Morgunblaðið - 05.12.1990, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1990
37
Minning:
Gestur Geirsson
Fæddur 5. apríl 1943
Dáinn 26. nóvember 1990
í dag kl. 13.30 verður til moldar
borinn frá Fossvogskirkju Gestur
Geirsson. Mig langar að minnast
vinar míns nokkrum orðum.
Við Deddi kynntumst þegar hann
gerðist félagi í Kiwanisklúbbnum
Elliða og höfum við innan hans
starfað saman í nær 18 ár. Þeir eru
orðnir mörg hundruð fundirnir sem
við höfum setið og ávallt kom hann
sjónarmiðum sínum á framfæri af
einstakri hógværð. Eins eru þau
orðin mörg skiptin sem við höfum
skemmt okkur saman og þar gilti
einnig sama prúðmennskan.
í gegnum árin höfum við aðstoð-
að hvor annan, hann með hamrinum
sínum og söginni en ég með reikni-
og ritvélinni. Á svipuðum tíma urðu
miklar og erfiðar breytingar á
einkahögum okkar sem urðu til
þess að við kynntumst enn betur
og urðum hvor öðrum nokkur styrk-
ur. Hann var mjög stoltur af mann-
vænlegum börnum sínum og bjart-
sýnn á framtíð þeirra og reyndist
þeim eins vel og hann mátti.
Hann hafði frá því hann veiktist
hastarlega sl. vetur háð baráttu við
illvígan sjúkdóm og þó svo litið
hafi út um tíma að tekist hafi að
stöðva hann, reyndist það lognið
fyrir storminn. Það var aðdáunar-
vert að fylgjast með hvernig Gestur
varðist þennan tímá með góða skap-
ið að vopni og vonina að leiðar-
ljósi. Að vorkenna sjálfum sér var
honum fjarri skapi og kom þá vel
í ljós geðprýði hans og aldrei sleppti
hann spaugsyrðum sínum. Nokkr-
um dögum áður en hann lagðist
banaleguna kom hann í heimsókn
til mín og lék á alls oddi, þrátt fyr-
ir mikla vanlíðan. Hann samgladd-
ist mér og Stínu, frænku sinni, inni-
lega með að hafa stofnað nýtt heim-
ili.
Að sinni skilja leiðir okkar Dedda
og honum fylgja mínar bestu óskir
um að hann hafi nú eignast gott
heimili á nýju tilverustigi um leið
og ég þakka af alhug samfylgdina.
Ingibjörgu, móður Gests, bömun-
um hans, Guðrúnu, Gerði, Geir, Ásu
og Ingibjörgu, sendi ég mínar inni-
legustu samúðarkveðjur og bið góð-
an Guð að styrkja þau í sorg þeirra.
Ingþór H. Guðnason
Ég vil með örfáum orðum minn-
ast góðs vinar á kveðjustund. Þessi
orð eiga fyrst og fremst að vera
þakklæti fyrir þá miklu vináttu og
tryggð sem hann sýndi mér frá
fyrstu kynnum, en þeir eiginleikar
ásamt einstaklega góðri skapgerð
voru fyrst og fremst það sem ein-
kenndi Gest Geirsson. Enda var það
svo að allir sem kynntust honum
hvort heldur var á vinnustað eða
við önnur tækifæri þótti vænt um
hann.
Lífsstarf Gests var við smíðar eða
störf þeim tengd, en hann var mjög
góður smiður og eftirsóttur til
þeirra starfa af þeim sem þekktu
hann og vissu hve vandvirkur hann
var og skilaði fallegri vinnu. Hann
hafði mjög glöggt auga fyrir því
hvernig allur frágangur væri sem
best af hendi leystur eða eins og
hann sagði oft sjálfur í léttum tón:
„Glöggt er Gests augað.“ Sá sem
þetta ritar naut oft þess glögga
auga í vinnu hans og þeirri vinnu
sem var skilað á fullkominn hátt.
Þá var Gestur einnig mjög virkur
á félagsmálasviðinu. Hann var virk-
ur félagi í Kiwanisklúbbnum Elliða
frá fyrstu dögum hans og til dánar-
dags og gegndi þar flestum ef ekki
öllum embættum klúbbsins.
Gestur fæddist 5. apríl 1943 og
var því aðeins 47 ára gamall er
hann lést. Ég vil senda móður hans
innilegar samúðarkveðjur en hún á
nú að baki að sjá eldri syninum,
en hún hefir misst báða syni sína,
þann yngri fyrir nokkrum árum,
aðeins 25 ára gamlan.
Við hjónin minnumst Gests
Geirssonar sem góðs og tryggs vin-
ar og þökkum kynni okkar af hon-
um.
Að lokum vil ég endurtaka sam-
úðarkveðjur til móður hans og einn-
ig sendi ég börnum hans og öðrum
ástvinum innilegar samúðarkveðj-
ur.
Þórir Guðmundsson
Vinur minn í rúma tvo áratugi,
Gestur Geirsson, er látinn, aðeins
47 ára.
Eftir að hafa fylgst með veikind-
um hans kom þetta ekki á óvart.
Samt er svo erfitt að trúa því að
þessi glaðværi, góði drengur sé all-
ur, að eiga þess ekki kost að heyra
framar glaðværan hlátur hans, né
að eiga þess kost að hlusta á fram-
tíðaráform hans sem öll voru full
af bjartsýni þótt hann ætti við mik-
ið mótlæti að stríða á síðustu árum
sínum.
Kynni okkar hófust er fjölskylda
mín fluttist að Grýtubakka þar sem
hann bjó þá með-fjölskyldu sinni.
Leiðir okkar lágu strax saman í
störfum fyrir húsfélagið og þar lá
Gesturinn, eins og hann nefndi
sjálfan sig stundum, ekki á liði sínu.
Ékkert mál að smíða sæti og bólstra
í fundarherbergið né að smíða fund-
arborð sem einnig þjónaði því hlut-
verki að vera veisluborð á heimilum
þeirra félagsmanna sem voru að
láta ferma eða við önnur tækifæri.
Já, það var ólatur maður til verka
fyrir náungann hann Deddi blessað-
ur.
Þegar hann hóf svo að byggja
sér raðhús í Norðurfelli 74, nú þá
var kominn tími til að gera slíkt
hið sama, því svona iagað getur
orðið bráðsmitandi yfir ótöldu kaffi-
bollaspjalli sem við áttum oft og
tíðum.
Nú, eina rökrétta leiðin til að
hrinda því í framkvæmd var að fá
Gestinn til að reisa húsið okkar í
Engjaseli, hann var jú húsasmiður
og það var auðvitað ekkert mál,
enda fluttum við inn rúmum 7
mánuðum síðar. Ekkert iðnaðar-
mannafúsk þar á ferðinni.
Þegar svo Kiwanisklúbburinn
Elliði var stofnaður í Breiðholti,
fyrstur þjónustuklúbba í borginni,
kenndur við borgarhverfi, nú þá var
Gesturinn að sjálfsögðu með og upp
frá því söng K-línan í bijósti hans.
Þegar dagana tekur að stytta,
vetur konungur tekur vold.
Þá er gott sína félaga að hitta,
í Kiwanis kvöld og kvöld.
Þar saman blöndum við leikjum og störfum,
því að mörgu við þurfum að gá.
„Velja verður úr allra þörfum
og þvi næst að stefna að markmiði og ná.“
(Erindi úr söng Kiwanismanna.)
Það voru fá störfin í klúbbnum
okkar sem við byggðum saman, sem
hann hafði ekki gegnt bæði í nefnd-
um og stjórn, en klúbbforseti var
hann 1981 til 1982. Hann var söng-
maður góður og afbragðs minnugur
á texta og þurfti aldrei að syngja
BRÉFA-
BINDIN
frá Múlalundi...
... þar eru gögnin á góðum stað.
af blaði. Hann kunni sitt hlutverk.
Þegar uppákomur voru í klúbbnum
svo sem á konukvöldum var einfald-
ast að leita til hans til að taka þátt
í skemmtiatriðum, hann var alltaf
tilbúinn í slaginn. Þeir voru ekki
margir sem höfðu jafnbrennandi
áhuga fyrir Kiwanisstarfinu og
hann. Það eru eldhugar eins og
hann sem gera veröldina aðeins
betri búsetustað, þó ekki fari hátt
um störf þeirra út á við.
Ský dró fyrir sólu fyrir einum sex
árum er hann gekk í gegnum erfið-
an skilnað. Hann sá mikið eftir
samvistum við fjölskyldu sína en lét
ekki bugast. Hugsun hans snerist
um það að gera sitt besta fyrir
börnin sín sem hann unni svo heitt
og voru sífellt í huga hans. Þá vopn-
aðist hann bæninni og bjartsýninni
sem honum var svo eiginleg og það
dugði til. Fljótlega upp úr þessu
kom í ljós að hann var kominn með
sykursýki, en hann gaf ekki eftir í
neinu, enda virtist hann alltaf vera
í framför eftir að hann hafði fengið
viðeigandi læknismeðferð. Því mið-
ur þá reyndust veikindi hans vera
alvarlegri en nokkurn grunaði og í
mars sl. fór hann bráðsjúkur á
sjúkrahús þar sem hann gekkst
undir stóra aðgerð. Aftur lifnaði
vonin hjá okkur vinum hans. Hann
virtist allur vera að braggast eftir
að hafa jafnað sig eftir aðgerðina,
en þær vonir urðu þó að engu er
hann aftur veiktist nú í nóvember
sl. Allan þennan tíma neitaði hann
að gefast upp og beitti gömlu vopn-
unum sínum sem áður um gat, en
nú var tíminn kominn. Tími kominn
til að kveðja þessa lífsvist og halda
á eftir föður sínum, Geir Gestssyni,
sem einnig var trésmiður og yngri
• LITAVER • LITAVER • LITAVER • LITAVER •
Á STIGAHÚS
• LITAVER • LITAVER • LITAVER • LITAVER •
bróður sínum, Áskeli, en hann lést
einnig langt fyrir aldur fram, en
allir féllu þeir feðgar fyrir sama
mannskæða sjúkdómnum.
Við Deddi vorum alltaf meira og
minna að gantast og því sagði ég
við hann er ég heimsótti hann á
sjúkrahúsið og hitti hann þar fyrir
hressan að vanda þó þreyttur væri,
að við yrðum nú að hætta að hitt-
ast svona, við yrðum að finna okk-
ur annan fundarstað. Hann er nú
farinn blessaður að undirbúa endur-
fundi okkar sem ég er viss um að
framundan eru, enda ekkert mál
fyrir hann að sjá um það.
Ég kveð nú góðan vin minn og
drengskaparmann með söknuði í
þessum fátæklegu orðum mínum,
en mér er tregt um tjáningu á skiln-
aðarstundinni.
Ég bið góðan Guð að blessa og
styrkja ástvini hans, börnin hans,
Guðrúnu, Gerði, Geir, Áskel og
Ingibjörgu, svo og móður hans,
Ingibjörgu Sigurðardóttur, sem hef-
ur þurft að sjá á eftir öllum drengj-
unum sínum yfir móðuna miklu sem
skilur okkur að frá horfnum ástvin-
um okkar.
Fari Deddi í friði og friður Guðs
blessi hann. Hafi hann þakkir okkar
Lonniar fyrir samfylgdina og vin-
skapinn. Gangi hann með Guði nú
sem endranær.
Örn Egilsson
Kveðjuorð frá Kiwanis-
klúbbnum Elliða
Gestur er dáinn! Þessi harma-
fregn barst okkur félögunum mánu-
daginn 26. nóvember sl. Með Gesti
er genginn einn af máttarstólpum
klúbbsins okkar og á fundinum
þetta kvöld mátti iesa söknuð og
sorg úr hveiju andliti. Gestur er
fyrstur okkar félaganna sem flytur
til æðri heima, aðeins 47 ára gam-
all. Gestur gekk í Elliða á fyrsta
starfsárinu og hefur ávallt síðan
starfað vel. Hann var nefndarfor-
maður starfsárin ’73-’76, í vara-
stjóm ’76-’77 og starfsárin ’77-’83
sat hann í stjórn klúbbsins, fyrst
sem gjaldkeri, síðan féhirðir, ritari
og varakjörforseti.
10. forseti klúbbsins var hann
starfsárið ’81-’82 og fórst honum
það vel úr hendi. Síðan hefur hann
setið í ýmsum nefndum klúbbsins.
Við félagarnir þökkum honum fyrir
það mikla og óeigingjarna starf sem
hann vann og víst er að það sem
klúbburinn hefur áorkað til góðs í
íslensku samfélagi væri minna en
raun ber vitni ef hans hefði ekki
notið við. Einnig erum við þakklát-
ir fyrir að hafa kynnst þeessum
prúða dreng og minningin um hann
mun lifa með okkur um ókomin ár.
Við sendum móður hans og börn-
um okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
t Hugheilar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför SIGFÚSÍNU SIGFÚSDÓTTUR, Langholtsvegi 188. Margrét Þorvaldsdóttir, Þorsteinn Þorvaldsson, Magrét Ágústa Þorvaldsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
t Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför sambýliskonu minnar, dóttur okkar, móður, tengdamóður og ömmu, AÐALBJARGAR JÓNASDÓTTUR, Túngötu 7, Húsavik. Sigtryggur Sigurjónsson, Anna Guðrún Jóhannesdóttir, Jónas Aðalsteinsson, Anna Guðrún Jónsdóttir, Hafliði Jónsson, Klara Sigurðardóttir, Marinó Jónsson, Ólöf Kristín Arnmundsdóttir og barnabörn.
t Þökkum af alhug auðsýndan hlýhug og samúð við andlát og út- för ástkærrar eiginkonu, móður, tengdamóður og ömmu, KRISTÍNAR HELGU GUÐMUNDSDÓTTUR, Túngötu 14, Sandgerði. Guð blessi ykkur öll í nútíð og framtíð. Einar Júlíusson, Júlíus H. Einarsson, Sveinbjörg Eydís Eiríksdóttir, Einar Kr. Friðriksson, Maria Vilbogadóttir og barnabörn.
ÍANDSINS MESTA URVAÍ
afáhöldum og búnaði fyrír örbylgjuofna
Lítið inn til okkar - úrvalið er ótrúlegt.
íslenskar leiðbeiningar fylgja mörgum
áhöldunum. Fagleg ráðgjöf.
Áhald í örbylgjuofninn er góð og
nytsöm gjöf, sem kemurað gagni.
Einar Farestveit&Co.hf.
Borgartúni 28, sími 622901.