Morgunblaðið - 20.12.1990, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 20.12.1990, Blaðsíða 60
60 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1990 Gunnar Guðmunds son — Kveðjuorð Móðurbróðir minn, Gunnar Guð- mundsson, fyrrverandi deildarstjóri við Útvegsbanka íslands, lést 1. nóvember sl. eftir langa og erfiða sjúkralegu. Ég var stödd erlendis þegar hann var jarðsettur og langar að minnast hans nokkrum orðum. Gunnar var fæddur 19. nóvember 1920 á Selfossi. Foreldrar hans voru Guðmundur Guðmundsson síðar skrifstofustjóri í Reykjavík og fyrri kona hans Kristín Gunnars- dóttir. Guðmundur var sonur hjón- anna Guðmundar Helgasonar, prests í Reykholti í Borgarfirði af Birtingaholtsætt og Þóru Ásmunds- dóttur frá Odda á Rangárvöllum en Kristín var dóttir Gunnars Gunn- arssonar, kaupmanns í Reykjavík, og konu hans Júlíönu ísfoldar Jóns- dóttur. Gunnar átti þrjár systur, Helgu og Ástu Júlíu, sem báðar dóu í æsku, og Laufeyju, móður mína, sem lifir bróður sinn. þegar Gunnar var 8 ára gamall missti hann móður sína og skömmu síðar kvæntist fað- ir hans Lilju Sölvadóttur Víglunds- sonar, skipstjóra í Reykjavík. Gunnar lauk stúdentsprófi frá MR 1939 og hóf þá störf við Út- vegsbanka íslands. Hann var þríkvæntur og eignaðist fjóra syni. Fyrsta eiginkona hans var Ragn- heiður Jóhannsdóttir móðir Jó- hanns, starfsmanns við Skipaútgerð ríkisins, og Guðmundar stýrimanns. Önnur eiginkona Gunnars var Jó- hanna Gunnarsdóttir, sem er látin, en þeirra sonur er Gunnar, háskóla- nemi í Bandaríkjunum. Eftirlifandi eiginkona hans er Sigríður Theo- dórsdóttir móðir Sverris Gríms, grunnskólanema. Ég man eftir frænda mínum, ungum og ógiftum í foreldrahúsum sem hafði mjög gaman af því að glettast við litlu frænku sína. Seinna kynntist ég annarri hlið hans þegar ég fór að vinna í sumar- leyfum undir hans stjórn í Útvegs- bankanum. Hann reyndist ljúfur og réttlátur yfirmaður sem allir báru virðingu fyrir enda skarpgreindur og fljótur að átta sig ef undirmenn hans gerðu mistök. Gunnar var vin- sæll meðal allra sem kynntust hon- um. Hann var glaðvær, hafði ágæta kímnigáfu en samt hógvær og yfir- lætislaus og aldrei heyrði ég styggðaryrði falla af hans vörum í garð annarra. í lífi Gunnars, eins og flestra okkar, skiptust á skin og skúrir. Áreiðanlega hefur verið erfitt fyrir hana að missa móður sína svo ung- ur en Lilja, stjúpmóðir hans, reynd- ist honum vel og meðan bæði lifðu var einstaklega kært á milli þeirra. Systkinin, Laufey og Gunnar voru alla tíð mjög samrýnd, voru trúnaðarvinir og studdu hvort ann- áð í lífsbaráttunni. Samband Gunnars og föður hans er mér mjög minnisstætt. Þeir höfðu sömu áhugamál og sinntu þeim saman ekki aðeins sem faðir og sonur heldur sem vinir og félagar. Náðu þeir báðir langt sem bridsspil- arar, unnu fjölda verðlauna og m.a. vann Gunnar silfurverðlaun ásamt Einari Þorfinnssyni er þeir kepptu í heimsmeistarakeppni í brids á Bermuda 1950. Hafa íslendingar aldrei náð svo langt í þeirri keppnis- grein. Gunnar hélt gleði sinni og bjart- sýni þótt veikindi væru tekin að hrjá hann hin síðustu ár. Hugur hans nánustu kom vel í ljós er hann háði sitt langa helstríð sem varaði í 11 vikur. Eftirlifandi eiginkona hans, Sigríður, sýndi honum mikla umhyggju og ástúð og viku hún, synir og systir vart frá hans sjúkra- beði. Að leiðarlokum kveð ég Gunnar, frænda minn, með eftirsjá og trega og þakka honum samfylgdina. Það er huggun að eiga góðar minningar um drengskaparmann, yfir þeim ríkir birta og hlýja. Blessuð sé minning Gunnars Guðmundssonar. Kristín Arnalds Nýborgí# Ármúla 23, sími 83636 Borðbúnaður oggjafavara + Hjartkæri, litli drengurinn okkar og bróðir, JÓN VÍDALÍN SIGURHANSSON, andaðist laugardaginn 15. desember. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn 21. desem- ber kl. 10.30. Erla Bára Jónsdóttir, Sigurhans Hlynsson og börn. t Föðursystir mín, ÞÓRHILDUR HJALTALÍN, Grundargötu 6, Akureyri, andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þann 1 7. desember. Útför hennar verður gerð frá Akureyrarkirkju föstudaginn 28. desember kl. 13.30. Fyrir hönd vandamanna, Rafn Hjaltalín. t Eiginkona mín, móðir okkar og tengdamóðir, ELÍN JÓNSDÓTTIR, Árgötu 8, Húsavík, sem lést hinn 15. desember, verður jarðsungin frá Húsavíkur- kirkju laugardaginn 22. desember kl. 14.00. Gunnar Maríusson, börn og tengdabörn. — + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, BRYNJÓLFUR BJÖRNSSON, Ártúni 6, Selfossi, verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugardaginn 22. desember kl. 15. Guðbjörg Sveinsdóttir, Kristín Brynjólfsdóttir Hultgren, Sveinbjörg Þóra Brynjólfsdóttir, Alfreð Guðmundsson Björn Brynjólfsson, Rósa Magnúsdóttir, Hulda Brynjólfsdóttir, Fróði Larsen og barnabörn. + Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, HUGBORG GUÐJÓNSDÓTTIR, Álfaskeiði 35, Hafnarfirði, sem lést laugardaginn 15. desember sl., verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 21. desember kl. 15.00. Kjartan Guðmundsson, Guðrún Kjartansdóttir, Gústav Sófusson, Ómar Önfjörð Kjartansson, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför MILUTINS KOJIC. Guðrún Óskarsdóttir, Irena G. Kojic, Helena Kojic, Aleksandra Kojic. Milunka Kojic, Karl Aspelund, Ármann Kojic Jónsson, Persida Guðný Þorgrimsdóttir. Minning: Jóhanna Siguijóns- dóttir Skagaströnd Fædd 13. júní 1928 Dáin 14. desember 1990 í dag verður til grafar borin tengdamóðir mín, Jóhanna Sigur- jónsdóttir. Eftir erfiðan sjúkdóm sem hún barðist við með sinni ein- stöku hörku og dugnaði, hefur hún nú fengið hvíld. Já, Hanna var dug- leg og sterk kona sem kom vel í ljós þegar hún missti manninn sinn, snögglega 1977. Ég dáðist þá að styrk hennar. Hanna var fædd og uppalin í Vestmannaeyjum. Hún fór í Kvennaskólann á Blönduósi. Þar kynntist hún honum Adda sínum frá Balaskarði, eins og hann var alltaf kallaður, en hét Astmar Ingi- marsson. Þau byrjuðu sinn búskap á Skagaströnd, og eignuðust 4 börn, Siguijón, f. 1949, Signýju, f. 1950, Ingvar, f. 1954, og Kára, f. 1961. Bamabörnin eru 12. Fjölskyldan var Hönnu allt. Hún var oft mjög skemmtileg, sérstak- lega í þröngum vinahóp. Mér er ljúft að minnast þegar hún og Bíbí, syst- ir hennar, heimsóttu okkur til Bol- ungarvíkur. Þær áttu mjög vel sam- an og þá var oft glatt á hjalla. Þessar stundir eru mér dýrmæt minning. Hanna átti 3 systkini, Ingvar, Bíbi og Ásu, öll búsett í Vestmannaeyjum. Einnig er eftirlif- andi móðir hennar í Vestmannaeyj- um, Hólmfríður Guðjónsdóttir. Tengdamóðir hennar liggur á Hér- aðshælinu á Blönduósi, Signý Bene- diktsdóttir frá Balaskarði, orðin 90 ára. Hanna bjó áfram á sínu heim- ili á Skagaströnd eftir að maður hennar dó, allt þar til hún var flutt á Héraðshælið á Blönduósi 21. nóv. sl. og lést þar. Elsku Hönnu þakka ég allar stundirnar sem við áttum saman, hve hún var mér góð og vildi allt fyrir mig gera. Ég man þá stund er ég kom í fyrsta sinn til hennar og Adda. Ég var svo kvíðin. En það var óþarfi. Þau tóku mér strax opn- um örmum. Megi góður Guð geyma hana og gefa ættingjum hennar styrk í þeirra sorg. Drottinn blessi minningu Hönnu. Legg ég nú bæði líf og önd ljúfi Jesú í þina hönd síðast þegar sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. Jóna Kveðjuorð: Ingi Gests Sveinsson Fæddur 21. júlí 1968 Dáinn 13. desember 1990 Það sem einkenndi Inga bróður var lífsgleði, jákvæðni og vilji til að vera góður við alla þá sem hann unni og gera það besta úr hlutunum hveiju sinni, það var einnig það sem gerði honum kleift að beijast langri og hatrammri baráttu við sjúkdóm- inn sem hann varð þó að gefast upp fyrir að lokum. „Þeir deyja ungir sem guðirnir elska.“ Löngum og ströngum þjáningum hans er lokið og er ég þess fullviss að hann hefur fundið friðinn í landi eilífðar. Minningin um indælan og góðan dreng mun búa í hjörtum okkar sem eftir lifum. Megi Guð blessa hann og halda verndarhendi sinni yfír elsku Inga mínum. Vala Hinn 13. desember sl. lést skóla- bróðir okkar, Ingi Gests, á Borg- arspítalanum, eftir langvarandi veikindi. Við minnumst Inga fulls lífsorku og gleði. Ef eitthvað var að gerast, þá var hann alltaf tilbú- inn að taka þátt í öllu. Hans helsta áhugamál var tónlist og dans. Hann var virkur í keppni og sýningum og stóð sig alltaf vel. Stórt skarð er höggvið í okkar hóp eftir fráfall Inga. Við vottum Ijölskyldu Inga okkar dýpstu sam- úð. Guð gefi þeim styrk á þessari erfiðu stund. Skólasystkini úr Grunnskóla Grindavíkur Birtíng afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritsljórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn- arstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek- in til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta til- vitnanir í ljóð, tvö erindi, eftir þekkt skáld, og skal þá höfundar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minning- argreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar afmæl- isfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu línubili.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.