Morgunblaðið - 05.12.1990, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 05.12.1990, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 1990 45 Kópasel: SKAMMSYNIYFIRVALDA Til Velvakanda. Margir Kópavogsbúar kannast við Kópasel við Lækjarbotna, sumir hafa farið þangað í réttarkaffi á haustin, aðrir tengjast leikskólan- um þar á einn eða annan hátt. Li- onsklúbbur Kópavogs gaf Kópa- vogsbæ húsið fyrir allmörgum árum til þess að það mætti nýtast börnum bæjarins sem best. Nú bregður svo við að Kópavogs- bær hættir rekstri leikskóla í Kópa- seli 1. desember til þess að sjálfs- eignarfélagið „Ásmegin" getið haf- ið þar rekstur leikskóla. Frá þessu er sagt m.a. í októberblaði „Fram- sýnar“, blaði framsóknarfélaga Kópavogs. Á baksíðu blaðsins er ijallað um Waldorf-uppeldisfræð- ina, sem lögð er til grundvallar nýrri leikskólastarfsemi í Kópaseli. Ég kynntist starfsemi Kópasels á sl. ári er ég frétti fyrir tilviljun af „sveita“-leikskóla á vegum Kópa- vogsbæjar. Ég get óhikað sagt, að undrun mín var mikil, þegar ég fór með syni mínum þangað í fyrsta sinn, og ég átti erfitt með að skilja að svona frábær starfsemi gæti lát- ið svona lítið yfír sér. Ég hefði frem- ur átt von á 100 barna biðlista en að hægt væri að koma barni að á tiltölulega skömmum tíma. Mér virðist, að einhverra hluta vegna hafi foreldrum almennt ekki verið kynntur þessi valkostur (sonur minn var áður í öðrum leikskóla á vegum Kópavogsbæjar). Börnin fara öll saman í rútu á morgnana og koma öll saman í bæinn aftur kl. hálf þijú. Þetta at- riði skapar mikla samkennd barna og starfsfólks í stað þess róts sem skapast oft þegar börn eru sótt á mismunandi tímum. Kópasel stendur í skjóli og frið- Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 1Q og 12, mánudaga til föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Með- al eftús, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskiptingar, fyrirspumir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfh, nafhnúmer og heimiiisföng verða að fylgja öllu efhi til þáttar- ins, þó að höfundur óski nafn- leyndar. Ekki verða birt nafnlaus bréf sem em gagnrýni, ádeilur eða árásir á nafhgreint fólk. Sérstaklega þykir ástæða til að beina þvi til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér f dálkunum. sæld og það var eins og að koma í annan heim úr skarkala borgarinn- ar og samt svo stutt að fara. Ég var strax gagntekin af hlýleika heimilisins og ég legg áherslu á heimili, því að allra síst datt manni í hug stofnun. Það var einstaklega góður andi meðal starfsfólks og samheldni ríkjandi. Konurnar í eld- húsinu mömmulegar og hlýlegar við börnin og öll samskipti mjög eðlileg og fijálsleg innan heimilisins. Það brá svo við að þegar ég las fyrrnefnda grein um Waldorf-upp- eldisfræðina, að ég hugsaði með mér að allt þetta og meira til gerðu bömin í Kópaseli án þess að það væri skýrt einhveijum fínum nöfn- um. Waldorf-stefnan er góðra gjalda verð, en venjulegar góðar konur, hvort sem þær em menntað- ar fóstmr eða sjálfar mæður, hafa eðlilega tilfinningu fyrir því hvernig best er að hlúa að börnum svo að þeim líði vel og þau þroskist á eðli- legan hátt. Og það hefur starfsfólki í Kópaseli tekist á frábærlega góðan hátt. Ég gæti nefnt fjöldamörg atriði þessu til staðfestingar, en eitt er mér efst í huga. Einn fallegan sum- ardag var foreldmm boðið í heim- sókn með bömum sínum til þess að skoða vinnu undangenginna mánaða í tengslum við „þema- vinnu" um hrafninn. Þarf ekki að orðlengja hrifningu gestanna á öll- um þeim listaverkum, sem þarna var að sjá. Þar vom málverk, leir- munir og ótal margt annað, sem börnin höfðu unnið af óþijótandi áhuga og gleði. í þessu umhverfi var líka kjörið að fylgjast með ferð- um hrafnsins og kanna náttúruna í tengslum við híbýli hans. Á hveij- um degi á undangengnum mánuð- um hafði sonur minn komið heim með nýja visku um hrafninn, vísur og sögur. Á þessum fallega degi fylgdumst við með börnunum að leik í þessum sælureit og hverntg náttúran varð þeim uppsþretta ótal leikja. Ég tek það fram, að sonur minn er hættur í Kópaseli og byijaður í skóla. Hann spyr samt öðru hveiju hvort hann geti ekki fengið að byija aftur í Kópaseli. Það er dapurlegt að horfa upp á skammsýni yfirvalda í þessu máli. Mér liggnr við að kalla það glæp- samlegt athæfi að leggja svo blóm- lega starfsemi niður, umturna lífi barnanna sem fara nú í annan leik- skóla (reyndar var þeim gefínn kostur á að vera þarna áfram, í nýju skipulagi, með nýju starfs- fólki, en af eðlilegum ástæðum voru foreldrar samhuga í að láta þau fylgja starfsfólkinu yfir í nýjan leik- skóla) og eyðileggja góðan vinnu- stað fyrir mörgum konum. Mér verður hugsað til nýrra upp- alenda í Kópaseli. Ætli það dragi ekkert úr gleði þeirra í starfi að vita hvaða fórnir þurfi að færa til að rýma fyrir þeim? María L. Einarsdóttir Ný sending af kuldaOlpum ug kuldablússum Ath.: Greitt er fyrir við- skiptavini í bifreiða- geymslu Vesturgötu 7. GEísiP Aðalstræti 2 A^t tréMr/l ÓMuwháss Ekki bara fyrir augað. Skemmtiieg og stíihrein nýj- ung í loft- og veggklæðning- um. Hönnuð með mýkt og þægindi í huga. Varanleg lausn, sem gefur umhverf- inu hlýtt og notalegt yfir- Frábær hönnun. örugggæði. Mikil ending. Gott að velja. BJÖRNINN BORGARTÚNI28 S. 621566 F4966ELM Sambyggður ofn/ örbylgjuofn Yfir-undirhiti, blástur, grill og snúningsgrill. Full sjálfhreinsun, kjöthitamælir, spegilútlit, örbylgjuofn, tölvuklukka og tímastillir. O !/) Ofn Yfir-undirhiti, blástur, grill og snúningsgrill, full sjálfhreinsun, stálútlit, tölvuklukka og tímastillir. F3805ELM Ofn Yfir-undirhiti, blástur, grill og snúningsgrill, fituhreinsun, svart eða hvítt spegilútlit, tölvuklukka með tímastilli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.