Morgunblaðið - 05.12.1990, Síða 23

Morgunblaðið - 05.12.1990, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1990 23 Hótunum herforingja harðlega mótmælt Belgrad. Reuter, Daily Telegraph. LEIÐTOGI þjóðernissinna í júgóslavneska sambandsríkinu Serbíu, Vuk Drascovic, segir að sumir hershöfðingjar landsins hóti íbúum Serbíu öllu illu ef þeir kjósi ekki kommúnista í fyrstu frjálsu þingkosningun- um eftir stríð en þær fara fram nk. sunnudag. Drascovic er talinn hættulegasti keppinautur Slobodans Milosevic, forseta og leiðtoga kommúnista, um völdin í landinu. Varnarmálaráðherra Júgóslavíu sagði á mánudag að beitt yrði valdi til að brjóta á bak aftur sjálfstæð- ar varnarsveitir sambandsríkjanna; ekki verði þolað að fleiri en einn her sé við lýði í landinu. Leiðtogar Króatíu og Slóveníu, sem vilja aukið sjálfræði og e.t.v. fullt sjálfstæði, hafa vísað ummæl- um Veljkos Kadíjevic vamarmála- ráðherra, sem birt voru í sjónvarpi og fiestum dagblöðum, harkalega á bug og segja Slóvenar að varnar- Handtöku Honeckers frestað vegna veikinda Beelitz. Berlín. Reuter. RÁÐGERT er að handtaka Erich Honecker, fyrrum leiðtoga Austur-Þýskalands, en því var slegið á frest á mánudag þar sem hann var fluttur á sjúkrahús vegna hækkandi blóðþrýstings. Svo kann að fara að fresta verði handtöku Hpneckers um nokkrar vikur eða þar til yfirvöldum sovésks hersjúkrahúss skammt frá Berlín þóknast að sleppa honum. Dómsmálaráðuneytið í Berlín gaf út handtökuskipun á hendur Honec- ker sl. laugardag en í tilkynningu ráðuneytisins sagði að fyrir lægju sannanir þess efnis að hann hefði sjálfur gefið fyrirmæli um að skjóta fólk sem reyndi að flýja yfir Berlín- armúrinn til Vestur-Berlínar. Honecker veiktist aðfaranótt mánudags og var fluttur af sovésku hersjúkrahúsi þar sem hann hefur hafst við frá í apríl yfir á hjartalækn- ingastöð. Friedrich Wolf, lögmaður Honeckers, sagði á mánudag að hann væri ekki í lífshættu en leiðtog- inn fyrrverandi er 78 ára. Verðir á sovéska sjúkrahúsinu neituðu að framselja Honecker um helgina og sögðust ekki myndu gera það fyrr en þeir fengju fyrirmæli frá yfirboðurum sínum. Talsmaður so- véska sendiráðsins í Berlín sagði að annað kæmi ekki til greina en fram- selja hann, ' aðeins tímasetningin væri óljós. Hik Sovétmanna hefur reitt ýmsa stjórnmálamenn til reiði og hafa þeir sakað sovéska herinn um aðgerðir sem séu orðnar órétt- mætar eftir sameiningu þýsku ríkjanna 3. október sl. sveitirnar muni ekki láta vopn sín af hendi baráttulaust. Kadíjevic sagði að tilvist varnarsveitanna byði heim hættunni á blóðugum, innbyrð- is þjóðaátökum eins og á stríðsárun- um þegar fleiri Júgóslavar féllu fyr- ir löndum sínum en hernámsliði Þjóðveija. „Júgóslavía getur ekki orðið og mun ekki verða nýtt Líban- on,“ sagði Kadíjevic. Talið er að flestir æðstu foringjar hersins vilji halda í kommúnískt skipulag og einingu ríkisins í Júgó- slavíu. Leiðtogar margra sambands- ríkja krefjast þess að herinn hætti afskiptum af stjórnmálum. Komrri- únistar hafa víða goldið afhroð í fijálsum kosningum í fjórum sam- bandsríkjum en nú er aðeins eftir að kjósa í Serbíu og Svartfjallalandi. neucer Fyrsti Japaninn á braut umjörðu Japanski sjónvarpsfréttamaðurinn Toyehiro Akiy- ama (t.v.) og sovésku geimfararnir Viktor Afanasjev (í miðjunni) og Músa Manarov (t.h.) kveðja yfirmenn sína við athöfn skömmu áður en þeim var skotið út í geiminn um borð í sovéska geimfarinu Sojúz-TMll á sunnudag. Akiyama er fyrsti blaðamaðurinn og fyrsti Japaninn sem skotið er á braut um jörðu en vinnuveitandi hans, TBS-sjónvarpsstöðin, greiddi Sovétmönnum fyrir að taka hann með í geimferð og er hermt að þeir hafi orðið að borga 8-10 milljón- ir dollara fyrir, jafnvirði 440-550 milljóna ÍSK. Mun hann dveljast átta daga um borð í sovésku geimstöð- inni MÍR og senda nokkrum sinnum fréttapistla beint til sjónvarpsáhorfenda. Geimferjan Kólumbía: Bilun í mið- unarbúnaði Houston. Rcutcr. ÁHOFN geimferjunnar Kólumbíu hefur náð nokkrum myndum af geimfyrirbrigðum í órafjarlægð frá jörðu þrátt fyrir bilun í miðun- arbúnaði stjörnusjónaukanna fjögurra sem um borð eru. Hvorki áhöfninni né vísindamönnum á jörðu niðri hefur tekist að gera við bilunina. Stjarnfræðirannsóknimar um borð í Kólumbíu eru nýstárlegar sakir þess að reynt er að kanna fyrir- brigði sem ekki er hægt að rannsaka með tækjum á jörðu niðri. Var áhöfn Kólumbíu ætlað að skyggnast millj- arða ára aftur í tímann með mæling- um á geislum fyrirbæra í órafjar- lægð frá jörðu. Um borð í Kólumbíu eru fjórir sjónaukar og er ætlunin að rannsaka með þeim svarthol, sprengistjörnur og dulstirni en svo nefnast fyrirbæri sem líkjast stjörnum en virðast miklu iengra í burtu og senda frá sér gífur- lega geislun. Starfsfólk Radíóstofunnar og IMorsk Data á íslandi kynnir starfsemi fyrirtækjanna 5.-8. desember næstkomandi á Dvergshöfða 27 Á sýningunni veróa m.a.: AM Ijósritunarvélar ANDOVER hússtjórnarkerfi ARITECH og H0RMANN öryggiskerfi BOUYER hljóðkerfi TEKNICARD aðgangskortakerfi ERICSSON farsímar HITACHIDENSHI og UWE BISCHKE myndbandseftirlitskerfi RING MASTER sjúkrakallkerfi EINNIG OKKAR ÞEKKTI RAÐSTEFNUBUNAÐUR VERIÐ VELKOMIN A SYNINGUNA Dvergshöfða 27 Sími 673737 NorskData ÁÍSLANDI Andstæðingar kommúnista í Júgóslavíu:

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.