Morgunblaðið - 29.12.1990, Blaðsíða 1
48 SIÐUR B
II
STOFNAÐ 1913
297. tbl. 78. árg.
LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sovéska sjónvarpið:
Hætt við þátt um af-
sögn Shevardnadze
Moskvu. Reuter.
SOVÉSKA sjónvarpið hætti í gær við að senda út þátt um afsögn
Edúards Shevardnadze utanríkisráðherra og sagði Alexander Ljúb-
ímov, umsjónarmaður þáttarins, að ákvörðunin kæmi sér illa og yki
á grun um að Sovétríkin væru á leið inn í nýja harðstjórnartíma.
Senda átti út þáttinn um afsögn
Shevardnadze í vinsælli vikulegri
dagskrá, Vzgljad eða Sjónarhorn, í
gærkvöldi, en yfirstjóm sjónvarps-
ins ákvað í gær að þátturinn skyldi
ekki sýndur. Talsmaður framleið-
enda þáttarins sagði að ágreiningur
hefði risið milli sjónvarpsstjórnar-
innar og þáttargerðarmanna en
vildi ekki skýra frá því í hveiju sá
ágreiningur fælist.
Grískir her-
foringjar
náðaðir
AJienu. Reuter.
GRÍSKA stjórnin tilkynnti í gær
að hún hygðist náða og láta lausa
þrjá herforingja sem stóðu að
valdaráninu 1967 en þá hrifsaði
herforingjaklika til sín völdin og
stjórnaði af mikilli hörku i sjö ár.
Konstantín Mitsotakis forsætis-
ráðherra sagði að stjórnin myndi
gera ráðstafanir til þess að herfor-
ingjarnir fyrrverandi gætu losnað
úr haldi fyrir áramót. Sagðist hann
hafa tryggt stuðning Konstantíns
Karamanlis forseta við ákvörðun
stjórnarinnar en hann hefur loka-
orðið í þessu máli.
Herforingjarnir þrír eru George
Papadopoulos sem stjórnaði valda-
ráninu 1967 og útnefndi sjálfan sig
til forseta, Stylianos Pattakos, fyrr-
um varaforseti, og Nikolaos Mak-
arezos. Þeir voru allir dæmdir til
dauða fyrir landráð eftir að lýðræði
hafði verið endurreist 1974. Kara-
manlis var forsætisráðherra þegar
dómarnir voru upp kveðnir en hann
fékk því framgengt að þeim var
breytt í lífstíðarfangelsi.
Ný prentfrelsislög komu til fram-
kvæmda í Sovétríkjunum 1. ágúst
sl. og í þeim fólst að opinber ritskoð-
un var aflögð. Fjöldi óháðra blaða
og tímarita spratt upp og efnistök
fjölmiðla urðu opnari og fijálslegri
en fyrr. Að undanförnu hefur þró-
unin hins vegar snúist við og ríkis-
reknir fjölmiðlar tekið mun íhalds-
samari afstöðu.
Kazimiera Prunskiene, forsætis-
ráðherra Litháens, sem nú er á
ferðalagi um Ástralíu, sagði að
Míkhafl Gorbatsjov Sovétforseti
kynni að hafa þörf fyrir hið aukna
framkvæmdavald sem sovéska
þingið fól honum í vikunni. Hún
varaði hins vegar Gorbatsjov við
því að nota aukin völd gegn lýðveld-
um sem leituðu eftir úrsögn úr so-
véska ríkjasambandinu.
Sjá ennfremur „Mun aldrei
hvika____“ á bls. 20.
Reuter
Breskir hermenn úr 1. herfylki svonefndra Grænstakka stökkva út úr Puma-herþyrlu í eyðimörk
Saudi-Arabíu í gær. Mennirnir tóku þátt í æfingu með liðsmönnum flughersins. Sljórnir Bretlands og
Bandaríkjanna sögðust í gær myndu afhenda tugþúsundum óbreyttra borgara ríkja sinna í Saudi-
Arabíu gasgrímur til að veijast mögulegri efnavopnaárás Iraka.
Stríðsbumbur barðar við Persaflóa:
Deiluaðilar vísa á bug miila-
miðlunum í Kúvæt-málinu
Bagdad, Madrid, Washington, Nicosiu. Reuter.
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti hefur ákveðið að herliðið við Persa-
flóa leggi til atlögu gegn írökum fljótlega eftir að frestur Samein-
uðu þjóðanna til 15. janúar nk. rennur út, að sögn bandaríska dag-
blaðsins Los Angeles Times í gær. Eftir þann tíma er ríkjum SÞ
heimilt að beita hervaldi gegn Irökum verði þeir ekki búnir að draga
her sinn frá Kúvæt. 17 bandarísk herskip, þ. á m. flugvélamóður-
skipin America og Theodore Roosevelt, lögðu í gær af stað til Persa-
flóa. Tareq Aziz, utanríkisráðherra Iraks, sagði í gær í viðtali við
spænskt dagblað að blóðbað væri óuinflýjanlegt ef stjórn Bush sýndi
írökum áfram „hroka“ og neitaði að ræða sjónarmið þeirra.
Los Angeles Times hafði eftir
ónafngreindum heimildarmönnum
sínum í Hvíta húsinu að Bush for-
seti myndi ekki láta almenningsálit
eða ummæli þingmanna breyta
ákvörðun sinni. Hann teldi að frek-
Vegfarendur
láta þakk-
læti íljós
Sombat Buaperm lögreglu-
þjónn hrúgar upp gjöfum á
gangstétt þar sem hann
stjórnar umferð á gatna-
mótum í Bangkok í Tæ-
landi í gær. Tælendingar
leggja í vana sinn að gefa
lögregluþjónum, sem hafa
þann vandasama starfa
með höndum að stjórna
umferðinni á götum borga
landsins, gjafír um áramót
til að láta í ljós þakklæti
sitt fyrir vel unnin störf
mannanna yfir árið.
Reuter
ari töf á aðgerðum eftir 15. janúar
myndi valda auknu mannfalli í liði
Bandaríkjamanna. Vaxandi fylgi er
meðal bandarískra þingmanna við
þá skoðun að fresta beri hernaðar-
árás, jafnvel um nokkra mánuði,
en forsetinn hyggst ekki láta hnika
sér, að sögn Los Angeles Times.
„Hann er búinn að þaulhugsa málið
og er sáttur við ákvörðun sína.
Hann segist reiðubúinn að taka
afleiðingunum, hveijar sem þær
verði, einnig því að stríðið verði
óvinsælt og kosti hann endurkjör
til forsetaembættisins," sagði einn
af heimildarmönnum blaðsins. Bush
sagðist í fýrrakvöld fullviss um að
bandaríska liðið í Saudi-Arabíu yrði
reiðubúið til átaka um miðbik jan-
úar en ýmsir aðrir ráðamenn hafa
gefið í skyn að undanförnu að lengri
tíma þyrfti til undirbúnings. Latif
al-Jassem, upplýsingamálaráðherra
Iraks, sagði í viðtali við breska út-
varpið BBC að stefnan í málefnum
Kúvæts væri óhagganleg; landið
yrði íraskt um aldur og ævi.
Varnarmálaráðuneyti Banda-
ríkjanna skýrði frá því í gær að á
næstunni yrðu bandarískir hermenn
við Persaflóa bólusettir gegn sýkla-
hernaði en talið er-að Irakar ráði
yfir sýklavopnum auk efnavppna
sem þeir beittu í stríðinu við íran.
Breska stjórnin kallaði í gær út 400
menn í varaliði hersins og er um
að ræða fólk með sérmenntun í
sjúkrahjálp; sjálfboðaliðar reyndust
ekki nógu margir. Þess má geta
að séu varaliðar kallaðir út er vinnu-
veitendum þeirra skylt að bjóða
þeim starf að nýju eftir herþjón-
ustuna, hið sama á ekki við um
sjálfboðaliða.
Stjórn Júgóslavíu:
Framtíð
ríkisins
ræðst 1991
Belgrad. Reuter.
SAMBANDSSTJÓRN Júgó-
slavíu sagði í yfirlýsingu í gær
að á næsta ári réðist hvort
ríkið leystist upp eða lifði af
sem sambandslýðveldi.
„Árið í vændum er örlagaárið,
ekki aðeins hvað varðar umbæt-
ur heldur einnig hvað varðar
afdrif ríkisins í heild,“ sagði
ríkisstjórn Júgóslavíu í yfirlýs-
ingu sem hún birti þingi lands-
ins.
„Erlendis er Júgóslavía talin
eitt hættulegasta átakasvæðið í
Evrópu og sumir telja jafnvel
að landsmenn séu á barmi upp-
lausnar og borgarastyijaldar."
Þessa tilvitnun tók júgóslavn-
eska fréttastofan Tnnjug úr yfir-
lýsingunni.
Sjá „Yfirvöld vara við ..
á bls. 20.