Morgunblaðið - 29.12.1990, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.12.1990, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 1990 Vagn Margeir Hrólfsson Gunnar Örn Svavarsson Fórust með Hauki ÍS Bolungarvík. MENNIRNIR tveir sem leitað hefur verið að frá því bátur þeirra, Haukur ÍS 195, fannst mannlaus í ísafjarðardjúpi 18. desember sl. eru taldir af og skipulagðri leit verið hætt. Félagar úr Björgun- arsveitinni Erni leita þó með ströndum og á fjörum eftir því sem veður leyfir næstu daga. Mennimir sem'fórust voru: Vagn Margeir Hrólfsson, skip- stjóri, til heimilis á Þjóðólfsvegi 5 í Bolungarvík. Hann var 52 ára gamall, fæddur 25. apríl 1938, og lætur eftir sig eiginkonu, Bimu Hjaltalín Pálsdóttur, og sjö upp- komin böm. Gunnar Örn Svavarsson, háseti, Traðarlandi 19 í Bolungarvík. Hann var 29 ára, fæddur 3. janúar 1961, og'lætur eftir sig eiginkonu, Margréti Vagnsdóttur. Gunnar Örn var tengdasonur Vagns og Birnu. Gunnar Fá að taka einn til tvo loðnufarma sem greiðslu - stærstu og fullkomnustu skipin valin til leitarinnar, segir sjávarútvegsráðherra „ÞAÐ er mikið í húfi hvað varðar mögulegar loðnuveiðar eftir ára- mótin og til rannsókna á því sviði verður ekki sparað. Eg hef kynnt það fyrir ríkissljórninni hvernig að þessu verður staðið og þann kosiiaðarauka umfram fjárhagsáætlun Hafrannsóknastofnunar, sem hlýzt af rannsóknunum, sem höfðu ekki verið áætlaðar," segir sjávar- útvegsráðherra. Skipin 6, sem verða við rannsóknirnar með rann- sóknarskipunum, fá leyfi til að taka einn til tvo farma af loðnu sem greiðslu, en þau voru valin eftir stærð og burðum til leitar við erfið- ar aðstæður. Hjálmar Vilhjálmsson, fiskifræð- ingur, verður leiðangursstjóri í leit- inni, en rannsóknarskipin tvö Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson, leggja úr höfn um hádegi annan janúar og loðnuskipin eins fljót og unnt verður eða að áliðnum þeim degi. Hlutverk loðnuskipanna verð- ur bein leit og munu rannsóknar- skipin síðan stunda mælingar í sam- ræmi við árangur af leitinni. Þann- ig nýtist tími állra skipanna bezt að mati Hjálmars. Hjálmar telur að með þessu móti eigi að nást við- VEÐUR VEÐURHORFUR / DAG, 29. DESEMBER YFIRLIT í GÆR: Á Grænlandshafi er minnkandi 952 mb lægð og þaðan skarpt lægðardrag austur um sunnanvert landið. Millí ís- lands og Jan Mayen er álíka lægð og skammt suðaustur af landinu er vaxandi 950 mb lægð sem fer norðaustur. SPÁ: Stinningskaldi syðst á landinu en norðaustan gola eða kaldi í öðrum landshlutum. Víða él, einna síst vestanlands og í innsveit- um á vestanverðu Norðurlandi. Frost 3-10 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Norðlæg átt, víðast frem- ur hæg. Él um landið norðanvert en bjart veður syðra. Frost 3-8 stig. x Norðan, 4 vindstig: * Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma 0 Hitastig: 10 gráður á Celsíus X/ Skúrir * V E1 — Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —j- Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti voður Akureyri +8 léttskýjað Reykjavík +3 snjóél Bergen 6 alskýjað Helsinki 2 skúr Kaupmannahöfn 2 skýjað Narssarssuaq +18 skýjað Nuuk +18 skafrenningur Osló 0 alskýjað Stokkhólmur 1 iéttskýjað Þórshöfn 4 slydda Algarve 15 alskýjað Amsterdam 6 rigning Barcelona 13 léttskýjað Berlín 3 léttskýjað Chlcago +1 þokumóða Feneyjar 2 þoka Frankfurt 8 skýjað Glasgow A skúr Hamborg 4 skýjað Las Palmas 19 skýjað London 10 rigning Los Angeles 12 heiðskfrt Lúxemborg 2 skýjað Madrfd 9 Þokumóða Malaga 17 iéttskýjað Mallorca 12 hálfskýjað Montreal +8 snjókoma New York 2 alskýjað Orlando 26 skýjað Parfs 7 rigning Róm 9 heíðskfrt Vín 2 heiðskfrt Washlngton 0 þokumóða Winnipeg +23 skafrenningur unandi yfirferð yfir loðnusvæðið norður og austur af landinu á sem skemmstum tíma. Boðað hefur verið til fundar með skipstjómarmönnum loðnuskipa í Borgatúni 18 árdegis í dag að frum- kvæði FFSÍ og mun Hjálmar Vil- hjálmsson kynna þar rannsóknar- áætlun Hafrannsóknastofnunar. Skipin, sem hafa verið valin til þátttöku í leiðangrinum eru Börkur NK, Hólmaborg SU, Helga II RE, Hilmir SU, Víldngur AK og Júpíter RE. Halldór Ásgrímsson, sjávarút- vegsráðherra, segir að mikill áhugi hafi verið á þátttöku í leiðangrinum meðal útgerðarmanna og til greina hefði komið að draga um það hvaða skip yrðu fyrir valinu. Sú leið hefði hins vegar verið ákveðin, að velja til fararinnar skip úr hópi þeirra stærstu og fullkomnustu, sem ekki ætluðu til annarra verkefna. Niður- staðan hefði orðið fyrrgreind skip, en ákveðið hefi verið að ekki yrði nema um eitt skip frá hverri útgerð að ræða. Halldór segir það mikil- vægt að til leitarinnar veljist skip, sem geti stundað veiðar við erfiðar aðstæður enda sé allra veðra von á þessum tíma og frátafir vegna veð- urs komi sér iila. Náist einhver afli við leitina verður skipunum heimilt að taka einn farm (um og yfir 1.000 tonn) fyrir hveija byijaða viku, en talið er að verkefninu ljúki á 14 dögum eða skemmri tíma. Veiðist engin loðna, verður ekki um neina greiðslu til skipanna að ræða. Rannsóknir þessar voru ekki á fjárhagsáætlun Hafrannsókna- stofnunar og því þarf að koma til viðbótarfé frá hinu opinbera eigi aðrar rannsóknir ekki að skerðast. Sjávarútvegsráðherra kynnti þessa stöðu á ríkisstjórnarfundi í gær- morgun: „Þessi leiðangur mun kosta töluvert fé umfram það, sem áætlað var við rekstur Hafrann- sóknastofnunar, en engu verður til hans sparað. Eg vildi ekki binda hendur ríkissjóðs hvað varðar fjár- framlag án þess að kynna það inn- an ríkisstjórnarinnar og það hef ég gert,“ segir Halldór. Þess má geta hvað varðar aftur- köllun leyfa til loðnuveiðanna, að gert hafði verið ráð fyrir því, að meirihluti íslenzku loðnuskipanna hæfi veiðar strax eftir áramót. Jafn- framt höfðu Norðmenn ætlað sér að taka einn túr hér við land, áður en veiðarnar í Barentshafi yrðu heimilaðar 15. janúar. Alls mega 25 norsk loðnuskip vera samtímis innan íslenzku lögsögunnar, sam- kvæmt samningi það að lútandi milli þjóðanna. Með afturköllun veiðileyfanna, verður ekkert um þessa fyrirhuguðu veiði. I janúar og febrúar í fyrra veiddust um 300.000 tonn hvorn mánuð. Miklar endurbætur nauðsynlegar á Oðni VARÐSKIPIÐ Óðinn þarfnast á næstunni viðgerða og endurbóta fyrir um 350 milljónir króna, eigi skipið að nýtast við landhelgisgæslu til frambúðar, að sögn Gunnars Bergsteinssonar, forstjóra Landhelgis- gæslunnar. Að sögn hans er brýn þörf á að skipta um vélar skipsins og gera gagngerar endurbætur á flestu öðru en skrokki þess. Fyrr- greind upphæð nemur um tveimur þriðju hlutum af smíðaverði varð- skipa sem vitað er til að smíðuð hafi verið erlendis nýlega. Að sögn Gunnars Bergsteinssonar er sérstaklega brýnt að skipta um báðar aðalvélar Óðins en þær hafa verið í skipinu frá upphafi, þarfnast tíðra viðgerða og varahluta sem nú orðið þarf að láta sérsmíða. Þá fer því fjarri að vistarverur skipveija fullnægi kröfum tímans hvað hita og einangrun snertir. Landhelgisgæslan gerir nú út þijú skip: Tý, sem er smíðaður 1975, Ægi, smíðaðan 1968, og Óðinn, sem smíðaður var 1960, og er eitt elsta skip íslenska flotans. Að sögn Gunn- ars Bergsteinssonar, skortir nokkuð á að unnt sé að sinna öllum beiðnum um aðstoð með þessum skipakosti. Gunnar Bergsteinsson segir—að engar ákvarðanir hafí verið teknar um hvað verði "gert í þessum málum og að ekkert fé hafi verið veitt til þess verkefnis. Sú könnun.sem liggi að baki ofangreindum tölum hafí ein- ungis verið gerð til að menn gætu undirbúið -að taka innan um það bil tveggja ára ákvörðun um hvaða úr- bætur eigi að gera á skipakosti gæsl- unnar. 97.648 íbúar í Reykjavík 1. desember 1990: Ibúum Breiðholts fækkar um 213 frá fyrra ári ALLS voru 97.648 manns með lögheimill í Reykjavík þann 1. desember síðastliðinn, samkvæmt yfirliti Hagstofunnar. Þar af voru karlar 47.395 og konur 50.253 eða 2.858 fleiri en karlar. Breiðholt er sem fyrr fjöl- mennasti bæjarhlutinn með 23.643 íbúa og hefur fækkað þar um 213 manns síðan í fyrra. íbúum Árbæjar hefur fjölgað mest, einkum í Grafarvogshverfi, og voru 1. desember alls 13.731, þar af 5.454 í Graf- arvogi. Fjölgun í Árbæ er 1.124, þar af 926 í Grafarvogi. Hraunbær er eins og í fyrra lang fjölmennasta gatan með 2.415 íbúa. Árið 1980 voru íbúar Reykjavíkur 83.449 og hefur þeim því fjölgað um 14.199 á síðastliðnum áratug, eða um 17%. 72.991 er á kosningaaldri. Á aldrinum • 0-6 ára eru 10,8% Reykvíkinga, 17,5% eru 7-18 ára, 60,2% eru 19-66 ára og 11,6% eru 67 ára og eldri. Hæst hlutfall barna og lægst hlut- fall aldraðra er í Grafarvogi. Þar eru 17,3% íbúa 6 ára og yngri, 25% eru 7-18 ára og 1,6% eru 67 ára og eldri. Hæst hlutfall eldra fólks er í Voga- og Langholtshverfi, þar eru 22,8% íbúa 67 ára og eldri, 21,1% eru 18 ára og yngri. Af einstökum götum hefur Hraun- bær lang flesta íbúa, 2.415. Næst flestir búa við Vesturberg, 1.458. Við Kleppsveg búa 1.429, við Háa- leitisbraut 1.295 og 944 við Lang- holtsveg. Alls eru 54 götur skráðar með færri en 10 íbúa, þar af eru 17 göt- ur með einn íbúa skráðan.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.