Morgunblaðið - 20.12.1990, Page 1
80 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
292. tbl. 78. árg.
FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1990 Prentsmiðja Morgunblaðsins
EB:
Illleysanleg-
ur ágreining-
ur um fisk-
veiðikvóta
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni,
fréttaritara Morgunbladsins.
FUNDI sjávarútvegsráðherra
Evrópubandalagsins (EB), sem
hófst í Brussel í gærmorgun, var
frestað um hálfan sólarhring
síðdegis í gær vegna mikils
ágreinings um tillögur Manuels
Marins, framkvæmdasljóra EB,
um kvóta næsta árs og aðgerðir
til að vernda og byggja upp fisk-
stofna EB. Tillögurnar gera m.a.
ráð fyrir umtalsverðum niður-
skurði á veiðiheimildum, auk
aðgerða, svo sem stækkun
möskva, til að draga úr ofveiði
og smáfiskadrápi.
í tillögunum er kveðið á um
kvóta við Kanada, Grænland, Fær-
eyjar og Noreg, auk kvóta í sameig-
inlegri fiskveiðilögsögu bandalags-
ins. Samkvæmt heimildum innan
framkvæmdastjórnarinnar eru litl-
ar líkur taldar á að samkomulag
náist um þær. Ráðherrarnir eru
almennt fylgjandi verndaraðgerð-
um svo framarlega sem þær snerta
ekki útgerðir og fiskimenn í þeirra
eigin ríkjum. Fari svo að ekkert
samkomulag náist gæti fram-
kvæmdastjórnin gripið til þess ráðs
að ákveða kvótana upp á eigin spýt-
ur á þeirri forsendu að ráðherrarn-
ir hafi brugðist samningsbundnum
skyldum sínum.
N0R/1ANDI
Reuter
Franskir sjómenn sturtuðu í gær niður 20 tonnum af síld og sardínum fyrir framan höfuðstöðvar Evr-
ópubandalagsins, þar sem sjávarútvegsráðherrar bandalagsins voru að ræða tillögu um að skerða veiði-
kvóta á næsta ári. Einnig eru fyrirhugaðar ýmsar verndaraðgerðir, svo sem stækkun möskva. Sjómenn-
irnir segja þetta stefna lífsafkomu þeirra í hættu. Á borðunum stendur: „Hinir ungu drukknuðu í Bruss-
el“ og „Engir möskvar henta mér“.
Geimferð
í vinning
New York. Daily Telegraph.
BANDARÍSKT fyrirtæki hef-
ur hleypt af stokkunum happ-
drætti þar sem nýstárlegur
vinningur er í boði — geimferð
og viku dvöl í sovésku geim-
stöðinni Mír.
Vinningshafinn fær hálfs árs
þjálfun sem geimfari og lærir
auk þess rússnesku. Þá fær hann
hálfa milljón dala (27,5 milljónir
ÍSK) í reiðufé en 1,5 milljónir
dala (82,5 milljónir ÍSK) ef hann
vill halda sig á jörðinni.
Fyrirtækið Space Travel
Services í Houston í Texas
stendur fyrir happdrættinu.
James Davidson, aðstoðarfor-
stjóri þess, vildi ekki skýra frá
verði geimferðarinnar en gaf þó
til kynna að það yrði hærra en
tólf milljónir dala, en það greiddi
japönsk sjónvarpsstöð fyrir að
fá að senda fréttamann til Mír.
Útvarpsstöð í Texas hafði eft-
ir sovéskum embættismönnum
að fyrirtækið hefði ekki gert
neinn samning um geimferðina.
Davidson sagði þetta misskiln-
ing, því samningurinn hefði ver-
ið undirritaður.
Míkhaíl Gorbatsjov flytur harðorða ræðu á fulltrúaþingi Sovétríkjanna:
Hótar að færa óróasvæði
undir beina stj óm sína
Borís Jeltsín segir Sovétforsetann sækjast eftir of miklum völdum
Jafnframt ræða ráðherrarnir til-
lögur um innflutningsívilnanir á
næsta ári. Fyrir íslendinga skipta
ákvarðanir ráðherranna um inn-
flutningsheimildir á saltfiski miklu
máli en fyrir fundinum liggur til-
laga um að heimila innflutning frá
1. apríl á 50 þúsund tonnum af
saltfiski með 9% tolli. Ekki er búist
við miklum ágreiningi um þessa
tillögu og frekar reiknað með því
að ráðherrarnir lækki tollinn og
hækki kvótann á fundinum sem á
að halda áfram í dag.
Rúmlega 1.500 fundarmenn
hlýddu agndofa á er Anicet Le Pors,
fyrrum ráðherra, tók Marchais til
bæna og sagði hann haga sér eins
og einræðisherra. Hvatti hann til
þess að efnt yrði til aukaþings þar
sem stefnuskrá flokksins yrði um-
rituð í anda lýðræðis í stað alræðis
öreiganna. Sagði hann lýðræðisleg-
an sósíalisma líklegri til þess að
auka fylgi flokksins en miðstýring-
Moskvu. Reuter, dpa.
MÍKHAÍL Gorbatsjov, forseti
Sovétríkjanna, hótaði því í gær
að helstu óróasvæði í landinu
yrðu færð undir beina stjórn
Sovétforsetans - og gaf í skyn
arstefna Marchais.
Annar fyrrum ráðherra, Charles
Eiterman, sem einnig er á öndverð-
um meiði við Marchais, sagði alltof
hægt í sakirnar farið að ætla að
bíða með stefnuskrárbreytingar til
næsta flokksþings eftirþijú ár, eins
og flokksformaðurinn ráðgerði.
Fylgi hefur hrunið af franska
kommúnistaflokknum á undanförn-
að þetta gæti átt við Eystrasalts-
ríkin þrjú. Borís Jeltsín, forseti
Rússlands, sakaði Gorbatsjov um
að sækjast eftir ineiri völdum en
Jósef Stalín hafði.
um árum. Hann var stærstur
franskra stjórnmálaflokka eftir
stríð en hefur ekki
náð 10% kjörfylgi
í kosningum að
undanförnu.
Flokkurinn heldur
nú þing í fyrsta
sinn eftir hrun
kommúnismans í
Austur-Evrópu.
Stjórnmálaskýr-
endur sögðu í gær
að umræður á þinginu, sem hófst
í fyrradag, staðfestu djúpstæðan
klofning meðal franskra kommún-
ista.
Gorbatsjöv flutti 45 mínútna
ræðu á fundi fulltrúaþings Sov-
étríkjanna og var augljóslega heitt
í hamsi. Hann sagði að stjórnvöld
í Kreml hefðu miklar áhyggjur af
ástandinu á nokkrum svæðum,
meðal annars í Lettlandi, Litháen
og Eistlandi. „Ég vil leggja áherslu
á að á þeim svæðum, þar sem
spennan verður sérstaklega mikil
og skapar alvarlega hættu fyrir
ríkið og hagsmuni almennings, verð
ég að setja neyðarlög eða færa þau
undir beina stjórn mína_ sem for-
seta,“ sagði Gorbatsjov. Áður hafði
hópur herforingja, harðlínukomm-
únista og þjóðernissinna úr röðum
rússneskra rithöfunda skorað á for-
setann að grípa til slíkra aðgerða
á átakasvæðum og þá einkum gegn
„aðskilnaðarsinnum".
Gorbatsjov sakaði stjórnvöld í
Eystrasattslöndunum um að hafa
svipt Rússa og fleiri minnihlutahópa
í löndunum þegnréttindum og sagði
það brot á lögum og alþjóðlegum
mannréttindasáttmálum. Þing land-
anna hafa reynt að takmarka þegn-
réttindi fólks, sem flutt hefur til
landanna frá innlimun þeirra í Sov-
étríkin árið 1940.
Sovétforsetinn kvaðst einnig
hafa áhyggjur af ástandinu í lýð-
veldinu Moldovu, auk héraðanna
Suður-Ossetíu í Georgíu og Nag-
orno-Karabakh í Azerbajdzhan. Til
átaka hefur komið á þessum svæð-
um en hins vegar hefur sjálfstæðis-
barátta Eystrasaltsþjóðanna farið
friðsamlega fram. Nokkrar sprengj-
ur hafa þó sprungið í Riga, höfuð-
borg Lettlands, á undanförnum
dögum og hafa lettnesk stjórnvöld
sagt að kommúnistar í lýðveldinu,
sem njóti stuðnings sovéska hers-
ins, hafi staðið fyrir sprengjutilræð-
unum til að knýja á Sovétstjórnina
um að binda enda á sjálfstæðisbar-
áttu Eystrasaltsþjóðanna. Komm-
únistaflokkur Lettlands vísaði þess-
um ásökunum á bug í gær.
Fulltrúar Litháens, Georgíu,
Armeníu og Moldovu komu ekki á
fundinn í gær. Einn af fulltrúum
Lettlands, Júríj Bojars, sagði við
blaðamenn að það væri „stórhættu-
legt“ ef Gorbatsjov færði Eystra-
saltslöndin undir beina stjórn sína
og svipti stjórnvöld þeirra völdum.
í ráði er að fulltrúaþingið greiði
atkvæði um nýjan sambandssamn-
ing, sem veita á lýðveldunum
fimmtán meiri sjálfstjórn, og einnig
tillögur Gorbatsjovs um stóraukin
völd Sovétforsetans. Borís Jeltsín
sagði að ef Gorbatsjov fengi þau
völd sem hann sæktist eftir kæmist
í raun á einræði í Iandinu. „Hvorki
Staiín né Leoníd Brezhnev höfðu
svo mikil lögbundin völd,“ bætti
hann við.
Sjá „Umbótastefnan hefur
ekki...“ á bls. 34.
Hart deilt á þingi franskra kommúnista:
Marchais sagður haga
sér eins og einræðisherra
París. Reuter.
HARÐAR deilur urðu á flokksþingi franska koniniúnistaflokksins í
gær er háværar kröfur komu fram um að flokkurinn félli frá stefnu
sinni sem byggir á kenningum Karls Marx og Vladimírs Leníns. Þá
gagnrýndu tveir fyrrum ráðherrar Georges Marchais flokksleiðtoga
harðlega. Sögðu þeir stefnu hans forneskjulega og sökuðu hann um
að hneigjast til einræðis.
Gcorges Marchais