Morgunblaðið - 20.12.1990, Qupperneq 58
58
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1990
Morgunblaðið/Bernhard Jóhannesson
Hluti fundargesta um framtíð Reykholtsskóla.
grunnskóla og fjölbrautaskólar hafa
tekið við nokkuð af nemendum.
Einnig er kostnaður við að stunda
nám í heimavistarskóla meiri.
„Reykholtsskóli er ekkert eins-
dæmi, til að snúa þessari þróun við
þá verða heimamenn að sækja fast
á við menntamálaráðuneytið, þing-
menn vesturlands og stjórn Félags-
málaskóla alþýðu að taka nú af
skarið og hætta að setja málin í
nefndir og ráð og fara að taka
ákvarðanir." Hann sagðist meðal
annars vera hingað komin til að
heyra tillögur heimamanna.
Margir tóku til máls á fundinum
og lýstu skoðunum sínum flestir
voru sammála umað þessi ákvörð-
um um að flytja félagsmálaskóla
alþýðu í Reykholt væri skynsamleg
ákvörðun þegar tillit væri tekið til
þess að Snorrastofa með hugsan-
legan minjavörð og menningar-
málafulltrúa vesturland hefðu að-
setur þar. til að Félagsmálaskóli
alþýðu geti fullnægt námsstefnu
sinni sem var samþykkt 1972 og
endurbætt 1989 þarf skólinn að
vera ferlifær fötluðum og helst þarf
að byggja sundlaug og íþróttasal.
Séra Geir Waage sóknarprestur
benti á þann möguleika að á Klepp-
járnsreykjum væri ný sundlaug og
íþróttahús sem í flestum tilfellum
væri ekki notuð eftir kl. tvö á dag-
inn og væri hægt að notast við þau
á meðan á uppbygingu íþrótta-
mannvirkja stæði í Reykholti.
Að lokum sagði Svavar Gestsson
að fleiri fengju vinnu við hinn nýja
skóla og umsvifin yrðu miklu meiri.
Á hinum norðulöndunum væri full-
orðinsfræðsla og endurmenntun
orðin snar þáttur í menntamálum
og þannig yrði það einnig hér.
- Bernhard
Risa-jóla-
rokk á Hót-
el Islandi
ÚTVARPSSTÖÐ framhalds-
skólanna, Útrás, gengst fyrir
stórtónleikum í kvöld á Hótel
íslandi í samvinnu við útgáfu-
fyrirtækið Steinar og Skífuna.
Tónleikarnir eru undir nafninu
Risa-jólarokk, en alls koma
fram 24 hljómsveitir á tveimur
sviðum.
Tónleikarnir hefjast kl. 20 og
er ætlunin að þeir standi til 2 e.
miðnætti, en hljómsveitirnar sem
fram koma eru þessar: Á stóra
sviðinu: Síðan skein sól. Todmo-
bile, Nýdönsk, Possibillies, Sverrir
Stormsker, -Langi Seli og Skug-
gamir, Rikshaw, Gildran, Boot-
legs, Bless og Tvöfalda beat-ið. Á
litla sviðinu: Blautir dropar,
Boneyard, Formaika, INRI, Sex-
menn, Edrú, Sérsveitin, Elsku
Unnur, Dýrið gengur laust, Orgill,
Berir að ofan og Afródíta. Kynnir
verður á hvoru sviði fyrir sig.
Hluta tónleikanna verður útvarpað
á Útrás.
Endurgerð Sauðárkrókskirkju lokið
Sauðárkróki.
AÐ undanförnu hafa farið fram gagngerar endurbætur á Sauðár-
krókskirkju. Fyrir nokkru var kirkjan iagfærð að utan og þak
endurnýjað, en nú síðla sumars var hafist handa við að endur-
gera kirkjuna að innan, en í tengslum við þær lagfæringar var
tekin ákvörðun um að stækka kirkjuna verulega til vesturs.
Sauðárkrókskirkja var byggð
skömmu fyrir síðustu aidamót og
vígð 18. desember 1892. Þótti hún
þá með veglegri guðshúsum
iandsins, en í tímans rás, og með
örri fólksfjölgun á Sauðárkróki
var nú svo komið að þörf var á,
annað tveggja að byggja nýja
kirkju eða stækka hina gömlu
verulega.
Á safnaðarfundi snemma á
þessu ári var svo ákveðið að leita
tilskilinna leyfa til stækkunar
kirkjunnar og þegar ljóst var að
þau lágu fyrir var tekin um það
ákvörðun á aðalsafnaðarfundi, að
ráðast í þessar framkvæmdir.
Með endurgerðinni óg stækkun
var talið að kirkjan gæti ágætlega
þjónað áfram söfnuði Sauðár-
krókssóknar.
Eins og áður er getið var haf-
ist handa síðastliðið sumar, og nú
í desemberbyrjun var endurbótum
að fullu lokið.
Hefur kirkjan verið endurgerð
að öllu leyti og færð mjög til upp-
runalegs útlits, auk þess að vera
lengd um 3,6 metra og tekur nú
rúmlega 300 manns í sæti.
Þá var kirkjan öll einangruð
og endurnýjaðar allar lagnir.
Fór öll vinna við endurgerðina
fram undir eftirliti Þorsteins
Gunnarssonar arkitekts og Leifs
Blumenstein byggingarfræðings,
en hönnunarvinna var unnin hjá
Verkfræðiskrifstofunni Stoð sf. á
Sauðárkróki. Yfírsmiður var
Bragi Skúlason byggingarmeist-
ari hjá Trésmiðjunni Borg hf.
Raflagnir annaðist Rafsjá hf. og
pípulagnir Jón Geirmundsson
pípulagningarmeistari, múrverk
annaðist Aðalsteinn Maríusson
múrarameistari og Vélsmiðja
Sauðárkróks annaðist hita- og
loftræsikerfi. Málarameistaramir
Kristján Hansen og Jón Svav-
arsson sáu um málningarvinnu.
Tveir nýir gluggar bætast við
á kirkjuskipinu, og eru þeir steind-
ir svo sem þeir gluggar sem fyrir
eru, en vegna ófyrirséðra atvika
reyndist ekki unnt að koma þeim
fyrir áður en endui’vígslan færi
fram, og verða þeir því settir upp
eftir áramót. Eru gluggarnir gerð-
ir af Guðrúnu og Jens Urup.
Þá var við athöfnina vígt nýtt
og mjög vandað hljóðfæri sem
keypt var af orgelsjóði kirkjunn-
ar, en hann var stofnaður með
minningargjöf um Ragnar Páls-
son útibússtjóra Búnaðarbankans
á Sauðárkróki.
Vígsluathöfnin hófst kl. 14.00
á sunnudag með skrúðgöngu
safnaðarstjómar, biskups íslands,
presta héraðsins auk nokkurra
fyrrum þjónandi presta á Sauðár-
króki, frá safnaðarheimilinu og
til kirkju. Bar safnaðarstjórn gripi
kirkjunnar.
Biskup íslands, herra Ólafur
Skúlason, vígði síðan kirkjuna, en
fyrir altari þjónuðu sr. Sigurður
Guðmundsson vígslubiskup og sr.
Hjálmar Jónsson prófastur. Við
athöfnina söng kirkjukór Sauðár-
krókskirkju undir stjórn Röng-
valds Valbergssonar, en Svana
Berglind Karlsdóttir söng ein-
söng.
Þá var ljósamessa í kirkjunni
kl. 17.00, en þar fór fram fyrsta
skírnin í hinni nýendurvígðu
kirkju, en herra Ólafur Skúlason
biskup og sr. Tómas Sveinsson
sóknarprestur í Háteigskirkju og
fyrrverandi sóknarprestur á Sauð-
árkróki töluðu við börnin. Barna-
kór Sauðárkrókskirkju söng undir
stjórn Pálínu Skúladóttur.
Um kvöldið var svo aðventu-
kvöld, en þar flutti hugvekju herra
Ólafur Skúlason, en einnig flutti
ávarp sóknarpresturinn, sr.
Hjálmar Jónsson prófastur.
Þá voru flutt ýmis tónlistarat-
riði, meðal annars lék Richard
Simm forleik á orgel, bræðurnir
Sigfús og Pétur Péturssynir
sungu tvísöng, Guðbrandur Jón
Guðbrandsson lék einleik á tromp-
et, kór söngdeildar tónlistarskól-
ans söng undir stjórn Helgu Bald-
ursdóttur. Einsöng sungu Helga
Rós Indriðadóttir og Jóhann Már
Jóhannsson við undirleik Sólveig-
ar S. Einarsdóttur og einnig söng
Sigurdríf Jónatansdóttir við und-
irleik Rögnvalds Valbergssonar.
Þá söng kirkjukórinn undir stjórn
Rögnvalds ValbergssQnar.
Að sögn sóknarprestsins, sr.
Hjálmars Jónssonar, hefur hin
gamla kirkja nú hlotið mjög verð-
uga endurgerð og lagfæringar og
er nú, eins og þegar hún var ný-
byggð, eitt af fegurstu guðshús-
um landsins. Taldi sr. Hjálmar að
mjög vel hefði til tekist, og.hefðu
allir þeir sem hönd lögðu að verk-
inu skilað því eins og best verður
á kosið.
Hér væri nú eins og ný, fýrsta
og eina kirkjan sem byggð hefði
verið á Sauðárkróki, kirkja sem
væri órjúfanlegur hluti þeirrar
bæjarmyndar sem hér væri og
einn traustasti homsteinninn í lífi
þeirra sem hér búa.
- BB.
Skrúðganga sóknarnefndar, biskups og presta til Sauðárkróks-
kirkju. Sóknarnefnd ber gripi kirkjunnar.
Jón Karlsson form. sóknarnefndar til vinstri og sr. Hjálmar Jóns-
son til hægri lásu ritningargreinar. Herra Ólafur Skúlason biskup
í altari.
Fundur um framtíð Reykholtsskóla:
Ahugi á að flytja
Félagsmálaskóla
alþýðu í Reykholt
Jólablús
VinaDóra
HLJÓMSVEITIN Vinir Dóra
hefur undarfarin ár haldið tón-
leika fyrir jólin undir yfirskrift-
inni jólablús. Svo verður einnig
að þessu sinni og verður jólabl-
úsinn á tveimur stöðum.
Hljómsveitina Vini Dóra skipa
Halldór Bragason gítarleikari og
söngvari, Guðmundur Pétursson
gítarleikari, Andrea Gylfadóttir
söngkona, Haraldur Þorsteinsson
bassaleikari, Ásgeir Óskarsson
trommuleikari, Hjörtur Howser
hljómborðsleikari og Jens Hansson
saxófónleikari. Fyrri blústónleik-
arnir verða í veitingastaðnum
Tveir vinir fimmtudaginn 20. des-
ember og koma þar fram með
hljómsveitinni fjölmgrgir gestir:
Birgir Baldursson trommuleikari,
Sigurður Sigurðsson munnhörpu-
leikari og söngvari, Sigurður Sig-
urðsson söngvari, Þorsteinn
Magnússon gítarleikari og leyni-
gestur sem leika mun á trompet.
Síðari jólablústónleikar Vina
Dóra verða svo á Púlsinum tónlist-
arbar sunnudaginn 23. desember.
Þar koma einnig fram með sveit-
inni ýmsir gestir: Magnús Eiríks-
son söngvari og gítarleikari,
Björgvin Gíslason gítarleikari,
Pétur Tyrfingsson gítarleikari og
leynigestur verður einnig á Púlsin-
um.
Tónleikarnir hefjast kl. 21.30
fimmtudagskvöld, en 22.00 á
sunnudag. Forsala aðgöngumiða
er í Plötubúðinni Laugavegi 20,
en við síðasta jólablús þurftu fjöl-
margir frá að hverfa. Á tónleikun-
um verður einnig seld nýútkomin
snælda með tónlist sveitarinnar,
Lifandi blús.
Þetta kunni fólk hér að meta og
fjölmenntu heilu fjölskyldurnar. Enn
fremur buðu forsvarsmenn Dalakjörs
og Mjólkursamlag Búðardals út að
borða. Þessi nýbreytni vakti verð-
skuldaða athygli og um 100 manns
voru saman komnir og áttu ánægju-
lega samverustund. Salarkynnin í
Dalabúð voru fallega skreytt og stórt
Kleppjárnsreykjum:
VIÐ setningu M-hátíðar í Reyk-
holti 31. maí í vor tilkynnti
menntamálaráðherra, Svavar
Gestsson, væntanlegar breyting-
ar við Héraðsskólann í Reyk-
holti. Sagði hann frá áhuga Fé-
jólatré prýddi salinn.
Anna Olafsdóttir sem' rekið hefur
veitingasölu síðan í vor hefur verið
með ýmsar uppákomur og laðað að
viðskiptavini og á hún sérstakar
þakkir skilið fyrir dugnað sinn og
framtakssemi við rekstur veitinga-
sölunnar hér.
- Kristjana
lagsmálaskóla alþýðu að flytja
starfsemi sína í Reykholt. „Þetta
er kjörið tækifæri til að tryggja
framtíð Reykholtsskóla," sagði
menntamálaráðherra.
Á almennum fundi um framtíð
Reykholtsskóla sem haldinn var í
Logalandi 12. desember sl. mætti
Svavar ásamt fúlltrúum úr mennta-
málaráðuneytinu og Snorra Konr-
áðssyni frá Félagsmálaskóla ai-
þýðu. Skólanefnd Reykholtsskóla,
hreppsnefnd og fjöldi úbúa hrepps-
ins mætti á fundinn. Nokkur kvíði
hefur verið hjá íbúum Reykholts-
dals að undanförnu um framtíð
Reykholtsskóla. 1905 var Hvítár-
bakkaskóli stofnaður og var hann
fluttur 1931 að Reykholti. Síðan
hefur verið þar framhaldsskóli. Árið
1982 sóttu um 170 nemendur um
skólavist en skólinn gat aðeins tek-
ið á móti 145 nemendum. Síðan
hefur hallað undan fæti í aðsókn
að skólanum, Margar skýringar eru
á af hveiju svo er komið, menn
hallast einna helst að því að 10.
bekkur er nú í grunnskólunum og
framhaldsdeildir eru við nokkra
Búðardalur:
Ibúar dvalarheimilisins
heiðursgestir í Dalabúð
Búðardal.
JOLABOÐ var haldið í Dalabúð laugardaginn 15. desember sl. þar sem
fólki var gefinn kostur á að koma saman og boróa góðan mat þar sem
borð svignuðu undan jólaréttum og ýmsu góðgæti.