forseti. Ásgeir hafði þá verið stjórnmálaskörungur í þijá áratugi. Þó var honum teflt fram sem manni fólksins gegn flokks- ræðinu. Fulltrúi flokksræðisins hafði hins vegar aldrei á þing kom- ið, en verið góðfrægur sálusorgari um langt skeið. Ásgeir var svip- mikill forseti og nutu forsetahjónin Ásgeir og frú Dóra Þórhallsdóttir mikillar virðingar, bæði hér heima og erlendis. Bjarni Guðmarsson Ásgeir lét af embætti árið 1968 og hafði þá setið á friðarstóli í sextán ár. Við embætti tók dr. Kristján Eldjárn þjóðminjavörður. Kjör hans má kalla tímanna tákn; Kristján var þá þjóðkunnur sem einn helsti sérfræðingur um íslenska menningu. í kosningunum lýstu kjósendur því yfir að þetta væru eiginleikar, sem þeir töldu ríma best við hugmyndir sínar um embættið. Dr. Kristján og frú Halldóra Eldjárn voru virðulegir og þó alþýðlegir húsbændur á Bessastöðum. Kjör fjórða forsetans var heims- Fyrsta skáldsaga Kristínar Loftsdóttur VAKA-HELGAFELL héfur gefið út fyrstu skáldsögu Kristínar Loftsdóttur, Fótatak tímans. Á bókarkápu segir svo frá sögu- efninu: ísgerður Huld vex úr grasi með fjölskyldu sinni fjarri öðrum. Dularfullir og ógnvekjandi atburðir úr fortíðinni, sem og óljós grunur um tengsl föðurins við kristna menn hafa útskúfað fjölskyldu stúlkunnar úr heiðnu samfélagi sögualdarinnar. Þau eru litin hornauga og þeim kennt um það sem aflaga fer. Allt þetta hefur áhrif á líf stúlkunnar án þess að hún skilji ástæður þess. En smátt og smátt kviknar með henni grunur um það sem að baki býr. Kristín Loftsdóttir fékk Islensku barnabókaverðlaunin árið 1988 fyrir sögu sína Fugl í búri. Prentvinnslu og bókband annaðist Oddi hf., kápuhönnun Ritsmiðjan. Bókin er 211 bls. Kristín Loftsdóttir Hrafn Jökulsson viðburður; Vigdís Finnbogadóttir var fyrst kvenna kjörin þjóðhöfð- ingi í almennum kosningum í heim- inum. Vitaskuld hefur það sett svip á embættið undanfarinn ára- tug að þar situr kona á stóli og Vigdís hefur á ferðum sínum er- lendis verið sannkallað eftirlæti fjölmiðla. Heimafyrir nýtur hún og mikillar hylli; það kom best fram er mótframboð barst í fyrsta sinn gegn sitjandi forseta árið 1988. Þá var Vigdís kosin forseti með miklum yfirburðum og þriðja kjörtímabil hennar hófst.“ Bókin Forsetar íslenska lýðveld- isins er um 300 bls. (Frcttatilkynning-.) • LITAVER • LITAVER • LITAl/ER • LITAVER • SOMÆERJ^' GÓLFEFNI • LITAVER • LITAVER • LITAVER • LITAVER • SHARP SJÓÐVÉLAR Verð frá kr. 29.545 m/vsk. f * SKRIFBÆRi? ' / Hverfisgötu 103 - sími 627250 - 101 Reykjovík. GLÆSÍLEGT JÓLAHLAÐBORÐ Á GÓÐU VERÐI Nú þegar iólin eru í nánd færist jóla- stemmningin yfir Skrúð. Þar er gestum og gangandi boðið upp á stórglæsilegt jólahlaðborð, heitt og kalt, á hagstæðu verði. Jólahlaðborðið er á boð- stólum í hádeginu frá kl. 12-14 á 1400 kr. og á kvöldin frá kl. 18-22 á 1900 kr. Að sjálfsögðu er jólaglögg svo alltaf til reiðu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.