Morgunblaðið - 05.12.1990, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1990
Persaflóadeilan;
EB vill ræða við utan-
ríkisráðherra Iraka
Brussel, London, Bagdad, Nikosiu, Kaíró. Reuter.
RÍKI Evrópubandalagsins ákváðu í gær að Italir, sem hafa á hendi
forystu fyrir bandalaginu til áramóta, gætu átt viðræður við Tareq
Aziz, utanríkisráðherra íraks, ef til fundar hans og bandarískra ráða-
manna kemur í Washington. Utanríkisráðherrar bandalagsins söjgðu
að efst á baugi í slíkum viðræðum yrðu örlög vestrænna gísla í Irak
og Kúvæt, að sögn Douglas Hurds, utanríkisráðherra Bretlands.
Hurd sagði að haft yrði samráð
við Bandaríkjamenn áður en til við-
ræðna við Aziz kæmi. „Irakar fá
ekkert tækifæri til að sundra sam-
stöðu okkar,“ sagði Hurd. Roland
Dumas, utanríkisráðherra Frakk-
lands, sagði að eining hefði verið á
fundi EB-ráðherranna um að banda-
lagið myndi hafa mikilvægu hlut-
verki að gegna á Persaflóasvæðinu
eftir að núverandi deila hefði verið
leyst.
Tom King, varnarmálaráðherra
Bretlands, segir að Vesturveldin og
bandamenn þeirra úr röðum araba-
þjóða stefni að því að knésetja íraka
á mjög skömmum tíma mistakist að
leysa deiluna með friðsamlegum
hætti. Haldið væri áfram að senda
liðsauka til svæðisins til að tryggja
að þetta verði kleift. íraskir fjölmiðl-
ar vöruðu George Bush Bandaríkja-
forseta við því í gær að árás á írak
yrði ekki nein „skemmtiferð" eins
og aðgerðirnar í Grenada og Pa-
nama.
■ íraksstjóm sagði í gær að allir
sovéskir borgarar í landinu, alls um
3.300 manns, fengju að fara heim
næstu daga. Talsmaður yfirvalda
sagði að Sovétstjómin yrði gerð
ábyrg fyrir brotum á verksamningum
sem gerðir hefðu verið en flestir
Sovétmennimir vinna við verkefni á
vegum íraksstjórnar. Sovétmenn
hótuðu að senda herlið til Persaflóa
fengju gíslarnir ekki fararleyfí. Jap-
ansstjóm hyggst senda fulltrúa til
að ræða við stjómvöld í Bagdad um
málefni japanskra gísla.
■ Heimildarmenn úr röðum Pa-
lestínumanna segja að tekjur Frelsis-
hreyfingar Palestínumanna (PLO),
sem Yasser Arafat stjórnar, hafi
minnkað um 50% frá því írakar lögðu
Kúvæt undir sig. Arafat hefur stutt
Saddam í Persaflóadeilunni og Kú-
vætar veita PLO engan fjárstuðning
lengur. Saudi-Arabar hafa dregið
mjög úr stuðningi sínum.
Reuter
Einn af leiðtogum stjórnarandstæðinga í Bangladesh, Begum Khaleda Zia, veifar til stuðningsmanna
sinna í gær. Alls búa um 110 milljónir manna í landinu og er þjóðin meðal hinna fátækustu í heimi.
Ershad segir
setaembætti í
Dhaka. Reuter.
HOSSAIN Mohammad Ershad,
forseti Bangladesh, sagði af sér
í gær en hann hafði verið ein-
af sér for-
Bangladesh
Flugslysið í Detroit;
Þotan á rangri braut?
Detroit. Reuter.
ALLT bendir til þess að rekja megi orsakir flugslyssins á flugvellinum
í Detroit í Michiganríki í fyrrakvöld til þess að önnur þotan hafi far-
ið inn á ranga flugbraut, að sögn starfsmanna flugvallarins.
Upplýsingar um orsakir slyssins
og slys á fólki hafa verið afar mis-
vísandi. í fyrstu var talið að 19 hefðu
beðið bana en talsmaður Northwest
Airlines sem átti báðar þotumar
sagði í gær að átta menn hefðu beð-
ið bana. Talsmaður lögreglu sagði
hins vegar að níu hefðu látist og
a.m.k. 22 hefðu slasast.
Flugvellinum hafði skömmu áður
verið lokað vegna veðurs og var
svartaþoka þegar þotumar rákust
saman. Önnur þeirra, Boeing-727
með 156 manns innanborðs, var í
flugtaksbruni er hún rak vænginn í
skrokk þotu af gerðinni DC-9 með
þeim afleiðingum að hluti þaks henn-
ar fór af. Eldsneyti rann úr tönkum
beggja vegna skemmda á vængjum
og kviknaði strax mikið bál sem tafði
björgunaraðgerðir. Um borð í DC-9
þotunni voru 44 manns og var hún
í akstri eftir flugbraut Boeing-
þotunnar er áreksturinn varð. Engan
sakaði um borð í Boeing- þotunni.
ráður í landinu frá 1982. Á
mánudag lagði Ershad fram
áætlun um frjálsar kosningar
og hét því að fella úr gildi neyð-
arlög en andstæðingar hans
sögðu tillögurnar einvörðungu
klækjabrögð til þess ætluð að
halda sem fastast í völdin. Yfir
70 manns hafa fallið og um 500
slasast í átökum mótmælenda
og öryggislögreglu síðan forset-
inn setti neyðarlög í síðustu
viku.
Ershad hefur kallað saman sér-
stakan fund þingsins á laugardag
þar sem hann ætlar stjórnarand-
stæðingum að velja varaforseta
ERLENT
Þýskaland;
er taki við af honum til bráða-
birgða. Forsetinn segir jafnframt
að þingkosningar verði haldnar á
undan forsetakosningum.
Um 100.000 manns gengu um
götur höfuðborgarinnar Dhaka í
gær, áður en tilkynning barst um
afsögnina, og tóku undir kröfur
stjómarandstæðinga um tafar-
lausa afsögn Ershads. „Við erum
að sigra. Einræðisseggurinn hat-
aði er loks búinn að skilja að dag-
ar hans eru taldir,“ sönglaði fólk-
ið. Liðsmenn öryggislögreglunnar
héldu uppi eftirliti á götum Dhaka
en nokkrir mótmælendur réðust á
hús borgarstjórans, Abuls Ha-
snats, að sögn sjónarvotta. Einnig
var reynt að stöðva bíl Kazi Za-
fars Ahmeds forsætisráðherra er
komst undan fólkinu en ók niður
vegfaranda sem slasaðist hættu-
lega.
Ershad, sem rændi völdum fyrir
átta árum, lagði til á mánudag að
hann segði af sér 15 dögum áður
en frambjóðendur í forsetakosn-
ingum yrðu tilnefndir og léti völd-
in í hendur hlutlausum varaforseta
sem valinn yrði í samráði við
stjómarandstöðuna. Haldnar yrðu
fullkomlega fijálsar og lýðræðis-
legar forseta- og þingkosningar
undir eftirliti erlendra aðila og
sagði Ershad Jimmy Carter, fyrr-
verandi Bandaríkjaforsta, hafa
þekkst boð um að fylgjast með
kosningunum. Allir flokkar fengju
aðgang að° ríkisijölmiðlum og loks
hét forsetinn því að neyðarlögum
yrði aflétt og efnt til samráðsfunda
með fulltrúum stjórnarandstöðu til
að tryggja að tillögurnar yrðu
.framkvæmdar.
„Hvers vegna getur hann ekki
sagt af sér hér og nú í staðinn
fyrir að vera með öll þessi láta-
læti,“ spurði Begum Khaleda Zia,
leiðtogi Þjóðernissinnaflokks
Bangladesh. „Hann stendur uppi
berskjaldaður og er að reyna að
finna leið til að halda völdum.“
Forystumaður annars flokks, Aw-
ami-bandalagsins, sagði tilboð
Ershads gildru sem yrði að hafna
og stúdentaleiðtogar hvöttu til
þess að ekki yrði hvikað fyrr en
Ershad viki. Átta klukkustunda
allsherjarverkfall lamaði at-
hafnalíf í borgunum í gær.
Forystukreppa skollin á inn-
an Jafnaðarmannaflokksins
Bonn. Reuter.
SÚ ákvörðun Oskars Lafontaine, kanslaraefnis jafnaðarmanna í þing-
kosningunum á sunnudag, að hafna boði um að taka að sér embætti
formanns Jafnaðarmannaflokksins, SPD, þykir verulegt áfall fyrir
þýska vinstrisinna. Sýnt þykir að forystukreppa sé nú skollin á innan
Jafnaðarmannaflokksins en fráfarandi formaður flokksins, Hans-Joc-
hen Vogel, hafði lagt hart að Lafontaine að taka að sér þetta embætti.
Jafnaðarmannaflokkurinn varð
fyrir verulegu áfalli í þingkosning-
unum í Þýskalandi á sunnudag en
þegar talningu atkvæða var lokið
kom í ljós að fylgi flokksins hafði
ekki verið minna frá árinu 1957.
Engu að síður var það viðtekin
skoðun innan flokksins að ekki
væri unnt að kenna Lafontaine,
kanslaraefni flokksins í kosningun-
um, um fylgistapið og að hann
væri einna líklegastur til að höfða
til vinstrisinnaðra kjósenda í framt-
íðinni. Hans-Jochen Vogel kunn-
gerði að hann vildi að Lafontaine
tæki við embætti flokksformanns
og kom það því mönnum gjörsam-
lega í opna skjöldu er Lafontaine
lýsti yfir því á mánudagskvöld að
hann hefði afráðið að hafna þessu
boði. Hann hygðist halda á ný til
Saarlands en þar er hann forsætis-
ráðherra og vinsælastur stjóm-
málamanna.
Vinir Lafontaine sögðu í gær að
hann vildi ekki gefa eftir embætti
sitt í Saarlandi auk þess sem honum
væri umhugað um að vernda ein-
kalíf sitt en slíkt væri með öllu
ómögulegt í hringiðu stjórnmálanna
í Bonn. Aðrir sögðu hann enn ekki
hafa náð sér fyllilega eftir tilræði
sem geðbiluð kona sýndi honum í
aprílmánuði er hún freistaði þess
að skera hann á háls á kosninga-
fundi.
Jafnaðarmenn hófu strax í gær
að leita að arftaka Hans-Jochen
Vogels og þykir Bjöm Engholm,
forsætisráðherra í Schleswig-Hol-
stein, eiga möguleika á að hreppa
embættið auk Johannesar Rau, sem
var kanslaraefni SPD í kosningun-
um 1987 og beið þá lægri hlut fyr-
ir Helmut Kohl kanslara.
Niðurstöður kosninganna hafa
einnig vakið upp harðvítugar deilur
innan Græningjaflokksins. Flokkur-
inn náði ekki tilskildum fimm pró-
sentum atkvæða í vesturhluta
Þýskalands og bandalag græningja,
Búndnis, fékk einungis átta menn
kjörna í austurhlutanum. Hafa enn
á ný blossað upp deilur milli tveggja
fylkinga í Græningjaflokknum svo-
nefndra raunsæismanna („realos")
og harðlínumanna („fundis"). Var
því haldið fram að harðlínumenn
hefðu fælt unga kjósendur frá
flokknum með málflutningi sínum
auk þess sem hvatt var til þess að
gerðar yrðu breytingar á skipulagi
flokksins til að tryggja að kjörin
yrði raunveruleg forystusveit.
Uppreisnarmenn íArgentínu
yfirbugaðir
Um 200 uppreisnarmenn í stjórnarher Argentínu, sem náðu á sitt
vald höfuðstöðvum hersins og nokkrum opinberum byggingum, voru
yfirbugaðir í fyrrakvöld. A myndinni sjást nokkrir þeirra gefast upp
fyrir hermönnum hollum Carlos Menems forseta. Lögreglan var þó
með mikinn viðbúnað í Buenos Aires eftir að sprengja hafði sprungið
í gærmorgun fyrir utan útibú Bostonbanka í borginni. Enginn varð
fyrir meiðslum í sprengingunni og ekki var vitað í gær hveijir stóðu
að tilræðinu. George Bush Bandaríkjaforseti kemur til Buenos Aires
í dag á ferð sinni til fimm Suður-Ameríkuríkja.