Morgunblaðið - 29.12.1990, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 29.12.1990, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 1990 Ást er... IO-1? ... að standast hann ekki. TM R®q. U.S. Pat Otf.—all ríflhta raaarvad © 1990 Loa Angalaa Timea Syndicata Og hvað sparast, segðu mér það ...? Auðvitað er ég í æfingu. — Hvert sinn sem ég stend upp lyfti ég 130 kg ... HÖGNI HREKKVÍSI Dræm kirkjusókn Til Velvakanda. „Lengi getur vont versnað", sagði danski presturinn Thorkild Grosböll. Hann var að koma frá guðsþjón- ustu, og sem svo oft áður var að- eins einn mættur. í þetta sinn var það þó ekki eiginkonan. „Kirkjan er eina opinbera stofnunin í Dán- mörku, sem ekki þarf að spara,‘‘ sagði Claus Oldenburg prestur. í Stefánskirkju í Kaupmannahöfn var gyllingin farin að mást af predikun- arstólnum. Söfnuðurinn (sem sjálfir fóru sjaldan í kirkju) heimtuðu nýja gyllingu á stólinn, úr skíru gulli. Þá gekk jafnvel fram af sóknar- prestinum, Anne Braad. í Davíðs- kirkju varð að aflýsa sex af tíu boð- uðum guðsþjónustum af því að eng- inn mætti. Þrátt fyrir þetta heimt- aði biskupinn að presturinn og fimm meðhjálparar mættu kl. 9 að morgni hvern sunnudag. Ef nú öll sóknarbörn þjóðkirkj- unnar í miðborginni ákveða að fara í kirkju sama dag, þá gæti t.d. Marmarakirkjan hæglega rúmað allan söfnuðinn. Samteru 13 kirkjur með tilheyrandi prestum meðhjálp- urum, kórum o.s.frv. í miðborginni einni. Kirkjan þjáist af andarteppu, fólk fer ekki í kirkju, samt má ekki spara eyri neinstaðar, og nú eru útgjöld til þjóðkirkjunnar komin yfír 30 milljarða í ísl. peningum (3 millj- arða d.kr.) „Á Nörrebro gætum við hæglega lokað 8 af 10 kirkjum," segir Anne Braad prestur í Stefánskirkju. Við verðum okkur til athlægis, segja þessir prestar þegar við verðum að halda guðsþjónustu með organista, kór og tilheyrandi ef einn vegfar- andi villist inn í kirkjuna á sunnu- dagsmorgni. Grosböll prestur hefur þó oft orðið fyrir þessari hneisu. í dag mætir fólk í kirkju eins og um sjónleiki, eða tónleika væri að ræða. Fólk hefur fengið boðskort um skírn, brúðkaup, fermingu eða jarðarför, og kirkjusóknin er aðeins liður í þessari athöfn. Síðast þegar Grosböll prestur messaði var aftur aðeins einn mætt- Besta jólagjöfin mín Til Velvakanda. Ég er búin að fá jólagjöfina mína í ár. Þannig er mál með vexti, að kona nokkur, sem les fyrir sjúklinga á öldrunardeild B-5 á Borgarspítal- anum, gaf mér óvænta jóiagjöf. Ég hafði rætt um það við þessa konu, að ég hafi verið búin að hjálpa börn- um í vanþróuðum löndum í 12 ár með því að senda. mánaðarlega greiðslu (í dag 1.300 kr.) bréf, myndir og gjafir sem allt hefur komist til skila, og var þessi elsku- lega kona glöð að til væri leið að hjálpa þessum börnum á persónu- legan hátt. Hafði hún strax áhuga á að taka eitt barn að sér, og gerði hún sig, mig og væntanlegt fóstur- barn glöð með þessari ákvörðun. Ef einhver sem les þetta hefur áhuga á að hjálpa þannig einu barni, þá er heimilisfangið: Borne- fonden, 0sterbrogade 85, DK-2100 Kobenhavn 0, Danmark (eða Christian Children’s Fund, Inc., P.O. Box 26511, Richmond, Virgin- ia 232661, eða CCF, 52 Bedford Row, London WCIR 4LR, England, eða CCF Kinderhilfswerk e.V., P.O. Box 1105, D-7440 Nuertingen, Germany). Ég sjálf tilheyri láglaunafólki í þessu landi, en ég get hjálpað þess- um börnum af því að Drottinn ger- ir það mögulegt fyrir mig. „Og Jes- ús sagði: Þér eruð ljós heimsins; borg, sem stendur uppi á fjalli, fær ekki dulist. Ekki kveikja menn held- ur ljós og setja það undir mæliker, heldur á ljósastikuna. Og þá lýsir það öllum, sem eru í húsinu. Þann- ig lýsi ljós yðar mönnunum, til þess að þeir sjái góðverk yðar og veg- sami Föður yðar, sem er í himnun- um,“ Matteus 5:1.4-16. S.R.H. ur, herra biskupinn ... Danir skella skollaeyrum við guðsorði, en boð- berum fagnaðarerindisins hefur þó orðið ágengt annars staðar, eðá meðal heiðingja í vanþróuðum lönd- um. Sagan segir þannig frá trúboðs- starfsemi í Mið-Afríku ríki þar sem heilt hérað snerist til kristinnar trú- ar á innan við þremurárum. Trúboð- arnir höfðu þá líka komið færandi hendi. Handa þeim yngstu höfðu þeir brjóstsykur og karamellur, plastleikföng og gúmmídúkkur. Handa þeim eldri glansmyndir af englabörnum og heilögu fólki, svo og spægipylsu og Havarti ost handa fullorðna fólkinu. Engin furða þótt hinum hvíta manni yrði tekið fagn- andi. Eins og fyrr segir varð trúboð- unum mjög ágengt, og eftir þrjú ár hafði allur hinn blakki söfnuður tekið hina „einu réttu trú“. Nú fannst hinum þeldökku trú- bræðrum tími til að launa greiðann, og jafnframt lék þeim forvitni á að iíta það land, þaðan sem allur fagn- aðarboðskapurinn kom. Gerður var því út leiðangur átta kvenna, með nesti og nýja skó, skyldu þær kynn- ast þessu fyrirheitna iandi trúarinn- ar betur, en miðla svo hinum af þekkingu þegar aftur var heim snú- ið. Skemmst er frá því að segja að það voru átta vonsviknar blökku- konur sem sneru heim aftur eftir vikudvöl í fyrirheitna landinu, ein- mitt því landi sem þær höfðu hugs- að sér sem Paradís trúarinnar á jörðu. í Danmörku fengu þær niðrandi og háðulegar móttökur þegar þær báru upp erindi sitt. Fæstir Danir virtu þær viðlits. Enginn virtist þekkja guð, allir ypptu öxlum og brostu þegar þær fóru að tala um trú og heilaga ritningu. Jafnvel prestamir hristu höfuðuð þegar tal- ið barst að guði, himnaríki og Paradís, og öllu því sem þær sjáifar þekktu svo vel. Úti á götu var hrópað á eftir þeim. „Snáfið heim“, „Það er fýla af ykkur“, „Negrakerlingar" og þaðan af verri háðsglósur. En þetta voru frómar, guðhræddar og góðar konur, og þegar þær yfirgáfu landið, daprar og vonsviknar sögðu þær þó einum rómi, „við komum aftur, sannið til, en næst þegar við komum verður það til að kristna Danina".!!! Manni er svo spurn rétt í lokin. Hvenær heimta íslenskir prestar að kirkjum landsins verði lokað? Richardt Ryel /,HANN EfZ EKKI 8/ARA V«MDn!'S/NN HANKj ER. FJÁRRASSLEGA SjÁlFStÆÐ0«2. Yíkveiji skrifar Um áramótin er flestum verslun- um lokað vegna vörutalning- ar í einn eða tvo daga. Með tölvu- tækni nútímans eru slíkar vörutaln- ingar óþarfar, ný tölvuvædd lager- kerfi sjá um að halda öllum skrám réttum og í þeim verslunum sem búa við slíka tækni þarf því ekki að grípa til þess hvimleiða ráðs að loka. Þannig eru því m.a. háttað í nýjustu áfengisbúðunum og hjá Bónus-verslununum. Þessi tækni breiðist óðfluga út og telur Víkveiji að sú tíð sé brátt á enda, að verslun- um þurfi að loka vegna vörutalning- ar. XXX Undanfarna daga hefur verið mikil sala í hlutabréfum þeirra íslensku fyrirtækja, sem eru á hlutabréfamarkaði. Astæðan er, að séu keypt hlutabréf fyrir ára- mót, fæst verulegur skattaafsláttur og jafnvel endurgreiðsla í ágúst á næsta ári. Tilgangur þessara endur- greiðslna er að örva kaup almenn- ings á hlutabréfum og beina sparifé inn í atvinnulífið. Ávöxtun bréfanna er mjög mikil fyrsta árið fyrir sakir þessa skattaafsláttar, en Víkverji veltir því fyrir sér hversu hollt þetta fyrirkomulag er íslenskum hluta- bréfamarkaði. Ef fólk kaupir hluta- bréf fyrst og fremst vegna skattaaf- sláttar, en veltir því minna fyrir sér hvort viðkomandi fyrirtæki sé vel rekið, þá er hætt við því að íslenski hlutabréfamarkaðurinn verði lengi að þroskast. Góður hlutabréfamark- aður ætti að gefa til kynna hversu vel fyrirtækin eru rekin; eftirspurn ætti að vera mest eftir þeim bréf- um, þar sem hagnaður er mestur á hlut. Núverandi fyrirkomulag veitir fyrirtækjunum miklu minna aðhald og segir minna til um stöðu þeirra en ef skattaafslátturinn yrði afnum- inn. XXX Aaugljóslega er kirkjusókn meiri um þessar mundir en á siðast- liðnum árum. Víkveiji fór tvisvar í Bústaðakirkju um jól og aðventu og í bæði skiptin var kirkjan full út úr dyrum — bókstaflega. í safn- aðarheimili kirkjunnar eru rúmgóð- ir salir sem hægt er að opna inn í kirkjuna og fylltust þeir einnig. Víkveiji hefur á tilfinningunni að töluverð viðhorfsbreyting hafi orðið tii trúar og kirkjusóknar á síðustu árum. Að minnsta kosti má sjá mun fleira ungt fólk við messur nú en oft áður. Aðventan hefur fengið aukið vægi á undanförnum árum; þá eru oft haldnar samkomur og tónleikar í kirkjunni, sem eru utan við ramma hins hefðbundna kirkju- starfs. Af aðsókn á slíkar samkom- ur er ekki hægt annað en draga þá ályktun, að meira þyrfti að gera af slíku. Til dæmis mætti hugsa sér að á föstunni yrði samkomu- og tónleikahald til undirbúnings pásk- unum, sem þrátt fyrir allt jólatil- standið er auðvitað mesta kirkju- hátíð ársins. 7^=X í

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.