Morgunblaðið - 20.12.1990, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 20.12.1990, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMtUDAGUR 20. DESEMBEK 1990 49 GRÍN OG GAMANMÁL Bókmenntir Sigurður Haukur Guðjónsson Grín og gamanmál. Safnað hefir: Guðjón Ingi Eiríksson. Prentverk: Steinholt hf. Bókband: Félagsbókbandið Bókfell hf. Útgefandi: Örn og Örlygur. Einhverju sinni las ég: „Hlátur- inn lengir lífið“, og sé sú fullyrðing rétt, þá er þessi bók holl lesning. Hitt er öruggt, að margur mun brosa, skella uppúr, hlæja hátt og lengi við lesturinn, já, og lika dag- inn eftir. Já, undarlegir erum við menn, ' alltaf að safna að okkur því er vekur athygli. Sumir safna frímerkjum; sumir spilum; sumir bókum; sumir fasteignum; sumir skuldum, og svo væri lengi hægt að telja. í þessu felst mennskan, það er líklega aðeins glysgjarn hrafninn sem nálgast okkur á þessu sviði. Segðu mér hveiju þú safnar, og ég skal segja þér hver þú ert. Guðjón Ingi hlýtur að vera háð- fugl mesti, hafa unun af tilburðum okkar við að sýnast menn. Hann hefir safnað í hirzlu sína spaugi- legum tilsvörum, spaugilegum at- burðum, háðskum lýsingum, ekki aðeins meðal okkar þjóðar, heldur leitar hann fanga langt út fyrir landsteina. Þetta er því sýnishorn um alþjóðakímni, kímni sem engan særir, en margan kætir. Safnarinn skiptir bókinni í 22 flokka, ekki alltaf ljóst hvað veld- ur, og síðan bætir hann við: He- furðu heyrt um .. . og spurningar án svara. Fyndni er erfitt að fanga í orð, því býð ég þér örfá sýnishorn: ☆ ☆ ☆ Fangelsisprestur spurði eitt sinn fanga sem búið var að dæma í rafmagnsstólinn hver hans hinsta ósk væri. „Eg vildi gjarnan að þú héldir í hendina á mér, þegar þeir setja rafmagnið á,“ svaraði sá dauða- dæmdi. ☆ ☆ ☆ Kennarinn: „Hvaðan hefur drengurinn yðar þennan mikla fróðleiksþorsta?" Móðirin: „Fróðleikinn hefur hann frá mér, en þorstann frá föður sínum.“ ☆ ☆ ☆ Maður nokkur fór með úrið sitt í viðgerð. Og þar sem lítið var að gera hjá úrsmiðnum tók hann úrið strax í sundur. Kom þá í ljós dauð fluga inn í úrinu. Hann sýndi eig- andanum það, sem starði furðu lostinn á, en mælti því næst: „Það er engin furða að úrið skuli hafa stoppað fyrst vélstjórinn er dauður.“ ☆ ☆ ☆ Lögreglumaðurinn: „Það er stranglega bannað að synda í tjörninni." Maðurinn: „Ég kann ekki að synda. Ég datt bara út í og er alveg að drukkna." Lögi’eglumaðurinn: „Jæja, þá er þetta allt í lagi.“ ☆ ☆ ☆ Er líkfylgd fór framhjá golfvell- inum, sleppti Jónas kylfunni, tók ofan húfuna og sagði við félaga sinn: „Maðurinn verður nú að vera hátíðlegur við svona tækifæri. Ég er nú búinn að vera giftur dóttur hennar í 25 ár.“ Frágangur bókar er allur mjög smekklegur, útgáfunni til sóma. Góða skemmtun. Kryddhilla, kr. 1.875. Ketill, kr. 2.985. Stórgóð jolagjof HÚSASMIOJAN SKÚTUVOGI 16 S I M I. 687700 Heimasmiðjan KRINGLUNNI SÍMI: 685440 FRÁSAGNIR ÆVIBROT efftir Dr. Gunnlaug Þórðcrson Gunnlaugur hefur ávallt verið hres (fasí og talað tæpitungulaust I þessari bók kemur hann svo sannartega til dyranna eins og hann er klæddur. Rekinn úr skóla - Að upplifa dauðann - Ritari forseta fslands - Smiður á Lögbergi - Húðstrýktur fyrir kirkjudyrum. - Þetta eru nokkur lýsandi kaflaheiti sem segja meira en mörg orð um það hvers lesandinn má vænta. Fjðldi Ijósmynda prýðir bókina. k LANDAKOTI eftir Dr. Bjarna Jönsson yfirlækni Dr. Bjarni Jónsson var um áraraðlr fremsti sérfræðingur fslendinga (bæklunarsjúkdómum og meðferð hófuðslysa. Þetta er saga af merkri stofnun og Ifknarstarfi í nærri heila öld þar sem margir af fremstu læknum iandsins koma við sögu. Bókina prýða 60 Ijósmyndir. . s SETBERG
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.