Morgunblaðið - 20.12.1990, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ IÞROi I iR FlMMtUDAGUR W. 'DBSEMBER 1990
69
RYMINGARSALA
VERSLUNIN HÆTTIR
ALLTÁAÐ SELJAST!!
Dæmi um verö:
Nýjar kylfur ... frá kr. 1.000
Notaðar kylfurdg^" " 500
Pútterar ...zZ. " " 1.500
Bolir ............ " " 500
Buxur ........... " " 1.500
Leðurhanskar .... " " 500
Opið frá kl. 15-19
Laugard. og sunnud. frá kl. 12-18
KAUPIÐ
JÓLAGJÖF
GOLFARANS
NUNA!
í<
A j
Golfverslun
John Drummond
Golfskálanum
Grafarholti simi:82815
Ótrúlegarframfarir hjá Norðmönnum:
Norðmenn
þakka þjálf-
aranum
Furuseth, Skárdal og Arnesen slá í gegn
NORÐMENN hafa komið mjög
sterkir út úr þeim heimsbikar-
mótum sem fram hafa farið nf
vetur. Ole-Christian Furuseth
sigraði í svigi á þriðjudag og
Atle Skárdal og Lasse Arnesen
stóðu sig frábærlega í bruni í
Gröden um sfðustu helgi. Þeir
urðu númer 3 og 4 í fyrri keppn-
inni og 1 og 4 í hinni seinni.
Atle endurtók aftur og aftur í
eyru fréttamanna eftir sigurinn
að Dieter Bartsch væri maður-
inn á bak við velgengni þeirra.
Hann, eins og Ole-Christian
Furuseth, þakkaði þjálfaranum
fyrir frammistöðuna, en Furu-
seth notar hvert tækifæri til að
hrósa Alex Gartner, svigþjálf-
ara norska landsliðsins.
Bartsch, sem er 43ja ára Austurrík-
ismaður, segir að liðinu gangi vel
af því að það leggi sig fram, vinni
mikið og mórailinn sé góður. „Ég er
svo heppinn að Norð-
Anna mennirnir hafa trölla-
Bjarnadóttir trú á hálfgeggjuðum
skrifar hugmyndum mínum,“
hefur svissneska
íþróttaþlaðið Sport eftir honum, en
hann vill ekki segja í hveiju þessar
hugmyndir felast. „Þá væru þær ekki
lengur geggjaðar.“
Bartsch lærði íþróttakennslu í Edin-
borg og hefur 18 ára reynslu sem
skíðaþjáifari. Hann þjálfaði enska
■Jandsliðið frá 1972 til 1979, gerðist
þá einkaþjálfari Marie-Theres Nadig
en tók við svissneska brunkvennalið-
inu 1982. Hann var yfirþjálfari aust-
urríska karlalandsliðsins frá 1985 til
1987 og þjálfaði Jolanda Kindle frá
Liechtenstein i eitt ár áður en honum
var boðin þjálfarastaðan í Noregi vo-
rið 1988. Hann átti þá einnig kost á
að fara til Bandaríkjanna eða Ítalíu
en kaus Noreg, mörgum til mikillar
undrunar og sumura jafnvel til
hneykslunar. Noregur var þá ekki
háttskrifaður í alpagreinum skíða-
íþróttarinnar. En Bartsch segir að
launin hafi ekki bara lokkað heldur
hafi Norska skíðasambandið sýnt
meiri trú á honum og hæfni hans en
önnur sambönd.
Hús keypt fyrír norska
liðið í Austurríki
Lasse Kjus og Kjetil-Andre Aamodt,
sem stóðu sig ágætlega í stórsvigi í
Alta Badia, um helgina - Kjus var 3.
eftir fyrri umferð en datt í seinni og
Aamodt varð 11. - höfðu ekki vakið
sérstaka athygli þegar Bartsch hóf
störf í Noregi, en þeir fóru ekki fram
hjá neinum á unglingaheimsmeistara-
mótinu á skíðum í fyrra. Skárdal vakti
athygli í bruni í fyrra og fáir kannast
ekki við Furuseth. Frammistaða skíða-
kappanna jók áhuga Norðmanna á
alpagreinum og fyrirhugaðir vetra-
rótympíuleikar í Lillehammer 1994
hafa losað um pyngju stjórnvalda. Þau
hafa veitt álitlega upphæð til skíða-
landsliðsins og auk þess fjárfesti fyrir-
tækið Bergesen 64,5 milljónir ÍSK. í
húsnæði fyrir lið Bartsch og Gartners
í Götzens, skammt frá Innsbruck, í
ár. Liðin hafa samastað þar á meðan
keppnistímabilið í evrópsku Ölpunum
stendur yfir og hafa það eins og heima
hjá sér.
Skárdal sagður of latur
fyrír gönguskíði
Skárdal, sem er 24 ára rafvirkji,
er frá Lunde. Hann byijaði skíðaferil-
inn á gönguskíðum, reyndi svig en
skar sig ekki úr fyrr en hann byijaði
í bruni. Hann er sagður of latur fyrir
gönguskíðin, of hægfara fyrir svigið
en rétti maðurinn í brunbrekkurnar.
Björn Li, fv. þjálfari norska landsliðs-
ins, uppgötvaði hann á heimsmeistara-
mótinu í Bomeo 1985 þegar Lasse
Amesen datt illa án þess að nokkur
veitti því sérstaka athygli. Arnesen,
sem er 25 ára og að læra arkitektúr,
er nú í hópi hinna bestu í bruni ásamt
Skárdal. Bartsch segir að þessir tveir
séu bara toppurinn á fsjakanum og
er bjartsýnn á frammistöðu norska
landsliðsins í bruni næstu árin. - Svo
það tekur því kannski að læra nöfn
eins og Didrik Marksten, Tom Stians-
en og Asgeir Linberg. Sá síðast nefndi
liggur með rifm liðabönd í Osló en
hinir tveir lentu í 55. og 60. sæti og
57. og 40. í Gröden á Italíu.
ÍÞfémR
FOLK
■ GLENN Hoddle, fyrrum leik-
maður enska landsliðsins og Tott-
enham, sem hefur leikið með
Mónakó í Frakklandi, er á heim-
leið. Hoddle hefur átt við meiðsli
að stríða í hné í eitt ár og fyrir
stuttu gekkst hann undir aðgerð í
London. Hann hefur æft með
Chelsea að undanförnu.
■ FORRÁÐAMENN Mónakó
segja að Hoddle sé besti leikmaður-
inn sem hefur leikið hjá félaginu,
en því miður hafi hann ekki ge*að
leikið með félaginu í ár.
■ PETER Shilton fékk 300 þús.
ísl. kr. í sinn hlut - eftir ágóðaleik
sem haldinn var fyrir hann, en þá
lék enskt úrvalslið gegn heimslið-
inu, en Guðni Bergsson lék með
heimsliðinu, eins og kom fram hér
á síðunni í gær. Kevin Keegan kom
frá Spáni til að leika með enska
liðinu og skoraði hann síðasta mark
liðsins, sem vann 4:0.
■ PAUL Eliott hefur óskað eftir
að vera seldur frá Celtic. Félagið
keypti hann frá Pisa á Italiu fyrir
600 þús. pund. Chelsea og QPR
hafa áhuga á að kaupa Eliott, sem
áður lék með Luton og Aston Villa.
Atle Skárdal er hér á fullri ferð í bruni.
SKIÐI / HEIMSBIKARKEPPNIN
BÆKUR
Æfinga- og kennslu-
bók í knattspymu
Bókaútgáfan IÐNÚ hefur gefið út
bókina Lærðu knattspyrnu eftir
Janus Guðlaugsson, íþróttakennara og
námstjóra í íþróttum. Bókin fjallar um
undirstöðuatriði og tækni í knatt-
spyrnu. „Bók þessi er skrifuð til að
aðstoða unga knattspyrnumenn í að
ná tökum á tækninni, en hún getur
einnig verið þjálfurum, leiðbeinendum
og öðrum áhugamönnum fróðlegt og
ánægjulegt lestrarefni," segir höfund-
ur m.a. í inngangi.
Bókin, sem er 135 blaðsíður með
heimildaskrá, skiptist í 16 kafla auk
formála, sem Þór Símon Ragnarsson,
formaður tækninefndar Knattspyrnu-
sambands íslands skrifar. Skýringar-
myndir eru 73 auk Ijósmynda.
Framarar með söludag
Framarar verða með sérstakan söludag í félagsheimili sínu við Safa-
mýri á morgun, laugardag. Það verður Framplatan og afmælisbók
félagsins til sölu. Boðið verður upp á kaffiveitingar.
------lœrðu -==
nattspyrnU
AI'OOO- osi •• ly>n oóm on ucclm^
• undil**.AA;Nt(:ió>OU .
Janus Gublaugsson
HEILSUSANIIEGAR JÓIAGJAFIR
JÓLATILBOÐ:
Lyftingabekkui með fótæfingum og 50 kg lóðasetti.
Verð aðeins kr. 15.700, StRf. 14.900. Fáanlegir aukahlutir:
Hnébeygjustandur kr. 4.484, Butterfly kr. 4.500.
Úrval af þrekhjólum
frá Kettler
V-Þýskalandi.
Verð frá
kr. 15.500,
stgr. 14.725.
Ármúla 40,
sími 35320.
AMR