Morgunblaðið - 29.12.1990, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 1990
41
Vald ráðherra
Blaðberar
Vesturbær
Morgunbláðið óskar eftir blað-
berum í eftirtalin hverfi:
Oddagötu og Aragötu.
Ægisíðu.
Ennfremur vantarblaðbera í
Skerjafjörð, norðan flugvallar.
Austurbær
Austurgerði og Byggðarenda.
Breiðholt
Stekki
Kópavogur
Kársnesbraut
Hressandi morguntrimm sem borgarsig.
Upplýsingar eru gefnar í síma 691253.
Til Veivakanda.
Það er ekki lítið vald sem ráð-
herra fær í hendur þegar hann virð-
ist geta ráðið hvaða byggðarlag fer
í eyði og hvaða byggðarlag fær
náðarsamlegast að tóra. Hann leyf-
ir sér að segja í útvarpið í eyru
alþjóðar að hann geti vel hugsað
sér að veita aukakvóta þegar at-
vinnuleysi er orðið svo mikið í
ákveðnum plássum á landsbyggð-
inni að þau séu að leggjast í eyði.
Mánudaginn 3. desember komst
ráðherra þannig að orði, að hann
gæti t.d. vel hugsað sér að Grímsey
fái að haldast í byggð og jafnvel
Borgarfjörður-eystri og Bakka-
fjörður, auka mætti trillukvóta til
þessara þorpa til að þau legðust
ekki í eyði (þvílíkur rausnarskap-
ur). Væri nú ekki alveg tilvalið fyr-
ir framsóknarfólk í þessum plássum
að festa sér þetta vel í minni og
verðlauna svo framsókn í næstu
kosningum í samræmi við það?
í sjávarútvegsráðuneytinu hefur
ríkt þannig hentistefna að eitt er
samþykkt í dag og síðan rifið niður
næsta dag. Um eitt er ég sammála
Halldóri Asgrímssyni, að fískiskipa-
stóllinn sé of stór miðað við þá
tækni, sem hann hefur yfir að búa.
En hefur Halldór nokkuð spornað
þar við? Svarið er nei, ef marka
má öll þau skip, sem smíðuð hafa
verið erlendis undanfarin ár.
TÝNDUR
KÖTTUR
Kötturinn á myndinni tapaðist
frá Þórufelli 14 laugardaginn 15.
desember. Kisi gegnir nafninu Dep-
ill, þeir sem hafa orðið varir við
hann eru vinsamlegast beðnir að
hringja í síma 670062 eða 71381.
Það er alveg ljóst að lýðræðinu
er mjög hætt komið þegar einum
ráðherra er falið það vald í hendur
að hann geti stjórnað með tilskipun-
um, svo sem kom berlega í ljós er
sjávarútvegsráðherra hótaði al-
kunnum aflaskipstjórum að setja
veiðibann á þá ef þeir sigldu ekki
skipum sínum strax í land. En þeir
hugðust halda áfram loðnuveiðum
í trássi við valdboð ráðherra. Það
sýnir svo hentistefnu hans að hann
sendir skip til loðnuleitar til að firra
sig frekari mótmælum sjómanna.
Ég hef hér í fáum orðum fjallað
um vald ráðherra, ekki til að gerast
dómari, heldur aðeins að vekja at-
hygli á því hvernig menn beita því
valdi, sem þeir telja sig hafa.
Karl Ormsson,
raftækjavörður.
Ósannindi
Til Velvakanda.
Nú gengur yfir mig. Islensku þjóð-
inni hefur tekist það ótrúlegasta, að
dæma Sjálfstæðisflokkinn fyrir að
sprengja svokallaða þjóðarsátt með
því að þingmenn Sjálfstæðisflokks-
ins skuli voga sér að kjósa á móti
bráðabirgðalögum ríkisstjórnarinn-
ar. Hvað um Kvennalistann og
stjórnarliða sem einnig ætla að kjósa
á móti? Hvað er að? Þegar Davíð
Oddsson borgarstjóri lýsti lögleysu
ríkisstjórnarinnar yfir hvað eftir
annað í sjónvarpsþætti með
Steingrími Hermannssyni voru orð
hans höfð að engu.
Þegar Persaflóadeilan kom til
umræðu hér á íslandi þá sagði for-
sætisráðherra að íslendingar ættu
að aðstoða flóttamenn. Allt gott um
það að segja. En forsætisráðherra
bætti við, „en við tökum ekki þátt
í hernaðaruppbyggingu við Persa-
flóa“. Þetta eru ósannindi. ísland er
NATO-þjóð og er að taka þátt í
hernaðaruppbyggingu við Persaflóa
hvort sem okkur líkar betur eða
verr. Við skulum vona að Saddam
Hussein hugsi ekki að herstöðin á
Keflavíkurflugvelli sé honum hættu-
leg, annars eigum við ekki von á
góðu. Að lokum vil ég benda lands-
mönnum á að lesa grein eftir dr.
Hannes Hólmstein Gissurarson um
þjóðarsáttina í Pressunni 6. desemb-
er. Frábær lexía í hagfræði. Við eig-
um að þakka Guði fyrir að dr. Hann-
es skuli nenna að vera með okkur
hér á íslandi.
Vilhjálmur Alfreðsson
AUGLÝSING
UM INNLAUSNAFtVERÐ
VERÐTRYGGEIRA
SPARISKIRTEINA RlKISSJÓES
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* 10.000 GKR. SKÍRTEINI
1975-1. fl. 10.01.91-10.01.92 kr. 19.532,32
1975-2. fl. 25.01.91-25.01.92 kr. 14.744,83
1976-1. fl. 10.03.91-10.03.92 kr. 14.045,24
1976-2. fl. 25.01.91-25.01.92 kr. 10.675,34
197V-1.fl. 25.03.91 -25.03.92 kr. 9.963,65
1978-1.fl. 25.03.91-25.03.92 kr. 6.755,61
1979-1. fl. 25.02.91 -25.02.92 kr. 4.467,21
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* Á KR. 10.000,00
1981-1 .fl. 25.01.91-25.01.92 kr. 180.357,77
1985-1. fl.A 10.01.91-10.07.91 kr. 44.290,93
1985-1 .fl.B 10.01.91-10.07.91 kr. 29.512,92**
1986-1. fl.A 3ár 10.01.91-10.07.91 kr. 30.529,16
1986-1. fl.A 4ár 10.01.91-10.07.91 kr. 32.729,89
1986-1. fl.B 10.01.91-10.07.91 kr. 21.766,86**
1986-2. fl.A 4ár 01.01.91-01.07.91 kr. 28.099,85
1987-1. fl.A 2ár 10.01.91-10.07.91 kr. 24.405,86
1987-1. fl.A 4ár 10.01.91-10.07.91 kr. 24.405,86
1986-1. fl.SDR 10.01.91 kr. ***
1988-1. fl.SDR 11.01.91 kr. ***
1988-1.fl. ECU 11.01.91 kr. ***
‘Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót.
**Við innlausn fylgi ógjaldfallnir vaxtamiðar spariskírteinis.
***Sjá skilmála.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðsferfram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, desember 1990
SEÐLABANKIÍSLANDS