Morgunblaðið - 20.12.1990, Blaðsíða 15
AUCLÝSINCASMIÐJAN FLJÓTT • FLJÓTT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1990
Saga íslands V
Saga Islands er ýtarleg umfjöllun um hagi landsmanna,
atvinnuhætti, menningu og lífshætti á hverjum tíma. Þetta
fimmta bindi fjallar aðallega um 15. öld - ensku öldina - vaxandi
umsvif Englendinga allt þar til Danakonungi tókst endanlega að
tryggja yfirráð sín. Greint er frá eflingu kirkjunnar, rakið hvernig
fsland tengdist sögu landafundanna miklu. Bókmennta- og
myndlista'rsögu tímabilsins eru gerð rækileg skil. Fjöldi mynda
prýðir bókina. Höfundar eru Björn Þorsteinsson, Guðrún Ása
Grímsdóttir, Sigurður llndal, Jónas Kristjánsson
og Björn Th. Björnsson. Ritstjóri er Sigurður Líndal.
Skálholt II. Kirkjur
Þetta er þriðja bindið í ritröðinni Staðir og kirkjur. Bókin fjallar
um allar þekktar kirkjur sem staðið hafa í Skálholti frá öndverðu.
Leitast er við að gefa sem gleggsta mynd af hverri kirkju, höfundi
hennar og byggingarsögu. Höfundurinn, Hörður Ágústsson,
hefurendurgert nokkrar þeirra utan og innan t teikniformi, m.a.
miðaldakirkju þá, sem stærst var timburkirkna á Norðurlöndum.
I bókinni eru á þriðja hundrað mynda og teikninga.
Mmkmt
Mkm enntafélagsins
mm lifcíjjdi bj’unmjj'
JióSJtifcs
©g mejjjjíujjar
Steypa lögð og steinsmíð rís
Þetta er fimmta bókin í bókaflokknum Safn til
iðnsögu íslendinga, hinu merka framlagi til
atvinnuháttasögu þjóðarinnar. Rakin er saga og
þróun steinsteyptra mannvirkja hérlendis í máli
og myndum. Höfundur er Lýður Björnsson og
ritstjóri bókaflokksins er Jón Böðvarsson.
UPPLVSINGIN
A ÍSLANDI
no rttp«Olr
■ppnaídurgytfvo"
ftfnuinna-
ka£ÍLL
Almannahagur
Safn 75 ritgerða um hagfræði og
efnahagsmál eftir Þorvald Gylfason.
Ritgerðunum er ætlað að skýra
efnahagsvanda íslensku þjóðarinnar og
vekja lesendur til umhugsunar um
leiðir til úrbóta. Athygli verð bók fyrir
athafnamenn sem almenning.
Lærdómsrit
Þrjár bækur bætast nú í hóp þessa
stórmerka flokks sígildra rita:
Manngerðir eftir Þeófrastos, rituð fyrir
um 2000 árum.
Lof heimskunnar sem Erasmus frá
Rotterdam skrifaði fyrir nær fimm öldum.
Saga tímans eftir Stephen W.
Hawking, sem hefur skipað efstu sæti
metsölulista viða um lönd.
Upplýsingin á íslandi
(slenskir fræðimenn gera grein fyrir áhrifum
upplýsingarinnar, hinnar alþjóðlegu
hugmyndastefnu hér á landi, er gætti mest
á tímabilinu 1770-1830. Með bókinni er
fyllt upp í eyðu, sem verið hefur i íslenskri
sagnfræði allt til þessa. Bókin er prýdd fjölda
Ijósmynda. Ritstjóri er Ingi Sigurðsson.
Hið íslenzka
bókmenntafélag
Saga tímans
„Það er ástæða til að hafa nokkurt
mál um þessa bók vegna þess, að
hún er glæsileg afurð mannlegrar
hugsunar og áreiðanlega
bitastæðasta bók sem kemur út á
Islandi á þessu ári."
GHF. Mbl. 12. des. 1990
1. prentun uppseld
2. prentun væntanleg
SlÐUMÚLA 21, SÍMI 679060