Morgunblaðið - 20.12.1990, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 20.12.1990, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1990 Mýrdalshreppur: Skíðasvæði á Mýrdalsjökli? Ein vísitölufjölskylda tapast árlega Hljóðsnældan Ljóð og gítar. Ljóð og gítar áhljómsnældu LJOÐAKLUBBUR Almenna bóka- félagsins hefur sent frá sér hljóð- snældu sem ber nafnið Matthías og Pétur Ljóð og gítar. Á snældunni er að finna dagskrá sem þeir Matthías Johannessen og Pétur Jónasson fluttur í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar þann 16. júní 1989. Meðal verka sem þeir Matthías og Pétur flytja er Veglaust haf, tónverk Atla Heimis Sveinssonar við ljóð Matthíasar. Snældan Ljóð og gítar er 54 mín- útur að lengd. Upptöku annaðist Fermata. Ljósmynd á kápu tók Gunnar Gunnarsson og hönnun um- búða var í höndum Amar Guðnason- ar. íbúar Mýrdalshrepps í V- Skaftafellssýlu voru 614 talsins um síðast liðin áramót. Stöðug fækkun hefur verið á svæðinu eða sem svarar 100 manns á 20 ára tímabili. Það svarar til þess að fimm einstaklingar eða rúm- lega ein vísitölufjölskylda flytji burt á ári hveiju. Byggðastofnun hefur sent frá sér skýrslu um atvinnulíf og Byggða- þróun í Mýrdalshreppi, sem unnin er heimamanni, Páli Péturssyni í Vík. Þar kemur fram að á sl. tutt- ugu árum hefur fólki í hreppnum fækkað um 13,6% á sama tíma og fólksíjölgun í landinu nam 22,3%. Meirihluti burtflutts fólks, eða 88%, flutti á höfuðborgarsvæðið. Helztu vandamál tengjast hafn- leysi og slæmri rekstrarstöðu fyrir- tækja, háum orkukostnaði, háum flutningskostnaði, fjarlægð frá stærsta markaðssvæði landsins og fámenni. Skýrslan tíundar ýmsa mögu- leika til aukinnar atvinnustarfsemi, m.a. á sviði fiskvinnslu, smáiðnað- ar, eldis og sölu vatnafisks, fjar- Slysavarnafélag íslands: Menn þjálfaðir í björgnn ar- og ruðningsstörfum „SLYSAVARNAFELAG Islands þjálfar flokksstjóra í björgunar- og ruðningsstörfum en í þessum störfum felst að fara inn á svæði, þar sem hús og önnur mannvirki hafa hrunið, með það að mark- miði að bjarga sem flestum," seg- ir Þór Magnússon erindreki SVFI. Þór upplýsir að Almanna- varnir ríkisins hafi árið 1986 gert samning við björgunarsveit- ir og Rauða kross Islands um að þjálfa mannskap til að taka þátt í þessu verkefni. „Við höfum kennt björgunar- og ruðningsstörf á námskeiðum í Salt- vík í Kjalarnesi," segir Þór Magnús- son. „Reykjavíkurborg á gamalt bóndabýli í Saltvík, þar sem Lög- regluskólinn, Víkingasveitin og Al- mannavarnir hafa aðstöðu til æf- inga. Við höfum fengið að nota þessi hús í Saltvík og aðstaðan þar er mjög góð,“ segir Þór. Hann segir að menn hafi verið sendir á hálfsmánaðar-námskeið í almannavarnaskóla í Danmörku til að læra björgunar- og ruðnings- störf og hvernig eigi að kenna þau. „Þetta verkefni byggist á hópvinnu og reynir mjög á verkþekkingu manna. Þjóðir, sem lent hafa í stríði, skiija þetta mun betur en íslending- ar en þessi þekking og vinnutilhög- un á rætur að rekja til stríðsár- anna,“ upplýsir Þór. Hann segir að á þessum nám- skeiðum í björgunar- og ruðnings- störfum læri menn að byija á því að skoða svæðið og fjarlægja þá sem sjást. Því næst eigi að leita að fólki í húsum, sem minnst eru skemmd. Þriðja stigið sé að leggja í mikla vinnu við að ná fólki úr rústunum. Hins vegar eigi ekki að fara inn í húsin án þess að þau séu sérstaklega styrkt. Þar næst sé lagt í mjög erfiða vinnu við að ná fólki, sem er innilokað og klemmt, yfir- leitt í húsum,. sem eru mjög illa farin og að hruni komin. Að Iokum séu stykki fyrir stykki tekin upp í rústunum og lögð til hliðar en alltaf sé von um að finna fólk á lífi í húsarústum. „Á þessum námskeiðum kennum við hvernig menn eiga að stjóma sínum flokki en 84 flokksstjórar þurfa að vera í þessum björgunar- Morgunblaðið/Þór Magnússon Menn þjálfaðir í björgunar- og ruðningsstörfum í Saltvík á Kjalar- og ruðningsflokkum, samkvæmt áætlun Almannavarna ríkisins. Nú þegar eru 26 menn búnir að fara á námskeið hjá okkur og við munum halda vel áfram við þessa kennslu á næsta ári,“ segir Þór. Hann segir að samkvæmt skil- greiningu Almannavarna ríkisins eigi að vera 40 manna björgunarlið fyrir hver 4 þúsund manns. „Við ætlum að þjálfa 15-20 menn í björg- unar- og ruðningsstörfum í hverjum björgunarflokki fyrir sig. Þeir, sem fara á námskeið í björgunar- og ruðningsstörfum, eru félagar í Slysavamafélagi íslands, Hjálpar- sveitum skáta og Flugbjörgunar- sveitinni," segir Þór. Hann segir að þessi námskeið í björgunar- og ruðningsstörfum hjálpi björgunarsveitunum verulega í snjóflóðum, sem falli hér á byggð- ir á nokkurra ára fresti. „Á þessum námskeiðum kennum við meðal annars slökkvitækni, reykköfun og skyndihjálp. Við reiknum með að stór jarðskjálfti verði á Suðurlandi og viljum búa okkur undir hann, þar sem lögregla og slökkvilið verða að öllum líkindum bundin í stórum verkefnum í slíkum jarðskjálfta,“ segir Þór Magnússon. vinnslu, ræktunar holdanauta og smábátaútgerðar og tilheyrandi hafnar. Þá er í skýrslunni sett fram nýstárleg hugmynd um skíðasvæði á Mýrdalsjökli í tengslum við efl- ingu ferðaþjónustu. Ungmennafé- lögin á staðnum keyptu skíðalyftu árið 1988 sem sett Var upp á jöklin- um. Talið er kjörið að koma upp skíðaaðstöðu á þessu svæði yfir sumartímann. Sett er fram hug- mynd um uppbyggingu sumarhúsa- hverfa sem kalla síðan á margv- íslega þjónustu. Einnig er talað um ‘ nánaar samstarf við aðila á Kirkju- bæjarklaustri um ýmis konar at- vinnustarfsemi. í skýrslunni kemur fram að verð á íbúðarhúsnæði í Vík er mjög lágt, miðað við höfuðborgarsvæðið, svo þar er tiltölulega kostnaðarlítið að heija þar búskap. Saga Islands V. komin út: Meginkaflinn um ensku öldina SAGA íslands V. er komin út hjá Bókmenntafélaginu í ritstjórn Sigurðar Líndals prófessors. Er þar rakin sagan frá því um 1400 fram undir miðja 16. öld. Er meginkafli bókarinnar um ensku öldina, eftir Björn Þorsteinsson og Guðrúnu Ásu Grímsdóttur en Sigurður Líndal hefur samið nokkra viðauka. í bókinni er einnig íjallað um hvernig ísland kom við sögu í landa- fundunum miklu á síðari hluta 15. aldar. Mikil tengsl voru milli íslands og Bristol á Englandi og í janúar 1477 kom Kristófer Kólumbus þangað og síðan fór hann í för til Islands. Þar kynntist hann úthafinu í fyrsta skipti og frá sjómönnum í Bristol og Islendingum fékk hann vitneskju um lönd í vestri. Sérstakur kafli er um bókmennt- asögu tímabilsins eftir Jónas Krístj- ánsson og er þar gerð grein fyrir riddarasögum, fornaldarsögum, sagnadönsum, rímum og helgi- kvæðum. Þá er myndlistarsaga eft- ir Björn Th. Björnsson þar sem seg- ir frá áhrifum gotneska stíisins á Sigurður Líndal. íslenska list síðmiðalda. Bókin Saga íslands V. er 370 blaðsíður að stærð. Að sögn Sigurð- ar Líndals er fyrirhugað að ritverk- ið verði alls tíu bindi. Bók um laxveiði eft- ir Olaf E. Jóhannsson FRÓÐI hf. hefur gefið út bókina Leyndardóma laxveiðanna - list- in að veiða lax/leiðbeiningar í máli og myndum, eftir Ólaf E. Jóhannsson. Á bókarkápu segir m.a.: „Bókin Leyndardómur laxveiðanna er sannkölluð gullnáma fyrir alla þá sem hafa áhuga á að stunda lax- veiðar. Hún mun koma að góðum notum, bæði fyrir þá sem er byrj- endur, og þá sem lengra eru komn- ir. í bókinni er lýst mismunandi aðferðum við laxveiðar, bæði hvað varðar veiðar á flugu, maðk og spón. Að auki eru svo kynnt fyrir lesendum ýmis þau tæki og tól sem notuð eru við veiðarnar. Minningar Péturs Eggerz sendiherra SKUGGSJÁ hefur gefið út bókina Myndir úr lífí Péturs Eggerz, fyrrverandi sendiherra, sem Pét- ur ritaði sjálfur. UndiilitiII bókar- innar er Gaman og alvara. Á bókarkápu segir: „Hér rekur Pétur Eggerz, fyrrverandi sendi- herra, minningar sínar. Hann segir fyrst frá lífi sínu sem lítill drengur í Tjarnargötunni i Reykjavík, þegar samfélagið var mótað af allt öðrum viðhorfum en tíðkast nú á dögum. Síðan fjallar hann um það, er hann vex úr grasi og ákveður að nema lögfræði, og síðar fer hann til starfa í utanríkisþjónustunni og verður sendiherra. Hann hefur kynnst miklum fjölda fólks og þar má nefna Svein Bjömsson forseta og Georgíu, forsetafrú, Ólaf Thors, Vilhjálm Þór, Jóhann Sæmundsson lækni, Jónas Thoroddsen og fleiri. í sendi- herrastarfmu getur margt gerst, bæði gaman og alvara.“ Bókin er 216 blaðsíður og er prentuð hjá Prisma í Hafnarfirði. Pétur Eggerz Ólafur E. Jóhannsson Hvar liggur laxinn? Hvernig á að „lesa vatn“? Hvenær tekur lax- inn helst? Og af hverju tekur hann? Þetta eru spurningar sem veiði- menn spyrja bæði sjálfan sig og aðra. Auðvitað er ekki hægt að gefa tæmandi svör við þessum spurningum en í þessari bók er þó reynt að gefa eins ítarlegar upplýs- ingar og frekast er unnt. I bókinni er að finna upplýsingar frá mörgum þekktustu laxveiði- mönnum landsins sem miða lesend- um af þekkingu sinni og reynslu hver á sínu sviði. Þau ráð munu koma mörgum til góða.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.