Morgunblaðið - 20.12.1990, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1990
9
BARNASKIÐAPAKKI frá 12.500,- kr.
ELAN skiöi 80- 120 sm, ALPINA skór, bindingar og stafir.
BARNASKÍÐAPAKKI fra 14.950,- kr.
ELAN skíði 130- 150 sm, ALPINA skór,
UNGLINGASKÍÐAPAKKI
bindingar og stafir
FULLORÐINSSKÍÐAPAKKI fra 19.950,- kr.
ELAN skíbi 160 - 195 sm, ALPINA skór, bindingar og stafir.
GÖNGUSKÍÐAPAKKI 13.950,- kr.
ELAN skíbi, ALPINA skór, bindingar og stafir.
SKAUTAR frá 3.980,- kr.
mfFL EIGANl
GEGNT UMFERDARMIÐSTÖÐINNI SÍMI: 91-19800
\<:k
Metsölublað á hveijum degi!
IJÓÐVILIIN
MI»Xkudae>'18. dMwntMr 1M0 — 240. UubM SS. trgwxiu'
Ovíst um þátttöku Biitingar
Klofningur vegna framboðs
Mönnum er» í fersku minni ágreiningurinn sem
varð innan Alþýðubandalagsins í Reykjavík á liðnu
vori, þegar kosið var til borgarstjórnar. Þá voru
mál í slíkri sjálfheldu, að Ólafur Ragnar Grímsson,
formaður flokksins, treysti sér ekki til að lýsa yfir
stuðningi við framboðslista hans. Gengu sumir
alþýðubandalagsmenn þá til liðs við Nýjan 9ett-
vang. Síðan hefur ekki verið skorið úr þessum
ágreiningi. Hann blossar nú upp að nýju, þegar
hafinn er undirbúningur undir framboð til Alþingis.
Völd og áhrif
Þingmenn Alþýðu-
bandalagsins fyrir
Reykjavík nú eru þau
Svavar Gestsson mennta-
málaráðherra og Guðrún
Helgadóttir, forseti sam-
einaðs þings. I varasæt-
um sitja Asmundur Stef-
ánsson, forseti Alþýðu-
sambandsins, og Alfheið-
ur Ingadóttir.
I fréttum hefur verið
skýrt frá afskiptum
Svavars Gestssonar af
ákvörðimum Alþýðu-
bandalagsfélags
Reykjavikur (ABR) um
framboðsmál. Félagið er
hið fjölmennasta í Al-
þýðubandalaginu með
um 1.200 skráða félags-
menn. Að höfðu samráði
við Svavar hefur stjórn
ABR ákveðið, að þeir ein-
ir fái að taka þátt í for-
vali vegna lista Alþýðu-
bandalagsins í Reykjavík,
sem eru á félagaskrá
ABR hhm 9. janúar 1991.
Forystumenn Birting-
ar hafa mótmælt þessum
ákvörðunum. Birting er
félagsskapur sem á
sterkastar rætur í AI-
þýðubandalaginu en tel-
ur sig víðsýnni en ABR
og nær til fólks sem aldr-
ei hefur gengið í Alþýðu-
bandalagið. Telur Birt-
ing að ABR hafi hafnað
þátttöku Birtingar i
framboði Alþýðubanda-
lagsins í Reykjavík og
„áskilur sér allan rétt í
þessum málum“ eins og
segir á forsíðu Þjóðvilj-
ans í gær.
Guðrún Helgadóttir
dregur taum Birtingar í
þessum deilum. Hún vill
að allt stuðningsfólk Al-
þýðubandalagsins fái að
kjósa í forvalinu og telur
að afstaða ABR-stjómar-
innar byggist á smáletn
í flokkssamþykktum Al-
þýðubandalagsins. I Al-
þýðublaðinu í gær er
þetta haft eftir Guðrúnu:
„Flokkur verður að eygja
hinar pólitísku víddir fyr-
ir utan veggi flokksskrif-
stofumiar. Eg nemii ekki
að vhma fyrh- flokk, sem
ætlar að gefa íhaldinu
stjórn landsins. Það hef-
ur aldrei verið góð
pólitík að hengja sig í
neðanmálsletri. Pólitík'
snýst um stóm línumar."
Hvemig á að skýra
þessi orð? Er Guðrún
Helgadóttir á báðum átt-
um um það, hvort hún
verður áfram í framboði
fyrir Alþýðubandalagið?
Telur hún að Svavar sé
að aflienda íhaldinu völd-
in? Á hún von á því að
þessi ununæli sín verði
til þess að ABR breyti
ákvörðun sinni? Oliklegt
er að það gerist og vilja
áreiðanlega margir inn-
an ABR veita Guðrúnu
ráðningu, þar sem hún
sneríst gegn lista ABR,
G-listanum, í borgar-
stjórnarkosningunum.
Ólafur Ragnar
ífelum
Fáir stjómmálamenn
em fjölmiðlaglaðari en
Ólafur Ragnar Grímsson,
formaður Alþýðubanda-
lagsins. Vekur það þess
vegna enn meiri athygli
en ella, hve mikið haim
leggur á sig til að geta
verið í felum, þegar
framboð flokksins í fjöl-
memiasta kjördæmi
landshis er ákveðið.
Þurfa fjölrniðlamcnn
yfirleitt ekki að leita að
Ólafi Ragnari, þegar
honum hentar að láta í
sér heyra. Hvergi er staf-
krókur eftir honum hafð-
ur um deilur iiman Al-
þýðubandalagsins í blöð-
unum i gær. Halda memr
að fomiaður Sjálfstæðis-
flokksins hefði verið lát-
inn komast upp með slíka
þögn, ef tvö félög tækj-
ust á um tilhögun á vali
manna á framboðslista
flokkshis?
Þegar Ólafur Raguar
var spurðm- um klofning-
mn í Alþýðubandalaginu
í borgarstjómarkosning-
unum í vor, dró hann það
eins lengi og honum var
frekast kostur að gefa
svar. Hami lét í það
skína, að málið væri sér
óviðkomandi, enda byggi
hann á Seltjarnamesi.
Fyrir þingkosningamar
1987, þegar Ólafur Ragn-
ar var í öðra sæti á lista
Alþýðubandalagsins í
Reykjaneskjördæmi, rak
hami einkakosningabar-
áttu og gekkst upp i því
að vera á skjön við ABR
og flokkhm undir for-
meimsku Svavars Gests-
sonar. Lét Ólafur Ragnar
í það skína undir lok bar-
áttunnar, að aðeins vant-
aði brot úr prósenti að
hann næði kjöri og tók
þátt i uniræðum í fjöl-
miðlum um að haim yrði
hugsanlega næsti ut-
anríkisráðherra. Ólafur
Ragnar féll og komst
ekki inn á þmg fyrr en
í embættisnafni sem fjár-
málaráðherra og myndi
því detta út úr þingflokki
Alþýðubandalagsins ef
núverandi ríkisstjórn
hætti, enda hefur hann
ekki mátt til þess hugsa.
Upplausn
Iiman Alþýðubanda-
lagsins ríkir upplausn.
Sagt er að flokksmenn
utan Reykjavíkur vilji að
deilur þar verði jafnaðar.
Þeir virðast ekki vilja
horfast í augu við það
frekar en aðrir alþýðu-
bandalagsmenn, að
flokkur þeirra er klofinn
ofan í rót. ABR-félagarn-
ir hafa þó þrótt til að
viðurkeima það og vilja
ckki breiða yfir ágrein-
ingimi með gervilausnum
við val manna á fram-
boðslistami. Er illskiljan-
legt, hvers vegna Birt-
ingarmenn geta ekki
sætt sig við þá tilhögun
sem meirihluti ABR hef-
ur ákveðið nema fyrir
Birtingu vaki að meim
úr öðmm flokkum ákveði
framboðslista Alþýðu-
bandalagsins. Væri það
svo sem í saniræmi við
þá ákvörðmi Ólafs Ragn-
ars og Guðrúnar Helga-
dóttm- að styðja ekki
framboð G-listans í borg-
arstjómarkosningunum.
Alþýðuflokkurinn
hyggur gott til glóðar-
imiar vegna upplausnar-
iimar innan Alþýðu-
bandalagsins og er tilbú-
hm til þess að setja em-
hveija af fyrrum fram-
bjóðendum flokksins á
lista sirni til að lokka til
sin vinstra fylgi. Kvenna-
listhm er einnig kominn
á bragðið og ber að líta
á setu Ingibjargar Sól-
rúnar Gísladóttur í efsta
sæti listans í Reykjavík
sem tilraun til að ná til
sin fylgi þeirra sem vilja
enn vinstrisinnaðra Al-
þýðubandalag. Tilvistar-
kreppu Alþýðubanda-
lagsins er síður en svo
Iokið og flokkar beggja
vegna við það em teknir
að bítast á um Ieifarnar.
Skattalækkun skiptir máli
fyrir fjárhag fjölskyldunnar
Þeir sem kaupa Einingabréf 2 fyrir áramót
- njóta lækkunar á eignaskatti
- njóta mjög góðrar ávöxtunar og fyllsta öryggis.
Þeir sem kaupa Auðlindarbréf fyrir áramót
- njóta lækkunar á tekjuskatti sem getur numið
1 Sölugengi verðbréfa 20. desember 1990 1
y Einirigabréf 1 5,230
Einingabréf 2 2,834
1 Einingabréf 3 3,439 1
Skammtímabréf 1,757 1
ý Auðlindarbréf 1,018
verulegum fjárhæðum
- ávaxta fé sitt í hlutabréfum og skuldabréfum traustra og vel
rekinna fyrirtækja.
HLUTABRÉFASf ÓÐURINN
AUÐLIND HF.
Leitaðu til sérfræðinga Kaupþings og kynntu þér ótvíræða kosti
þess að eignast Einingabréf 2 og/eða Auðlindarbréf áður en nýtt
ár byrjar.
KAUPÞING HF
Kringlunni 5, sítni 689080