Morgunblaðið - 20.12.1990, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 20.12.1990, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1990 '.•'.■'sy. V: Dfectar býöur heilati heim af súyrtivvrum, htírefnum og itmefnum untium úr náttúrunni. Vörumqr iúniháMa allar olíur, tíiárna óe kraft beint tU&**""" riátlúrunni. 1§f| & „■, ýectar vörur eru jumhverfisijaniar'og. viöhaföatt; tilfaunir, framleiösift þeirra. •ö eru ekk lýrum viö JÓLAGJÖFIN FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA Gjafakörfur með snyrtivörum frá NECTAR fyrir börn og fullorðna af báðum kynjum T T fr Körfur af ýmsum gerðum og stærðum, og á verði við allra hæfi. Verð á frá kr. 500.- tU 5.000.- verslun á Laugavegi 32, sími 62 64 80 Böndin bresta minnir um sumt á gömlu neðanmálssögurnar þar sem alltaf var eitthvað að gerast og eitthvað varð einatt að gerast til að lesandinh héldi sambandinu. Þetta er þó ekki sagt sögunni til iasts. Að baki liggur hugsun og reynsla. Sem sagt: Fjörleg og efn- ismikil skáldsaga, grundvölluð á alvarlegri ihugun, þótt ýmislegt megi að henni finna. ur til: Erfitt er að kortleggja hrær- ingarnar meðan þær standa yfir og svo hitt að skáldsaga er skáld- saga en ekki mannkynssaga. Pólitískt andrúmsloft hlýtur engu að síður að skipta máli fyrir einkalífið, ekki síst á óróatímum (sbr. Óbærilegan léttleika tilve- runnar eftir Kundera). Og það er í þessu tilliti sem lesandinn skynj- ar þverbresti í persónusköpuninni í þessari sögu. Ólgan í samfélaginu ætti að kristallast með afgerandi hætti í lífi persónanna. Unga fólk- ið — og það sem það hugsar, seg- ir og gerir — ætti að koma lesand- anum töluvert við — en því fer fjarri. Hví þá? Þótt höfundur sýni fram á að hann hefur óvenjusterk tök á tungumálinu og stíll hans sé ljóð- rænn þá er textinn ekki að sama skapi innihaldsríkur. Samtöl persóna snúast að mestu leyti um hluti eins og mat og vín, tónlist og myndir. Slíkt þyrfti að vísu ekki endilega að vera lítils virði. Þetta gæti t.a.m. verið írónískt bragð af hálfu höfundar- ins. Allt masið um frumþarfimar gæti verið til að sýna fram á tóm- læti persónanna gagnvart því sem er að gerast í kringum þær. Um væri þá að ræða háðsádeilu á fólk sem lætur smáatriði teppa athygli sína þegar veraldir eru að hrynja fyrir utan glugga þess. Slíkt er samt ekki raunin. Það mistekst í þessu verki að láta umbreytingarnar endurspegl- ast í daglegu lífi persóna: athöfn- um þeirra, þankagangi og sam- tölum. Sjaldgæft er að það sé tek- ist á um málefni eða tilfinningar. Þegar blóðrauð þrætuepli eru á ferðinni heyrir lesandinn yfirleitt aðeins bergmál af samræðunum í óbeinni ræðu og þær koðna niður í yfirborðssnakki um listir og lyst: „Eftir nokkur staup af Búda- pestarbrandíi fór einhver að tala um hugsjónirnar, fór að líkja þeim við ástina eins og skáldið forðum, hvort þær væru hreinlega ekki Þéttur stíll en þunnt efni Bókmenntir Ingi Bogi Bogason Einar Heimisson: Villikettir í Búdapest (203 bls.) Vaka-Helgafell 1990. Sagan gerist á einu ári, frá hausti 1988 til hausts 1990. Hún byijar á þeim tíma þegar fátt nýtt virðist geta gerst og endar í ólgu þeirra tíðinda þegar gamlir múrar falla og allt getur gerst. Hér segir frá ári í lífí mennta- manneskjunnar Hervarar Ólafs- dóttur, aðallega erlendis, lengst af í Búdapest. Hún ætlar að læra söng en snýr við blaðinu og tekur að sækja tíma í bókmenntum. Um miðbik sögunnar, eftir að álitleg- um fjölda persóna hefur brugðið fyrir, hittir hún ungan mann. Og þar með hefst ástarsagan. Hervör kemur frá þjóð hvalveiða og landi svartra sanda. Hún er dálítið rótlaus, tilbúin að fanga nýjar hugmyndir og er í rauninni í leit að áhrifum. Elskhuginn, Míhály, rekur uppruna sinn til allt annars menningarumhverfis en hún. Hann er frá Ungverjalandi. Hann naut öruggrar æsku sem barn forréttindastéttarinnar; faðir hans hafði verið dyggur kerfiskarl. Það vekur eftirvæntingu lesand- ans að sjá hvernig höfundur moð- ar úr þessu efni. Ytri tíminn, sem söguþráðinn er vafinn í, er býsna forvitnilegur og ætti að geta orðið uppspretta góðs skáldskapar. Samt væri til of mikils mælst að krefjast þess að skáldsaga geti sýnt okkur hvað „raunverulega“ hefur verið á seyði í Mið-Evrópu undanfarin misseri, bæði í stjóm- mála- og einkalífinu. Tvennt kem- tíðum verið afar snjall til að leggja áherslu á ákveðna hugsun eða kennd. Vísanir í margvísleg sagnaminni geta brugðið upp skæru Ijósi í kolli lesandans og gert lesturinn að sannri nautn. Vandséð er að eitthvað slíkt sé hér á ferðinni, frekar er um að ræða endurtekningarsamar upp- talningar. Ótal sinnum er drukkið franskt rauðvín eða Urquell Pils, ótölulegur fjöldi tónskálda nefnd- ur, flaggað spekingum eins og deSaussure og Chomsky og við fáum að vita að hvítlaukspítsan með pepperóni og brokkóli hafði alltof mikinn hvítlauk. Til hvers þá öll þessi nöfn? Er þetta helber merkjafíkn? Ef per- sónurnar væru ekki stúdentar heldur vel efnað millistéttarfólk mætti þá allt eins búast við nöfn- um eins og Remy Martin, Jill Sandérs, BMW og Boss? Það er enginn vafi á því að Ein- ar Heimisson hefur alla burði til að skrifa merkileg verk, það sýnir menningarsöguleg þekking hans og öguð málbeiting — að ógleymd- um sefjandi stílnum. En til að ná slíku marki hlýtur hann að velja sér þungvægari efnivið en í þess- ari sögu. Einstaklingnrinn, ættin og þjóðfélagið liðna tímans, hins vegar borgina með andstæðum sínum og mót- sögnum, vettvang nýja tímans sem »hefur hólfað þjóðarsálina niður í tveggja til fimm herbergja íbúðir með rennandi heitu og köldu vatni, símasambandi við umheiminn og sjónvarp til að fullnægja forvitn- inni með leiknum gervimyndum«. Með söknuði horfum við á eftir þeim sem hverfa. Með eftirvænt- ingu tökum við á móti þeim sem heilsa. Við reynum að fjötra saman það sem er okkur kært, hvort held- ur það er gamalt eða nýtt, við- halda samhenginu í lífinu. Einn góðan veðurdag gerist þó það sem einatt má búast við: að böndin bresta eins og skráð er á titilsíðu þessarar bókar. Megingalli sögu þessarar er sá að hún er með köflum óhæfílega langdregin. Textinn er sums stað- ar orðmargur úr hófi: »Þeir voru svo furðulegir, svo einstakir, svo karlmannlegir, grófgerðir, uppá- tektarsamir og skemmtilegir.« Sá er á hinn bóginn kosturinn að leitast er við að draga saman hina margvíslegustu reynslu og koma fyrir innan eins heildar- ramma. Það er nefnilega ærin hugsun á bak við þessa sögu. Og til að vera nú hvorki væminn né Arnmund Backman tilfinningasamur né falla í þá freistni að predika leggur höfund- ur lífsfílósófíu sína í munn fólki sem hann lætur þá jafnframt tjá sig með hálfkæringi. En sá er kækur okkar hér við nyrsta haf að blanda saman alvöru og alvöru- leysi; tala út og suður um það sem stendur hjarta nær. Samlíkingar þær, sem lagðar eru í munn sögu- hetjunum, eru stundum nokkuð langt sóttar. Það er hvorki húmor né spaug heldur einhvers konar galsi. Kynslóðabilið er brúað með ólíkindalátum og hundakæti. Þarna er enginn hörgull á orðum, þeim er ausið á báðar hendur. Sama máli gegnir um efnið. Það er yfirfljótandi. Og ekki er heldur hörgull á fólki: »Sigga var komin með fjölskyldu í Frakklandi. Finn- ur og Badda voru komin á kaf í hvítasunnusöfnuðinn. Helgi og Klara drógu sig víst alveg inn í skel eftir slysið og Klara var alltaf öðru hvoru í áfengismeðferð. Ég vissi ekkert um Árna trommara, en Ásta, gamla kærastan mín, giftist austur á Eskifjörð eða Fá- skrúðsfjörð og var orðin tveggja barna móðir.« Nei, fyrir svona lagað marg- menni dugir ekkert minna en heilt ættarmót. Þrátt fyrir áferð, sem er hvorki ■ hijúf né slípuð, er höfundur víða skyggn á fínu blæbrigðin í mannlífinu. Og þjóðfélagið með kostum sínum og göllum er einnig í sjónmáli. Félagslegar hræringar eru höfundi ofarlega í huga, svona almennt talað, t.d. áhrif þau sem fjölmiðlunin hefur á mannlegu samskiptin. Frásögnin er þrungin málgleði og laus við drunga en mætti vera fastari í sniðinu. Stundum eru notuð talmálsorðtök sem hæpið er að eigi við: »Fljótlega fékk ég þó þá bræður á heilann og var reynd- ar með þá á heilanum árum sam- an.« Að láta söguna rekja sig sjálfa er góð og gild aðferð. En einhvern skipulagsuppdrátt verður styðjast við. Sú hlið málanna er hér einum of losaraleg. Stundum kemur manni í hug að þetta hljóti að vera uppkast, en að sönnu nokkuð gott uppkast! Undirtitillinn: Sagan af Helga frænda, má gefa til kynna sö- gumiðið: Að hér sé ekki verið að leggja fram sjálfhverfa geðflækju heldur útleitinn skáldskap, byggð- an á lifandi veruleika. Einar Heimisson náskyldar ástinni, veruleikinn álíka mikil andstæða beggja: Eru listimar kannski ekki miklu meiri hugsjónir: bókmenntimar til dæmis — eða tónlistin? Hvernig er það? Já, frá Plató Tolstois, sagði Ján- os og hló: Opinberun. Biblía. Satt, sagði einhver. Satt, sagði annar.“ Stíll af þessu tagi getur oft á Bókmenntir Erlendur Jónsson Arnmundur Bachman: BÖNDIN BRESTA. Skáldsaga. 188 bls. Fróði hf. 1990. , Skáldsaga þessi gerist á mörk- um gamla og nýja tímans. Annars vegar gefur að líta sveitasamfélag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.