Morgunblaðið - 05.12.1990, Page 19

Morgunblaðið - 05.12.1990, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1990 19 Ljótur leikur eftirSteinar Guðmundsson Sjúkdómur er sjálfstætt fyrir- bæri. Sjúkdómur orsakar veikindi. Oftast má reikna með að veikur maður sé þjáður maður. Diykkjuskapur er ekki sjúkdóm- ur, en drykkjumaður er þjáður maður. Drykkjumaður er veikur maður. Einhver kynni að kalla þessar vangaveltur mínar rugl eða orða- leik. En í mínu hugskoti blasir ann- að við. Árið 1958 lýstu heilbrigðissam- ■ tök Bandaríkjanna (American Medical Assosiation) því yfir, að alkóhólismi væri sjúkdómur (dis- ease) — að alkóhólismi væri líkam- leg, huglæg og andleg veikindi. Þá voru liðin 22 ár frá því að AA-sam- tökin lögðu af stað út í þá blekk- ingaþoku sem öldum saman hafði umlukt allt sem drykkjuskap snerti. Allir virtust hafa rétt til að kalla drykkjumanninn aumingja, fábjána eða ræfil bara ef viðkomandi ekki var viðstaddur. Þessu réðist AA- stefnan gegn. í stað allra nafngift- anna kom aðeins eitt orð — alkóhól- isti. Orðið „alkóhólisti" var ekki nýtt orð, heldur margnotað og þvælt. Skítugt og neikvætt. Að segjast vera alkóhólisti hefur því staðið og stendur enn í. mörgum drykkju- manninum, en undirstaða þess, að sá sem í vandræðum er með drykkju sína, hætti að drekka, er að hann viðurkenni ódrukkinn þá staðreynd að hann sé hættur að ráða því hvort, hvenær eða hvernig hann drekkur. Þetta þekki ég af eigin reynslu, enda sjálfur alkóhólisti. Nokkuð fljótlega eftir að AA komst á legg var farið að opna þjón- ustumiðstöðvar til að aðstoða drykkjumenn við að bijóta odd af oflæti sínu og þiggja þá hjálp sem fólst í AA-kerfinu. Þetta hefur gef- ið svo góða raun að fullyrða má að engin félagsleg þjónusta hefur nokkum tíma orðið jafn mörgum til hjálpar og blessunar — jafnt þeim sem „fóru í meðferð" sem og hinum er hjá stóðu. En þetta ijöregg AA-stefnunnar reyndist vandmeðfarið. Sumir þeirra sem á héldu fóru að laga AA-stefnuna til. Sumir vildu betr- umbæta þetta einfalda form, aðrir sáu í því peninga og enn aðrir tæki- færi til að lyfta höku og þenja út kassann og láta á sjálfum sér bera. Hins vegar gat AA hvergi gripið fram í, því óumdeilanleg stefna samtakanna var, og er, að skipta sér alls ekki af neinu sem fram fer utan hópsins. AA-menn láta sér nægja að varðveita það sem að þeim var gaukað, að „alkóhólismi er banvænn — andleg, huglæg og líkamleg veikindi“. Takið eftir röð- inni: „andleg, huglæg, líkamleg", ekki: líkamleg, huglæg, andleg, eins og amerísku læknasamtökin höfðu ' það. Kæruleysi, mont eða roluskap- ■ HJÁ Námsgagnastofnun er komin út bókin Vertu með! sem er 1. hefti námsefnis um félags- málastörf. Efnið var upphaflega unnið á vegum Æskulýðsráðs ríkis- ins en hér er um nýja og endur- bætta útgáfu að ræða. Höfundar eru Erlendur Kristjánsson, Gunn- ar Árnason og Margrét Pálsdótt- ir. Heftið skiptist í fjóra kafla: Náms- og starfsaðferðir. Fjallað um hópvinnu í félagsfræði og vinnu- brögð í starfshópum. Ræðu- mennska. Gefin eru hagnýt ráð og leiðbeiningar um ræðumennsku. Framsögn og flutningur mál. It- arlegt yfirlit er gefið um grunnat- riði í þessum efnum ásamt fjölmörg- um æfingum. Fundir. Fjallað er um undirbúning funda, starfshætti og fundarsköp. Hveijum kafla fylgja verkefni og spruningar. Höfundur myndefnis er Rebekka Rán Samper. ur, sem eru andlegir kvillar, fæða af sér lygi og blekkingar, sem eru huglægir kvillar, en líkamlegt nið- urbrot siglir í kjölfarið. Ekki öfugt. Takið nú eftir. Þegar líknarsam- tökin gáfu sig undan þrýstingi meðferðarstofnana, sem fjárhags- ins vegna urðu að réttlæta þær greiðslur af almannafé sem nauð- synlegar voru til að koma skítblönk- um drykkjumönnum í meðferð, þá snerist keðjan við. Endirinn var gerður að upphafi. Líkamleg veik- indi komu fyrst, svo geðlæg og loks siðferðileg. Kjúklingurinn grillaður áður en haft var fyrir því að unga egginu út. Hér helgaði tilgangurinn meðalið. Þetta sættu AA-menn sig við strax í upphafi, en dr. Bob, annar höfundur AA-kerfísins, var- aði stranglega við að láta menn totta þessa dúsu þegar sæmilega var af þeim runnið, enda rúmar AA-kerfíð hvorki blekkingar né óhreinskilni. Ef þeir sem ráðum ráða innan SÁÁ áttuðu sig á þessu og tækju það alvarlega þá þyrftum við, íslenskir borgarar, ekki að kvíða því að sá óhugnanlegi spádómur yfirlæknisins að Vogi rættist, að þriðji hver íslenskur karlmaður þyrfti að „fara í meðferð" áður en Steinar Guðmundsson „Mitt lán var, að þá var ekki búið að f inna upp þá patentlausn að hér væri um sjúkdóm að ræða.“ yfír lyki. Það er ljótur leikur að rugla ráðvillta menn — ljótari en svo, að réttlæta megi hann með fávjsku. Á mínum yngri árum fannst mér áfengi vera sjálfsagður þáttur eðli- legs lífs og hugleiddi því aldrei hvort neysla þess kynni síðar meir að verða mér fjötur um fót. Þá gerði ég mér ekki ljóst að fyrstu sporin að alkóhólisma felast í ranghug- myndum eða brengluðum skoðun- um og ruglaðri dómgreind, dóm- greind sem reyndist eiga sér rót- festu nokkuð innarlega í sálarlífínu. Ég týndi sjálfum mér í eigin villu. Afleiðingarnar urðu endurtekin fyll- irí með tilheyrandi neikvæðri fram- komu, sem mér var hulin þótt aðrir fengju á henni að kenna. Þegar allt stefndi í kaldakol, at- vinna, heimili, lífslöngun, þá urðu AA-samtökin á vegi mínum og ég fékk að vita að sjálfur bæri ég ábyrgð á því hvernig komið var og sjálfur yrði ég að bjarga sjálfum mér — ,en mér var boðin leiðsögn, og hana þáði ég og þygg enn með því að fara vikulega á minn AA- fund. Mitt lán var, að þá var ekki búið að fínna upp þá patentlausn að hér væri um sjúkdóm að ræða. Þá hefði engum dottið í hug að frá sjúkra- kerfinu íslenska yrði stolið fúlgum til að rugla enn betur þá ruglukolla sem heldur vilja totta dúsuna sína en takast á við sjálfan sig. Að setja fótinn fyrir villuráfandi var og er ljótur leikur. Höfundur er áhugamaður um ofdrykkjuvarnir. KORONAÐU V E R K I Ð QönS01^®. Aaqkt. iftjfí \ W 1 , i«vw« ...NMC-SVIPLISTUM , OGRÓSETTUM Áhrifarík í einfaldleika M c Ara bötn u* svipmót sem hæfír þínum smekk. k\ \Z \au9atd°q'nn Opið °P'ð tl!l'?ösWda9Q- monUðQ9QtU ' ******* Z* .--tfsaawsu—^ (fiilurínn Síðumúla 15, sími 84533

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.