Morgunblaðið - 20.12.1990, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. DESEMBER 1990
61
Þórir Aðalsteins-
son - Kveðjuorð
Fæddur 1. janúar 1968
Dáinn 3. desember 1990
Vinur okkar og félagi Þórir Aðal-
steinsson er nú óvænt horfinn sjón-
um og er víst að hann mun skilja
eftir sig stórt skarð í hjörtum okkar.
Fyrstu kynni okkar af Þóri voru
þegar hann flutti í Lundarbrekkuna
í Kópavogi fjögurra ára gamall.
Fljótlega myndaðist góður vinahóp-
ur í þessu nýja hverfi sem var að
byggjast upp. Þessi vinahópur átti
eftir að njóta æskunnar saman í
léik og starfi. Við félagarnir stúnd-
uðum saman áhugamál okkar af
miklu kappi og var þar efst á baugi
alls kyns spilamennska og mikil
knattspyrnuiðkun. Þörir æfði að
auki knattspyrnu með ÍK og þótti
firnasterkur varnarmaður og var
meðal annars valinn besti leikmaður
keppnistímabilsins í liði 4. aldurs-
flokks 1982. Hann var líka fyrirliði
í Svaninum sem var knattspyrnulið
hverfisins. í spilamennskunni var
aðaláherslan lögð á tölvuspil, brids
og póker þar sem fótboltamyndir
voru lagðar undir. Hann var einn
af aðalmáttarstólpum þessa samfé-
lags okkar og ávallt var hann til í
tuskið ef átti að gera eitthvað
skemmtilegt með félögunum.
Þegar á þessum árum var Þórir
búinn a'ð gera upp hug sinn um að
gera flugið að ævistarfi. Fljótlega
eftir að hann hafði náð tilskildum
aldri þyijaði hann að læra á flug-
vél. Samfara námi í Verslunarskóla
íslands og viðskiptafræði í Háskóla
íslands vann hann hörðum höndum
til að geta borgað dýrt flugnámið.
Flugið átti hug hans allan.
A sorgarstundu sem þessari
koma upp í huga okkar minnisstæð-
ir atburðir sem tengjast samskipt-
Kveðjuorð:
Svava Sveinsdóttir
Fædd 12. september 1909
Dáin 9. desember 1990
í þann mund sem jólaljósin voru
tendruð, eitt af öðru, hér allt um
kring, slokknaði lífsljós Svövu,
mágkonu á Landspítalanum, eftir
stutta legu þar. Hún var búin að
vera hinn mesti lasarus allt frá
byrjun þessa árs, sárþjáð og
áhyggjur miklar útaf Magnúsi
manni sínum, en hann hefir verið
sjúklingur sl. tvö ár.
Magnús og Svava gengu í hjóna-
band 3. júní 1933 og eignuðust tvo
syni en þeir eru Asgeir Haukur,
giftur Jónu Sigurðardóttur og eiga
þau tvo syni, Sigurður viðskipta-
fræðingur giftur Svövu Birgisdótt-
ur, hjúkrunarfræðingi og eiga þau
tvö börn og Magnús hljómlistar-
maður giftur Kim Magnússon lög-
fræðingi, en þau em öll búsett í
Ástralíu. Jón Hákon giftur Áslaugu
Harðardóttur og eiga þau tvö börn,
Áslaugu Svövu og Hörð Hákon.
Foreldrar Svövu voru Rannveig
Hálfdánardóttir Örnólfssonar í Bol-
ungarvík og Sveins Árnasonar bú-
fræðings að Hvilft í Önundarfirði,
fimm börn þeirra náðu fullorðins-
aldri: Mikkalína ekkja Sigurðar
Gröndal skólastjóra framleiðslu-
manna, Áslaug ekkja Sigurðar
Þórðarsonar skrifstofustjóra RÚV
og söngstjóra, Hálfdán skólastjóri
á Akranesi, kona hans var Dóróthea
Erlendsdóttir, bæði látin, og Karl,
yngstur, skrifstofustjóri hjá Hval
hf., giftur Bergþóru Sigmarsdóttur,
Karl er látinn. Systkinabörn Svövu
er stór hópur bráðmyndarlegs
dugnaðarfólks og miklir vinir henn-
ar.
Svava var ógleymanleg hvað
yndisþokka, glaðværð og allt mann-
legt var ríkt á allri hennar lífsferð.
Blessuð sé minning góðrar konu.
Guðmundur Kristjánsson
+
Öllum þeim, sem séndu mér og fjölskyldu minni samúðarkveðjur
og blöm vegna andláts eiginkonu minnar,
JÓRUIMNAR JÓHANNSDÓTTUR,
sendi ég mínar innilegustu þakkir og óska ykkur öllum gleðilegra
jóla.
Tryggvi Jónsson,
/ Sognstúnil,
Dalvik.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
JÓSAFATS SIGFÚSSONAR,
Sauðárkróki.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Dvalarheimilis aldraðra á
Sauðárkróki.
Jónanna Jónsdóttir,
Bragi Jósafatsson, María Guðmundsdóttir,
Guðrún Jósafatsdóttir, Björn Arason,
Jón Jósafatsson, Sigrfður Ingimarsdóttir,
Ingibjörg Jósafatsdóttir, Sveinn Friðvinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
um okkar við Þóri. Þórir bjó yfir
mörgum kostum sem prýða góðan
vin. Hann var hlédrægur og rólegur
á yfirborðinu ení hópi góðra vina
var hann opinskár og gamansamur.
Hann var traustur vinur og góður
drengur. Minningin um hann mun
lifa áfram í hugum okkar. Við vott-
um ijölskyldu hans dypstu samúð.
Jón Hersir, Oli, Auðunn,
Ingi, Úlfar og Arnoddur
Unnur Thorodd-
sen - Kveðjuorð
Þegar ég kvaddi Unni í haust,
grunaði okkur báðar að við mynd-
umm ekki sjást framar. Hvorug okk-
ar gat trúað því. Ég fregnaði lát
hennar einn morguninn og ranglaði
í skólann með símskeytið í hend-
inni. Þau urðu vandræðaleg skóla-
systkini mín þegar ég fór allt í einu
að skæla. Er hún að gráta út af
prófínu í gær, spurði einhver. Ég
útskýrði málið og fór að segja þeim
frá Unni, minni hjartkæru vinkonu
og vináttu okkar. Þetta unga fólk
frá hinum ýmsu heimshornum hlust-
aði með athygli og mér gekk allt í
einu ágætlega að tala spænsku. Hún
hlýtur að hafa verið þar og hjálpað
mér og hlegið svolítið að mér líka.
Ég kveð elsku Unni mína og
þakka fyrir allt. Vinátta hennar er
eitt það dýrmætasta sem ég hef
eignast.
Elsku Ragna og Guðmundur,
dýpstu samúðarkveðjur sendi ég
ykkur og fjölskyldum ykkar, ykkar
missir er mikill. Orri og Ýmir þakka
Unnu sinni fyrir allt. Þeir segja að
hún sé í Nangiala, en þangað kom-
ast aðeins þeir sem hafa gott hjarta
og miklar gáfur.
Malaga, 3. des. ’90,
Ingrid og synir.
5
I
ATHYGUSVERÐAR
BÍLDUDALSKÓN GURESÍN
ATHAFNASAGA PÉTURS J. TH0RSTEINSS0NAR
ÁSGEIR JAKOBSSON
Þetta er saga Péturs J. Thorsteinssonar, sem
var frumherji í atvinnulífi þjóðarinnar á
síðustu áratugum nítjándu aldar og fyrstu
áratugum þeirrar tuttugustu; saga manns,
sem vann það einstæða afrek að byggja upp
frá grunni öílugt sjávarpláss; hetjusaga
manns, sem þoldi mikil áföll og marga
þunga raun á athafnaferlinum og þó enn
meiri í einkalffinu.
SONUR SÓLAR
RITGERÐIR UM DULRÆN EFNI
ÆVAR R. KVARAN
Ævar segir hér frá faraónum Ekn-Aton,
sem dýrkaði sólarguðinn og var langt á
undan sinni samtfð. Meðal annarra rit-
MYNDIR ÚR LÍFIPÉTURS EGGERZ,
FYRRVERANDI SENDIHERRA
GAMAN OG ALVARA
PÉTUR EGGERZ
Pétur Eggerz segir hér fyrst frá lffi sínu sem
lítill drengur í Tjarnargötunni í Reykjavík,
þegar samfélagið var mótað af allt öðrurn
viðhorfum en nú líðkast. Síðan fjallar hann
um það, er hann vex úr grasi, ákveður að
nema lögfræði og fer til starfa í utanríkis-
þjónustunni og gefist sendiherra. Pétur
hefur kynnst miklum íjölda fólks, sem
hann segir frá f þessari bók.
gerða hér eru t.d.: Sveppurinn helgi; Haf-
steinn Björnsson miðtll; Vandi miðilsstarfs-
ins; Bréf frá sjúklingi; Miðillinn Indriði
Indriðason; Máttur og mikilvægi hugsun-
ar; Er mótlæti ílífinu böl?; Himnesk tónlist;
Hefur þú lifað áður?
SKUGGSJÁ
BÓKABÚÐ OLIVERS STEINS SF
KENNARI Á FARALDSFÆTI
MINNINGAR FRÁ KENNARASTARFI
AUÐUNN BRAGISVEINSSON
Auðunn Bragi segir hér frá 35 ára kennara-
starfi sínu í öllum hlutum landsins. Hann
greinir hér af hreinskilni frá miklum fjölda
fólks, sem hann kynntist á þessum tíma,
bæði til lofs og lasts. Hann segir hér frá
kennslu sinni og skólastjórn á fimmtán
stöðum, m.a. á Akranesi, Hellissandi, Bol-
ungarvík, Ólafsfirði, Skálholti, Kópavogi
og í Ballerup í Danmörku.