Morgunblaðið - 20.12.1990, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1990
35
EFTA-EB:
Viðræðum miðar í samkomulagsátt
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
TALSMENN Evrópubandalagsins (EB) og Fríverslunarbandalags
Evrópu (EFTA) voru sammála um það eftir sameiginlegan ráðherra-
fund bandalaganna að vel hefði miðað í samkomulagsátt á fundinum.
Ljóst er að flest erfiðustu ágrein-
ingsmálin eru enn óleyst en
ótvíræður vilji til að finna sameigin-
legar lausnir kom fram á fundinum
sem lauk í Brussel í gær. Jón Bald-
vin Hannibalsson, utanríkisráð-
herra, kvaðst telja viðræðurnar
komnar á það stig að ekki yrði aft-
ur snúið. Hann kvaðst vera bjart-
sýnn á að viðunandi lausn fyndist
á deilunum um fisk.
Gianni de Michelis, utanríkisráð-
herra Ítalíu og forseti ráðherraráðs
EB, sagði að lokayfirlýsing fundar-
ins væri mikilvægt framlag á loka-
stigi samninganna sem ætlunin er
að ljúka fyrir næsta vor. Dg Michel-
is sagði að sú svartsýni sem ein-
kennt hefði viðræðurnar væri úr
sögunni, á þessum fundi hefði
gagnkvæmri tortryggni verið eytt.
I hönd færu góðir tímar fyrir Evr-
ópu og ástæða væri til bjartsýni á
framtíðina. Jean-Pascal Delamuraz,
efnahags- og viðskiptaráðherra
Sviss og talsmaður EFTA, sagði
að fundurinn héfði verið mjög gagn-
legur, lagt hefði verið pólitískt mat
á stöðu samninganna og í rauninni
hefði fundurinn verið forsenda þess
að hægt væri að halda samninga-
viðræðunum áfram. Delamuraz
taldi að fundurinn hefði staðfest
að evrópska efnahagssvæðið (EES)
yrði að raunveruleika í framtíðinni.
í lokayfirlýsingu fundarins kem-
ur fram að ráðherrarnir hafa orðið
sammála um að yfirstjórn EES
verði innan sameiginlegs ráðherr.a-
ráðs EFTA og EB auk fulltr'úa
framkvæmdastjórnar EB. Hlutverk
ráðsins yrði að leggja pólitískar
meginlínur í samstarfinu og móta
þróun þess. Að öðru leyti er ósamið
Mótmælendur
leiddir fyrir
rétt í Albaníu
Vínarborg. Reuter.
ÚTVARPIÐ í Tirana, höfuðborg
Albaníu, skýrði frá því í gær að
157 manns hefðu verið leiddir
fyrir rétt sakaðir um þátttöku í
óeirðum í landinu í síðustu viku.
Mótmælin eru hin mestu sem vit-
að er um í landinu í stjórnartíð
kommúnista. Stjórnarherinn
bældi þær niður en mótmæli
halda þó áfram og var t.a.m. fjöl-
mennur en friðsamlegur mót-
mælafundur haldinn í háskólan-
um í Tirana í þessari viku. Rétt-
arhöldin sem hófust í gær eru
haldin í borgunum Durres, El-
basan og Shkoder.
Lýðræðisflokkurinn í Albaníu,
fyrsti flokkur stjórnarandstæðinga
sem leyfður er þar í landi, mun
leggja fram formlega ósk um það
í dag eða á morgun að þingkosning-
um sem ráðgerðar eru í febrúar nk.
verði frestað, að því er Genc Polo,
talsmaður flokksins, sagði í gær.
Polo sagði að óskað yrði eftir því
að kosningunum yrði seinkað um
a.m.k. þijá mánuði en ráð er fyrir
gert að þær fari fram 10. febrúar.
Bera leiðtogar flokksins því við að
þeir geti ekki keppt um sæti við
kommúnistaflokkinn á jafnréttis-
grundvelli m.a. þar sem þeim hefur
verið- meinaður aðgangur að fjöl-
miðlum landsins sem allir lúta stjórn
kommúnista.
Ennfremur mun Lýðræðisbanda-
lagið hefja baráttu fyrir því að allir
pólitískir fangar verði látnir-lausir.
Simon Stefani, þáverandi innanrík-
ísráðherra, skýrði frá því í janúar
sl. að 3.850 menn væru í haldi í
„endurmenntunarstofnunum" víðs
vegar um landið. Er það í fyrsta
sinn sem viðurkennt er opinberlega
að fangelsanir vegna skoðana eigi
og hafi átt sér stað í Albaníu.
um fyrirkomulag sameiginlegrar
stjórnunar EES og ákvarðanir sem
varða það. Allmörg fleiri atriði eru
óútkljáð en góðar líkur eru taldar
á að lausn finnist á flestum þeirra
fyrir vorið. Það eru helst þijú atriði
sem sennilegt er talið að pólitískar -
lausnir þurfi til. Af þeim er skil-
greining stjórnunar EES og mótun
ákvarðana sem varða það erfiðasta
málið. í yfirlýsingu ráðherranna er
lagt til að deilur um landbúnað verði
leystar í tvíhliða viðræðum EB við
einstök aðildarríki EFTA, eftir sem
áður verður að finna sameiginlega
lausn á þætti landbúnaðar í jöfnun
lífskjara ríkjanna í Suður-Evrópu.
Þriðja ágreiningsefnið er kröfur
EFTA um tollfijálsan aðgang fyrir
sjávarafurðir inn á markaði EB. Jón
Baldvin lagði áherslu á það í ræðu
sinni að íslendingar fengju að sama
skapi og aðrir fullt viðskiptafrelsi
með helstu útflutningsafurðir sínar.
Hann sagði í samtali vð Morgun-
blaðið að hér væri um smámál á
mælikvarða EB að ræða, verið
væri að tala um að bandalagið felldi
niður tollatekjur sem næmu 30
milljónum ECU (2,2 milljarðar
ÍSK). Af hálfu EFTA hefur verið
lögð áhersla á að viðunandi lausn
á deilunum um fisk sé forsenda
þess að samkomulag verði gert um
EES.
■ TIMISOARA - Tugir þús-
unda verkamanna og námsmanna
stöðvuðu alla umferð í Timisoara
í vesturhluta Rúmeníu í gærmorgun
þegar þeir gengu fylktu liði um
borgina og kröfðust þess að ríkis-
stjórn landsins segði af sér. Upp-
lausnarástand hefur verið í borginni
undanfarna daga vegna mótmæla
út af efnahagsástandinu í landinu
og hægaganginum á umbótastarf-
inu. „Við höfum verið sviknir,“
sagði einn göngumannanna, „þetta
var allt saman lygi og það hefur
ekkert breyst."
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíöum Moegans!
Gæði kosta mikið
en hér eru nokkrar
undantekningar
U 5096
HOOVBR ryksuga
22.240r
SR8900FUNAI ferðatœki (m.geislaspilara)
21.725,-
NECCHI saumavél 26.804,-
Alpha I GRUNDIG rakvél
3.740,-
¥
MO 6T FUNAI örbylgjuofn 22.610,
RE5515
EMERSON klukkuútvarp 2.490.-
VCR 7500FUNAI video 29.999,-
CD 4904 FUNAI geislaspilari 15.105,
HOOVER ryksuga
1 1.990,-
Öll verð miðast
við staðgreiðslu
£
HEIMILISKAU P H F
• HEIMIILISTÆKJADEILD FÁLKANS •
Suðurlondsbraut 8 - sími 84670
Á & i a. & 4,
GOTT FÓLK/SlA