Morgunblaðið - 20.12.1990, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1990
1
:S4PfVO;
Tækin
sem stilla þig
inn á góða skapið
MS 380
STÍLHREINT FERÐAT/EKI
Útvarps og kasettutæki með fullkomnum vekjara.
Stafræn klukka, innbyggður hljóðnemi,
°g margir fleiri kostir. Verð kr -| 5.250,
RM 7400
UTVARPSVEKJARI
með tveimur aðskildum hringingum,
stilltur á rafhlöðu sem tekur _ oon
við ef rafmagnið slær út. Verð frá £.0 JO,‘
RP 8800
Verð frá 4.050,-
ELDHÚSTÆKIÐ VINSÆLA
Sterkt og gott tæki með þægilegum hljómi.
M 1740
FERÐATÆKI
Útvarp og kassettutæki með sterku útvarpi
og góðum hljómi. Verð kr. 5.850,-
M 7033
Verð kr. 7.800,"
FERÐAT/EKI
Sterk, fáanlegt í þremur litum, innbyggður hljóðnemi og
stereo sem gefur því góðan hljóm.
VASADISKÓ
MGR 78
í miklu litaúrvali og mörgum stærðum. 0 n
Verð frá t,40U,'
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suöurlandsbraut 16 • Sími 680780
Ævintýri athafnamanns
H FÆRD1161 MTIMHSISPORTU
Bókmenntir
Sigurjón Björnsson
Ásgcir Jakobsson:
Bíldudalskóngurinn.
Athafnasaga Péturs J.
Thorsteinssonar.
Skuggsjá. Bókabúð Olivers
Steins SF.
Reykjavík, 1990. 446 blaðsíður.
Ásgeir Jakobsson er athafna-
samur og mikilvirkur rithöfundur.
Andspænis efnisyfírliti þessarar
bókar eru talin upp átján ritverk
hans auk bæklinga og þýðinga.
Megnið af ritverkum hans varðar
sjómennsku og sjávarútveg á einn
eða annan hátt. Um áratuga skeið
hafa því safnast í sjóð hans miklar
heimildir og mikil vitneskja á þessu
sviði. Hann mátti því teljast vel í
stakk búinn til að rita ævisögu hins
mikla útgerðar- og athafnamanns
Péturs J. Thorsteinssonar.
Pétur Jens Thorsteinsson fædd-
ist árið 1853. Hann var sonur Þor-
steins Thorsteinssonar kaupmanns
á Geirseyri við Patreksfjörð og
vinnukonu hans, Höllu Guðmunds-
dóttur. Þorsteinn þessi var þá
kvæntur maður og var annar feng-
inn til að gangast við króganum.
Rétt föðurnafn fékk Pétur ekki
fyrr en um tvítugt. Pétur ólst upp
hjá vandalausum, fjarri foreldrum
báðum. Eignalaus hóf hann útgerð
og verslunarrekstur á Bíldudal
vestra og blómgvaðist svo hagur
hans að hann varð einn af umsvifa-
mestu atvinnurekendum landsins
urri skeið. En á miðjum aldri og
þegar vegur hans var með mestum
blóma brá hann á einkennilegt ráð.
Hann vék frá eignum og óðali og
fluttist til Kaupmannahafnar með
fjölskyldu sinni. Þá er hans gæfu-
leið gengin og er starfssaga Péturs
mikil hrakfallasaga eftir það. Hann
andaðist aldraður maður og eigna-
•laus.
Bók um sögu
steinsteypunn-
ar á Islandi
FIMMTA bindi safns til iðnsögu
íslendinga er komið út hjá Bók-
menntafélaginu. Fjallar það um
steinsteypuna og þátt hennar í
byggingarsögu Islendinga. Höf-
undur er Lýður Björnsson sagn-
fræðingur.
Jón Böðvarsson ritstjóri iðnsög-
unnar sagði á fréttamannafundi,
þar sem bókin var kynnt, að hún
væri raunverulega sagan um það
hvernig ísland breyttist úr bænda-
samfélagi í tæknivætt þjóðfélag.
Steinsteypan hefði komið til sög-
unnar fyrir tæpum 100 árum og
varð á skömmum tíma nær ein-
völd í mannvirkjagerð. Og stein-
steypan, ásamt rafknúnum farar-
tækjum og rafstýrðum fjölmiðlum
hafi gjörbreytt lífskjörum og
heimsmynd fólks.
Bókin er 440 blaðsíður að stærð.
Pétur J. Thorsteinsson
að kynnast manninum Pétri J.
Thorsteinssyni, mannkostum hans,
traustleika, festu, góðvild, athafna-
gleði og áræðni samfara glögg-
skyggni og aðgæslu. Framhjátöku-
barnið Pétur Jens reyndist enginn
aukvisi eða ættleri þegar til kas-
tanna kom. Þriðji hluti er stuttur.
Er þar einkum lýst aðdraganda og
orsökum þess að flutt var til Kaup-
mannahafnar og reynt að skyggn-
ast bak við tjöldin. í fjórða og
síðasta kafla er greint frá umsvif-
um Péturs á síðari hluta ævi og
ævilokum hans. Þar dregur höfund-
ur sitthvað fram sem áður hefur
ekki legið ljóst fyrir og túlkar at-
burðarás með öðrum hætti en gert
hefur verið.
Bíldudalskóngurinn er saga sem
kemur víða við og er barmafull af
góðum fróðleik. Þó að hún sé hálft
fimmta hundrað blaðsíður hefði
hún að ósekju mátt vera lengri því
að stundum finnst manni frásögnin
í hraðara lagi. Höfundur hefur
ágætlega gott vald á efni sínu.
Hann ritar fjörlegan og lifandi stíl.
Enda þótt hann hljóti að eyða miklu
máli í skippundatalningu, saltfisk-
sölu, skuldamál, eignir og verslun-
ar- og fyrirtækjavafstur á hann
engu að síður auðvelt með að rýna
í sálarlíf og innri hræringar persóna
sinna. Útkoman verður góð bók.
Að bókarlokum er nafnaskrá, en
heimildaskrá er engin. Þessa vönt-
un útskýrir höfundur svo í formála:
„Þar sem þetta er fyrst og fremst
saga en ekki fræðirit fylgir ekki
sú skylda að sparðatína heimildir,
enda eru þær flestar alkunnar ..
Rétt má það vera, en hagræði hefði
þó verið fyrir fáfróða að fá helstu
heimildarit skráð í bókarlok.
Allmargar góðar myndir piýða
þessa bók og kostur er að letrið
er svo stórt að lestur þreytir ekki
vegna letursmæðar eins og oft vill
verða.
Keppnispeysur, búningar og fleira merkt frægustu fótboltaliðum iieims
Keppnistreyjur: Holland merkt Gullit, Holland m. Von Bosten, Bmsilío m. Romorio,
Italío m. Schillochi, Real Modrid m. Sanches, Þýskaland m. Mathaus, A.C. Milan m.
Van Basten, Þýskaland m. Klinsmann, A.C. Milan m. Gullit, Inter m. Klinsmann,
Argentína m. Maradonna, Juventus m. Baggio. Allar stærðir fró 3ja óra.
Liverpool keppnistreyjur. Búningasett: Liverpool, Manch. Utd., Arsenal, Tottenham
og England, nr. 26/28 til 38/40.
Verö 3.9B0,- Fótboltar nr. 4 og 5
merkfir Liverpool, Arsenal og Manch.
Utd. Verö 2.160,-. Einnig A.C. Milan.
Treflar, húfur, prjónavettlingar, úln-
liðssvitabönd og höfuðbönd.
Körfuboltabúningar og treyjur L.A.
Lakers, Boston og Detroit.
Póstsendum.
5% staAgreiósluafslúttur.
Laugavegl 49, slmi 12024
Laugavogi 97, simi 17016
SPORTVÖRUVERSLUNIN
evm
Ásgeir Jakobsson
Eiginkona Péturs var Ásthildur
Guðmundsdóttir prests í Kvenna-
brekku (systir Theódóru Thorodd-
sen). Eignuðust þau mörg mann-
vænleg böm og hefur sá ættleggur
tekið nokkurt rúm í þjóðarsögunni
á ýmsan veg.
Ævisaga Péturs J. Thorsteins-
sonar skiptist í fjóra hluta. í fyrsta
hluta er rækilega greint frá ætt
Péturs, þó einkum föðurætt, því
að fátt eitt er um móðerni vitað.
Um uppvaxtarár Péturs eru fáar
heimildir, en það tínt til sem hægt
er. Þá er góður þáttur um Bíldu-
dalsverslun fyrri tíma. Annar hluti
bókar, sem er rúmlega hálft annað
hundrað blaðsíður, er starfssaga
Péturs á Bíldudal, auk þess sem
greint er frá heimilishögum og
daglegu lífi. Það er stórfelld og
heillandi saga. Hygg ég að höfund-
ur hafi þar unnið gott verk og
greitt fram dijúgan skerf til at-
vinnusögu íslendinga. Það er vissu-
lega einnig hollt og lærdómsríkt
|